Þjóðviljinn - 28.10.1978, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 28.10.1978, Qupperneq 4
4 SÍÐA A ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 28. október 1978 MOtMUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóöfrelsis l'tgefandi: Utgáfufélag Þjóftviljans h'ramkvæmdastjóri: Eiftur Bergmann Kitstjorar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson. Auglysingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. Afgreiflslustjóri: Filip W. Franksson Blaðamenn: Alfheiftur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig- urftardóttir, Guftjón Friftriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson. Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. tþrótta- fréttamaftur: Asmundur Sverrir Pálsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. úllit og hönnun: Guftjón Sveinbjörnsson. Sævar Guftbjörnsson Handrita- og prófarkalestur, Blaftaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. óskar Albertsson. Safnvörftur: Eyjólfur Arnason. Auglýsingar: Rúnar Skarphéftinsson, Sigrlftur Hanna Sigurbjörnsdóttir Skrifstofa: Guftrún Guftvarftardóttir, Jón Asgeir Sigurftsson. Afgreiftsla: Guftmundur Steinsson. Kristin Pétúrsdóttir. Simavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guftmundsson. Ritstjórn, afgreiftsla og auglýsingar: Siftumúla 6. Reykjavík, slmi 81333 Prentun: Blaðaprent h.f. Hverjir greiöa eignarskatt? Mikið hefur verið úr því gert að eignarskattur og eignarskattsauki sem rikisstjórnin hefur lagtá sé órétt- látur og komi illa við eldra fólk sem á langri starfsævi hef ur komið sér upp skuldlausum húseignum en er orðið tekjulítið. Skoðum þetta aðeins nánar: Alagður eignarskattur á einstaklinga 1978 nam um 900 miljónum króna. Eignar- skattsauki samkvæmt bráðabirgðalögum ríkisstjórnar- innar nam 50% af álagningu 1978 eða 450 miljónum króna. Aálagðan eignarskatt leggst 1% byggingarsjóðs- gjald, en það bætistekki við eignarskattsaukann, þannig að hann er ívið lægri en helmingur álagningar á þessu ári. Eignarskatt og eignarskattsauka greiða 13.647 ein- staklingar í landinu, eða einungis lítill hluti framtelj- enda. Eignarskattur nemur 0.8% af skuldlausri eign um- fram 8 miljónir króna hjá einstaklingum og 12 miljónir króna hjá hjónum. Eignarskattur er lagður á fasteigna- matsverð húseigna, en eins og bent hef ur verið á í Þjóð- viljanum er markaðsverð nú að minnsta kosti 100% hærra en fasteignamatið. í daglegu tali miðar fólk við markaðsverð þegar rætt er um verðmæti fasteigna. Þessvegna gefur það réttari mynd að setja dæmið • þannig upp að hjón sem eiga skuldlausa eign uppá 24 miljónir króna að markaðsverði greiðir sömuleiðis engan eignarskatt. Það er því Ijóst að einungis þeir sem eiga verðmiklar húseignir lenda í eignarskattinum. Svo enn sé miðað við markaðsverð má ætla að hjón sem eiga 40 miljón króna skuldlausa húseign greiði 64 þúsund krónur í eignarskatt og 32 þúsund krónur í eignar- skattsauka. Einstaklingur sem er eigandi að svipaðri " húseign og á hana skuldlausa greiðir 98 þúsund krónur í eignarskatt og 48 þúsund krónur í eignarskattsauka. Slíkar eignir ættu að standa undir þessum skatti að öðru jöfnu. Hjón sem eiga 24 miljón króna húseign skuldlausa greiða 16 þúsund krónur í eignarskatt og 8 þúsund krónur í eignarskattsauka, samtals 24 þúsund krónur. Einstakl- ingur sem er eigandi íbúðar með svipuðu markaðsverði og á hana án skuldakvaða, greiðir 48 þúsund í eignar- skatt og 24 þúsund í eignarskattsauka eða samtals 72 þúsund krónur. Eins og bent var á í Þjóðviljanum i gær eru það ekki skuldlausir eigendur f jögurra herbergja íbúða í Heimun- um í Reykjavík og Breiðholtinu, eða hæðareigandinn í Hlíðunum,sem