Þjóðviljinn - 02.09.1978, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 02.09.1978, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. september 1978 Jb Broskahjálp HATU/JI 4A 705 AEYKJAVÍK SIMI 295 70 Landssamtökin Þroskahjálp halda almennan fund um málefni þroskaheftra mánudaginn 4. sept. n.k. kl. 20.30 i Dómus Medica við Egilsgötu. Agnete Schou fulltrúi frá Landssamtökun- um Evnesvages Vel i Danmörku flytur framsöguerindi: Foreldrastarf og foreldrafræðsla. Að loknu erindi verða umræður. Erindið verður túlkað á islensku. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um málefni þroskaheftra, en foreldrar og starfsfólk allra stofnana fyrir þroskahefta er sérstaklega hvatt til að mæta. Kaffiveitingar verða á staðnum. Stjórnin. Félagið Ísland-DDR Gesellschaft Island-DDR Dr. Bruno Kress, prófessor við Ernst- Moritz-Arndt-Universitat i Greifswald, heldur fyrirlestur og spjallar við áheyr- endur um efnið ,,íslensk tunga í Þýska alþýðulýðveldínu” i Auditorium, Hótel Loftleiðum, föstudag- inn 1. sept. 1978, kl. 20.30. Prófessor Bruno Kress er vel kunnur fyrir þýðingar sinar á verkum Halldórs Laxness og visindastörf i norrænum fræðum. Allir áhugamenn velkomnir. Stjórnin Iff Lóðaúthlutun "I* — hesthús Reykjavikurborg mun á næstunni úthluta lóðum fyrir hesthús i Viðidal, Seláslandi. Umsóknir skulu ritaðar á sérstök eyðu- blöð, sem fást afhent á skrifstofu borgar- verkfræðings, Skúlatúni 2. Umsóknarfrestur er til og með 20. septem- ber 1978. Athygli er vakin á þvi að allar eldri umsóknir eru hér með fallnar úr gildi og ber þvi að endurnýja þær. Allar nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, þar sem jafnframt er tekið á móti umsóknum. Borgarstjórinn i Reykjavik LAUST EMBÆTTI r er forseti Islands veitir Prófessorsembætti i meinafræði við læknadeild Háskóla íslands er laust til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsækjendur um prófessorsembættið skulu láta fylgja umsókn sinni ýtarlega skýrslu um visindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Umsóknir þurfa að berast menntamála- ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. október 1978 Mennta mála ráðuney tið 29. ágúst 1978. Ný stjórn I Danmörku Kaupmannahöfn, 30/8 (Reuter) — Margra vikna viöræöum milli danskra jafnaöarmanna og Venstre (hægfara flokks) um stjórnarmyndun lauk með þeim afleiöingum aö samsteypustjórn þessara flokka tók viö störfum i gær. Hún tók viö af stjórn jafnaö- armanna einna meö Anker SVFI Framhald af 14. siöu einni björgunarsveitinni vandaöa talstöð. Fjallamannaklúbburinn C.E.Poblet i Barcelona á Spáni hefur sent félaginu fagurlega gerðan veggskjöld meö eftirfar- andi áletrun: „Meö þakklæti til Slysavarnafélags islands fyrir gott samstarf og hjálp vegna veittrar aðstoöar, Frá leiöangri til Islands 1977.” Axel Gomez Retana, islenskur rikisborgari afhenti þennan fagra grip i nafni landa sinna. Strandgæsla Bandarikjanna — US COAST GUARD — hefur sent SVFI tvær kvikmyndir til fræðslu og kynningar. Sýnir önnur mynd- in hina margþættu starfsemi, er Strandgæslan hefur með höndum, en hin myndin er um þjálfun áhafna hinna rómuðu 44 feta björgunarbáta og sýnir þá aö störfum. Lawrence M. Grossman sendiráðsritari hér i Reykjavik afhenti kvikmyndirnar fyrir hönd Strandgæslunnar. Adolf Wendel innflytjandi i Reykjavik hefur afhent sér- hannaöan ljóskastara mjög meö- færanlegan, sem er til fleiri hluta nytlegur en viö leitar- og björgunarstörf. Ljóskastarinn er sambyggður litlum mótor og vegur hvort tveggja um 7 kg. Viö sérstakar aðstæður er hægt að losa sjálfan ljóskastarann