Þjóðviljinn - 21.07.1978, Qupperneq 9
Köstudagur 21. júli 197« l>JOUVII.JINN — SIDA 9
Listasafn Islands sýnir bandaríska
grafik:
Louise Nevelson
1953—1975
Nokkrar myndir sýningarinnar.
Listasafn Islands opnaöi
sýningu á grafíkverkum
bandaríska listamannsins
Louise Nevelson. Þarna er
um að ræöa sýningu á æt-
ingurri/ steinprenti/
grafik, blý-intaglio,
akvatintu, klippimyndum,
lágmyndum i pappírs-
massa og plakötum.
Nevelson fæddist i Kiev i Rúss-
landi árið 1900. Hún fluttist ung að
aldri til Bandarikjanna með
foreldrum sinum. og beindist
áhugi hennar snemma að listum.
Ariö 1920 lærði hún málun og
teikningu hjá Theresa Bernstein
og William Meyerwitz, en sam-
hliða þvi námi lagði hún einnig
stund á óperusöng, Ieiklist og
ballett. Siðar nam hún við Art
Students Leagse hjá Kenneth
Hayes Miller og Kimon
Nicolaides. Hún ferðaðist einnig
til Evrópu og lærði hjá Hans
Hoffman i Míinchen. Hún hefur
tekið þátt i ýmsum samsýningum
og haldið fjölmargar einkasýn-
ingar og hafði um tima umsjón
með Atelier 17 i New York ásamt
Stanley William Hayter. Arið 1962
var hún fulltrúi Bandarikjanna á
Biannale Internationale D’Arte i
Feneyjum. Hún starfaði við
Tamarind-verkstæðið i Los
Angeles árið 1963 og ’67 og hefur
haldið stórar yfirlitssýningar viðs
vegar um Bandaríkin. A árunum
1973-74 hélt hún tvær stórar far-
andsýningar um Evrópu og
Bandarikin. Nevelson hefur hlotið
mörg verðlaun um ævina og á
verk i öllum stærri söfnum
Bandarikjanna. Sýning þessi er
einnig farandsýning, og er ný-
komin frá Lissabon, en Reykjavik
er siöasti viðkomustaöurinn.
1 sýningarskrá segir um Louise
Nevélson:
„Fljótt á litið kann grafik
Louise Nevelson að virðast eins
konar fylgifé með höggmyndum
hennar. A löngum listferli hefur
hún að visu ekki lagt stund á
grafik nema öðru hverju. En þó
grafisk verk hennar séu litil að
vöxtum miðaö við þau kynstur
sem hún hefur afkastað i högg-
myndalistinni, eru þau órofa
þáttur af skapandi hugsun henn-
ar, tæki til að kanna og fullvinna
atriði sem skipta meginmáli. Þar
að auki eru grafisk verk hennar
sem heild veigamikil og ágæt af
sjálfum sér...
Fyrstu grafisku verk Nevelson
sem nokkuð kveöur að, ætingar
hennar frá 1953-55, endurspegla
greinilega það sem er að þróast
með henni i höggmyndalistinni...
Þessar snilldarlegu ætingar
sýna óafmarkað rými þar sem
verur eöa önnur myndræn atriði
eru sýnileg, en myndefnið sem aö
baki liggur virðist vera drama-
tisk spenna rúmsins, heildar-
áhrifin af þvi séða en ekki einstök
atriði sem fyrir augun ber...
Þau tuttugu og sex steinprent
sem Nevelson fullgerði i
Tamarind-verkstæðinu 1963 end-
.urspegla langþróuð markmið
hennar i höggmyndalistinni. Aö
undirstöðu til eru steinprentin
myndrænt séð byggð á sömu
þessum einingum eru sérþrykktir
kaflar sem eru skeyttir saman
eftir á.
Samt sem áður er þessi seria
grafiskt hefðbundnari og byggist
á stórum og tiltölulega afmörkuð-
um litflötum. Leikur linanna er
einkar finlegur og áhrifamikill,
þar sem þær virðast svifa i sér-
stökum fieti fyrir framan sjálfan
myndflötinn. Þetta á ef til vill
skylt við þann áhuga á loftverki
sem gætir i kniplinga- og dúksá-
ferð þeirri sem Nevelson beitti
áöur i ætingum sinum til að ná
fram rýmisverkun.
1971 byrjaði Nevelson að vinna
að blý-intaglio-myndum i sam-
vinnu við Tosi-verkstæðið i
Milanó. Sex þessara mynda voru
gerðar á næstu tveimur árum.
Þessar intaglio-myndir likja eftir
formum og atriðum i kassahögg-
myndum hennar og sýna fyrri á-
huga hennar á lágmyndum. Þess-
ar myndir eru ósamhverfar, ým-
ist með ellefu eða sextán blýein-
ingum.Efnisáferð og litir eru not-
uð til að leggja áherslu á þri-
viddaráhrif i þessum merkilegu
myndum.
Nýjustu grafikverk Nevelsons
marka meiri háttar þróunará-
fanga. Það eru sex akvatintur
með collage, þrykktar i ýmsum
sterkum litum sem er teflt gegn
svörtu og silfruðu sem segja má
að séu einkennandi fyrir lita-
spjald hennar. Þessi verk. seilast
inn á nýtt svið skynjana þar sem
litblænum er teflt gegn andstæð-
um sem eru i þvi fólgnar að
myndflöturinn ýmist drekkur i
sig ljósið eða endurvarpar þvi.
Þannig er náð samspili lita og
blæbrigða....”
Jóhannes Jóhannesson hefur
séð um uppsetningu sýningar-
innar, en Menningarstofnun
Bandarikjanna á Islandi hefur
veitt alla þá fyrirgreiðslu, sem
gerði kleift að fá sýninguna hing-
að til lands. Sýningin verður opin
alla daga frá kl. 13.30 til kl. 16.30
og mun standa i þrjár vikur.
A sýningunni eru m.a. lágmyndir úr pannlrtrv.-..--
•Mynd eftir Louise N'evelson
kenndu steinprentum að efnis-
kenndari kassalaga formum. Lin-
urnar sem koma fyrir i þessum
ætingum, grannar eöa gildar, má
túlka sem átta- eða orkutákn...
kassaformum og myndveggir
hennar, fremur sem sjónskynjan-
ir en hlutstætt samsafn forma.
Mýkt steinprentsins féll vel að
lýsingum á rými sem var i sjálfu
sér m júkt, viðkvæmt og loftkennt,
frásögn i tveim viddum um þvi-
vitt rými. Steinprentin frá 1963
eru útsmognari og fáguð á með-
vitaðri hátt en eldri ætingar...
Þegar Nevelson fór aftur aö
fást við ætingar 1965—66, i sam-
vinnu við Irwin Hollander, hvarf
hún frá hinum rýmis- og loft-
Næsta meiriháttar grafikseria
Neveisons var enn á ný stein-
prent; einnig unnin á Tamarind-
verkstæðinu. Þessi verk endur-
spegla frekari fullkomnun á þvi
sem hún var að fást við i högg-
myndalistinni... Hinar sextán
myndiri þessari seriu, Tvöfaldar
myndir, eru i senn einfaldari og
flóknari en eldri steinprentin sem
gerð voru i samvinnu við Tamar-
ind. 1 þessum seinni myndum
koma fyrir óregluleg flipótt
myndblöð, þar sem auðir og
þrykktir fletir skiptast á, tæknin
er grisja vætt i bleki. Þrettán af
—IM
Louise Nevelson að vinnu