Þjóðviljinn - 11.06.1978, Side 17
Sunnudagur 11. júni 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
i næstu vei5fer6 á Júpiter kemur
Þorbjörn meö hið nýja komma-
blaö, Verkalýösblaðiö. Tryggvi
fær fréttir af þvi, aö nú sé
Þorbjörn ekki lengur meö
Alþýðublaðið, heldur sé hann
kominn með ennþá róttækara
blað nokkurs konar Stalínsblað
(Rússlandsblað). Það lá vel i ból-
ið hjá skipstjóranum á Júpiter og
gott veður. Hann var að fiska við
hraunið á Selvogsbanka, en þar
var Tryggvi manna kunnugastur.
Tryggvi var að fylla dekk af fiski
á Júpiter. Opinn var brúarglugg-
inn á stjórnborða. Þá er það
Tryggvi, sem hrópar til
Þorbjörns og segir: „Þorbjörn,
hver skapar alla þessa kommún-
ista um borð i Júpiter? ” „Það eru
menn eins og þú, faðir góður”
svarar Þorbjörn um leið. Tryggvi
var fljótur að láta aftur gluggann.
Svona perlur, sem eru ekki á
hvers manns vörum i dag, tel ég
nauðsynlegt að lifi. Þorbjörn i
Júpiter, sem gat beðið Tryggva
um að hjálpa sér fyrir flösku, ef á
þyrfti að halda, þvi Þorbjörn var
ölkær stundum, en sóma dregur
og greindur vel, og vikingur til
allra verka. Blessuð sé minnig
Þorbjörns heitins Friðrikssonar
frá Gröf. Heimildarmaður minn
fyrir þessum perlum er Ragnar,
margra ára skipsfélagi Þor-
björns, þvi þeir voru allan timann
saman á Júpiter.
Á Venusi
Haustftf 1941 réðist Ragnar á
togarann Venus, en þar var út-
gerðarmaður Loftur Bjarnason
ásamt hinum stórbrotna skip-
stjóra Vilhjálmi Árnasyni, lands-
frægum aflamanni, sem og hinir
skipstjórarnir sem hér hafa verið
nefndir á undan. Tryggvi Ófeigs-
son og hinn mikli aflaskipstjóri
Bjarni Ingimarsson voru
sameignarmenn; það skal fram
tekið, að eftir að Tryggvi hætti
með Júpiter, þá var Ragnar i
plássi hjá Bjarna, eftir að hann
tók við skipinu. Ragnar var allt
striðið sem kyndari á Venusi, og i
afleysingum sem 2. vélstjóri.
Hann endaði svo sitt kyndara-
starf á Vénusi meö Þorsteini
Eyjólfssyni, er hann tekur við
skipinu af Vilhjálmi. Þorsteinn
reyndist mikill aflamaður á sin-
um starfsferli, sem skipstjóri.
Þetta sýnir vel i hvaða skipsrúmi
Ragnar var, þvi allir þessir skip-
stjórar gerðu miklar kröfur til
sjálfs sin, og ekki hvað sist
undirmanna sinna. Þeir vissu
hvað það gilti fyrir skipstjóra og
útgerðina að hafa ávallt góða
áhöfn á togurunum.
Yfir öll striðsárin er Ragnar
aðeins 2 túra i iandi, þvi ef hann
fór ekki sem kyndari, þá var hann
beðinn að sigla sem vélstjóri,
enda alveg frágangssök að fá af-
leysingamenn i vélarúm, þvi það
var talin aðal dauðagryfjan á
skipinu. Enda horfði Ragnar á
mörg skip fara á botn með skot,
sem hæfði vélarúm skipsins og
.brú. Þetta voru aðal skotmörk er
árás var gerð á skipin. Ég er nú
rétt að byrja að skrá i handrit
sögu hafnfirskra sjómanna, er
sigldu yfir striðsárin, og ég er
viss um að þar skipar Ragnar
háan sess, ef hann er þá ekki i
fyrsta sæti sem slikur, hvað
túraf jölda varðar milli tslands og
Englands yfir heimsstyrjöldina,
sem stóð frá haustnóttum 1939 til
vorkomu 1945. Þetta var mikið
álag, sem hann lagði á sig, og átti
þaö eftir að koma fram á honum
siðar.
