Þjóðviljinn - 22.10.1978, Side 14
14 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 22. október 1978
Ingibjörg
Haraldsdóttir
skrifar
um
kvikmyndir
Saturday
Night Fever
ar*
Diskódraumaprinsinn á fullri 'ferb.
Dansinn kringum
draumaprinsinn
//Hann er algjört æði"
sagði þrettán ára frænka
min og átti við John Tra-
volta. Þegar ég var á henn-
ar aldri sagði ég eitthvað
svipað um Tommy Steele
og James Dean. Orðalagið
var annað/ en merkingin
hin sama. Tommy Steele
var — svona eftir á að
hyggja — dálítiö hallæris-
legur í útliti. Hjólbeinóttur
og vannæringarlegur. Þar
hefur vissulega orðið
framför: Travolta er hár
og spengiiegur og ber það
með sér að vera alinn upp í
velferðarþjóðfélagi.
En hefur nokkuð annað
breyst?
Söluvara
Kvikmyndin Saturday Night
Fever, eba einsog eitt blaöanna
nefndi hana svo snilldarlega:
Laugardagsfárib, er hvorki
merkilegri né ómerkilegri en
margar aörar svipaöar myndir
sem geröar hafa veriö fyrir ung-
linga. Þaö hefur hinsvegar ekki
oft gerst, svo ég viti til, aö kvik-
mynd hafi veriö auglýst jafnræki-
lega. Hljómplatan meö lögunum
úr myndinni var komin á mark-
aöinn á undan kvikmyndinni
sjálfri og allir góöir bisnissmenn i
danskennarastétt höföu auglýst
kennslu i Saturday Night Fever
dönsunum. Diskóæöiö komst i al-
gleyming og unglingarnir voru
farnir aö klæöa sig og hreyfa sig
einsog John Travolta áöur en þeir
höföu séö hann.
Hér er semsé um aö ræöa kvik-
mynd sem er meöhöndluö eins og
söluvara á óvenju opinskáan hátt.
Auglýsingarnar skapa „þörf”
fyrir vöruna: hvaöa unglingur
getur látiö þaö um sig spyrjast aö
hann hafi ekki séö Saturday Night
Fever?
Islenskir unglingar hafa svo
sannarlega ekki látiö sig vanta i
Háskólabið siöan John Travolta
hóf innreiö sina. Sumir hafa fariö
oftar en einu sinni og oftar en
tvisvar. Borgaö 750 krónur i hvert
skipti og sjá ekki eftir þvi.
Maöurinn er algjört æöi, segja
þeir, og þyrpast I danstima til
Heiöars Ástvaldssonar.
Tónlistin
Þeir sem vit hafa á diskómúsik
segja aö Bee Gees, sem bera hit-
ann og þungann af tónlist myndar-
innar, séu á mjög háu piani, miö-
aö viö aörar slikar hljómsveitir.
Þaö getur vel veriö rétt. Mér dett-
ur ekki i hug aö fara aö setja út á
tónlistina þótt ég persónulega,,fili
hana ekki i botn”. Ef ég á aö vera
alveg hreinskilin var ekki nema
eitt dansatriöi i myndinni sem ég
haföi verulega gaman af, og þar
kom John Travolta hvergi nærri.
Þaö var fólk frá Puerto Rico sem
dansaöi. En svona getur smekkur
manna veriö misjafn. Einsog
Frakkar segja: menn deila ekki
um þaö sem er smekksatriöi.
Viö getum gengiö út frá því aö
þaö sem skiptir unglingana mestu
máli I þessari kvikmynd sé tón-
listin og draumaprinsinn Tra-
volta. Dansinn og diskólifiö. 1
sjálfu sér er ekkert athugavert
viö þaö, og ekki nema gott aö fólk
skemmti sér. Söguþráöur mynd-
arinnar er mjög I skötuliki og
skiptir sjálfsagt fæsta áhorfendur
nokkru máli. John Travolta er
ekkert verri draumaprins en
Tommy Steele, Elvis Presley og
James Dean voru á sinum tima.
