Þjóðviljinn - 02.08.1978, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. ágúst 1978
7 SKÁK
Umsjón Helgi Ólafsson
Hart barist í Baguio:
Karpov med væn-
legri stöðu
Sjöunda einvígisskák
Kortsnojs og Karpovs fór
í bið í gær eftir 41. leik.
Sérfræðingar eru á einu
máli um að Karpov hafi
alla vinningsmöguleik-
ana þó ekki sé örgrannt á
möguleikum Kortsnojs til
að halda jafntefli. Það er
einkum opin kóngsstaða
Karpovs sem Kortsnoj
gæti hugsanlega notfært
sér til að þvinga fram
skiptan hlut. Skákin í gær
var æsispennandi frá
upphafi til enda. Kortsnoj
brá þegar í 6. leik út frá
alfaraslóðum og uppfrá
því logaði allt í ófriði.
1 15. leik afréö Karpov aö
fórna skiptamun en sem bætur
fékk hann mjög sterka aöstööu á
miðboröinu og virka stööu
manna sinna. Undir lok setunn-
ar komust keppendur i mikiö
timahrak og var þá tafl-
mennskan ekki sem nákvæm-
ust. Kortsnoj virtist missa öll
tök á stööunni en i 40. leik fórn-
aði hann manni öllum á óvart og
vjrbist sú fórn eftir á aö hyggja
hafa verið eini möguleikinn til
að halda jöfnu.
Heimsmeistaraeinvígið I skák
Kortsnoj
og
Karpov í
Baguio
Kortsnoj telur sig beittan
gerningum.
Fyrir utan viðureign þeirra
félaga i gær vakti kæra Kortsnoj
til dómarans Schmid, þess efnis
að sovéskur dulsálfræöingur
væri kominn til Baguio ein-
göngu til að trufla einbeitni
hans, mikla athygli. Reyndar
eru ásakanir af þessu tagi ekki
nýjar af nálinni þvi Kortsnoj
hélt þessu einnig fram er hann
tefldi gegn Spasski i Júgóslaviu
i vetur. Hvað sem öllu liöur þá
er þaö staðreynd að á fremsta
bekk hefur setið sovéskur dul-
sálfræðingur, Dr. Zukhar aö
nafni. Hann ku hafa setið
fyrir á fremsta bekk og
starað á Kortsnoj alla
sjöttu skákina en i gær var
hann vinsamlegast beðinn
að færa sig á 2. bekk. Kortsnoj
notaði mikið klefa þann sem
keppendur hafa til afnota. Hann
kom aðeins útúr klefanum er
Karpov hafði leikið. Þá bar
hann einnig hin frægu spegil-
gleraugu til að forðast augnaráð
Doktorsins. Þegar kæra
Kortsnoj var borin undir Batur-
inski, formann sendinefndar
Sovétmannanna sagði hann:
„Þetta minnir mann aðeins á þá
tima er Kortsnoj ásakaði fólk
si og æ um að trufla einbeitni
sina. Þessi kæra ber greinileg
merki taugaveiklunar.”
Guðmundur Sigurjónsson. Hann teflir á tveimur mótum i Noregi á
næstunni.
Guðmundur
teflir á tveim
mótum í Noregi
Jón L., Margeir Pétursson og Jón
Kristinsson meðal þátttakenda "
á öðru mótinu
Guðmundur Sigurjónsson
teflir á tveimur skákmótum i
Noregi nú I ágústbyrjun. Fyrra
mótiðsem fram fer I Skien sem
er smábær I Noregi hefst 4.
ágúst en hitt mótið sem hefst
stuttu siðar fer fram i Gausdal
en á þvi móti verða Margeir
Pétursson og Jón L. Árnason
einnig meðal þátttakenda. Jón
Kristinsson teflir hins vegar I
fyrra mótinu sem fram fer í
Skien. Jón sem er einn af þekkt-
ustu skákmönnum tslendinga
hefur iitið getað teflt vegna
starfa sins en hann er banka-
stjóri Búnaðarbankans á
Hólmavik þar sem iitið er um
góða skákmenn.
