Þjóðviljinn - 21.07.1978, Side 10
10 SIÐA * ' r. — ÞJ( a D ÖÐVILJ & NN Föstudagur 21. jú i 1978 ID7 ' >"o' CD D & CrD“ Ctl> 1 lo >: a D - , r ,
| Drátturinn í undanúrslitum Bikarkeppninnar h ■ % ■
Allt stefnir í úrslita-
viðureign Vals og Akraness
Valsmeiui drógust gegn Þrótti og ÍA gegn UBK
Þaö er nú Ijóst eftir aö
Valur lenti gegn Þrótti óg
IA gegn Breiöablik að allt
stefnir í úrslitaviöureign
milli rísanna í islenskri
kanttspyrnu, Vals og Akra-
ness.
Dregið var í undanúr-
slitin i gærkvöldi, og þá
varö Ijóst hvaða lið myndu
leika saman.
Engann veginn er þó
hægt að útiloka möguleika
„litlu liöanna" aö þessu
sinni,en þessi lið eru fræg
fyrir aö standa sig best
þegar mest á reynir.
Eins og flestir eflaust muna sló
Þróttur KR út úr keppninni i
fyrradag. Akurnesingar léku
gegn Einherja frá Vopnafirói og
Valur sló Vestmannaeyinga út úr
keppninni. Blikarnir gengu aö
Frömurum i Kópavogí og sign-
uðu 2:0. Það má þvi segja aö
Valsmenn hafi unnið mest allra
til að leika i undanúrslitunum.
Það biða margir spenntir eftir
þvi að sjá hvort Skagamenn kom-
ast i úrslit sem allar likur viröast
vera á. Þeir hafa nefnilega lent i
úrslitum keppninnar átta sinnum
en aldrei hefur þeim tekist aö
sigra. Finnst mörgum sem timi
sé kominn til.
En eins og áður sagði er alltof
snemmt að fara að bóka Vals-
menn og IA sem þátttakendur i
úrslitaleiknum. Það getur allt
skeð i knattspyrnu.
Hreint mark í 630 mínútur
Sigurður Haraldsson
markvöröur Vals i knatt-
spyrnu og starfsmaður á
auglýsingadeild Þjóðvilj-
ans hefur nú eftir leikinn
gegn ÍBV haldið marki
sínu hreinu í sjö leikjum og
geri aðrir betur. Alls eru
þetta 630 minútur eða 10 og
hálfur klukkutími.
Sigurður hefur verið i stöðugri
sókn i markinu og eins hefur hann
þegið góðar upplýsingar frá okk-
ur hér á Þjóðviljanum og árang-
urinn ekki látið á sér standa.
Ástæðan fyrir þvi er einfaldlega
sú að Sigurður tekur tilsögn betur
en flestir aðrir.
SK.
„Ætii maður dragi ekki Þróttarana” mætti halda að Gunnar Sigurðs-
son formaður knattspyrnuráðs Akraness segi um ieiö og hann dró I
gærkvöldi fyrir ÍA.
Gott starf hiá fötluðum
Arnór Pétursson hlaut afreksbikarinn á innanfélagsmótinu. —
Hann var endurkjörinn formaður félagsins
Aðalfundur Iþróttafélags fatlaðra í Reykjavik
var haldinn nýlega. Þann 30. maí s.l. varð félagið
f jögurra ára. Félagar eru nú um 160 og eru um 50%
þeirra virkir félagar. Félagið hefur notið stuðnings
margra góðra manna, einstaklinga, félagasamtaka
og klúbba sem hefur verið félaginu mikil hvatning
til meiri dáða og öflugra starfs. Mikið hefur verið
gert til að kynna félagið, var farið á um 40 staði og
kvikmyndin Toronto Olipyed sýnd. Sendir hafa
verið keppendur á mót erlendis svo sem til Þránd-
heims i Noregi (norðurlandameistaramót í sundi),
til Roskilde í Danmörku (norðurlandameistaramót
i borðtennis) og á Stoke Mandeville leikana
(alheimsleikar) í Englandi.
