Þjóðviljinn - 16.09.1978, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.09.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 16. september 1978 ÞJ6ÐVILJ1NN — SIÐA 3 Kaupmáttaraukning er niðurstaðan Þrjár leiöir til aö meta nýju kaupgjalds- breytingarnar Einn aöaltilgangurinn með kaupránslögum rikisstjórnar Geirs Uallgrimssonar var sá að rugla fólk i riminu og gera kaupgjaldsmálin að slikri sér- fræðigrein að almenningur gæfist upp á þvi að mynda sér skoðun um kaup og kjör. Þess vegna er það ekkert furðulegt að upp komi nokkur ruglingur þegar kaupið er fært aftur til fyrra horfs eðlilégra kjara- samninga frá þvi dulafulla fyrirkomulagi sem kaupráns- lögin kváðu á um. Þær breytingar sem nú verða á kaupgjaldi við það að samn- ingareru settir i gildi verða þvi aðeins metnar réttilega að miðaösé við þaöástand sem var áður en fyrri rikisstjórn tók að skerða kjörin, en það var i febrúar siðast liðnum. Hins vegar er eðlilegt að fólk beri endanlegt kaup nú i september saman við þá taxta sem giltu i ágúst mánúði. Og loks kemur svo fólkið i BSRB sem fékk um siðustu mánaðamót greitt kaup fyrir septembermánuð sam- kvæmt visitölu sem miðaðist við hærra verðlag en nú er eftir niðurfærsluaðgerðir rikis- stjórnarinnar. betta fólk er á öðru kaupi fyrstu 10 dagana i september heldur en siðustu 20 dagana, og hreyfingin er til lækkunar krónutölu á dagvinnu- kaupi láglaunafólksins. Mismunandi aðferðir blaðanna. Undanfarna daga hefur Þjóð- viljinn lagt áherslu á að skýra breytingar kaupgjalds frá þvi fyrir kaupránslög og þar til þau hafa nú verið numin úr gildi. Timinn hefur einkum borið saman ágústlaun og september- laun. Morgunblaðið hefur hins vegar lagt sig fram um að út- lista þær breytingar sem verða á kaupi BSRB-fólks frá fyrri hluta til siðari hluta september. Hækkun kaupgjalds á 6 1/2 mánuði frá þvi fyrir kjara- skerðingarlög nemur um einum þriöja. Hækkunin er mest á lág- laun en minnst á hálaun. Það hefur þvi oröið svolitil launa- jöfnun á timabilinu sem stafar bæði af fastri krónutöluhækkun grunnkaups hjá ASl-félögum og af nýsettu visitöluþaki á nokkuð há laun. Lægsta dagvinnukaup var óskert fyrir. Launahækkunin frá ágúst til september á lægstu laun i dag- vinnu innan ASt er aðeins um 3,5%. Þar er eingöngu um áfangahækkun grunnkaups að ræða, þar sem dagvinnukaup allt að 150 þúsund kr. i' heild fyrir ágústmánuð bar þá fullar verðlagsbætur. Dagvinnukaup sem var 160-200 þúsund krónur i ágúst hækkar nú i september um 6-9%, enda bar það ekki fullar verðlagsbætur áður. Engir yfirvinnutaxtar báru áður meira en hálfar verðlags- bætur, og þvi hækka þeir að jafnaði um 14-17%. Sú verðbótavisitala sem til- kynnt var 28. ágúst sl. var 153,82 stig og miðaöist hún við verðlag i ágústmánuði. Eftir henni var reiknað og grertt kaup opin- berra starfsmanna i september, það sem borgað er út fyrirfram. 11. september var gefin út ný verðbótavisitala, 142,29 stig, en það er sama visitala og gilti fyrir mánuðina júni-ágúst. Þessi lága verðbótavisitala miðaðist við verðlag eftir að það lækkar samkvæmt niðurfærslu- aðgerðum rikisstjórnarinnar. 