Guðmundur Sigurjónsson
sagði i spjalli við Þjóðv. í gær að
hann hefði upphaflega aðeins
ætlað sér að taka þátt I mótinu i
Skien enþesshefði verið farið á
leit, aðhann myndieinnig tefla i
Gausdal i nafni Norrænnar
samvinnu.
Kortsnoj eygir jafnteflismöguleika
Vafasöm tafimennska Viktors
Kortsnojs i 7. einvigisskákinni
við Karpov virðist ætla að koma
honum á kaldan klaka. Kortsnoj
sem hafði hvítt beitti mjög ó-
venjulegu afbrigði I Nimzoind-
versku — vörninni. Strax i 6.
leik kom hann fram með nýjung
sem gerði það að verkum að
Karpov eyddi miklum tima tii
að finna besta framhaldið fyrir
svartan. Hann fann aö flestra á-
liti bestu leiðina en á kostnað
peðs og það er nokkuð sem hann
er ekki sérlega hrifinn af.^
í framhaldinu kom i ljos að
umframpeö Kortsnojs vó litið.
Karpov hafði mjög sterk tök á
miðborðinu og jafnvel þó hann
ynniskiptamun til viðbótar i 16.
leik var þaö sem vatn á myllu
heimsmeistarans. Hann fékk
mjög ógnvekjandi miðborðspeð
og undir lok setunnar ruddust
þau áfram. Kortsnoj sá sitt ó-
vænna fórnaöi manni og satt að
segja er ekki ljóst um úrslit og
Karpov kann að þurfa aö taka
mikla áhættu til að forðast þrá-
skák. Hressileg skák:
7. einvigisskák:
Hvltt: Viktor Kortsnoj
Svart: Anatoly Karpov
Nimzindversk-vörn
1. d 4!
(Strax iupphafi kemur Kortsnoj
á óvart. Hinn hefðbundni upp-
hafsleikur hans 1. c4 er lagður
til hliðar. Þetta hefur þó ekki
mikil áhrif þegar líða tekur á
þvi mjög oft leiðir drottingar-
peðsbyrjunog enski leikurinn til
sömu byrjana.)
1. ..Rf6
2. c4 e6 3. Rc3 Bb4
(Enn er Nimzoindverska —
vörnin til umræðu.)
4. e3 0-0
(Hér bregður Karpov út af tafl-
mennskusinni.I 3ju og 5tu skák
lék hann 4. - c5 sem Kortsnoj
svaraði með 5.Re2.)
5. Bd3
(Til greina kom 5. Re2 og reyna
þannig að leiða skákina inná
brautir fyrri taflmennsku.
Hætt er þó við að Karpovhefði
eitthvað „lúsugt” á takteinun-
um.)
5. ..c5
6. d5! ?
(Satt að segja minnist ég ekki
að hafa séð þennan leik áöur i
viðureign tveggja stórmeistara.
Leiknum er oft beitt i öðru af-
brigði Nimzoindversku - varn-
arinnar nefnilegat 1. d4Rf6 2. c4
e6 3. Rc3 Bb4 4. Bg5 h6 5. Bh4 c5
6. d5. Þá er talið gott að leika 6. -
b5 og jafnvel þó svartreiti bisk-
upinn standi enn á cl afræður
Karpov þeim leik einnig hér.)
6. ..bá
(Liklega besti leikurinn. Með
honum eftirlætur Karpov Kort-
snoj heilt peð en fær öflugt mið-
borö I staðinn. Eins og fram-
haldið leiðir i ljós reynist mið-
borðið þyngra á metunum. A-
stæða er til að benda á að 6.
-exd5 7. cxd5 Rxd5 gekk ekki
vegna 8. Bxh7+ ásamt 9. Dxd5
og hvitur hefur yfirburðastööu.)
7. dxe6 fxe6
8. cxb5 Bb7
(Hvitur hefur unnið peö en það
veldur svörtum varla miklum
áhyggjum. Miðborðiö og virk
staösetning mannanna vega
liðsmuninn fyllilega upp.)
9. Rf3 d5
10. 0-0 Rbd7
11. Re2 De8
12. Rg3 e5
13. Bf5! g6
14. Bh3
(Þarna getur biskupinn gripið
inní baráttuna hvenær sem er.)
