Þjóðviljinn - 16.11.1978, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.11.1978, Blaðsíða 2
2 SiDA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 16. nóvember 1978 Blóðbankinn 25 ára Sigurftur Guömundsson liffræðingur sýnir blaðamönnum vél sem greinir og mælir mótefni f blóðinu. Þessi véi er notuð i sambandi við Ehesus-varnir og f hana fara sýni af blóði allra barnshafandi kvenna á landinu 45.000 lítrar af Blóðbankinn i Reykjavik átti aldarf jóðungsafmæli 14. nóv- ember s.l. Af þvl tilefni boöaöi ólafur Jensson yfirlæknir blaðamenn á sinn fund, fræddi þá um starfsemi bankans og gaf þeim afmæliskaffi. Á þeim 25 árum sem liðin eru frá 14. nóv. 1953, þegar bankinn var formlega opnaöur, hafa honum borist yfir 100.000 blóð- gjafir, eða sem svarar rtimlega 45.000 lftrum af blóði. Þetta blóö er grundvöllur allrar þeirrar fjölþættu starfsemi sem fram fer i BlóöbankahUsinu viö Barónsstfg. Blóösöfnunin fer fram dag- lega alla virka daga. Margir blóögjafar koma af sjálfsdáöum reglulega, og eru dæmi um fólk sem gefiö hefur blóö 40—50 sinn- um. Metið á Stefán Jónsson frá Stokkseyri, sem gefiö hefur blóö 79 sinnum. Bankinn hefur komiö sér upp varasveit blóögjafa, sem koma meö stuttum fyrirvara þegar á þarf aö halda. Einnig er fariö i blóösöfnunarferöir til bæja og þéttbýliskjarna og vinnustaöa I nágrannasýslum höfuöborgar- innar. S.l. aldarfjóröungur hefur einsog allir vita einkennst af hrööum framförum og tækni- þróun á sviöi læknavisinda. 1 Blóöbankanum kemur þetta t.d. framl þvi.aðnúerfariö aö nýta meira éinstaka blóöhluta, þ.e. þeir þættir blóösins sem sjúkl- ingurinn hefur mesta þörf fyrir eru einangraöir. Rauöar blóö- frumur eru skildar frá blóö- vatninu —plasmanu — og síöan eru unnar blóöflögur úr plasm- anu, svo og storkuþátturinn 8, sem notaður er til lækninga á dreyrasýki. Þannig getur sama blóöeiningin (blóögjöfin) komiö 3—4 sjúklingum aö gagni. Rúmlega 20% af blóöi veröur ofgamalt til aö þaö sé gefiö. Or þvi er unniöplasma og þaö flutt út til frekari vinnslu á eggja- hvituþáttum til lækninga. Þessi notkun blóösins hefur aukiö vinnuálag Blóöbankans mjög mikiö og hún gerir einnig meiri kröfur um nákvæma gredningu á þörfum sjúklinga. 1 Blóöbankanum starfa nú rúmlega tuttugu starfsmenn. Hefur þeim fjölgaö nokkuö á undanförnum 6 árum, og jafn- framt hefur deildaskipting veriö fest I sessi. I kjallara Blóöbank- ans er Erföarannsóknadeild tii húsa, en henni veitir forstööu Álfreö Arnason llffræöingur. Blaöamönnum voru sýnd ým- is tæki sem notuö eru viö rann- sóknirnar. Mesta athygli vöktu vélar s«n notaðar eru viö svo- nefndar Rhesus-varnir, sem Blóöbankinn annast fyrir allt landiöhvað snertir blóöflokkun og mótefnarannsóknir. Þarna er um aö ræöa sjálfvirka blóö- þvottaskilvindu og vél til mót- efnagreiningar og mótefnamæl- inga. Tækjakostur bankans hefur batnaö verulega siöustu 3—4 ár- in. Fyrr i þessum mánuöi sam- þykkti Bygginganefnd Reykja- vikur teikningu af stigahúsi meö tveimur herbergjum, sem ætl- unin er aö bæta viö hús Blóö- bankans. Húsnæöiö er þegar orðiö nokkuö þröngt fýrir alla þá margþættu starfsemi sem þarnaferfram, en vonir standa til aö viöbótarhúsnæöiö bæti þar verulega úr skák. Ólafur Jensson sagöi enn- fremur, aö Blóöbankinn heföi mjög gott samband viö sams- konar stofnanir í öðrum Evrópulöndum, einkum á veg- um Evrópuráös. Starfsfólk bankans sækir námskeiö og ráö- stefnur erlendis, og einn alþjóö- legur fundurhefur veriö haldinn hér á landi. Auk þess koma þessi sambönd sér oft vel, t.d. þegar bankinn þarf aö fá dýr- mæt greiningarefni aö utan eöa notfærasér þjónustu djúpfrysti- banka I nágrannalöndunum. ih Happdrætti Áskirkju Happdrætti Askirkju er komið af stað. Prentaöir hafa verið 11000 happdrættismiöar og er verð hvers miöa kr. 1000. Dregið verður 28. desember n.k. Vinningar eru 14, aö verögildi allt frá 300 þús. krónum niður i 30 þús. krónur. Samtals kr. 1.860.000.