Þjóðviljinn - 08.09.1978, Síða 5
Föstudagur 8. geptember Í978 ÞJÓDVILJINN — StÐA 5
Á formannaráðstefnu
Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, sem hald-
in var 31. ágúst sl., var
samþykkt, að fagna
skyldi þeim ráðstöfun-
um sem rikisstjórnin
hyggðist gera i efna-
hagsmálum. í ráðstöf-
unum stjórnarinnar
felst, eins og kunnugt er,
að kjarasamningamir
skyldu teknir i gildi frá
1. september.
Ráðstefnan benti á, að með þvf
að setja visitöluþak við vissa
krónuupphæð væri rikisstjórnin
þó ekki að koma samningunum i
gildi og væri BSRB nií sem fyrr
andstætt sliku þaki. Hins vegar
segir i ályktuninni, að sá þáttur
loforða rikisvaldsins, að afnema
Frá formannaráðstefnu BSRB: Ráðstefnan vill fyrir sitt ieyti stuðla að þvi að rikisvaldið geti náð þeim
árangri að hamla gegn verðbólgu og afleiðingum hennar.
Haraldur Steinþórsson, framkvæmdastjóri BSRB:
Haraldur Steinþórsson: Lit svo á
að straumhvörf þau sem áttu sér
stað við siðustu kosningar séu að
verulegu leyti afleiðing barátt-
unnar 1. og 2. mars sl.
Meirihluti félagsmanna
fær fullar vísitölubætur
lögbundinn tveggja ára samn-
ingstima og geröardóm um
sérkjarasamninga, auk þess
sem opinberum starfsmönnum
væri ætlaður sami verkfallsréttur
og öðrum launþegum, sé svo mik-
ið mál, að sambandið muni beita
sérfyrir þvii samningi að afsalað
verði 3 prósent launahækkun sem
átti að koma til framkvæmda 1.
april næstkomandi.
I aðgerðum rikisstjórnarinnar
felst einnig, að endurskoöun skuli
framkvæmd á visitölugrunninum
og tekið verði upp samstarf milli
stjórnvalda og stéttarfélaga. Sér-
stök undirnefnd rikisstjórnarinn-
ar hafi ávallt samband við laun-
þegasamtökin um þau mál sem
sérstaklega snerta hagsmuni fé-
lagsmanna.
Til þess aðfá nánari skýringu á
þvi sem felst i samþykkt for-
mannaráðstefnu BSRB, ræddi
Þjóðviljinn við Harald Steinþórs-
son framkvæmdastjóra banda-
lagsins, og spurði hann fyrst,
hversu mikið vantaði á að kjara-
samningar BSRB væru i gildi.
— Við höfum ekki nákvæmar
upplýsingar um fjölda
BSRB-manna i hverjum launa-
flokki. Þóskilst mér að fyrir ofan
13. launaflokk sé um helmingur
félaga og þá annaö eins fyrir neð-
an. Fullar visitölubætur yrðu
greiddar upp I 3. þrep 15. launa-
flokks, þannig að meirihluti fé-
lagsmanna innan BSRB væri
kominn með fullar visitölubætur
og allir þeirra sem á vantar með
mun minni skerðingu ener i dag.
Það þýðingarmesta fyrir alla
BSRB-menn, hvar i launaflokki
sem þeir standa, er að kaupráns-
lögin verði numin lir gildi. Ávinn-
ingurinn sem fæst við það er
margfaldur á við það sem vantar
á að samningarnir séu aö fullu i
gildi. Endahef égeinhvers staðar
séð útreikning á þvi, að kjara-
skerðingin muni verða bætt allt
að 96 prósentum hjá opinberum
starfemönnum.
— Breytir það engu í afstöðu
sambandsins, að eitt félag,
Starfsmannafélag Reykjavikur-
borgar, verður með samninga
sina að fullu i gildi frá næstu ára-
mótum, samkvæmt ákvörðun
borgarstjórnarinnar?
— Nei, það ætti ekki að breyta
neinu. Skipulag samtakanna er
þannig, að BSRB semur fyrir
rikisstarfsmenn, en hvert bæjar-
starfsmannafélag viö sina sveit-
arstjórn. Útkoman úr siðustu
samningum varð til dæmis þann-
ig, að starfsmannafélög voru með
ýmis ákvæði i sinum samningum
sem ekki voru hjá rikisstarfs-
mönnum, og sum auk þess með
öðru visi launastiga en BSRB.
