Þjóðviljinn - 02.09.1978, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 02.09.1978, Blaðsíða 20
DIODVIUINN Laugardagur 2. september 1978 Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægtað ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaös- ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 ög 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Skipholti 19, R. 1 BUOIM simi 29800, (5 linurN-------" Verslið í sérverslun með litasjónvörp og hljómtæki BSRB sendir viðskiptaráðherra bréf Meö hamar i annarri hendi og rós i hinni hóf Ragnar Arnalds störf sin i menntamálaráðuneytinu. Þaö voru útvarpsmenn sem lögöu tii hvorutveggja. Ráðherrann fékk hamar frá útvarpsmönnum Þeir útvarpsmenn gera þaö ekki endasleppt við mennta- málaráöherra. Ragnar Arnalds var ekki fyrr tekinn viö embætti menntamálaráöherra i gær en Páll Heiöar Jónsson kom fær- andi hendi meö vel innpakkaða gjöf frá starfsmönnum Rikisút- varpsins. Reyndist þar vera kominn hamar einn voldugur ásamt meö rauöri rós. A miða sem gjöfinni fylgdi var Ragnari óskaö til hamingju með embættið og minnt á nauösyn þess aö haldið verði áfram að smiða útvarpshusiö. „Við von- um að þér auðnist aö reka i þaö seinasta naglann á tilsettum tima með þessu verkfæri,” sagði þar. Bætist nú enn góöur gripur i verkfærasafn ráöuneytisins, og er óskandi aö hinn nýi mennta- málaráöherra geti notaö hamarinn þegar þar aö kemur eins og Vilhjálmur rekuna góöu. —eös Rækileg rannsókn á innflutningsversluninni „Mér þykir mjög vænt um aö þetta bréf er þaö fyrsta sem biöur min á þessu borði og væntanlega mun viöskiptaráöuneytiö geta hafist handa um þá rækilegu rannsókn á innflutningsverslun- inni sem gert er ráö fyrir I sam- starfsyfirlýsingu stjórnarflokk- anna”. Þessi orð mælti Svavar Gestsson viðskiptaráðherra er hann haföi opnaö bréf frá BSRB sem lá á boröi hans I viöskipta- ráöuneytinu er hann kom tii starfa i gær. Bréfið var stilaö til hins nýja viðskiptaráðherra og undirritað af formanni og varaformanni BSRB, þeim Kristjáni Thorlacius og Haraldi Steinþórssyni. Þaö er svohljóöandi: verður eitt af fyrstu verkum Svavars Gestssonar viðskiptaráðherra „Formannaráöstefna BSRB lýsir ábyrgð á hendur þeim sem hafa magnaö veröbólgu i landinu með þeirri tilhögun á verölagn- ingu innfluttrar vöru sem verð- lagsstjóri hefur upplýst eftir rannsókn erlendis”. Það var á fimmta timanum i gær aö Svavar Gestsson gekk inn i ráöuneyti sitt og tók á móti hon- um Björgvin Guðmundsson skrif- stofustjóri i fjarveru Þórhalls As- geirssonar ráðuneytisstjóra og kynntistarfsfólkiðfyrir honum og visaði honum i hornherbergi á þriöju hæð i Arnarhvoli þar sem skrifstofa ráöherrans er. Þetta er i fyrsta sinn sem viö- skiptaráðuneytiö fær sérstakan ráðherra sem ekki fer jafnhliöa með málefni annarra ráðuneyta. Miklar vonir eru bundnar við starf Svavars og er þess vænst að hann láti hendur standa fram úr ermum við að uppræta ýmis kon- ar spillingu i viöskiptamálum þjóðarinnar. —GFr. Björgvin Guömundsson, skrifstofustjóri I viöskiptaráöuneytinu, býöur Svavar Gestsson velkominn til starfa. (Ljósm.: eik) Flugleiöir kaupa Arnarflug Flugleiöir hafa ákveöiö aö kaupa óseld hlutabréf i Arnar- flugi aö upphæö 44 miijónir kr. og veröur hlutafé Arnarflugs hf. þá 120 miljónir. Ennfremur er sam- komulag um aö Flugleiðir kaupi til viöbótar þessu 25 miljóna króna hlut af hlutafjáreign nokk- urra stærri hluthafa félagsins. Sumarferðin um Þjórsárdal á morgun: Q Þeir, sem ekki hafa þegar sótt miða í sumar- ferð Alþýðubandalagsins um Þjórsárdal á morgun, verða að gera það i dag. Skrifstofan er opin frá kl. 11-17 og er síminn þar 17500. Þátttakendur eiga að SKRIFSTOFAN ER OPIN FRÁ 11 -17 • Síðustu forvöð að sækja farmiða í dag •Gleymið ekki sundfötum og stígvélum! vera komnir á Umferða- miðstöðina kl. 8 í fyrra- málið en lagt verður af stað þaðan kl. 8.30 stund- víslega. Fólk er hvatt til þess að klæða sig vel og nesta sig vel, en gosdrykkir verða seldir á leiðinni. Fólki er bent á að taka með sér stigvél og sund- föt. Munið að i Alþýðu- bandalagsferðunum sameinast fræðsla um land og sögu, skemmtun og félagsskap. Látið ykk- ur því ekki vanta! 1 frétt frá Flugleiöum og Arnar- flugi segir, að ástæöan fyrir þessu sé nauðsyn á auknu samstarfi þeirra islensku flugfélaga sem keppa við erlend flugfélög um leiguflug á erlendum markaöi. Þá segir einnig, aö starfsemi Arnar- flugs hf. sé mjög áhættusöm þar sem félagið sé aðeins með 2 vélar, ef um engan stuðning frá stærra flugfélagi séað ræöa. Vonast aöil- arnir til þess, aö þessi ráöstöfun veröi til þess aö styrkja stööu is- lensks i flugrekstrar á erlendum mörkuöum og bæta afkomu þeirra á komandi árum. Svavar hœttir ritstjóm A fundi stjórnar útgáfufélags Þjóðviljans i gær var Svavari Gestssyni, viðskiptaráöherra, veitt lausn frá ritstjórastörfum á Þjóöviljanum. Jafnframt sam- þykkti stjórnin ályktun um ráö- stafanir hvaö varöar stjórn Þjóö- viljans I þessum mánuöi, en stefnt er aö því aö ráöa stjórnun- armálum blaðsins til lykta á næstunni. —ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.