Þjóðviljinn - 29.10.1978, Blaðsíða 19
Sunnudagur 29. oktdber 1978 ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 19
Benedikt veröur á „Beinni linu!
kvöld
útvarp
Benedikt á
beinni línu
í kvöld kl. 19.25
Þátturinn ,,bein lína"
hefur göngu sína aö nýju í
útvarpinu í kvöld. Benedikt
Gröndal utanríkisráðherra
svarar spurningum hlust-
enda frá kl. 19.25 til kl.
20.30. Geta menn hringt í
síma 2 22 60 meðan á út-
sendingu þáttarins stendur
og lagt tvær spurningar
fyrir ráðherrann.
Fréttamennirnir Vilhelm G.
Kristinsson og Kðri Jónasson
stjórna þættinum. í kvöld og fjög-
ur næstu sunnudagskvöld veröur
„Bein lina” á þessum sama tima
og mætir einn ráöherra i hvern
þátt. Eftir áramót veröa siöan
nokkrir þættir og haldiö áfram aö
ganga á ráöherrarööina. —eös.
„Á tíunda tímanum” á morgun
Símatími
Hjálmar og Guömundur Arnl svara i slma 22260 kl. 4-5 á morgun.
Umsjónamenn þáttarins „A
tiunda timanum” hafa tekiö upp
þá nýbreytni aö hafa sérstakan
simatfma fyrir hiustendur.
Þátturinn er á dagskrá annaö
kvöld, mánudagskvöld kl. 21.10,
en simatiminn er á morgun kl. 4-
5. Hlustendur geta þá hringt i
sima útvarpsins, 22260 komiö
ábendingum, gagnrýni eöa ööru
sem þeim liggur á hjarta á fram-
færi viö umsjónarmennina.
Hjálmar Arnason og Guömund
Arna Stefánsson.
—eös.
New York 1977
É9 vil fara aftur í sveitina
Ég vil skilja kýrnar, grasið
grænu eilífðina og
bláu sæluna
Ég vil ég vil
hugsa um dýrin mín
þau þarfnast mín
ég þarfnast þeirra
Ó, ég vil baka brauðið
Ég vil borða heitt brauðið
með dýrunum mínum
ég vil slá heyið
á sumrin
ég vil eiga barnið mitt
og vera endalaust hamingjusöm
Ég vil mjólka kúna
og segja þér hversu mjúk
og hlý hún er
Ég vil sofa í sama
húsi og kýrin
og hlusta á hana anda
i nóttinni
það hefur miklu
meiri þýðingu
fyrir mig
en öll Ameríka
íslensk kú
Ó,. þú ættir að sjá mig
þegar ég kyssi stórt höfuð hennar
ég tilbið það, og skammast mín ekki
og af hverju
syngja þeir alla þessa ástarsöngva
i útvarpinu
það er þreytandi
og afhverju er lífið svona leiðinleg
ákveðin ferð.
Umhverf ið
Húsið sem hún bjó í var alþakið
5 tengiliðum, Rafmagns hljóð-
bylgjunum, Móðurinni, tveimur
fuglum upp á þaki, Sendinum á
Spitalanum og Páfanum
Hljóðin sem bárust inn
um gluggann hjá henni á kvöld-
in voru löng stutt stutt löng
eða ta ta ta tom tom tom eins
og suð og trommusláttur örlár.
Ef hún hefði kallað á tæknifræð-
ing, þá hefði ýmislegt g§rst,
en hún var ekki í stuði fyrir
ýmislegt, svo hún fór með vin-
konu sinni, þegar hún kom, og
þær töluðu báðar við tæknifræð-
ing. Hljóðin veltu sér á hægri
hliðina og sofnuðu. Tístið í
fuglunum tveimur uppi á þakinu
hafði verið eins og fuglabjarg
með ágangi sjávarfalla, allt í
einu fannst fjöður og önnur
fjöður fyrir utan gluggann
Háreysti næturinnar
var gengin til viðar, vinsam-
leg kyrrð ríkti yfir vötnunum.
Móðirin hafði hins vegar fengið
sinn skammt af öngþveiti næturinnar
og gekk stöðugt til læknis, eins og
hún hefði orðið fyrir árekstri og
fengið sár undir fótinn af engu.
Sendirinn á Spítalanum var
hættur að virka, númer 7 var ekki
af sama holdi og blóði, heldur mis-
heppnuð tilraun til að vera þjóð-
félags þegn.
Páfinn var dauður
P.S. einnig má geta þess að ágangur
æðarkollunnar hafði verið eins og
þrumuveður allan tímann, en nú var dún
tekjan hafin og allt útlit fyrir frið-
samlega eggjatöku.