Þjóðviljinn - 08.09.1978, Blaðsíða 2
2 SIDA — bJOÐVILJINN Föstudagur 8. september 1978
1. leikvika — leikir 26. ágúst 1978
Vinningsröö: Xll —111 — 2X1 — XIX
1. vinningur: 12 réttir — kr. 420.000,- 31739
2. vinningur: 11 réttir — kr. 180.000.- 33.288
2. leikvika — leikir 2. september 1978
Vinningsröö: ÍXX — 221 — XXX — X12
1. vinningur: 11 réttir — kr. 453.000.-40.611 (1/11,4/10)
2. vinningur: 10 réttir — kr. 21.500.-, 2221, 4501, 30205+
31044, 33481
Kærufrestur er til 23. sept. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar.Kærueyöublöö fásthjá umboösmönnum og
aöaiskrifstofunni. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef
kærur veröa teknar til greina.
Handhafi nafnlauss seöils veröur aö framvlsa stofni eöa
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilis-
fang til Getrauna fyrir greiösludag vinninga.
GETRAUNIR
íþróttamiðstöðin — Reykjavík
Blikkiðjan
Ásgarði 7/ Garðabæ
önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 53468
Þurrkaður harðviður
Einnig fyrirliggjandi hnota, japönsk eik
og oregon pine. Harðviðargólflistar fyrir
HÖFDATÚNI 2 - REYKJAVIK
Sími: 22184 (3 línur)
parket. Sendum i póstkröfu um allt land
k
Öryggið í fyrir-
rúmi hjá Karpov
19. skákin varð jafntefli eftir 39 leiki
Ekkert merkilegt geröist á
Filippseyjum í gær er þeir
Karpov og Kortsnoj háöu sina
19. einvigisskák i keppninni um
Heimsmeistaratitiiinn. Velfiest
deilumál hafa veriö leyst og
keppendur heyja baráttu ein-
ungisá hinum 64 reitum. Iskák-
inni í gær reyndi Kortsnoj þegar
i staö aö slá Karpov út af laginu
meö sérkenniiegri taflmennsku
í byr juninni. Hann haföi þó ekk-
ert uppúr krafsinu nema eigin
vandræöi og þegar skammt var
Bðið leiks haföi Kapov náö
undirtökunum. Hann fylgdi þó
betri stööu sinni ekki eftir ánógi
kraftmikinn háttog þegar kepp-
endur höföu leikið 39 leiki var
ekkert nema jafntefli sem til
greina kom.
Flestir sem fylgjast meö ein-
viginu á Filippseyjum telja
stööu Kortsnojs mjög vonlitla,
næstum vonlausa. Hann þarf aö
vinna Karpov 5 sinnum I viðbót,
(alls 6 sinnum en þaö er jafnoft
og Karpov hefur tapaö siöan
hann varö heimsmeistari) og aö
honum takist þaö án þess aö
Karpov fái svaraö fyrir sig
nema einu sinni er taliö meö öllu
óhugsandi. Menn eru þö sam-
mála um eittatriöi og þaö er aö
Karpov mun ekki vinna þessar
tvær skákir sem á vantar alveg
á næstunni. Hann hlýtur aö vera
undir gifurlegum þrýstingi á
meöan á skákunum stendur og
foröast aö taka nokkra áhættu.
Þetta hefur þaö I för meö sér aö
skákirnar veröa svipminni og
tilþrifunum stillt I hóf. Þvi er al-
mennt spáö aö einvigiö taki
nokkrar vikur I viöbót og veröi
jafnvel ekki lokiö fyrir
Olympiumótiö sem hefjast á i
Argentinu i lok október.
19. einvigisskák
Hvitt: Viktor Kortsnoj
Svart: Anatoly Karpov
Katalan
1. c4-Rf6
2. g3
(Dálitiö óvenjulegur leikur af
hálfu Kortsnojs. Hann er vanur
aö leika 2. Rc3. Raunar þarf
þetta ekki aö skipta neinu máli
þar sem skákin þræöir snemma
alfaraslóöir.)
2. ..e6
3. Bg2-d5
4. Rf3-Be7
5. d4-0-0
6. Rbd2
(Annar óvenjulegur leikur, en
eins og Karpov sýnir framá
leiNr hann aðeins til jafnrar
stööu. Aörir leikirsem koma til
greina eru 6. 0-0 og 6. Rc3 en
þannig tefldist m.a. 15. skákin.
Karpov átti ekki I miklum erfiö-
leikum meö aö jafna tafliö meö
svörtu.)
6. ..b6
7. 0-0-Bb7
(Þessi staöa hefur marg oft
komiö upp i skákum beggja
keppenda meö þeirri breytingu
þó aö riddarinn á d2 hefur veriö
á c3. Þá er venjulega leikiö 8.