1 ágústmánuði báru lægstu mánaðarkaupstaxtar BSRB fyrir dagvinnu fullar eða nær fullar verðlagsbætur. A alla taxta BSRB kom 3% grunn- launahækkun 1. september. Við 11,5% lækkun verðbðtavisi- tölunnar hlutu þvi lægstu taxtarnir að lækka i krónutölu, sem og varð. Verðlag í september = verðlag í ágúst. Þessi lækkun i krónutölu er ekki til vitnis um kjararýrnun eins og Morgunblaðið heldur fram, þvi að niðurfærsla verð- lags gerir meira en bæta upp þessa lækkun i krónutölu. Það verður hækkun i krónu- tölu frá ágústlaunum til endan- legra septemberlauna, og sú hækkun skilarsér öll sem kaup- máttaraukning vegna þess að verðlag beggja mánaöanna er eins. Septemberverðlagið er nefnilega hið sama og ágúst- verölagið, verði þar einhver munur á skal hann bættur frá og með 1. desember næst komandi. Þær voru snemma á ferðinni f gærmorgun, — hafa Ifklega ekki ætlað að missa af gulrótunum scm voru alveg einstaklega góðar. Þessa mynd tók Leifur um niu-leytið f gærmorgun, þegar verið var að reisa mark- aðinn á Torginu. / Greinargerö frá hússtjórn Kjarvalsstaða Harmar kveðj- ur Aöalsteins Utimarkaður á Torginu Vegna yfirlýsinga Aðalsteins Ingólfssonar listfræðings, fyrr- verandi framkvæmdastjóra list- ráðs Kjarvalsstaða, i fjölmiðlum, vill hússtjórn Kjarva Isstaða taka eftirfarandi fram: Núverandi hússtjórn Kjarvals- staða hefur nú starfaö i rétta þrjá mánuði og liggur í augum uppi aö enn verðurekki metið af nokkurri sanngirni, hvort hún muni reyn- ast starfi sinu vaxin eða ekki. Tók hún til starfa við mjög erfiðar og óvenjulegar aðstæður. Allir samningar, sem gerðir höfðu verið viöfélög listamanna voruúr gildi fallnir. Listamönnum hefur verið endurgreitt framlag sitt til hússins og þeir hafa opnað sitt eigið sýningarhús. Ráöning-a- samningur listfræðings hússins var runninn út. Ekki var óeðlilegt þótt nýjir hússtjórnarmeðlimir þyrftu nokkurn umþóttunartfma til að móta nýja stefnu fyrir húsiö við þessar aðstæður. Hefur hús- stjórnin fjallaö um þau mál á nokkrum fundum sinum og er,u tillögur til bohgarráðs væntan- legar á næstunni. Má taka undir þaðsjónarmið Aðalsteins Ingólfs- sonar, aö til óþurftar er aö hafa tvær stjórnir i sama húsinu,ekki sist ef verkaskipting á milli þeirra er ekki algjörlega skýr. M.a. hyggst hússtjórnin breyta því fýrirkomulagi til hins betra. A. I. sakar formann hússtjórn- ar Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, um persónulega óvild I sinn garð og hún hafi af þeim sökum hlutast til um aö A.I. yrði tekinn út af launa- skrá um mánaöarmótin júli á- gúst, og að undirlagi formannsins hafi verið að þvi staöið með óeöli- legum hætti. Vegna þessarra á- sakana verður ekki komist hjá að rekja gang þessa máls I örfáum orðum. — Ráðningarsamningur Aðalsteins Ingólfssonar rann út i febrúar 1978. Um þær mundir höfðu samningar við félög lista- manna um rekstur hússins verið lausir um nokkurt skeið. Þáver- andi borgarstjóra þótti óeðlilegt að gera á þeim tíma samninga, sem myndu binda hendur þeirrar borgarstjórnar sem kjósa átti i maí til lengri tima. A þetta sjónarmið borgarstjóra féllust allir borgarráðsmenn og forsvars- menn listamanna. Samkomulag þessara aöila var því framlengt fram yfir kosningar, þ.e. til 1. júli 1978. Ekki þótti heppilegt að ráða nýjan framkvæmdastjóra list- ráðs tíl svo skamms tima og var þvi þess farið á leit við Aðalstein Ingólfsson, að hann gegndi starfi sinu áfram tíl 1. júli. A þaö féllst hann. Var honum því fullkunnugt um, að ráðningasamningur hans var aöeins til þess tima og fram- legdist ekki sjálfkrafa og þurfti þvi ekki að koma til uppsagnar hans. Engir þar til bærir aðilar fóru fram á þaö við Aðalstein að hann gegndi starfi sinu áfram eftir 1. júli. Var því i alla staði óeðlilegt aö hann héldi störfum áfram einsog ekkert heföi í skorist. For- maöur hússtjórnar ritaöi vinnu- málastjóra bréf og vakti athygli hans á staöreyndum málsins og taldi eðlilegt að Aöalsteinn yrði tekinn út af launaskrá frá og meö mánaðarmótum júli og ágúst og héldi þvi launum I mánuð lengur en þrengstu efni kynnu að standa tíl. Bréf formannsins var ekkert einkamál hans, heldur hafði það áður verið samþykkt samhljóða á fundi hússtjórnar