greiða eignarskatt. Fasteignamat slíkra íbúða er yf irleitt í kringum 8 miljón króna markið. Það eru því einungis þeir sem eiga húseign umfram meðal- eign sem eignarskattinn greiða. Matthías Bjarnason, fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingarráðherra hef ur á Alþingi lagt f ram tillögu um að eignarskattsaukinn verði ekki innheimtur af fólki sem komið er á þann aldur að því beri ellilífeyrir né af örorkulífeyrisþegum. I þessu felst falleg hugsun, en ekki má gleyma því,að í fyrrnefna hópnum og jafnvel þeim síðarnefnda eru stóreignamenn sem hafa tekjur af miklum húseignum. Hitt sýnist miklu eðlilegra að opnuð verði leið með heimildarákvæði til þess að fella niður eignarskattinn eða lækka hann hjá fólki sem býr í stóru húsnæði en sannanlega hefur ekki af því leigutekjur og hefur auk þess ekki úr öðru að spila en tekjutryggingu eða örorku- lífeyri. Enda þótt að húsnæði sé víða illa nýtt geta legið til þess margar ástæður, meðal annars tilf inningalegar, að fólk kýs að búa í því húsnæði sem það hefur vanist þótt það séorðið of stórt. Það er harðneskjulegt að beita eignarsköttum til þess að tryggja betri nýtingu húsnæðis, ogýmsaraðrar aðferðir geðfelldari íþeim efnum. Hins- vegar virðist ekkert því til fyrirstöðu að lækka eða fella niður eignarskatt í þeim tilfellum sem það er réttmætt eins og mörg dæmi eru til að gert sé hvað fasteignagjöld snertir. Framkvæmd skattalaga eins og annarra laga skiptir mun meira máli en lagabókstafurinn í flestum greinum,og hér er tækifæri til sjálfsagðs og réttláts sveigjanleika í framkvæmdinni. —ekh Sjómannablað fertugt Þvi er fram haldið i frægri skáldsögu að lifið sé saltfiskur og ef þetta á ekki alveg við um islenska þjóö rni sem stendur, þá má i staðinn setja sild eða þorsk eöa loðnu og állt kemur heim. Það er heldur ekki aö undra þótt lengi hafi hér út komið sjómannablaö — og er þess nú minnst af gefnu tilefni þegar inn úr dyrum berst af- mælisrit Sjómannablaðsins Vik- ings sem er fertugt um þessar mundir. Um leið verða rit- stjóraskipti á blaöinu, Guð- mundur Jensson lætur af rit- stjórn og við tekur Guöbrandur Gislason. Þá er ákveöið að breyta útliti blaösins og auka fjölbreytni þess. Meöal efnis er viðtal viö Steinar Sigurjónsson og sjóferðasaga eftir hann. Er loðnan ofveidd? Björn Ó Þorfinnsson skip- stjóri skrifar grein i blaöið sem fjallar um mikið stórmál: Er loðnan ofveidd? Þar segir m.a.: Ég óttast að i vor hafi verið ofveitt, að allur hrygningar- stofninn hafi veriö við SA-land, þvi þaö litla sem ekki var veitt og náði aö hrygna varö ýsunni að bráð, þvi aldrei i þau ár sem ég hef veriö viö loðnuveiðar hefur veriö svo mikil ýsa viö SA- land og einmitt þann tlma sem loðnan hrygndi þar. Oðru máli gegnir meö stofninn sem gekk suöur fyrir land og vestur meö Suðurlandi 1977. Hann þoldi mun meiri veiði þvi þar var á ferðinni stór hrygningarstofn. 1 dag er loönustofninn of- veiddur, en samt er verið að byggja ný skip og breyta göml- um til loönuveiða. Ný skip er nauðsynlegt að byggja árlega. Undanfarin ár hafa engin ný skip verið byggð, enda erum við orðnir 10-15 árum á eftir Færey- ingum og Norðmönnum með endurnýjun fiskiflotans. Þetta sést gleggst þegar at- hugaður er aldur loönuskipa, en hann mun vera á bilinu 12-20 ár. Að fá verkefni fyrir flotann má segja aö sé skipulagsatriði sem þarf aö leysa. Þaö vill svo til aö i Norðuratl- antshafi syndir mikill fjöldi fiska sem enginn, hvorki menn né málleysingjar, virðast þekkja og nefndur er kolmunni. Á þessum fiski á að gera marktæka veiöitilraun, ekki fikt eins og nokkrir bátar stóöu að I sumar og fyrrasumar. Þess er skemmst að minnast að Jón Kjartansson náði allsæmilegum árangri I