frá mótornum og koma fyrir á þar til gerðum þrifót og tengja saman að nýju með 6 mtr. langri rafmagns- snúru. Þá hafa ýmsir ónafngreindir einstaklinga og félög styrkt'starf- semi SVFI með fjárframlögum, og verður þeirra sérstaklega getiö i Arbók félagsins eins og venja er. Slysavarnafélag Islands þakkar öllum sem hlut eiga að máli, velvild og hlýjar óskir. (Fréttatilkynning frá SVFI) Rauðsokka Framhald af bls. 12 Guörún Helgad.: Þær fðru bara niöur Ibæ meökrakkana sina eins og þetta væri 17. júni. Það varð aldrei nein barátta úr þessu. Jafnréttissiöan: Konur sáu þarna hvaö þær voru stór þátttak- andi i atvinnulifinu. Vil. Dag.:Sko, þaöer allt annað að vita að við erum helmingur þjóðarinnar heldur en raunveru- lega aö finna þaö og sjá það, sér- staklega fyrir konur sem margar hverjar höfðu aldrei áður tekið þátt i félagslegri aðgerð. Kvenna- dagurinn var i raun og veru ómarkviss, máttlaus og eiginlega bara skemmtiatriðL'‘en samt, þá rann það upp fyrir konum, að þær voru af 1, þær voru margar og þær voru sterkar. Þær fundu aö þær gátu staðið saman. Pipulagnir Nylagmr, breyt- inyar« hitaveitu- tengingar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvoldin) Jörgensen i forsæti, en þar situr hann enn. Nýja stjórnin boöar haröari stefnu i veröbólgumálum, kaupstöövun og hækkun sölu- skatts upp i 20 af hundraöi I staö- inn fyrir 18%. Þess má geta, að fyrir tæpu ári var söluskattur hækkaður úr 15% upp i 18%. Stjórnin boðar einnig samdrátt i framkvæmdum á veg- um rikisins. Beðið verður með að hefja byggingu á brú yfir Stóra- beltið sem mikið hefur verið rætt um á timum atvinnuleysis. Einn- ig verður beðið átekta með hvort byggja skuli kjarnorkuver i Danariki. Af 179 þingsætum hefur nýja stjórnin 88 sæti og vantar þar með tvö sæti til að ná hreinum meiri- hluta. Af tuttugu og einu ráð- herraembætti falla fjórtán i hlut jafnaðarmanna en sjö i hlut Venstre. Þar af verða tveir ráð- herrar jafnaðarmanna, þau Lise Ostergard og Per Hækkerup, án sérstakra ráðuneyta. Samsteypustjórnin hefur mætt mikilli andstöðu meðal almenn- ings og hafa m.a. jóskir skipa- smiðir lagt niöur vinnu i mót- mælaskyni. franskur borgari Marina Spasski, eiginkona Bor- is Spasski fyrrum heimsmeistara i skák, sagöi fréttamönnum Reut- ers i gær, aö Spasski heföi nú gerst franskur ríkisborgari. Spasski fékk á sinum tima vegabréfsáritun til eins árs frá sovésku yfirvöldunum og hefur nú fengið framlengingu á henni. Þó að Spasski hafi nú tekið sér franskt rikisfang mun hann á- fram tefla fyrir hönd Sovétrikj- anna. Þannig hefur hann verið valinn iOlympiulið Sovétrikjanna fyrir Olympiumótið, sem haldið verður i Argentinu seinna i haust. Auk hans i liði Sovétmanna verða Karpov, heimsmeistari, Tigran Petrosjan. Lev Polugajevski, Mikhael Tal og Júri Balsjov. íjí ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sala aðgangskorta er hafin. Frumsýn- ingarkort eru tilbúin til afhendingar, Miðasala 13.15-20, simi 11200 Þjóðleikhúsið Blaðberar RUKKUNARHEFTIN eru tilbúin. Vin- samlegast sækið þau á afgreiðsluna. Siðumúla 6, simi 8 13 33 Afgreiöslan opin frá kl. 9 til 17 mánud.-föstud. Blaðberar óskast Austurborg: Bólstaðahlið (nú þegar) Skaftahlið (nú þegar) Njörvasund (nú þegar) Vesturborg: Háskólahverfi (nú þegar) Túngata (sem fyrst) Hjarðarhagi (nú þegar) Miðsvæðis: Laufásvegur (nú þegar) Neðri Hverfisgata (1. okt.) Kópavogur: Kópavogsbraut (sem fyrst) Álfhólsvegur (sem fyrst) Þverbrekka (sem fyrst) Seltjamames: Lambastaðahverfi (sem fyrst) UOmUINN Siðumúla 6. Simi 8 13 33

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.