og bera allir hússtjórnarmenn jafna ábyrgð á þvi, þótt formaður undirriti bréf- ið. Með bréfi formannsins var ekki að þvi stefnt, að hafa laun af Aðalsteini og út frá þvi gengið sem visu að launamálayfirvöld borgarinnar sæju til þess að hann nyti allrar þeirrar iaunatengdu kjara sem honum bar. Hefur verið frá þvi máli gengið með ó- aðfinnanlegum hætti af hálfu borgarinnar. Hússtjórn Kjarvalsstaða dreg- ur ekki i efa, að Aðalsteinn Ingólfsson hafi unnið margt þarft Kjarvalsstaða ogfyrir það ber að þakka. Hins vegar harmar stjórninaö hann kjósi aö kveðja staðinn með þeim hætti sem hann gerir, er hann kemur á framfæri viðfjölmiðla ósönnum lýsingumá samskiptum sinum við hússtjórn, ásamt órökstuddum gifuryrðum og ósannindum um nýkjörinn formann hússtjórnar, og starfs- menn Kjarvalsstaða. Það var liflegt uin að litast á Torginu i gær, enda stoppaði hver einasti vegfarandi sem leið átti um á cinhvcrju horni úti- markaðarins, —skoðaði og keypti eftir atvikum. A hoijstólum voru nýuppteknar gulrætur, bækur, hljómplötur, keramik, blóm, grænmeti myndir fatnaður og fleira smálegt, allt nokkru ódýrara en i vcrslunum. Markaðurinn hafðist við undir skærrauðum himni, sem strekktur var á stálgrindur og ekkert lót var .á aðsókninni, þó rigningarslcttur kæmu úr annars sólrikum himni. Það eru arkitektarnir Gestur Ölafsson og Kristinn Ragnarsson, sem áttu frumkvæðið að úti- markaðinum sem verður haldinn á föstudögum á ver.slunartima þegar veður leyfir. Þegar blaða- maöur hitti Gest að máli um há- degisbilið, varhann ánægður með undirtektirnar sagði að salan væri mjög mikil, svo mikil að þeir hefðu varla undan að sækja nýjar birgðir af vörum. Gestur sagði að það væri ekki ætlunin að fara i harða samkeppni við kaupmenn- ina i Austurstræti, þeim stæði til boða eins og hverjum öðrum að selja vörur sinar á markaðinum en hann vonaði að grænmeti og blóm mætti fá beint frá framleið- endum. — VI Þriöja árs nemendur i Kennaraháskólanum Þrýsta á báða deiluaðila Fulltrúar þriðja árs nemenda i Kennaraháskóla isiands höfðusamband við blaðið I gær og lögðu áherslu á að með samþykktum slnum sem frá var sagt I blaðinu i gær hefðu þeir viljað þrýsta á báða aðila ideilu Sambands grunnskólakennara viö menntamála- og fjármála- ráðuneytið. Með samþykktun- um fylgdi greinargerð sem er svohljóðandi: Samband grunnskólakennara hefur slðustu árin átt i deilu við rikisvaldiö um launajöfnun kennaraprófanna. Til aö þrýsta á rlkisvaldiö hafa kennarasam- tökin beitt þeirri aðgerð, að neita aö ráða sig sem æfinga- kennara og þar með aö taka kennaranema i æfingakennslu. Þetta er þriðja árið i röö, sem þessari aðgerö er beitt, og nú er svo komið að þeir nemar, sem eru á þriðja námsári i Kenn- araháskólanum, sjá fram á að getaekki lokiðnámiá eölilegum tima, vegna þess aö mikið vant- ar á að þeir hafi lokið lögboðinni æfingakennslu. Fari sem horfir, hefur þaö i för með sér óbætan- legt tjón fyrir þetta fólk, fjár- hagslegtauk annars. Nemendur telja flestar aörar aðferðir raunhæfari, og má benda á að i flestum launadeilum bitna bær aögeröir, sem beitt er, fyrst og fremst á deiluaðilum sjálfum. Vegna neitunar grunnskóla- kennara við nemendum i æfingakennslu gat aöeins helm- ingur þriöja árs nema hafiö nám i haust. Til þess að eitt gengiyfir alla ákvaö allt þriðja ár, 86 manns, að hef ja ekki nám fyrr en viöunandi lausn fengist i málinu. Nemar einbeita sér nú aö þvi aö þrýsta á báða deilu- aöila um aö leysa máliö hið snarasta, og munu endurskoöa afstöðu sina i samræmi við breytingar, sem verða á stöðu mála. Ncmendur þriðja árs K.H.t.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.