Þjóðviljinn - 11.06.1978, Qupperneq 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. júni 1978
Guðbergur
Framhald af 3. siöu.
hálfhrá meö hugann örlitiö til
vinstri, en meö hendur krepptar
um sérréttindi sin og menntatil-
gerö, fólk meðalmennsku og
rosta. Milli þessara andstæðna-
hliöstæðna er siðan almúginn.
Sjálfstæöisflokkurinn hefur
ekki gert sér grein fyrir raun-
verulegu mannlifi borgarinnar,
en mótsagnir samfélagsins hafa
þrátt fyrir þaö læöst inn i hug-
myndafræði flokksins. Hún er
óljós, tengd persónum, oft
afdönkuöum dugnaöarmönnum,
einkum innan versiunarinnar. 1
flokknum eru frjálslyndir ein-
staklingar, en sem heild er hann
hálfstaönaður, þótt hann endur-
nýist af mönnum i flokksstöð-
um, kannski örar en i öörum
flokkum, og ungt fólk „kemst
að”-. Hann er fremur flokkur
tregöu en ihalds, þar rikir enn
sama umburðarlyndi og mannúö i
garö getuleysingja og vonlausra
braskara, vegna stéttvisi, og
vinstrisinnar hafa sýnt litilmagn-
anum, og jafnvel rónum og aum-
ingjum, eða misheppnuöu fólki á
„rangri hillu”. Þetta er einhver
sérislensk mannúðarstefna, en
blandin andlegri leti og öfund i
garö getu, dulbúin sjálfsmeö-
aumkun og ráðleysi nýienduhug-
arfars.
Skipting samfélags borgarinn-
ar i handhafa auðvalds landsins,
ævinlega á kúpunni með barlóm
við dyr vinnandi stétta, og skóla-
þjálfaös fólks i þjónustugreinum,
endurspeglast i kjöroröi sjálf-
stæðismanna: „Báknið burt”.
Kjörorðiö á að hljóma eins og
frjálslynd krafa framtaks ein-
staklingsins, og ber undarlegan
keim af stefnu stjórnleysingja, en
i reynd er það hrein mótsögn, þvi
annars vegar þykist stjórnar-
flokkurinn risa gegn rikisvaldinu,
en þegar handhöfum þess hentar,
beita þeir „bákninu” gegn hags-
munum almennings, ekki aðeins
gegn verkalýðnum, heldur nú siö-
ast gegn öllum vinnandi stéttum,
einnig starfsmönnum rikis og
bæja. Rikisvaldið getur ekki i
senn barist gegn sjálfu sér og
þegnunum, án þess að útkoman
verði hringavitleysa.
Stjórnarflokkarnir gengu fyrir
kosningar i berhögg við kjörorö
sitt i allra augsýn, og brutu frum-
reglur stjórnmálarefja: að brjóta
eigin reglur á bak við tjöldin. En
svo blindaöir hafa flokkarnir ver-
ið siðustu árin, og vaðið i svo
ruglaöri stjórnmálastefnu, að
þeir héldu kjósendur hafa glatað
gersamlega öílu gildismati, lik-
lega i trausti glymjandans um, að
krónan sé einskis virði.
Rikisstjórn getur svipt varnar-
lausan almenning verðmæti
kaups hans með gengisfellingum
og verðbólgu, en sérhver launþegi
snýst til varnar, og veit hvernig
skal bregðast við, sé kaupið skert
áður en þaö lendir i launaumslagi
eða fer i umferð. Rikisstjórnin
virðist ekki hafa neina hugmynd
um sálræn viðbrögö mannsins.
Enginn kaupandi skilur ágæti
þess, að krónutalan sé lækkuð í
veskinu hans, áöur en hann geng-
ur i verslun. Hins vegar hafa
kaupendur löngum sætt sig við þá
staðreynd, eins og hörmuleg
örlög, að þegar þeir komast að
búðarborðinu, hefur varan hækk-
að i verði, vegna dularfullra
hækkana erlendis. Sú var tið, að
útiönd áttu alla sökina, en ekki
innlendir álagningarmeistarar.
Þótt mikiö sé gert úr áhrifum
kaupskerðingar rikisstjórnarinn-
ar á úrslit kosninganna, hafa þær
aögerðir báknsins ekki einar snú-
iðkjósendum til vinstri. Hugarfar
nýlendubúans fer þverrandi með
þjóðinni. Hollusta okkar við hús-
bændamenningu og minnimáttar-
kennd gagnvart útlöndum fer
þverrandi. Við erum ekki haldin
eins rikri örlagatrú og afdalalegri
ættjarðarást og áður. Við erum
farin að meta og vega stöðu okkar
i heiminum, ekki eins og hroka-
fullt einstætt fyrirbrigði heldur
sem þjóð fær um að standa undir
raunverulegu sjálfstæöi. Óðar
gerum við okkur ljóst, aö þaö er
engin skylda „fátækrar þjóðar”
að veltast I ólgusjó heims og
heimsvelda. Almenningur er ekki
lengur eins „gáttaður” á öllum
veröhækkunum og hann var fyrir
áratug. Fleiri skilja nú eðli
auövaldsins en fáir útvaldir, þótt
þeir hafi ekki gluggaö i marxisk
fræði. Jafnvel verslunarmönnum
þætti nú blekking orðalagsins „si-
felldar verðhækkanir kaffis á er-
lendum mörkuðum” hljóma eins
og tal krambúðarkaupmanns viö
kreppulýð.
titlendir markaðir eru hættir að
vera dularfullir og dyntóttir..
Þúsundir islendinga kynnast
þeim árlega. Þeir vita að verðlag
stendur þar nokkurn veginn i staö
en gildi krónunnar hrapar. Svo
mikill er menntunarmáttur sólar-
landaferðanna. Og ferðamaður-
inn veit að sólarlöndin eru ekki
dæmigerð fyrir frjálslyndar
stjórnir eða tryggan efnahag. Þá
hvarflar að honum að lið inn-
lendra dugleysingja og svindlara
hafi tekiö við af dönsku kúgun-
inni, sifellt með sjálfstæðisorð á
vör. Hvers konar stjórn er heima
ef kaupið þar er lægra og verö-
bólgan meiri en hér? Þannig
spurningar læðast inn i hugann á
meðan - skrokkurinn verður
brúnn.
En það eru ekki bara sólar-
landafarar sem vilja að gjald-
miðill þjóöarinnar haldi viröingu
sinni og komist á skrá með gjaid-
miöli annarra þjóða heldur allir
sem stefna að sjálfstæði landsins:
traustum efnahag, traustri mynt,
þjóð sem þekkir sitt eðli, hæfu
starfsfólki og menningu á
borð við menningu ann-
arra þjóða. Almenningur
veit einnig þótt aldrei hafi
hann lesið verk Lenins að
hentugasta leiðin til að koma á
einræði er að vega að gjaldmiðli
landsins. Aður létu sósialistar i
veöri vaka að Lenin hafi séð fyrir
i þessum orðum efnahagshrunið
i Þýskalandi og uppgang
nasismans. En hann var maður
sem leit sér nær og jafnan af við-
sýni. Hann hafði þá kosti vakandi
almúgans.
Verði vinstristjórn mynduð
eftir alþingiskosningarnar sam-
kvæmt ótviræðum vilja islensks
almennings, þótt hann sé klofinn i
ýmsa vinstriflokka verður sú
stjórn að vara sig öðru fremur á
vitahring herstöðvamálsins* á
vissu bráðræði óþroskaðasta
hluta vinstrafólks og á sjálfs-
ánægju barnalega hugsjóna-
mannsins.
Guðbergur Bergsson
Alþýðubandalagið i Reykjavik. — Fulltrúaráðs-
fundur.
Fyrsti fundur nýkjörins fulltrúaráðs Alþýðubandalagsins I Reykjavik
veröur haldinn mánudaginn 12. júnin.k. og hefst hann kl. 20.30 á Hótel
Sögu (hliðarsal við Súlnasalinn).