Eftírköst stríðsins
Þegar svo Ragnar fer i land,
hóf hann vélgæslustörf I togurum
hér i Hafnarfiröi i mörg ár, er
þeir lágu i höfn við losun og til
viðgerðar. Þvi er það eitt sinn er
hann var um borð i b/v Júli, en
þaö var árið 1957, að hann veiktist
skyndilega. Hann er fluttur frá
störfum úr vél og á sjúkrahús.
Þessi veikindi stóðu yfir i 5 ár.
Hann varð aldrei sá sami á
heilsu. Snorri Hallgrimsson ann-
aðist Ragnar i hans miklu veik
indum. Hann fann ekki þennan
sjúkdóm i skýrslum hérlendis.
Það er ekki fyrr en Snorri leitar á
náöir herlækna suöur á Keflavik-
urflugvelli, að þeir komast að þvi
hvaða sjúkdóm Ragnar gengur
með. Þetta var þá sjúkdómur,
sem algengur var að kæmi fram
meðal orrustuflugmanna i
bandariska hernum, eftir 6,8 og
10 ára dvöl i landi frá styrjaldar-
lokum. Þá var að koma fram sú
áreynsla og spenna, er þessir
aðilar höfðu lifað við með þvi að
vera i fremstu viglinu alla heims-
styrjöldina og lifað hana af.
Sjómannafélagið
Þvi þarf engan aö undra þó vin-
ur minn Ragnar skipaði sér undir
baráttumerki þjóðar vorrar,
„Island herlaust land um aldur og
ævi, annað sæmir ekki vopnlausri
þjóð”. Þetta var kjörorð Ragnars
til fósturjarðarinnar. Ragnari
var lika oft hugsað til þeirra
aðila, karla og kvenna, og hinna
vantrúuðu Nató-dýrkenda, sem
nú grafa um sig á sama hátt og
þeir aðilar, sem voru uppi hið
mikla söguár i minningu þjóðar,
árið 1262, og kostaöi þjóðina sex
aldir að öðlast sjálfstæði að nýju.
Þvi sú þjóð sem gengur með
betlistaf i hendi á sviði fjármála,
sem Island gerir i dag um allan
heim, á ekki langt til þeirrar
stundar að missa sjálfstæði sitt.
Hér taldi hann einnig, að nefndir
aðilar væru með tilkomu hersins
á Miðnesheiði að búa þjóðinni þá
hættu að reisa hér tortimingar-
hreiður i föðurlandi sinu um
ósjáanlega framtið, sem gæti leitt
siöar til tortimingar alþjóðar, ef
styrjöld brytist út i heiminum.
Hér hugsar og talar maður
með staðgóða þekkingu og lifs-
reynslu að baki. Hann sigldi i
heimsstyrjöldinni sem einlægur
og sannur sonur sinnar þjóðar, og
dró hvergi af sér. Hann vildi einn-
ig hverfa héðan til móður jarðar.
Honum varð að ósk sinni.
Þegar Ragnar gerðist starfs-
maður Hafnarfjarðar var þess
óskað, að hann segöi sig úr
Sjómannafélagi Hafnarfjarðar,
þvi að á meðan hann væri
meðlimur i þvi nyti hann ekki
sama kaups og sá maður, sem
starfaði á móti honum, þrátt fyrir
að Ragnar ætti þar lengri starfs-
dag; og það er ekki fyrr en ég fer
til Vilhjálms Skúlasonar bæjar-
fulltrúa og greini honum frá þvi,
hvernig komið er fram við
Ragnar i kaupgjaldsmálum, og
var Einar Þorsteinsson starfs-
maður á móti Ragnari honum
hjálpsamur i þessu atriði, þvi svo
vel fór á milli þeirra i samstarfi.
