Þjóðviljinn - 02.08.1978, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN • Miövikudagur 2. ágúst 1978
Flúdir:
Vinsæll áningarstaður og
vaxandi ferdamannamidstöð
Miðsvæðis i akstursleið á Gullfoss, Geysi, Skálholt,
Heklu, Lajugarvatn, Þingvelli o.fl. merka staði - -
„Alda aldanna” heitir þetta listaverk Einars Jónssonar, en hann er ættaður frá Galtafelli i Hrunamannahreppi. Félagsheimilið I baksýn.
Pmm
L kl
rfTí K\4&M xÉi
Tryggvi Guðmundsson starfar á sumrin viö rekstur hételsins og ferðamannaþjónustunnar. Hér er hann
fyrir utan Skjólborg, módelhúsin sem leigð eru út allt árið um kring.
óhætt er að segja að Flúðir i Hrunamannahreppi hafi
sem ferðamannamiðstöð dafnað hratt hin siðari ár og
notið þess í sívaxandi mæli hve staðurinn er miðsvæðis á
algengum ferðamannaleiðum um t.d. Gullfoss, Geysi,
Skálholt o.ffl. Hreppurinn hefur af myndarskap byggt
upp þjónustu fyrir ferðamenn og notað til þess m.a. nýtt
skólahúsnæði og veglegt félagsheimili. En Flúðir njóta
ekki þess eins að vera miðsvæðis milli merkra staða,
heldur ekki síður þess, að státa af mikillí eigin náttúru-
fegurð og geta boðið dvalargestum sínum upp á fjöl-
breytta möguleika til náttúruskoðunar og útiveru f jarri
skarkala höfuðborgarsvæðisins. Á sumrin byggist hlut-
verk ferðamannaþjónustunnar mest upp á útlendingum,
en á vetrum færist i vöxt að Islendingar taki sér stutt f rí,
skreppi í model-húsin á Flúðum og slaki á í nokkra daga
með aðstoð heitra potta og íslenskrar sveitasælu.
Eftir að hafa ekið i gegnum
Flúðir fjórum eða fimm sinnum á
þessu sumri og jafnoft séð allra
þjóða ferðamenn rigsa pakk-
sadda að loknum hádegisverði i
Félagsheimilinu upp i rútubila á
leið til vinsælustu ferðamanna-
staðanna þótti blm. Þjv. ekki
annað tilhlýðilegt en að banka
upp á hjá hótelstjóranum,
Tryggva Guðmundssyni og for-
vitnast nánar'um hvernig rekstur
hótels og ferðamannaþjónustu
hefði gengið.
— Það hefur verið mikið að
gera i sumar og þá ekki sist i há-
degismatnum fyrir túristana sem
eru á ferð hér um nágrennið. Þeir
koma hér alla daga vikunnar á
vegum Ferðaskrifstofu Rikisins
og á sl. sumri komu hingað hátt i
tuttugu þúsund manns i hádegis-
verð, eða að meðaltali 133 á dag,
þvi hér er tekið við fólki frá 1. mai
til 30. september.
Tuttugu þúsund er ekki svo litill
fjöldi þegar tekið er mið af þvi að
til landsins komu i fyrrasumar 72
þúsund erlendir feröamenn, svo
við höfum fengið um 27% þeirra
hingað upp eftir. Matsalurinn i
Félagsheimilinu getur tekið allt
að 300 manns i einu og við höfum
oft lent i þvi að fá svo stóran hóp
hingað i einni ferð.
Byrjaði 1968
Veitingasala á vegum hrepps-
ins hófst árið 1968, er Kynnisferð-
ir skipulögðu ferðir til Gullfoss og
Geysis og létu ferðamenn sina
koma við á Flúðum. Siðan hafa
umsvifin aukist jafnt og þétt, og æ
siðan hefur hádegisverðarsalan
verið lifæð alls reksturs i kringum
ferðamennina.
Arið 1970 var byggður skóli með
heimavist og þar fengust 20 gisti-
herbergi sem hægt var að leigja
ferðamönnum á sumrin. I skólan-
um er fullkomin veitingaaðstaða
og gestum hótelsins veitt öll
venjuleg þjónusta. Þangað koma
erlendir ferðahópar á vegum
ferðaskrifstofa og einnig talsvert
af Islendingum.
Gengiö um beina I Félagsheimilinu. Ferðamennirnir búnir að kýla vömb áður en skoðunarferðinni er
haldiö áfram.
Sundlaugin er góð, en búningsklefarnir orðnir nokkuð hrörlegir. Fram-
undan er lausn á þeim vanda ef ráðist verður í byggingu fþróttahúss.