Þjóðviljinn - 16.09.1978, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 16.09.1978, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Laugardagur 16. september 1978 Dagur dýranna Á sunnudaginn, 17. sept., er Dagur dýranna, hinn árlegi fjár- öflunardagur Sambands dýra- verndunarféiaga islands. Af þvi ■tilefni vill stjórn SDÍ vekja at- hygli á verndun dýranna. i 2. gr. dýraverndunarlaganna frá 1957 segir svo: „öllum þeim sem eiga dýr eða ráða yfir þeim aðöðruleyti eða hafaumsjá með dýrum fyrir eiganda þeirra eða annan rétthafa, er skylt aðsjá svo um, að dýrin fái nægilegt vatn og fóður við þeirra hæfi og viðhlitandi umhirðu. Eiganda eða öðrum rétthafa er skylt að sjá dýrum fyrir hæfilegum vistar- verum (geymslustað, vörslu- stað), skjólgóðum og rúmgóöum, enda er skylt að ræsta sllka staði með viðunandi hætti”. En er þetta þannig? Laga- greinin er góð og falleg, en finnst öllum þeir þurfa að fara eftir henni? Hvers eiga útigangs- hrossin að gjalda? Hvorki eiga þau skjólgóða og rúmgóða vistar- veru, né fá nægilegt fóður. Hvernig stendur á þvi að um allt land skuli skepniim boðið upp á meðferð sem viðhöfð var fyrir hundruðum ára, og var nauðsyn þá, en er það sannarlega ekki núna? Einu sinni bjuggu tslendingar i moldarkofum og höfðu vart i sig og á. Það er liðin tið. >að ætti að vera okkur kapps- málað ekkertdýr dragifram lifið vetrarlangt við aldagömul skilyrði — þegar hægt er að bæta úr. 1 lögunum er kveðið á um að vörslustaðir dýra eigi að vera rúmgóðir. Hvað þá með hin svo- kölluðu búrhænsni? Þegar hænum er nánast pakkað i lág, þröng búr með netbotni og látnar dúsa þar alla sina ævi, til að verpa og verpa. Ef slik hæna er tekin og látin á gólf getur hún hvorki staöiö né gengið. Hún húkir. Hún hefur aldrei fengið tækifæri til að nota fæturna. 11. kafli dýraverndunarlaganna er um deyðingu dýra og aðgerðir á dýrum. 8. grein hljoðar svo: „Þegar dýr eru deydd, ber að gæta þess, að deyðing fari fram með jafnhröðum og sársauka- litlum hætti og frekast er völ á”. Er það að deyöa með skjótum og sársaukalitlum hætti að drekkja dýrum sem hafa heitt blóð og lungu, einsog gert er hér við kópana á hverju ári? Við tslendingar erum fljótir að for- dæma þjóðir sem rota selkópana — en litum i eigin barm. Það er knýjandi nauðsyn að endurskoða gildandi lög um dýra- vernd, þvi þráttfyrir ágæti þeirra eru þau á margan hátt ófull- nægjandi. T.d. eru refsi- og sektarákvæði ekki i neinu sam- ræmi við núverandi verðgildi krónunnar. En brýnast af öllu er þó að löggæsluvöld og almenningur hliti lögunum. FráStjörnSambands dýraverndunarfél. tsl. Handbók um álsuðu N’ýlega kom út á vegum Skan- aluminium, norræna samtaka áliðnaöarins, sem tslenska álfé- lagið h.f. er aðili að, ,,AI-suðu- handbók” eftir Ivar G. Walseth, yfirverkfræðing. Bókin er ætluð til kennslu i TIG- og MIG-suðu áls. Skanaluminium hefur á undanfömum árum géfið út flokk bóka um meöhöndlun áls og notkunarmöguleika þess. Isl. álfelagið gerðist aðili að Skan- aluminium á s.l. ári og var þá ákveöið að þýða þessar bækur og gefa þær einnig út á islensku. Otgefendur vonast til að Suðu- handbókin, sem er fyrsta bókin I þessum flokki, bætiúrbrýnni þörf og verði vel tekið af málmiönaö armönnum, svo sem raunin hefur verið hjá starfsbræðrum þeirra á hinum Norðurlöndunum. Ólafur Ólafsson véltæknifræðingur þýddi bókina, sem er prentuð i Grafik. Bókin er fáanleg hjá Isl. álfélag- inu iStraumsvik og kostar kr. 600 — með söluskatti. Framtidaradferöj i skipulagningu, j segja arkitektarnir Siguröur Harðarson og Magnús Skúlason I Götumynd: Fjögur timburhús, tengd saman með tvöföldum bllskúrum. Arkitektarnir Sigurður Harðarson (t.v. og Magnús Skúlason á vinnustofu sinni. Myndir: Leifur „TILRAUNAREITUR” í SELJAHVERFI: alla steypuvinnu. Stefnt er aðþvi að þessu verði lokið I vor, þannig að þá verði hægt að byr ja að reisa húsin. ÞeirMagnúsog Sigurður sögðu að það væri að mörgu leyti auð- veldara viðfangs að fást við skipulagningu slikra byggingar- svæði þegar um samstæða hópa væri að ræða, en i reynd eru nær allir sem þarna byggja ungt fólk með smábörn. Framtiðaraðferð Sameiginleg lóð og barnagæsla Barnagæsla verður fyrir ibúa þessara sjö timburhúsa og verður einn tvöfaidur bilskúr tekinn und- Nú i haust munu hefj- Barnagæsla. ast íramkvæmdir i svo- nefndum tilraunareit í Seljahverfi i Breiðholti. 