Hér sést best hugur sá er Ragnar
bas til sins gamla upprunafélags,
Sjómannafélags Hafnarfjarðar.
Hann sagði mér sjálfur, að heldur
yrði hann á lægra kaupi en að
verða að yfirgefa félag sitt, sem
var stór hluti af hans stórmerka
starfi, sem hann vann á hafinu
meðan þar var hans aðalstarfs-
dagur. En hann var hálfa öld i
sjómannafélaginu.
Að leiðarlokum
13. desember 1941 verða þátta-
skil i lifi Ragnars. Þvi þann dag
gengur hann að eiga Ingibjörgu
Jósefsdóttur frá Atlastööum i
Norður-lsafjarðarsýslu. Þetta
taldi hann mikinn gæfudag i lifi
sinu, aö fá að njóta lifsins með
afmælisgjöfinni er hann fékk á
afmælisdaginn sinn 4. september
1915, en þann dag fæddist eigin-
konan. Hún var draumakona, að
hann sagði mér sjálfur. Þaö voru
mörg ár frá þvi að látinn
leikbróðir og æskufélagi kom til
Ragnars og færði honum mynd af
konuefninu, en hún var mjög ung
á myndinni, og þvi erfiðara að
átta sig við konuleitina, sagði
hann mér. Inn i þessa gæfuleit
hafa siðan komið einn sonur og
þrjár dætur, og lit ég nú orðið á
börn þeirra Ragnars og Ingu sem
miri systkini, svo kær er mér
samferð þeirra á heimili þeirra
hjóna. Hér lýk ég svo kveðjuorð
um minum til vinar mins. Hér eru
að enda 55 ára vinatengsli milli,
sem rikt hafa á milli foreldra
minna og látins vinar. Þvi var
mér kær sú ósk er eiginkona og
börn Ragnars færðu fram þá ósk,
að svo lengi sem leiðir okkar fara
saman hér á jörðu, að þá mætti
standa sú' vinátta, sem á milli
okkar var. Ég svaraði þvi til, að
ég teldi mig bregðast minum
kæra vini, ef ég tæki ekki við ósk
þessari.
Markús B.Þorgeirsson.
Leonfd Brésjnéf ásamt vopna-
bróður 1943: þýskt tundurdufl
þeytti honum fyrir borð....
Brésjnéf
skrifar
endur-
minningar
um stríðið
Brésjnéf, forseti Sovét-
ríkjanna, hefur gert nokk-
uð sem er sjaldgæft meðal
sovéskra leiðtoga. Hann
hefur skrifað endurminn-
ingar sínar. Kaflar úr
þessum endurminningum
hafa verið að birtast að
undanförnu í sovéksum
blöðum, m.a. Pravda, mál-
gagni Kommúnistaflokks-
ins, og Literatúrnaja gaz-
éta.
Nú siðast hafa birst kaílar þar
sem Brésjnéf segir frá þvi er
hann var út gerður af flokki sin-
um til að stjórna endurreisn orku-
versins mikla við Dnépr og stál-
bræðslu á úkrainu eftir strið. Þar
áður höfðu birst styrjaldarendur-
minningar Brésjnéfs.
Blöðum viða um heim hefur
þótt nokkur fengur að frásögn
forsetans, sem nú er, af lifsháska
sem hann lenti i voriö 1943. Brésj-
néf var þá ofursti i átjánda hern-
um sovéska og yfirmaður póli-
tisku deildarinnar. Hann er þá
sendur með liðstyrk frá bænum
Gelendsjik við Svartahaf til
skaga nokkurs norðar sem
sovéski herinn hafði náð fótfestu
á og kallaður var „Litlaland”.
