Þjóðviljinn - 08.09.1978, Side 11
Föstudagur 8. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA II
Forma&ur Bræðrafélags Biistaðasóknar, Sigurður Magnússon, afhendir hjónunum að Grundarlandi 22
verðlaun.
Verdlaun fyrir snyrtímennsku
Það er orðinn árlegur viðburð-
ur hjá Bræðrafélagi Bústaöa-
sóknar að úthluta viðurkenningu
fyrir „snyrtilega umgengni á lóð
og húsi”.Að þessu sinni hlutu
viðurkenningu hjónin Edda Jóns-
dóttir og Ólafur Briem, Grundar-
landi 22.
1 greinargerð úthlutunarnefnd-
ar segir m.a.: , ,Það er álit okkar
að ræktunarmenning, snyrting og
fegrun umhverfis aukist og batni
með ári hverju, bæöi frá hendi
einstaklinga og þess opinbera.”.
Morgar
ss Kanr
Ný bók um
Morgan Kane
Prenthúsið hefur sent frá sér
nýja bók um Morgan Kane, þá
elieftu i röðinni. Heitir hún
Hefnd'. Þessar verksmiðjufram-
leiðslu-sögur úr Villta vestrinu
njóta sem kunnugt er mikilla vin-
sælda hér á landi. Þær eru norsk-
ar að uppruna, en þýðanda er
ekki getið.
Til fróðleiks látum við fylgja
hér með lýsingu á hetjunni
Morgan Kane:
Fæddur: Haustiö 1855, dagsetn-
ing ókunn, einhversstaðar við
Santa Fé-veg. Hæð: 192 sm.Þyngd
u.þ.b. 75 k. Háralitur: dökkur.
Augur: stálgrá. Sérstök einkenni:
stjörnulaga ör á hægra handar-
baki. Lamaður baugfingur á
hægri hendi, festur með skinnhólk
við löngutöng. Persónulegir
eiginleikar: Mundar byssu á 2/5
sek. Veikur fyrir konum og
fjárhættuspili. Taugaveiklaður og
einrænn. Ýmislegt sem bendir til
geðveilu.
Bókin er I vasabroti, 116 bls. að
stærð.
Ný Ijóöabók:
Fyrir stríð
eftir Erlend Jónsson
Erlendur Jónsson hefur sent frá
sér þriðju ljóöabók sina: „Fyrir
strið”. Þar segir frá bernsku
skáldsins og ungdómsárum
„milli kreppu og striðs”. Bókinni
er skipt i þrjá kafla: Barnaskap-
Gras
gegn
gláku
PHILADELFIA (AFP) —
Attatiu ára gamall banda-
rikjamaður hefur beðið
fylkisstjórnina um leyfi til að
kaupa marihuana á löglegan
hátt. Maðurinn segir efniö
draga úr gláku sem hann
þjáist af og er aö gera hann
blindan. Fyrir dómstólum
sagðist hann hafa reykt
marihuana fvrir fimm vik-
um og hafi sjónin lagast
mikið við það. Heimilislækn*
ir mannsins hefur synjað
honum um lyfseðil út á gras-
iö.
ur fyrir strið; Alvaran fyrir strið
og Norðurrútan ’39.
Fyrsta ljóð bókarinnar heitir
Mánudagur og lýkur þannig:
Ég kom I heiminn á mánudegi.
Litir heimsins
blöstu fyrst við augum minum
á mánudegi.
Lækurinn varð leikbróðir minn.
Þjóðvegurinn varð heimili mitt.
Hafið varö draumur minn
Lifsmyndir hrönnuðust upp
og fylltu daga mlna
sjónhringum.
Visindamenn við háskólann i
Montana i Bandarikjunum hafa
uppgötvað að fái apynjur ekki
nægilegt sink i fæðu sinni um
meögöngutiman. eignist þær af-
kvæmi sem hegða sér á óeðlileg-
an hátt.
Þessir apaungar, sem ekki
höfðu fengiö nægilegt sink i
móðurkviði, léku sér minna en
önnur apabörn og voru ekki eins
framkvæmdasamir, og þeir sótt-
ust meira eftir þvi að kúra hjá
mæðrum sinum, að sögn visinda-
Bókin er 69 bls. að stærð,
pappirskilja. Otgefandi er
Almenna bókafélagið.
mannanna. Sams konar rannsókn
á rottum leiddi einnig i ijós að af-
kvæmi rotta, sem ekki höfðu
fengiö sink i fæðu sinni á með-
göngutimanum , hegöuðu sér
óeðlilega þegar þau voru full-
vaxta. Reyndust þau hafa minni
heila en aðrar rottur og eignuðust
minni afkvæmi.
Ekkert er vitað um áhrif sink-
skorts á mannanna börn, en ólík-
legt er hann sé eins alvarlegur
fyrir þau og fyrir afkvæmi apa og
rotta. — (Reuter).
Sinkskortur hefur
illar afleidingar
Blaðberar
óskast
Austurborg:
Sunnuvegur (nú þegar)
Akurgerði (1. okt.)
Vesturborg:
Háskóli — Tjarnargata (nú þegar)
Hjarðarhagi (nú þegar)
Kvisthagi (nú þegar)
Miðsvæðis:
Laufásvegur (nú þegar)
UOBVIUINN
Siðumúla 6. Simi 8 13 33
Sölumaður/
Skrifstofustörf
Óskum eftir að ráða sölumann að Bif-
reiðadeild vorri, nú þegar. Einnig óskum
við eftir að ráða i almenn skrifstofustörf.
Frekari upplýsingar gefur Starfsmanna-
hald.
Samvinnutryggingar
Ármúla 3, Reykjavík.
Sendill óskast
eftir hádegi til léttra
sendiferða
tlJOÐVIUINN Sími 81333
Framkvæmdastjóri
Búnaðarfélag íslands óskar að ráða fram-
kvæmdastjóra við nautauppeldisstöð
félagsins i Þorleifskoti (hjá Laugardæl-
um) hið fyrsta. Nauðsynlegt að umsækj-
andi sé landbúnaðarkandidat. Umsóknir
berist Búnaðarfélagi íslands fyrir 15. okt.
n.k. *
Búnaðarfélag íslands.
Við sendum öllum hjartans þakkir, er sýndu samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför móöur okkar, tengda-
móður, systur, ömmu og langömmu,
Valgerðar Bjarnardóttur
frá Hreggstöðum.
Margrét Sturludóttir, Gunnar Bjargmundsson
Unnur Sturludóttir, Svanur Skæringsson
Kristjana Sturludóttir, Sigurbergur Andrésson
Kristfn Andrésdóttir, Einar Sturluson
Einar Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn.