Þjóðviljinn - 23.09.1978, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 23. september 1978
AF BÆJARBRAG
Þaö er mjög vinsæl íþrótt aö ferðast um
heiminn, þeirra erinda að sækja heim stór-
borgir og kynnast hinu svokallaða skemmt-
analífi þeirra. Þejr sem hafa auraráð til að
stunda þessa íþrótt, gera víðreist og gefa
síðan heimsborgunum einkunnir eftir því,
hvar mestur er gleðskapurinn og hvar
fábreyttastur. Ekki nenni ég að tíunda hér all-
ar þær borgir, sem helst eru tilnefndar, ef
svala á skemmtanaf ýsn mannskepnunnar, en
ef til vill er til gamans hægtað geta þess, að til
skamms tima hef ur Osló verið talin einna leið-
inlegust allra stórborga ograunar oft kölluð
,,verdens störste provinsby", sem útleggst
,,stærsta krummaskuð veraldar".
Einhverra hluta vegna hefur Reykjavík
ekki komist á leiðindalistann, þó stórborg sé,
en sérfræðingar í þeirri íþrótt að ,,skemmta
sér", eins og það er kallað á máli gleðimanna
og -kvenna, telja Reykjavík vera eitt af undr-
um veraldar, hvað leiðindi snertir. Strax í
barnæsku byrja börn og unglingar að bæta sér
upp grámóðu hversdagsleikans með því að
ganga í skátahreyfinguna, íþróttahreyfing-
una, eða K.F.U.M. og Ká og breytast þar,
samkvæmt nýjustu niðurstöðum mætustu
félagsfræðinga við Háskóla íslands, úr elsku-
legustu mömmubörnum í forhertan glæpalýð,
sem engu eirir. Hætta ekki einu sinni að
reykja, fara jafnvel sumir að kíkja í glas og
ráðast á gamlar kellingar í skjóli næturinnar,
brjótast inní sjoppur heiðvirðra verslunar-
manna og láta greipar sópa um lakkrísbirgð-
irnar, eftir að búið er að mölva miðborgina
okkar í mask niðri á Hallærisplani.
Svo ægilegur er þorsti borgarbúa og raunar
landsmanna allra, eftir einhverri tilbreytingu
i fásinninu, að þegar Flóamenn og Hreppa
taka uppá því austur á Selfossi að sýna
búsmala sinn í básum og á stalli, en kerlingar
sinar við tóvinnu og karlana við þá gömlu
þjóðlegu séríslensku íþrótt að nudda punginn
framí andlátið, þá ærist landslýður af fögn-
uði. Nærri helmingur allra þeirra sem lífs-
anda draga hérlendis, þyrpast að sjá dýrðina.
Þó að Osló sé eins og að f raman greinir talin
leiðinlegasta borg veraldar, er þó talið f ullvíst
að hún sé-eins og París í samanburði við
Reykjavík. Það merkasta sem gert hef ur ver-
ið til að lífga uppá bæjarbraginn hér í borg í
aidaraðir, er tvímælalaust sú frábæra hug-
mynd að setja upp vísi að markaði á Lækjar-
torgi. Þetta var gert á föstudaginn,seldar
gulrætur, skartgripir, næpur, kartöf lur og alls
konar gras til manneldis, og verður það að
segjast eins og er að þrátt fyrir gífurlegan
fjöldafögnuð yfir þessari ráðstöfun, fögnuð,
sem minnti helst á múgæði, fór alit
menningarlega fram. Enginn tróðst undir, og
sáralítil brögð voru að beinbrotum eða öðrum
limlestingum á fólki enda var þess gætt að
selja ekki dilkakjöt á gamla verðinu. Væri
ekki reynandi að stofna til markaðs á
Hallærisplaninu og selja þar „gras" til að róa
lýðinn aðeins?
Vart er um það að ræða að f ara á skemmti-
staði höfuðborgarinnar, því á flestum þeirra
eru gerðar þær kröfur til gestanna, að þeir
klæðist ekki samkvæmt tískunni, heldur í út-
sölufötum frá Andersen og Lát eða Gef junni
og eru kröf ur dyravarða um klæðaburð orðnar
svo f lóknar, að vonlaust er fyrir fólk að fara
út að skemmta sér, nema að hafa áður kynnt
sér þrjátíu ára gamla tísku og klæðast sam-
kvæmt henni. Talið er fullvíst að engir af
þjóðhöfðingjum veraldar slyppu inní Þórs-
kaffi, Sögu, eða Þjóðleikhúskjallarann að
félögum Bréfsnéf og Kósigín einum undan-
skildum, en rússar hafa á undanförnum ára-
tugum getið sér umtalsverðan orðstír í því að
tolla ekki í tískunni.
Dyravörðum mun vera uppálagt af þeim
sem veitingahúsin reka að sortéra fólkið við
dyrnar og er sá vandi þeirra sennilega mestur,
að velja fólk eftir því hvað það er líklegt til að
hafa mikið eyðslufé meðferðis. Auravonin í
gestunum er síðan dæmd af klæðaburðinum.
