Þjóðviljinn - 16.09.1978, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN^Laugardagur 16. september 1978
Ný flugstöd utan
vallargirðingar
ætti að heyra
undir samgöngu-
ráðuneytið, segir
Brynjólfur
Ingólfsson
ráðuneytisstjóri
Bygging flugstödvar
á Keflavíkurflugvelli:
Páll Ásgeir Tryggvason
deildarstjóri Varnarmáladeildar
Utanrfkisráðuneytisins túlkaði
þessa bókun á þá lund i samtali
við Þjóðviljann, að gert væri ráð
fyrir þvi, aö Islendingar byggi
flugstöðina sjálfir, en Banda-
rikjamenn skapi okkur sömu að-
stöðu á þeim stað sem valinn
verður fyrir nýja flugstöð, eins og
við höfum þar sem núverandi
flugstöðvarbygging er.
Umferðarspá
Fyrir allmörgum árum geröi
franskt fyrirtæki umferðarspá
fyrir Kefiavikurflugvöll, en á
slikri spá byggist stærð flug-
stöðvarinnar. Frumathugunum
þessum var lokið i ágúst 1972.
Arið 1973 var danskt fyrirtæki
fengið til að gera arðsemisút-
reikninga og áætlanir um hve
mikið rými hver stofnun eða deild
þurfi i nýrri flugstöðvarbyggingu.
Danirnir gerðu farþegaspá, sem
var mun lægri en franska far-
þegaspáin, enda var oliukreppan
þá komin til sögunnar.
Breytar forsendur
„Spáin hvað varðar farþega til
og frá íslandi hefur svo til alveg
staðist,” sagði Páll Ásgeir, ,,en
transit-farþegum hefur farið
fækkkandi.” Fyrst i stað var það
einkum vegna oliukreppunnar, en
siðan harðnaði samkeppnin gifur-
lega i leigufluginu og áttu áætl-
unarflugleiðir mjög i vök að verj-
ast. Þá hófst fargjaldastrið sem
endaði með þvi að mörg flugfélög
sem gerðu út á leiguflug urðu
gjaldþrota. Meðal þeirra var
Kaledonian-flugfélagið, en vélar
þess höfðu haft hér reglulega við-
komu og tóku hér m.a. eldsneyti
á leiöinni til Los Angeles. SAS er
eina flugfélagið fyrir utan Flug-
leiöir sem heldur uppi áætlunar-
flugi frá Keflavikurflugvelli nú
Ný spá
Páll Asgeir taldi það timæla-
laust, að gera þyrfti nýja far-
þegaspá, ef ráðast ætti i flug-
söðvarbyggingu á næstunni.
Hann sagði, aö transit-salur
þyrfti ekki að vera stærri i nýrri
ENDURSKOÐUN
UMFERÐARSPÁR
ER NAUÐSYNLEG
Frá því að ríkisstjórnin tók við völdum
hafa f jölmiðlar gert sér nokkuð tíðrætt
um flugstöðvarbyggingu á Keflavíkur-
f lugvelli/ sem lengi hef ur verið fyrirhug-
uð. Hefur Morgunblaðið haft þar frum-
kvæði og att stjórnmálamönnum og öðr-
um framámönnum í hinn gamalkunna
viðtalaleik sinn.
Lengi hef ur það verið I jóst, að þörf er á
nýrri f lugstöðvarbyggingu á Keflavíkur-
f lugvelli. Hins vegar eru skiptar skoðan-
ir um það/ hvort þetta mannvirki eigi að
hafa forgang fram yfir önnur verkefni
þegar ef nahagsástandið er jafn bágborið
og raun ber vitni. Einnig er deilt um það
hve stór slík flugstöð þyrfti að vera,
hverjir eigi að kosta hana og hvernig
koma megi aðskilnaði herflugs og far-
þegaflugs í kring.
Aðskilnaður
Samkvæmt samkomulagi sem gert
var 1974 skuldbinda Bandaríkjamenn sig
til að stuðla að aðskilnaði farþegaflugs
og herstöðvarinnar. I samkomulaginu
segir m.a.: ,, Ríkisstjórn Bandaríkjanna
mun taka þátt í byggingu nýrrar far-
þegaflugstöðvar eftir því sem fjár-
veitingar heimila og varnarliðsrekstur
kref st. Rætt var um í þessu sambandi að
Bandaríkin kosti lagningu aðkeyrslu-
brauta fyrir flugvélar, byggingu flug-
vélastæða, lagningu vega, þar með tatinn
nýr bílvegur, svo og endurnýjun á kerfi
því sem flytur eldsneyti að flugvélum."
tslenskir hönnuðir hafa ekki fengiö að koma nálægt fyrirtækunum á sfðustu tiu árum um byggingu flug-
stöðvar á Keflavikurflugvelli. Þessi lítlitisteikning er gerð af dönsku arkitekta- og ráðgjafarfyrirtæki.
Taflfélag Reykjavíkur:
Vetrarstarfiö aö hefjast
Taflfélag Reykjavikur er nú
aö hefja vetrarstarfsemi sina.