13 ibúðarhús verða á þessu svæði, sem af- markast af Grófarseli, Hagaseli og Heiðarseli. Arkitektarnir Sigurður Harðarson og Magnús Skúlason teikna sjö þessara húsa. Við litum inn á teiknistofu þeirrá við Lindargötu og spurð- um tíðinda af þessari teiknivinnu. Samráð við íbúa — Arið 1976 var ákveðið i skipulagsnefnd að tillögu skipu- lagshöfundar, sem var Teiknistofan Höfði, að þarna skyldi skipulagt á þann hátt að fyrst yrði úthlutað lóðum á svæð- inu til einstaklinga eða hópa, og siðanskipulagt i samráði við ibú- ana.Þettavarsvogert, enað vlsu hafði teiknistofan mælt með þvl að miklu stærra svæði yrði skipu- lagt á þennan hátt. Þarna eru reyndar tveir til- raunareitir. Oðrum þeirra var út- hlutað til byggingasamvinnufé- lagsins Vinnunnar, en hitt svæðið fékk hópur manna og einstakling- ar að hluta til. Það er að visu nokkur galli, að þeir sem ætla að byggja þarna skuli skiptast svona i tvennt. Þannig vill aðeins hluti þessa fólks hafa barnaheimili sem þarna er fyrirhugað og sex hús verða með sameiginlega lóð eða útivistarsvæði, en aðrir ekki. Þessir sjö, sem við höfum teiknað fyrir, vildu allir vera i timburhúsum. Guörún Jónsdóttir teiknar fjögur hús og þá eru eftir tvöhús á svæðinu, sem við vitum ekki með vissu hver muni teikna. byggingarhraða með þessum hætti. Þar að auki hefur það sýnt sig að svona timburhús eru ódýr- ari en samsvarandi steinhús. Þeir félagar töldu hins vegar tvimælalaust, að þetta væri fram tiðaraðferð við að skipuleggja land undir ibúðarsvæði. Þessi lausn hefði margt fram yfir blokkirnar, þarna væri byggt lágt og þétt i staðinn fyrir að byggja margar hæðir upp i loftið. Þá sögðu þeir það óvenjulegt, að svo mörg timburhús væru byggð hér i einu, ef frá eru talin Viðlaga- sjóðshúsin. „Það er áberandí mun meiri áhugi á timburhúsum nú en verið hefur og það er vafa- laust andsvar viö þeim steypu- höllum, sem allsstaðar er verið að byggja. Timburhúsin eru mann^skulegri og ódýrari en steinhúsin,” sagði Magnús. >/.*, •* y. ■*’*»/*' "/7,£ —.* 74 Afstöðumynd af tilraunareitnum. Timburhúsin sjö eru dökklituð á myndinni. Þau standa við Grófarsel 28-30, Hagasel 38 og Heiöarsel 2-8. Fyrirhugað barnaheimili er merkt með stjörnu. ir hana. Timburhúsin eru á steyptum grunni án kjallara, laustengd saman með tvöföldum, steyptum bilskúrum. Húsin eru 108 fermetrar að grunnfleti, með portbyggðu risi, en nettó ibúðar- rými á tveimur hæðum verður þá um 135 fm. Verkið var allt boðið út i einu lagi, fyrst jarðvinna og siðan öll steypuvinna, og þannig á að vera hægt að lækka kostnaðinn. Hið sama gildir um áframhaldið, hægt er að spara með sameigin- legum efnisinnkaupum og að- keyptri vinnu og ná auknum Þegar byggt er með þessum hætti geta eigendur lika tekið meiri þátt i húsbyggingunni en ella ef þeir vilja. Sameiginleg lóð Lóðirnar sem slikar eru mjög litlar, en hins vegar er lóðin óskipt á milli sex húsa og mynd- ast þar sameiginlegt svæði sem ættiað nýtast betur en hinar hefð- bundnu einkalóðir. Hver lóð er rúmlega 400fermetrar, hverthús hefur smáblett algerlega sér. Nú er verið að bjóða út 1. áfanga verksins, jarövinnu og Aukið lýðræði Þeir töldu að það stuðlaði lika að auknu lýðræði að fólk fengi að ráða meiru um umhverfi sitt og húsagerð. 1 þessu tilviki hefðu að- stæíur að visu sett verkinu þröng- ar skorður. Reitirnir hefðu verið of litlir og ekki veitt svig- rúm til að gera ýmislegt, sem þarft hefði verið. Upphaflega var ákveðinn fjöldi þeirra húsa sem þarnaáttuað risa, og takmarkaði það alla möguleika á útfærslu skipulagsins.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.