Brot ber að hafa í buxum og bindi (hálstau).
Hálsbindi eru svo gamalt fyrirbrigði í klæðn-
aði karla, að fólk milli tvítugs og þrítugs á
ekki þessa dulu til, enda eru hálsbindi upphaf-
lega ætluð sem smekkur fyrir drukkna
hefðarmenn, svo þeir sulli ekki sósunni
niðurá skyrtubrjóstið. Brot í buxum komust
hinsvegar í tísku á öndverðri tuttugustu öld,
þegar Edward VIII. síðar hertogi af Windsor
gleymdi að láta pressa krumpur úr buxunum
sinum á veðreiðum einhvers staðar í
Frakklandi og allir héldu að það væri orðin
tíska að ganga með brot (krumpu) framaná
buxum. Edward þessi er víst talinn ómerki-
legasti þjóðhöfðingi allra tíma. Það eina sem
hann f ékk í gegn á því tæpa ári, sem hann sat
við völd, var brot í buxur og það f yrir slys. Frá
völdum hrökklaðist svo þessi buxnabrota-
þjóðhöfðingi fyrir að lenda í slæmum félags-
skap við vafasama dömu frá Simpson. Hún
fengi sennilega inngöngu í Þjóðleikhúskjallar-
ann og Þórskaffi núna, ef hún gætti þess að
koma í einhverju af gömlu drögtunum sinum,
og ekki yrði gert veður útaf því þótt hún væri
kunn af f ramkomu eins og þeirri, sem lýst er í
vísunni góðu:
Simpson er með saddan kvið,
sinar garnir fullar.
Rembist hún og rekur við
ræskir sig og drullar.
Það virðist nefnilega ekki vera gerð krafa
til mannasiða við dyrnar í veitingahúsum.
Dyraverðir temja sér þá greinilega ekki, og
gestirnireru velkomnir, ef þeir eru bara með
brot og sósu — matarleifabindi, en að öðru
leyti eins og f rú Simpson er lýst í vísunni.
Flosi.
jVetrarstarf almennt
Forystumál
Stjórn bridgesambandsins
mun beita sér fyrir framkvæmd
firmakeppni, sem jafnframt
veröur einmenningskeppni BSl
siðla i haust. Sökum anna i
stjórn sl. vor, hefur framkvæmd
dregist.
Það mun ekki rétt vera, að
Þorsteinn Olafsson sé formaður
nýja bridgefélagsins á Vopna-
firði, enda er maðurinn búsettur
á Reyðarfirði, það er þátturinn
best veit. En fróðlegt væri að
heyra, eitthvað frá félaginu.
Aðalfundur BSl mun veröa
haldinn um 20. okt. nk., og verð-
ur T Munaðarnesi, Borgarfirði.
SU ákvörðun var tekin s.l.
laugardag á fundi stjórnar sam-
bandsins.
Er ekki nema gott um þaö að
segja, að fundurinn skuli loks
vera ákveðinn, þó seint sé.
Heyrst hefur, að Hjalti Eiias-
son muni ekki gefa kost á sér
sem forseti BSI. Einnig hið
gagnstæða.
Starf Hjalta sl. 4 ár hjá BSt,
eru óneitanlega þaö mark-
verðasta sem hent hefur bridge
á Islandi hin siöari ár og mikil
vinna veriö unnin af mörgum
góðum mönnum, sem valist
hafa til starfa með Hjalta á
undanförnum árum. En bent
skal á það hér, og ekki i fyrsta
skiptí, að sambandiö verður
ekki rekið sem einkafyrirtæki
einsnéneins. Hæfir menn hljóta
aöleggja þar hönd áplóginn, og
gera hlutina á þeim tima sem
krafíst er, en séu ekki að droila
þetta haustiö inn og vorið Ut.
Stöðugt samband verður að
hafa við fjölmiðla, og þaö fólk
sem starfar að miðlun. Einnig
við forystumenn félaga innan
sambandsins. Lokið verði viö
keppnir á tilsettum tima, eða að
öörum kosti, að halda þær ekki.
Vera vakandi fyrir þeim
nýjungum sem skjóta uppi koll-
inum annars slagiö, og eflaust
margt fleíra sem ekki verður
tiundað hér.
Bikarkeppni
BSÍ
I 3. umferð mótsins, áttust við
sveitir Hjalta og Guðmundar T.
Gislasonar og Þórarins Sigþórs-
sonar gegn sveit Steinbergs
Rikharðssonar, allar Ur Reykja*
vik. Sveit Hjalta vann örugg-
lega sveit Guðmuádar, og sveit
Þórarins sló Utsveit Steinbergs.
Og þá voru eftir 4 sveitir i
undanUrslitum. Þaðvoru þessar
sveitir: Hjalti Eliasson, Jón
Ásbjörnsson, Þórarinn Sigþórs-
son og Guðmundur Páll Arnar-
son.
Mikil spænna var á skrifstofu
BSl sl. sunnudag, er dregið var.