Dagskrá: 1. Borgarmál. 2. Onnur mál. — Stjórnin.
Kosningamiðstöðin Grensásvegi 16.
Nú er starfið hafið á nýjan leik I kosningamiðstööinni á Grensásveg-
inum. Þarer opið frá kl. 9 á morgnana til miðnættis. Litið við og leggiö
hönd á plóginn. Simarnir eru 83281 og 83368.
Alþýöubandaiagið I Reykjavík.
Viðtalstimar borgarfulltrúa
Borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins I Reykjavik hafa viðtalstima kl.
17—18að Grettisgötu 3, þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga. Slminn
er 17500.
Utanfundaratkvæðagreiðsla.
Skrifstofa Alþýöubandalagsins, Grettisgötu 3, veitir upplýsingar og
aðstoö við utankjörfundarkosningu um allt land og erlendis. Slminn er
1 75 00.
Skák
Framhald af bls 11
haldinu 9. — Rxd4 10. Dxd4 Be6r;
EÐA 9. — d5 sem leiðir til
skemmtilegrar taktiskrar bar-
áttu.)
9. ...-Bd7
10. h4!
(Kapphlaupið er hafið. Hvitur
hefur aðgerðir á kóngsvæng en
svartur leitast eftir gagnfærum á
drottningarvængnum.)
10. ...-Hc8
11. Bb3-Re5
12. 0-0-0-RC4
13. Bxc4-Hxc4
14. h 5!
(Fórnar peði en fær i staðinn
sóknarfæri eftir h-linunni.)
14. ...-Rxh5
15. g4-Rf6
16. Rde2
(Valdar c3-reitinn sem iðulega
er vettvangur mikilla átaka I
þessu afbrigði.)
16. ...-Da5
(Spurningarmerkið má spara,
jafnvel þó að þessi leikur virðist
visa beinustu leið til taps. Þegar
þessi skák var tefld var þessi
leikur svo til sjálfsagður og viður-
kenndur af byrjanafræðunum, en
siðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar, og nú gefur hinn
„hallærislegi” leikur 16.-He8
svörtum gott tafl, t.d. 17. Bh5 Bh8
(Hugmyndin með 16. — He8!) 18.
e5! ? Rxg4! 19. Bxg4 Bxe5. Gott
dæmi um hina öru þróun byrj-
anafræðinnar.)
17. Bh6-Bxh6
18. Dxh6-Hfc8
(Allt saman „teória”, en næsti
leikur hvits er nýjung sem gerir
út um taflmennsku svarts.)
19. IId3!
(Hrifandi leikur sem valdar
riddarann á c3 og býr i haginn
fyrir framhaldinu : 20. g5 Rh5 21.
Rf4 o.s.frv.)
19. .. H4c5
(Til að „hindra” 20. g5).
20. g5!!
(Hindra hvað!)
20. ..-Hxg5
(Eða 20. — Rh5 21. Rf4 Hxg5 22.
Rcd5 o.s.frv.)
21. Hd5!
(Hver einasti leikur Karpovs
hittir beint i mark.)
21. ..-Hxd5
22. Rxd5-He8
23. Ref4
(Með hótuninni 24. Rxf6+ exf6
25. Rd5 o.s.frv.)
23. ..-Bc6
(Ekki gekk 23. — Be6 vegna 24.
Rxe6 fxe6 25. Rxf6+ exf6 26.
Dxh7+ 27. Dd7! og vinnur.)
(STÖÐUMYND)
24. e5!!
(Toppurinn á snilldinni.)
24. ..-Bxd5
(24. — dxe5 stoöar litt vegna 25.
Rxf6+ exf6 26. Rh5!! gxh5 27.
Hgl+ Kh8 28. Dg7 mát!)
25. exf6-exf6
26. Dxh7 + -Kf8
27. Dh8+
— Kortsnoj gafstupþ. Eftir 27.
— Ke7 28. Rxd5+ Dxd5 29. Hel +
er öllu lokiö. Svona til að klykkja
út notum Við ummæli Bent Lar-
sens: „Glæsileg sóknarskák — en
liklega hefur þetta alit verið soöið
saman á verkstæði Furmans”.