sumar, en hinir bát- arnir litlum sem engum ár- angri. Eftirlit og smáfiskadráp Þá er i heftinu viötai við Markús Guömundsson, sem starfar við eftirlit með veiöum á smáfiski. Hann er meðal annars spurður álits á meiri stjórnun á fiskveiöum og svarar á þessa leið: — Ég tel að það sé bráönauö- synlegt að fiskveiðum sé stjórn- að með það I huga að vernda n Hér er reyndar um að ræða ræðustúf frá málfunda- og fé- lagsmálanámskeiði Alþýðu- bandalagsins i Vestmanna- eyjum, og sem slik æfingarræða er þessi greinarstúfur sjálfsagt aö gagni. Efnið hér er hinsvegar þess eðlis, að ég tel rétt að hafa um það örfá orð. 1 grein þessari segir m.a.: „Ekki er að finna neina sér- staka löggjöf um hollustuhætti um borö i fiskiskipum,— Siðan vitnar greinarhöfundur i heilbrigðisreglugerð frá 8. febr. 1972, en telur þar vera „skritið orðalag og trúlega villandi, haft svona loðið og teygjanlegt.” Mig furðar ekkert á þvi þótt greinarhöfundi hafi ekki fundist orðalag þessarar reglugerðar henta við aðstæður i fiskibátum. Um vistarverur I skipum og bátum gilda nefnilega sérstakar reglur, sem settar eru sam- kvæmt lögum um eftirlit með skipum, og eftirlit með skipum heyrir undir Siglingamálastofn- Auka þarf stjórn fiskveiöa Rabbaö viö Markús Guðmundsson, eftirlitsmann Sjávarútv'-- 'jímenn SVar ''/kÍÍÍgur Er /oðnan ofveidd? vnr sig smáfisk og tryggja viöhald stofnanna, og einnig til þess að tryggja betri nýtingu hráefnis- ins. Þarna gætum viö lært af humar. og rækjuveiðunum. Þeim er stjórnað með það i huga að tryggja viðgang stofnanna, og þaö verður auðsjáanlega að gera með aðra stofna ef ekki á illa að fara. Það er augljóst, að slik stjórnun kæmi sér illa fyrir einhverja þá, sem að veiðunum standa. En við verðum aö muna það, aö hér sem annarsstaðar verðum við að setja almenn- ingsheill skör ofar en tlma- bundna hagsmuni einstaklings. Stjórnun á fiskveiöum er erfið, og vist verða settar reglur, sem koma misjafnlega hart niður á landshlutunum og jafnvel ein- staklingum. En vanstjórn er ekki siður hættuleg en ofstjórn þegar frammi sækir. Ég hef trú á þvi, aö við getum rataö hér meöalveginn. Viö einfaldlega verðum að gera það. Hollustuhættir á bátaflotanum Og úr þvi við erum á sjónum hvort sem er: bréf hefur þættin- um borist frá Hjálmari R. Bárð- arsyni sem gerir svofellda at- hugasemd: „1 Þjóðviljanum 19.okt. 1978 var greinarkorn I þættinum „klippt”, þar sem rætt er um hollustuhætti á bátaflotanum. un ríkisins. Þessar reglur eru reyndar nú i endurskoðun, en gildandi reglur fela i sér ákvæði, sem varða bæði stærð, búnað og þrifnaö I vistarverum skipa. Eftirlit með þessum málum hefir Siglingastofnun rikisins, og ber að sjálfsögðu að skoða vistarverur við árlega skoðun. Ef eitthvað er ábóta- vant um hreinlæti eða aðbúnað i vistarverum, má þvi kæra slikt til skoðunarmanna eða eftirlits- manna Siglingamálastofnunar rikisins. Mjög litrik er lýsing höfundar á salernisaðstöðu smábáta, t.d. fata á þilfari. Þetta kann enn að vera til i reynd á mjög gömlum smábátum, en ekki hefi ég trú á að aðbúnaður sem þessi, eða réttara sagt skortur á aöbúnaði, sé til i nýrri bátum. Lokaorð ræðumanns eru þessi: „Eru virkilega engar reglur um þetta. Eöa er bara verið að hygla útgerðar-auð- valdinu hér sem annarsstaðar.” Um fyrra atriðiö er það aö segja, að reglur eru til og eru i gildi, eins og sagt er frá hér að framan, — og ef fata á dekki er eini búnaðurinn til þessara at- hafna um borö, þá væri kannske ráð að ræða málið við skipseig- anda, og ef það dugir ekki, þá má gjarna benda skoöunar- manni Siglingamálastofnunar- innar á, aö hér sé úrbóta þörf að mati áhafnar. Hjálmar R. Bárðarson.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.