Svona lagað hlýtur að geta gerst
þegar verið er að semja á mörg-
um vigstöðvum. Vitanlega má
Verðum að stuðla
að því að fíja
ríkisstjórninni
verði ekki aðeins
tjaldað til
einnar nætur
gera ráð fyrir, að þeir sem
skemmra eru komnir i samning-
um vitni til samninga borgar-
starfsmanna, en hvenær er slikt
ekki gert?
— Eru opinberir starfsmenn
með einhverjar hugmyndir um i
hvaða átt endurskoðun visitölu
kerfisins skuli beinast?
-Við höfum verið með okkar sér-
stöku stefnu i sambandi við visi-
töluna. 1 siðustu samningum
lögðumvið þannig til, að bil milli
launaflokka væri föst krónutala
en ekki prósenta. Við lögðum
einnig til að munur milli hæsta og
lægsta launaflokks yrði minnkaö-
ur frá þvi að vera tæplega þre-
faldur i það að vera rétt liðlega
tvöfaldur. Skerðingin sem við
höfum núbúið við um skeið hefur
að visu minnkaö launamuninn
nokkuð, en okkur finnst það hins
vegar ekki rétt leið, að það skuli
vera verðbólgan sem sér um að
ákveða launamuninn. Launamun
á að semja um, rétt eins og gert
er á skipum, þar sem sumir eru
ráðnir upp á einn hlut, sumir upp
áeinnog kvartog skipstjóri upp á
tvohluti. Slikt hlutfall helst, hvort
sem vel veiðist eða illa.
Þetta er okkar kenning og við
viljum siðan við endurskoðun
samnings minnka þennan launa-
mun eftir þvi sem hægt er. Þetta
er megin munurinn á þeirri visi-
tölustefnu sem gilt hefur hjá
BSRB og þeirri sem gilt hefur hjá
ASl, þar sem prósentureglan er
látin gilda um ýmsa kaupliði.
Varðandi gerð visitölunnar, þá
er það hlutverk hennar að mæla
hækkanir. Slikt er hægt að gera á
marga vegu, en það verður að
vera ákveðið samræmi i þvi. Það
er útílokað að sumt i kjarasamn-
ingum sé mælt i prósentum, eins
og verkstjórn, hæðarálag og jafn-
vel verkf ærapeningar, sem
bundnir eru prósentum og verða
þannig þeim mun meiri sem
minna er notað af verkfærum.
Þetta ætti að afnema allt saman
ef taka skal upp almenna krónu-
tölureglu.
Slikt gæti þýtt endurmat á hug-
tökum eins ogyfirvinnu og nætur-
og helgidagavinnu. Við hjá BSRB
höfum sjálfir fyrir löngu tekið það
upp i samningum, að vaktaálag
er það sama i krónutölu til allra,
hvaða launaflokki sem þeir til-
heyra. Sá sem er i hærri launa-
flokki fær ekki meiri peninga
fyrir aðvaka á nóttunnien sá sem
erlægralaunaður. Öþægindineru
þau sömu.
Þannig koma margir möguleik-
ar til greina, en það verður að
vera fullt samræmi i framkvæmd
hjá öllum starfsstéttum, bæði hjá
verkalýðsfélögunum og BSRB, og
allir verða að lúta sömu lögmál-
um að öllu leyti.
— Nú mætti álita að rikisvaldið
hefði aðeins áhuga á að breyta
vlsitölugrunninum þannig, að
vægi visitölunnar yrði minna
fyrir launþega. Ertu ekkert
smeykur við þaö?
— Ekkert sérstaklega. Það er
hægt að láta visitölubætur og
tryggingarkerfi vinna saman.
Þannig voru fyrstu visitölubæt-
urnar sem opinberir starfsmenn
fengu svonefndar ómagabætur.
Þá fékk sá meira, sem stærri
hafði fjölskylduna. Þannig eru til
ótal fletir á þessum málum og
margar aðgerðir við fram-
kvæmd. Ég vil ekki útiloka neina
aðferð fyrirfram né heldur halda
neinni einni fram sem öðrum
betr i.
— Er afnám lögbundins samn-
ingstima og kjaranefndar svo
mikið mál fyrir opinbera starfs-
Framhald á 14. siðu
Hjólbarðasólun, hjólbarðasala
og öll hjólbarða-þjónusta
Nú er rétti tíminn til
að senda okkur
hjólbarða til
sólningar
Eigum fyrirliggjandi
flestar stærðir
hjólbarða,
sólaða og
nýja
Mjög
gott
verð
F/jót og góð
þjónusta
PÓSTSENDUM UM LAND ALLT
VINNU
STOFAN
HF
Skiphoit 35
105 REYKJAVÍK
sími 31055