Jón Baldursson Ur sveit Jóns A.
dró fýrstur, og siðan dró Rík-
harður sveit Þórarins á móti
þeim. Ljóst varð þvi, að i
undanrás eigast við f 48 spila
leik, sveitir Jóns Ásbjörnssonar
gegn sveit Þórarins Sigþórs-
sonar og annars vegar sveit
Hjalta Eliassonar gegn sveit
Guömundar Páls Arnarsonar.
Liösskipan sveitanna er
þessi: I sveit Hjalta eru, auk
fyrirliða, Asmundur Pálsson,
Einar Þorfinnsson, Guölaugur
R. Jóhannsson og Orn Arnþórs-
son.
I sveit Þórarins eru auk hans,
Hörður Arnþórsson, Óli Már
Guðmundsson og Stefán Guð-
johnsen.
1 sveit Guðmundar Páls eru,
auk hans, Egill Guðjohnsen,
Guðmundur SV. Hermannsson,
Sigurður Sverrisson, SkUli
Einarsson og Sævar Þor-
björnsson.
bridge
Umsjón:
Óiafur
Lárusson
I sveit Jóns Asbjörnssonar
eru auk hans, Helgi Jónsson,
Helgi Sigurðsson, Jón
Baldursson, Simon Simonarson
og Sverrir Armannsson.
Engu skal spáð hér um Urslit,
þó óneitanlega sé sveit Hjalta
sigurstranglegust. Leikjum skai
vera lokið fyrir miðjan okt.
Keppnisstjóri i öllum 4
ieikjunum i undanrás, voru
Olafur Lárusson og Skafti
Jónsson.
Frá Ásunum
Haust- tvimenningskeppni
félagsins hófst sl. mánudag,
með þátttöku alls 20 para, sem
er frekar dræmt.
Spilaðerí 2x10 para riðlum og
raöað þversum i 2. umferö og 10
efstu f lokin. Keppnin tekur yfir
3 kvöld. Staða efstu para er
þessi
stig:
1. Guðbrandur Sigurbergsson —
Jón Hilmarsson 156
2. Björn Eysteinsson —
MagnUs Jóhannsson 135
3. Óli Már Guðmundsson —
Þórarinn Sigþórsson 128
4. Steinberg Rikharðsson —
TryggviBjarnason 119
5. Jón Þorvarðarson —
OmarJónsson 118
6. Gylfi Pálsson —
SigurbergEIentinusson 116
Armann J. Lárusson —
Haukur Hannesson 114
8. Jón Baldursson —
Sverrir Armannsson 111
meðalskor er 108 stig.
Keppni verður framhaldið
næsta mánudag. Keppnisstjóri
er ólafur Lárusson.
Frá Hjóna-
klúbbnum
Úrslit i l.kvölds tvimennigs-
keppni félagsins:
A-riðill: stig:
1. Erla—Kristmundur 136
2. Dröfn — Einar 136
3.Sigriður —Guðmundur 134
4. Jónina —Hannes 125
5. Dóra —Guðjón 123
B-riðill: stig:
l.Sigriður — Gisli 135
2. Valgerður — Bjarni 123
3. Erla — Gunnar 121
GuðrUn — Guðbjörn 117
5. Sólveig —Gunnar 113
meðalskor var 110 stig
Næsta þriöjudag hefst svo
Barometers-keppni, og eru
menn beðnir um að fjölmenna
til keppni. Spilað er I Rafveitu-
hUsinu, félagsheimili. Keppnis-
stjóri er Sverrir Armannsson,
en form. félagsins er Hannes
Ingibergsson.
I
i
■
I
i
Frá BR «
Sl. miövikudag hófst reglulegt i
vetrarstarf hjá félagini. Alls I
mættu 22 pör til leiks og spilað í
var i2 riðlum. Úrslit urðu þessi: |
A-riðili: stig:
1. Egill Guðjohnsen —
Vigfús Pálsson 151
2. Hörður Arnþórsson —
Stefán Guðjohnsen 123
3. Halla Bergþórsdóttir —
KristjánaSteingrimsd. 114
4. Guðlaugur Jóhannss. —
örn Arnþórsson 112
5. Hörður Blöndal —
Páll Bergsson 108
B-riðiU: stig:
1. Asmundur Pálsson —
EinarÞorfinnsson 230
2. Guöm. Sv. Hermannss. —
Sævar Þorbjörnsson 209
3. Viðar Jónsson —
SveinbjörnGuðmundsson 176
4. Jón Baldursson —
Sverrir Armannss. 172
5. Steinberg Rikharðsson —
Tryggvi Bjarnason 171
Meðalskor i A-riðli var 108
stig en 165 stig i B-riðli.
Keppnisstjóri er ólafur
Lárusson. Næst verður spilað á
miðvikudaginn kemur. Þá
verður á ný eins kvölds tvi-
menningur. Félagar eru hvattir
til að mæta og vera með frá
byrjun. Spilað er i Domus
Medica, og minnt er á, að -
keppni hefst kl. 19.30 timanlega.
Framhald á 18. siðu
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
i
■
1
i
■
1
■
1
■
1
■
1
■
1
i