Árangur Islendinganna
var góður og var komiö heim
með nokkur silfur- og bronz
verölaun. Haldið var fyrsta
Þjálfarar íþróttafélags fatlaðra i Reykjavlk.
Frá vinstri. Sveinn Aki Lúöviksson, Kristjana Jónsdóttir, Júifus
Arnarsson.
Islandsméistaramót i lyft-
ingum, var það haldið i sjón-
varpssal^auk þesssem borð-
tennis var kynntur við sama
tækifæri. 1 mai s.l. var svo
haldið i Reykjavik norður-
landameistaramót i lyft-
ingum og opið mót i boccia. 1
marz s.l. fóru um 20 manna
hópur i heimsókn til fþrótta-
félags fatlaðra á Akureyri og
var heimsókn sú i alla staði
hin ánægjulegasta. Væri
mjög æskilegt að gera sllkar
heimsóknir (með keppni i
huga) milli félaganna að
árlegum viðburði. Á s.l.
sumri dvöldu 5 félagsmenn i
Heiðarskóla i Leirársveit á
10 daga námskeiði. Félagið
safnar notuðum frimerkjum
og eru þvi frimerki vel þegin.
Teiknað hefur veriö merki
félagsins, það gerði Ein-
varöur Jósefsson. Til aö
byrja með hafa verið búnar
til oddveifur og merki til aö
sauma á iþr.búninga, eru
merki þessi til sölu. Æfingar
hafa veriö i Hátúni 12
(lyftingar, borötennis, curl-
ing, boccia) sund i skólalaug
Arbæjar og bogfimi I anddyri
Laugardalshallarinnar.
Þjálfarar félagsins eru
Kristjana Jónsdóttir, sund,
Sveinn Aki Lúðviksson,
borðtennis og Július Arnar-
son, aðrar greinar. Eftir-
farandi innanfélagsmót hafa
veriö haldin. Curlmg, keppt
var I A og B fl. Nr. 1 i A fl.
varð Sævar Guöjónsson og
nr. 1 i B fl. Kristin Halidórs-
íóttir.l sveitakeppni varð nr.
1 sveit Sævars Guðjónssonar
og með honum voru Ingi-
björg ólafsdóttir og Þórhalla
Guðmundsdóttir. Lyftingar:
Keppt var i tveimur fl. og
miðað við 67,5 kg. I léttari fl.
varð nr. 1 Arnór Pétursson,
lyfti 87,5 kg islm. I þyngri fl.
varð nr. 1 Sigmar Ó. Marias-
son, lyfti 107,5 kg islm. Borð-
tennis. I kvennafl. varð nr. 1
Guðný Guðnadóttir. 1 karla-
fl. varð nr. 1 Sævar Guðjóns-
son. Einnig var keppni i
borðtennis milli ófatlaðra
félagsmanna og nr. 1 varð
Guðni Þór Arnórsson. Sund:
Nr. 1 með forgjöf varð Birna
Kr. Hallgrimsdóttir og nr. 1
án forgjafar varð Óskar
Konráðsson. Afreksbikarinn
hlaut að bessu sinni Arnór
Pétursson. Allir þeir sem
áhuga hafa á iþróttum
fatlaðra geta gerst félagar.
Stjórn félagsins skipa.* For-
maður Arnór Pétursson, s.
71367, varaform., Jón
Eiriksson, s. 35907, ritari
Elsa Stefánsdóttir, s. 66570,
gjaldkeri Vigfús Gunn-
arsson, s. 21529, meðstjórn-
andi Halldór S. Rafnar, s.
84824.
Mynd af 1. verölaunahöfunum.
Sitjandi frá v. Sævar Guöjónsson, Arnór Pétursson, Guðný Guðna-
dóttir. Standandi frá v. Sigmar ó Mariasson. Guðni Þór Arnórsson,
Ingibjörg ólafsdóttir, Kristin Halldórsdóttir, Þórhalla Guðmunds-
dóttir, Birna Hallgrimsdóttir og óskar Konráösson.