Þaö viröist vera ómissandi þáttur
I þessari svokölluöu „lágmenn-
ingu” okkar aö dýrka einhver
kyntákn. Vafalaust höfum viö erft
þetta frá heiönum forfeörum okk-
ar.
Innihaldið
Engu aö siöur get ég ekki stillt
mig um aö velta ofurlitiö vöngum
yfir þeim þáttum myndarinnar
sem flokkast undir „innihald”.
Travolta leikur yngri son i-
talskra innflytjenda i New York.
Eldri sonurinn er prestur (fjöl-
skyldan er auövitaö kaþólsk) og
auk þeirra tveggja eiga hjónin
eina dóttur. Faöirinn er atvinnu-
laus og af þeim sökum uppstökk-
ur og taugaspenntur. Móöirin tal-
ar um aö fara út aö vinna, en viö
þaö umturnast heimilisfaöirinn:
hún ætlar þó ekki aö sviviröa
hann meö þvi aö láta þaö spyrjast
aö hann geti ekki unniö fyrir fjöl-
skyldunni? Fleiri vandamál
dynja á fjölskyldunni: eldri son-
urinn kemur heim og er hættur aö
vera prestur. Þaö er mikiö á-
fall.Tony (Travolta) tekur þaö þó
ekki jafnmiliö nærri sér og móöir
hans, þvi aö sé Frank (prestur-
inn) hættur aö vera heilagur
veröur kannski ekki tekiö eins
hart á hans eigin yfirsjónum.
Mannleg samskipti á þessu italsk-
ameriska heimili einkennast
einna helst af geöillsku og tryggö
viö ævaforna siöi. „Stelpur gera
þetta” segir faröirinn þegar Tony
ætlar aö bera diska fram i eldhús.
Og Tony er svo sannarlega enginn
uppreisnarmaöur. Hann leggur
diskana frá sér og lætur litlu
systur sinni eftir aö bera þá fram.
Valiðerþitt!
Ferðagetraun Vísis endar á toppnunu
25. október verður dreginn út lokavinningurinn í
áiskrif endaleiknum góða.
Vinningurinn á vœntanlega eftir að standa í
þeirn sem hann hlýtur því um er að ræða tvo kosti
sem báðir eru jafnótrúlegir.
Þú byrjar samt á því að veljaþér ferðafélagaþví
vinnineurinn eildir fyrir tvo. Vísir leggur til
undirbúning.
Siglingogsæla
Fyrri kosturinn er 14 daga skemmtireisa um
Miðjarðarhafið. /þessari draumasiglingu er homiÖ
við í mörgum aðliggjandi löndum, Utast um og
uppUfað.
Þú reikar milU œvafomra helgistaða, berð
augum furðuverk byggingarlistarinnar og skoðar
ólíkustu fomsöguleg fyrirbrigði og verðmœti.
Þess í mUli nýtur þú aUs þess sem í boði er um
borð í skipinu, s.s. sundlaugar, kvöldskemmtana,
dýrlegs matar og drykkjar.
Þú lifir scelu sem aðeins er að finnaásigUnguog
ógleymanlega stemmningu í alþjóðlegum hópi.
Sjá Afríku vakna
Síðari kosturinn er œvintýraferð um eitt
magnaðasta tand heims, Kenýa. Hér er um að rœða
einstakt tækifæri, ferð sem er einkennilegt
sambland skemmtunar og reynslu, dulúðar og
veruieika, í einu virtasta landi Afríku.
Þjóðgarðar Kenýa eru sérheimur án hliðstæðu.
Þú ert þar í heimkynnum dýra sem mörg eiga á
hœttu að deyja út. Þú hefur myndavélina til taks því
myndefnið er óþrjótandi. Hvíti nashymingurinn og
bongóantílópan eru í sjónmálL
Þegar kvöldar nýtur þú matar og drykkjar á
nýtisku hótelum við nútíma þœgindi og fylgist
með dansi innfœddra í framandi umhverfi.
Að morgni vaknar þú snemma og sérð
Afríku vakna á ný.
Sú reynsla ein gerir ferðina ógleymanlega.
Ferðagetraun
Dregið 25. október
Nýir áskrifendur
geta líka verið meö!
Síminn er 86611
VISIS
eða