Þjóðviljinn - 16.09.1978, Side 11
I Tungnaréttum
Rekib i almenning
Bændur meft hýrri brá
Þó var söngur
ekki upp hafinn
Skyldi þetta vera gimbrin mln? Bergur Rögnvaldsson frá Garöabæ fékk frl I skól-
anum til aö fara iréttirnar en hann hefur veriöi sveitá sumrin i Kjarnholtum.
húsfreyjur voru að byrja að hafa
áhyggjur af þvi hvernig deginum
reiddi af fyrir börn og bónda.
tslenskir fánar blöktu hægt i
golunni meðan siðustu fjárhóþ-
arnir voru reknir með ópum,
ærslum og látum inn i almenning-
inn. Sveinn fjallkóngur i Bræðra-
tungu stóð við hliðið og gætti þess
að allt færi fram með festu og
hæfilegum virðuleik.
t almenningi mátti ekki á milli
sjá hvort væri fleira fólkið eða
féð. Gamlir og traustir bændur
eins og Ingvar á Hvitárbakka og
Guömundur á Kjaransstöðum
gáfu sér vart tima til að lita frá
fénu á fólkið en yngstu krakkarn-
ir riðu þeysireið á rollum. Rúnar
litli Guðmundsson frá Torfastöð-
um viðurkenndi fyrir blaðamanni
að hann þekkti engin mörk en
fékk sér hins vegar margan góð-
an reiðtúrinn um almenninginn
og var orðinn skitugur upp fyrir
haus.
Þrjár litlar kaupstaðarstelpur
sátu prúðar á rétjarveggnum
með glampa i auguih og roða i
kinnum og fannst ógurlega gam-
an. Kona á hvitum buxum gekk ó-
feimin upp þvera rétt með flösku
á lofti.
Tungnaréttir eru i landi Vatns-
leysu á svokölluðum Fosstanga
við Tungufljót. Blaðamaður og
Ijósmyndari Þjóöviljans óku
austur á miðvikudaginn og
stöldruöu við I réttunum eina
dagstund.
Um hádegið var langt komið að
draga og réttarstemmningin fór
vaxandi. Jarmur fjórtán þúsund
fjár blandaöist hundsgá, hófa-
taki, hlátrasköllum og bilhljóði.
Ekki voru bændur farnir að
syngja en brún þeirra var að lyft-
ast og flestir spáðu þvi að um tvö-
leytið upphæfist i ferskum haust-
svala margraddaður fagnaðar-
söngur þeirra manna sem nú hafa
heimt vænt og hraust fé af fjalli.
Pelar sáust viða á lofti.
Upp i brekkunum sátu stelpur
og strákar með mannalæti og
krakkar þeystu á klárum um velli
innan um fyrirferðamiklar gljá-
tikur sem spændu upp jarðveginn
og gáfu frá sér frethljóð. I hund-
um var æsingur og sómakærar
f •<"
Tveir gamlir bændur með pela
upp úr rassvasanum stóðu á
hljóðu tali við réttarvegginn og
föðmuðust og kysstust þess á
milli. Mikil bliða var i faðmlögum
þeirra. Kannski hafa þeir verið
að sættast eftir landamerkjadeil-
ur.
Unglingsstrákur kyssti ungl-
ingsstelpu undir réttarvegg svo
að litið bar á og svo gengu þau i
burtu eins og ekkert hefði i skor-
ist.
Svona var þetta og þó var söng-
ur ekki upp hafinn.
—GFr
Myndir: Leifur
Texti: GFr
Rodeo? Rúnar litliGuömundsson frá Torgastööum fór marga þeysireiöina um almenninginn.
Þrjár prúöar og rjóöar kaupstaðarstúikur sátu á réttarveggnum og
fylgdust spenntar meö. Þær eru Svanfrfður Sturludóttir frá Selfossi,
Helga Lilja Bergmann frá Reykjavlk og Eyrún Ragnarsdóttir frá Sel-
fossi. AfiHelgu og Eyrúnar er Einar i Holtagöröum.
Smástrákar kusu frekar aö sitja á veggnum heldur en aö hætta sér I ill
vlgar rollurnar.
Baldur Oskarsson varaþingmaöur Suöurlandskjördæmis var mættur I
réttunum og hér fær hann sér I staupinu meö einum góöum fram-
sóknarmanni, Braga Þorsteinssyni á Vatnsleysu.
Meö brjóstbirtu I rassvasa og kind I klofi.
Stendur heima. Stift og gagnbitaö
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. september 1978
Laugardagur 16. september 1978 .ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11