Þjóðviljinn - 02.09.1978, Page 3

Þjóðviljinn - 02.09.1978, Page 3
Laugardagur 2. september 1978 WÓÐVILJINN — SIÐA 3 ERLENDAR FRÉTTIR Haust og ] ] vetrartískan frá MAX k I er kynnt á sýningiinni ^ i Föt 78 ;í Laugardalshöll. MAX hf. 'j 'v / Armúla 5 Flóttamenn snúa aftur DACCA, 31/8 (Reuter) — Hópur flóttamanna frá Burma sem flúðu til Bangladesh fyrr á þessu ári, hefur snúið heim. Flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna i Genf sagði að 200 manns myndu snúa heim til Burma i dag, samkvæmt nýjum samning- um milli stjórna þessara landa. Að sögn yfirvalda i Bangladesh munu um 100.000 manns hafa flúið frá Burma, ;pegar ofsóknir hófust á hendur múham- eðstrúarmanna i landamærahéruðunum. Yfirvöld i Burma ' segja hins vegar að um hafi verið aö ræða fólk ættað frá Bangla- desh. Innanrikisráðherra stjórnar umferð TEL AVIV, 1/9 (Reuter) — Innanrikisráðherra lsraels lenti I umferðaröngþveiti i dag, þar sem hann var á leiö til vinnu sinn- ar. 1 krafti valds sins sem æösti yfirmaður lögreglunnar steig hann út úr bil sinum og tók umferðarstjórn i sinar hendur. Veg- farendur sem áttu leið fram hjá sögðu að innanrikisráðherran- um Josef Burg hafi tekist að greiöa úr umferðarflækjunni á tutt- uguminutum. Þeir sem tilumferðarmála þekkja eru á einu máli um aö innanrikisráðherrann myndi vera fyrsta flokks götulögga. Flugræningi fyrir rétt? WASHINGTON, 1/9 (Reuter) — Liklegt þykir að bandarisk yfir- völd muni láta vestur-þýskum dómstólum um að dæma austur- þýska þjóninn, Detlev Alexander Tiede sem rændi pólskri flug- vél fyrir tveimur dögum. Vestur-þýsk yfirvöld sögðu þó i gær að maöurinn yrði leiddur fyrir bandariskan herdómstól. Vestur-þjóðverjar hyggjast ekki framselja manninn, en Pólverjar munu fara þess á leit að maðurinn verði framseláur, eftir þvi sem pólska fréttastofan PAP' hermir. NATO-freti mótmælt PRAG, 1/9 (Reuter) — Málgagn tékkneska kommúnista- flokksins Rude Pravo fordæmdi i dag heræfingar NATO sem munu eiga sér staö innan skamms. Að sögn þess eru þessar her- æfingar aðeins ögrun við Tékka. Tvö þúsund skriðdrekar, og sextán þúsund herflutningabilar með fimmtiu og sex þúsund hermenn innanborðs munu verða notaöir á þessum heræfingum sem munu eiga sér stað i augsýn frá tékknesku landamærunum. Hermennirnir sem þátt taka i æf- ingunum eru frá Vestur-Þýskalandi, Bandarikjunum og Kanada. Sakaður um njósnir BONN,l/9 (Reuter) — Vestur-þýski þingmaðurinn, Uwe Holtz sem sakaður hefur verið um njósnir fyrir austantjaldsriki neitaði þessum áburöi i sjónvarpi i gær. Holtz sem nú er hálf- fertugur að aldri hlaut óvenju skjótan frama innan Jafnaðar- mannaflokksins sem nú situr viö völd i Vestur-Þýskalandi. Asakanir þær sem á hann hafa verið bornar komu i kjölfar þess er rúmenskur stjórnmálamaður að nafni Ion Pacepa flúði til vesturlanda og gaf i skyn við bandarísku leyniþjónustuna að háttsettir menn innan stjórnarinnar i Bonn stunduðu njósnir fyrir kommann. Atburður þessi kemur á óþægilegum tima fyrir vestur-þýsku stjórnina, þar sem kosningar standa fyrir dyrum i Hessen og Bæjaralandi, nánar tiltekið i næsta mánuði. lóhannes Páll biður um hjálp VATIKANIÐ.31/9 (Reuter) — Talsmaður Vatikansins viður- kenndi i dag, að ræða sem Jóhannes Páll páfi flutti til kardinál- anna hafi verið send brengluð út vegna mistaka. Talsmaðurinn, séra Rómeó Panciroli kenndi tæknilegum mistökum hjá út- varpsstöð Vatikansins um aö italska útvarpinu var kleift að senda ræðuna út i gær. Ætlun Vatikansins var að hljóðrita ræð- una í þágu Vatikansins eins. Oröalag ræðunnar var mjög látlaust og persónulegt. Páfinn sagði kardinálunum að hann þekkti ekki stjórnkerfi Vatikansins og baö þá um hjálp og samúö eftir hina óvæntu kosningu. Bankaverkfall i Brasilíu SAO PAULO, 31/8 (Reuter) — Annriki var I brasillskum bönkum i dag, þar sem bankastarfsfólk hefur hótað að fara I verkfall á morgun. Bankastarfsfólk hefur krafist 65% launahækkunar en verið boðin 15% iaunahækkun fyrir lægri launaflokka en 5% hækkun fyrir þá hærri. Búist er viö að 120.000 bankastarfsmenn felli niður vinnu en það mun hafa áhrif á starfsemi 1.500 banka. Forseti Brasiliu, Ernesto Geisel, hefur nýlega sett lög sem banna bankastarfsfólki að leggja niður vinnu og geta verkfalls- menn átt á hættu að missa stööur sinar. Vegna ástmannsins LOD, Israel, 31/8 (Reuter) — ^rabiskur skæruliði viðurkenndi I dag fyrir israelskum herdómstól að hafa komið fyrir sprengju sem særði 28 manns. Skæruliöinn, sem er kona aö nafni Aliya Muhamed Alexiya,sagðist hafa gert þetta til aö þóknast elskhuga sinum. Aliya er ættuð frá vesturbaka Jórdan og kom sprengj- unni fyrir á grænmetismarkaði i Suður-Israel 1 júlimánuði i fyrra. Aliya var dæmd i tiu ára fangelsi fyrir að þóknast mannin- um. GAZELLA purnar eru víða vinsælar. i stuttu méfí l_______ Vinningar i happdrættinu eru valdir með yngri ferðalangana I huga. SUMARFERÐIN A MORGUN: 101 vinningur Vinningar í happdrætti sumarferðarinnar eru 101 talsins/ en miðarnir verða seldir i rútunum og kosta 500 krónur stykkið. Vinningarnir eru aðallega miðaðir við yngri þátttakendurna, en vinningar koma i hverja rútu. Aðalvinningurinn er 2ja manna tjald en auk þess eru bakpokar, borð- tennisáhöld, málverkaeftirprentanir, hljómplötur, mikill fjöldi bóka fyrir fólk á öllum aldri, myndaþrautir, kubbakassar, föndurkassar, smiðaáhöld, keramik og margt margt fleira. Látið ekki happ úr hendi sleppa, i dag eru siðustu forvöð að tryggja sér sæti i ferðina. Skrifstofan er opin frá kl. 11 - kl. 17. Siminn er 17500. Q HH ö?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.