Hersveitirnar fóru að næturlagi á
fiskibátum, en þýskir fallbyssu-
bátar urðu þeirra varir og hófu á
þá skothrið. Nokkru siðar rakst
bárurinn sem Brésjnéf var á á
tundurdufl og þeyttist hann fyrir
borðásamt nokkrum félögum sin-
um. Svömluðu þeir um stund i
köldum aprilsjónum þar til þeim
tókst að komast um borö i annan
bát. Siðan segir:
„Þá fyrst byrjaöi ég að skjálfa
úr kulda. Jafnvel i Svarta hafinu
er april ekki heppilegasti mánuð-
urinn til sjóbaða. Ekki sást tang-
ur né tetur af fiskibátnum okkar.
Mennirnir undu úr fötum sinum
og bölvuðu i hálfum hljóðum:
Þessir andskotans Fritzar!
Smám saman færðist ró yfir þá og
þeir lögðust fyrir á kistum og böl-
um. Þeir drógu hnén upp aö höku
rétt eins og sú stelling væri þeim
vernd gegn kulda og striði. 1
þessu ömurlega ástandi byrjuöu
hermennirnir allt i einu að
syngja. Það var sjóliði einn sem
byrjaði, risi aö vexti að þvi mig
minnir. Ég þekkti þennan söng.
En samt fannst mér sem ég væri
að heyra það i fyrsta sinn. Ég
man vel stefið: „A þessum litlu
skeljum sigla járnharöir menn
yfir flóann”.
Smám saman lyftu menn höföi.
Þeir sem höföu lagst út af risu
upp og tóku undir. Þessari stund
gleymi ég aldrei. Söngurinn
hressti okkur við. Við fundum aft-
ur til sjálfstrausts. Og við litum
aftur út eins og hermenn”.
OPINBERT
UPPBOÐ
Eftir beiðni Innkaupastofnunar Reykja-
vikurborgar f.h. Vélamiðstöðvar Reykja-
vikurborgar fer fram opinbert uppboð i
geymslu Vélamiðstöðvar Reykjavikur-
borgar að Baldurshaga við Suðurlands-
veg þriðjudaginn 13. júni 1978 kl. 17.15.
Söluhlutir verða til sýnis á staðnum frá kl.
15.00 sama dag.
Selt verður m.a.
Vélar og varahlutir i ýmsar gerðir
bifreiða m.a. Volvo, Scania og Ford
Trader.
Oliuverk i ýmsar gerðir dieselvéla.
Margs konar áhöld fyrir viðgerðarverk-
stæði.
Nýir hjólbarðar fyrir lyftara
Rafmótorar, ýmsar stærðir.
Snjósleði.
Notaðar mótordrifnar garðsláttuvélar
ásamt ýmsu öðru.
Ávisanir ekki teknar gildar sem greiðsla,
nema með samþykki uppboðshaldara eða
gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn i Reykjavik.
LÍV
Aísláttur á
sumarferðum
Stjórnir Verzlunarmannafélags Reykja-
vikur og Landssambands islenzkra verzl-
unarmanna, hafa samið við ferðaskrif-
stofurnar Samvinnuferðir og Landsýn um
10.000 kr. afslátt, fyrir félagsmenn og fjöl-
skyldur þeirra i sumarleyfisferðir, 5.000
kr. afsláttur er veittur fyrir börn 2-15 ára.
Farið verður til:
COSTADELSOL 22/6 7/7 3/8 8/9
JÚGÓSLAVIA 27/6 12/9 20/9
ÍRLAND 17/8 7/9
Allar nánari upplýsingar veita ferðaskrif-
stofurnar Samvinnuferðir i sima 27077,
Landsýn i sima 28899.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur,
Landssamband Islenzkra
verzlunarmanna
Skrifstofufólk óskast
Óskum að ráða á næstunni eftirtalið
starfsfólk. Laun eru samkvæmt launa-
kerfi rikisstarfsmanna: *
1. Skrifstofumann. Laun samkv. launafl.
B-9.
2. Simavörð. Laun samkv. launafl. B-7.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum,
sem fást hjá undirrituðum, þurfa að
berast fyrir 5. júli n.k.
Vegagerð rikisins,
Borgartúni 7,
Reykjavik.