14. ,.a6
15. Rg5
(Hótar aö vinna skiptamun með
16. Re6...)
15. ..axb5!
(En Karpov kærir sig kollótt-
ann. Hann leggur allt upp úr öfl-
ugu miðborði og virkri stöðu.
Auk þess vinnur hann hið tap-
aða peð til baka.)
16. Re6 c4
17. Bd2 Bc5
(Biskupakaup eru hvitum i
hag.)
18. Rc7
(Þaðer að sjálfsögðu smekksat-'
riði hvor hrókurinn er tekinn.)
18. ..De7
19. Rxa8 Hxa8
20. a3 Rb6
21. Dc2 Bc8
22. Bxc8 Hxc8
23. Ba5 Rbd7
24. Dd2 Bd6
25. Bb4 Rc5
26. Bxc5
(Uppskipti er venjulega þeim I
hag sem meira lið hefur. Hér á
Kortsnoj hinsvegar mjög litla
möguleika áað finna höggstað á
stööu svarts.)
26. ..Bxc5
27. Khl Dd6
28. Hadi Kh8
29. Dc2 De6!
(Hvitur hótaði 30. a4 b4 31. c4!
o.s.frv. þegar hér 'var komið
sögu áttu báðir keppendur
u.þ.b. 20 mínútur eftir af um-
hugsunartima sinum.)
30. Re2 Dc6
31. h3
(Liklega sýnir þessi veiklulegi
leikur best hversu Kortsnoj er
gersneyddur einhverju sem
heitir mótspil. Hann getur lftið
annað en beðið eftir að Karpov
reyni framrás á miðborðinu.)
31*. . .He8
32. b4 Bb6
33. Db2 Kg8
(Kóngurinn telur það öruggast
að standa ekki á skáklínunni
al-h8.)
34. Hfel Kf7
(Þegar hér var komið sögu átti
Kortsnoj 10 minútur efúr af um-
hugsunartima sinum og Karpov
átti litlu meiri tima. Spenning-
urinn i hámarki.)
35. Dc2?
(Hér verða Kortsnoj á slæm
mistök. Hin stöðuga spenna og
afar erfið staða hefur ugglaust
haft einhver áhrif. Karpov er
fljótur aðnotfæra sér mistökin.)
á tima gefst ekki upp og finnur
eina framhaldið sem gefur ein-
hverja von.)
39. Dh6 c3 (?)
(Hugsanlegt er aö hér hafi
Karpov gerst einum of veiði-
bráður og talið allt viðnám úr
stöðu hvits. Eins og Kortsnoj
sýnir framá eygir hann enn
björgunarmöguleika. Erfitt
reynist þó að betrumbæta tafl-
mennskuna t.d. 39. -Bxf2 40. Hfl
Bxg3 41. Dxh7+ o.s.frv.)
40. Re4!!
(Siðasti leikurinn i æðisgengnu
timahraki og sá eini sem gefur
einhverju von. Hvitur hótar 40.
Rg5+ svo ekki sé minns á 40.
Rxf6.)
40. ..Rxe4
(Hvað annað.40. -c2 strandaði á
41. Rxf6! o.s.frv.)
41. Dxh7+ Kf8
35. ..d4!
(Afar erfiður leikur að svara i
timahraki.)
36. Rg3
(En ekki 36. exd4 exd4 37. Rxd4
Hxel+ 38. Hxel Bxd4 og vinn-
ur.)
36. ..Hd8
(Karpov fer sér að engu óðslega
frekar en fyrri daginn 36. -d3
var ekki mögulegt vegna 37.
Hxd3! o.s.frv.)
37. exd4 exd4
38. Dd2 d3
(Hvita staðan er að sjá gjörtöp-
uð, en Kortsnoj þótt naumur sé
Hér fór skákin í bið. Ljóst er að
Kortsnoj berst fyrir lifi sinu og
satt að segja er mér það ekki
ljóst hvernig Karpov sleppur úr
skákunum nema þá að taka á
sig verulega áhættu. Ég eftirlæt
lesendum að spreyta sig á þvl aö
finna vinningsleið fyrir Karpov
ogeitter vistaðþaðer ekkiauð-
velt verkefni.