Met
Framhald af 24 siðu.
Jón hefur getið hárfétt upp á
kjörsókn.
Aðrir kosningastjórar fóru fyrir
ofan garð og neðan eins og þar
segir. Sá sem næstur komst var
alls 160 atkvæðum frá réttum úr-
slitum.
1 stuttuspjalli við Jón var hann
spurður, hvort menn vildu ekki fá
hann til að spá fyrir úrslitum i al-
þingiskosningum. Hann kvaðst
ekki leggja út i það, nema hvað
hann ætlaði að velta fyrir sér
Reykjaneskjördæmi. En kannski
ætti ég að láta það alveg vera,
sagði hann, ég get úr þessu ekki
annað en spillt fyrir spámanns-
orðsti minum.
#ÞJÓDLEIKHÚSIfl
LAUGARDAGUR, SUNNU-
DAGUR, MANUDAGUR
I kvöld kl. 20
Fáar sýningar eftir
KATA EKKJAN
fimmtudag kl. 20
Fáar sýningar eftir.
Litla sviðið:
MÆÐUR OG SYNIR
sunnudag kl. 20.30
Næst siðasta sinn
Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200.
I.KIKKf'lAC
RKYKIAVÍKIJR
Slðasta sýning L.R á þessu
leikári
Leikfélag Akureyrar sýnir I
Iðnó
GALDRALAND
eftir Baldur Georgs
i dag kl. 15
Miðvikudag kl. 17
HUNANGSILMUR
eftir Sheiagh Delaney
Þriðjudag kl. 20,30
Miðvikudag kl. 20,30
Fimmtudag kl. 20,30
Miðasala i Iðnó kl. 14—20,30
Simi 16620.
LAUGARDAGUR,
SUNNUDÁGUR,
MANUDAGUR
i kvöld kl. 20
fimmtudag kl. 20
Siöasta sinn.
KATA EKKJAN
föstudag kl. 20
Fáar sýningar eftir
Miðasala 13.15—20. Simi 11200.
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ_
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför,
Páls Þóroddssonar
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar E 6
Borgarspitalanum fyrir góða umönnun i veikindum hans.
Einnig þökkum við stjórn Verkamannafélagsins Dags-
brúnar fyrir virðingu honum sýnda
Elin Björnsdóttir
Hallgerður Páisdóttir
Páll Halldórsson
Asta Halldórsdóttir
Elin Ýr Halldórsdóttir
Halldór B. Stefánson
Sólveig Asgrimsdóttir
Einar Erlendsson
ÓlöfEir Haildórsdóttir
og barnabarnabörn.
Kjarabarátta dag hvern
Þjóöviljinn berst einn íslenskra
dagblaða við hlið verkalýðshreyfing-
arinnar. Þjóðviljinn mætti vera betri
og stærri og útbreiddari en hann er. En
því aðeins verður Þjóðviljinn betri,
stærri og útbreiddari að hver stéttvís
launamaður geri sér Ijóst að Þjóðvilj-
inn er eina dagblaðið og þar með eina
vopnið sem launamenn geta treyst
gegn sameinuðum blaðakosti kaup-
ránsf lokkanna. Fyrir hvert eitt eintak
af Þjóðviljanum gefa kaupránsflokk-
arnir út 10 eintök.
Sá verkamaður sem vill treysta hag
verkalýðshreyf ingarinnar og þar með
eigin hag kaupir Þjóðviljann og vinnur
að útbreiðslu hans.
Þjóðviljinn og verkalýðshreyfingin
eiga samleið. Verkalýðshreyfing sem
ekki á aðgang að traustu dagblaði gæti
lent undir í áróðursstríði auðstéttar-
innar.
Fram til sigurs i kjarabaráttunni!
Fram til sigurs í stjórnmálabarátt-
unni!
Gerstu
áskrifandi
í dag!
DiomiuiNN
SÍÐUMÚLA 6 REYKJAVlK SÍMI 81333