Re5 og eftir 8. -Ra6 kemur upp
staöa sem Karpov hefur teflt
með miklum árangri.)
8. cxd5-exd5
9. Re5-Rbd7
10. Rdf3
(Til greina kom 10. Da4 en eftir
10. -Rxe5 11. dxe5 Rd7 eöa 11.
-Re4 á svartur I engum erfiö-
leikum meö aö jafna tafliö.)
10. ,.c5
11. b3-a5!
(Góður leikur sem heldur opn-
um möguleikanum a5-a4.)
12. Bb2-Re4
13. Hcl-He8
14. Rxd7-Dxd7
15. Re5-De6
(Kortsnoj hefur, þrátt fyrir
ákafar tilraunir, ekki tekist aö
ná neinu frumkvæði út úr stöð-
unni og stendur liklega eitthvaö
lakar að vlgi.)
16. Rd3-Bd6
(Timi: Kortsnoj 1,10 Karpov:
0,55.)
17. dxc5-bxc5
(Upp er komin staöa sem báöir
eru vanir að fást viö. Karpov
hefur oröiö sér úti um hin svo-
kölluöu „hangandi” peö, þ.e.
peðin á c5 og d4. „Hangandi”
eru þau kölluö vegna þess aö
þaustanda einsér og veröa ekki
varin af öörum peöum. 1 þeim
felst oft mikill máttur t.d. taka
þau frá hvítum mikilsveröa reiti
á miöboröinu. En veröi þau
fyrir mikilli áreitni eru þau oft
völt i sessi. í þessari stööu bend-
ir allt tii þess aö þau reynist
svörtum fremur styrkleiki en
veikleiki.)
18. e3-a4
(Sjá aths. viö 11. leik svarts.)
19. bxa4
(Hvitur hefur unniö heilt peö
eða öllu heidur 1/2 þar sem um
tvlpeö er aö ræöa.)
19. ..Ba6!
(Peöinu á a4 veröur ekki langra
lifdaga auöið.)
20. Hel
(Hrókurinn unir sér eölilega
ekki I skálfnu biskupsins.)
20. ..Bxd3
21. Dxd3-Hxa4
(Hið tapaða iiö hefur verið
endurheimt og svartur stendur
enn sem fyrr öllu betur aö vigi.
Einhvern veginn finnst mér
taflmennska Karpovs hálf
linkuleg og hann gerir enga al-
varlega tilraun til aö hagnýta
sér augljóslega betri stöðu.)
22. Db3-Haa8
(Tlmi: Kortsnoj 2,00 Karpov
2,00.)
23. Bxe4
(Þennan riddara varö aö fjar-
lægja fýrr eöa slöar.)
23. ..dxe4
24. Dxe6-Hxe6
25. a3-Ha4
(Kemur I veg fyrir aö hvitur nái
að leika Hcl-c4.)
26. Hedl-f6
(Allur er varinn góöur. Svartur
loftar út fyrir kónginn og rýmir
auk þess útgönguleiö fyrir hann.
Sannarlega peð meö þjónustu-
lund.)
27. Kf 1-KÍ7
(Kóngarnir fram á boröið er
móttóið i endatafli).
28. Hc2-Be7
(Nú kemst hrókurinn I áhrifa-
stöðu á d7. Betra var þvi ed.v.
28. -Ke8 og siöan 29. -Be7).
29. Hd7-Hb6
30. g4-Ke6
31. Hc7-Ha8
32. Hd2-g6
33. Kg2
(33. Hdd7 lltur vel út en strand-
ar á 33. -Bd6 o.s.frv.)
33. ..f5
34. g5-Hd6
35. Hc2
(Uppskiptin eru svörtum i hag
þar sem biskupinn á b2 stendur
ekki sem best.)
35. ..Hda6
36. h4-H8a7
37. Hc8-Ha8
38. Hc7-H8a7
39. Hc8
— Hér ypptu báöir keppendur
kurteisislega öxlum og þá fór
það ekkert á milli mála aö um
jafnteflisboö var aö ræöa.
Keppendur undirrituöu siöan
skorblöðin og hurfu á braut.
Eins og kunnugt er hefur form á
jafnteflistilboðum veriö mikiö
deilumál i Baguio. Hér virðist
vera komin snjöll lausn á þvi
vandamáli. Vilji annar hvor
keppenda jafntefli yppir hann
öxlum og sé hinn keppenda sátt-
ur á þau málalok þá yppir hann
á móti.
Staðan:
Karpov 4 (11)
Kortsnoj 1 (8)
Næsta skák veröur tefld á
laugardaginn og þá hefur
Karpov hvitt.