Haustmót félagsins hefst sunnu-
daginn 24. sept. kl. 14. Þar
keppa sameiginlega meistara-,
I., II. og kvennafiokkur. Þátt-
takendum verður skipt I flokka
eftir Eló-skákstigum. Tefldar
verða 11 umferöir I öilum okk-1
um. Umferðir verða á sunnu-
dögum kl. 14. og á miðvikud. og
föstud. ki. 10.30. Biðskákadagar
verða ákveönir siðar. Loka-
skráning i aðalkeppnina verður
laugardaginn 23. sept. kl. 14-18.
Keppni i flokki 14 ára og yngri
hefst laugard. 30. sept. kl. 14.
Af Öðru sem á dagskrá félags-
ins er fram aö áramótum má
nefna:
Hraðskákmót T.R. 1978.
Hausthraðskákmótið fer fram
22. okt. og hefst kl. 14. Október-
hraðskákmótið verður sunnud.
29. okt. kl. 20. Hraðskákmót
verða einnig 26. náv. og 10 des.
Jólahraðskákmótið verður svo
27. og 28. des. Bikarmót T.R.
hefst 5. nóv. kl. 14og verður teflt
á sunnudögum og miðvikudög-
um.
1 lok októver hefst væntanlega
skákkeppni verkalýðsfélaga, og
verður hún auglýst nánar síðar.
Skákkennsla og æfingar fyrir
unglinga verður áfram á laug-
ardögum kl. 14-18. A þriöju-
dagskvöldum verða áfram „15
min. mót” og „10 minútna mót”
á fimmtudagskvöldum.
Skákbókasafniö verður opnað
aftur svo fljótt sem unnt er, en
það hefur verið lokað að undan-
förnu vegna breytinga. Taflfé-
lag Reykjavikur er til húsa að
Grensásvegi 46.
flugstð én nú er, a.m.k. ekki að
neinu marki, og ekki heldur at-
hafnasvæði Islensks markaðar og
Frihafnarinnar. „Það sem veld-
ur auknum kostnaði er það, að
reiknað var með þvi að byggðir
yrðu „fingur”, þannig að farþeg-
arnir gætu farið i og úr vélunum
án þess að þurfa að fara út,”
sagði Paáll Asgeir. „Auðvitað má
byggja þetta allt i áföngum. En
ég held að það sé hvergi meiri
þörf á þvi en hér, að farþegar
þurfi ekki að fara út, vegna veð-
urlagsins.”
Pétur Guðmundsson flug-
vallarstjóri á Keflavikurflugvelli
sagði I viðtali við blaðið, að sam-
eining flugfélaganna hefði breytt
myndinni mikið. „Þegar þessar
þarfir voru kannaðar á sinum
tima, voru Flugfélag Islands og
Loftleiðir i samkeppni. Flug-
vélarnar fóru þá á ýmsum timum
sólarhringsins, en þetta breyttist
þegar félögin voru sameinuð. Nú
er allur flotinn inni i einu, vélarn-
ar fara á morgnana og koma sið-
degis.”
„Að sjálfsögöu þarf að gera
nýja spá,” sagði Pétur. „Það þarf
að fara i gegnum þessa könnun
sem var gerð á nýjum tima og
það hefur alltaf staðið til, að þeg-
ar kæmi grænt ljós á að teikna
þetta, þá yrðu allar áætlanir
endurskoðaðar. Ef farið yrði af
stað með þetta mál, yrði næsta
skrefið að endurskoða umferðar-
spána og fara yfir þarfakönnun-
ina.”
Endurskoðun
Flugvallarstjórinn sagði að þau
salarkynni sem mæddi mest á i
núverandi flugstöð væru brott-
fararsalurinn og tollskoðunarsal-
urinn, en þessi salarkynni væru af
mjög svipaðri stærð og gert var
ráð fyrir i nýju byggingunni.
„Aætlunin verður að vera i
endurskoðun á meðan verið er að
teikna nýja flugstöð, þannig að
það sé tryggt, að þegar byrjað
verður að steypa, séum við ekki
að byggja meira en við þurfum og
ekki minna heldur,” sagði Pétur
Guðmundsson flugvallarstjóri.
Ný flugstöð
undir samgöngu-
ráðuneyti
Keflavikurflugvöllur heyrir al-
gerlega undir utanrikisráðuneyt-
ið. Brynjólfur Ingólfsson ráðu-
neytisstjóri i samgönguráðuneyt-
inu sagði að ráðuneytið hefði far-
ið fram á það við forsætisráðu-
neytið, að ef ný flugstöð yrði reist
utan vallargirðingarinnar, yrði
hún talin hluti af flugmálum
Islands og heyrði þá undir sama
ráðherra og annaö flug, þ.e. sam-
gönguráðherra. En i reglum um
stjórnarráðið frá 1969 stendur, að
Keflavikurflugvöllur og öll mál,
sem honum eru skyld, heyri undir
utanrikisráðuneytið, þannig að
samgönguráðuney tið hefur
ekkert með þennan aðalfarþega-
flugvöll Islands að gera eins og
er, þótt undarlegt megi teljast.
—eös