- langferöalög I lofti, á láöi og legi, málverk, vöruúttekt,- húsgögn og heill gangur af hjól- börðum fyrir fólksbil og margt fleira. Allt þetta hefur kirkjunni veriö gefið af einstaklingum og fyrirtækjum. Ný þýdd ástarsaga Hörpuútgáfan á Akranesi gefur út á þessu hausti tiundu bókina eftirBodilForsberg, „Ég þrái ást þrna”. 1 frétt frá útgáfunni segir að hér sé um „ósvikna ástar- sögu” aö ræða. Bókin er 189 bls. Skúli Jensson þýddi. Prentun og bókband er unnið i Prentverki Akraness h.f. Hilmar Þ. Helgason geröi kápu- teikningu. Minning Þorlákur verkamadur Hann Þorlákur Bjarni Halldórsson er dáinn og veröur borinn til moldar i dag. Þaö er erfitt aö finna orö, þvillkt reiöar- slag er missir þessa ágæta drengs, sem varð fyrir hörmu- legu vinnuslysi viö höfnina. Hann var 22 ára gamall, eitt fjögurra barna Else Þorláksson og Halldórs Þorlákssonar. Kynnum minum af Þorláki sem vini og félaga, mun ég seint gleyma, þvi mikil voru áhrif þessa stórbrotna æskumanns. Snemma varö hann virkur i verkalýösbaráttunni á vinnustaö og i verkamannafélaginu Dagsbrún. Hann var verkamaöur meö stéttvisa afstööu sem við vinnufélagarnir gátum treyst á. Halldórsson Aldrei minnist ég þess aö hann hafi boriö nokkrum manni illt orö, þaövareiturihans beinum. Þessi stórvaxni og sterkbyggði maöur var yfirleitt glaöur og hýr á brá en fastur fyrir þegar á þurfti aö halda. Þannig öölaöist hann traust og viröingu félaga sinna. Þess vegna er fráfall hans svona þungbært. Ég vil aö lokum tjá foreldrum og systkinum Þorláks heitins, innilega samúö frá okkur vinnu- félögunum viö höfnina. Þín viö ætíö munum minnast, markmið þitt er okkur hjá. Styrkur þinn mun stöðugt finnast staðfastur með hýra brá. Benedikt Kristjánsson verkamaöur. Bjarni Forstöðukona Miss World-keppninnar KONUR ERU EKKID ÝR LONDON, 14/11 (Reuter) — óö- um veðja menn um hver verði liklegust keppenda tilað hreppa titilinn Ungfrú Heimur (Miss World). Sumir veðja á stúlku frá Costa Rica, en aörir á ung- frú Astraliu. Forráöamenn keppninnar sýndu á sér óvænta hliö, já næstum ótrúlega hliö þegar haft er I huga hvers konar hrossa- markaö þeir standa fyrir. Þannig var mál meö vexti aö veöfyrirtæki eitt i Bretlandi, sem einkum sérhæfir sig i hest- um, hefur neyöst til aö hætta afskiptum sinum af þessari feg- uröarsamkeppni. Starfsmönn- um þess var nefnilega meinuö innganga á fréttafund siöasta sunnudag, þar sem kostur gafst á aö ljósmynda dýrin. En nei, nei, Julia Morley forstööukona keppninnar sagöi aö keppendur væru ekki dýr, og þvi fengju þeir ekki inngöngu. Þaö er eins og eitthvað stand- ist ekki.... ts- og móöuskafa einsog þær sem dreift er til bindindissamra öku- manna. Hvatning til ökumanna: Haldíd bílrúðunum hreinum tryggingafélags bindindismanna i þessu máli. Blaðinu hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Bindindisfélagi ökumanna: Reykjavikurdeild Bindindis- félags ökumanna gengst um þessar mundir fyrir hvatningu til ökumanna um aukiö umferöar- öryggimeö þvi aö halda bilrúöun- um hreinum. 1 þessu skyni hefur deildin keypt vandaöar Is- og móöusköfur meö oröunum: GOTT SKYGGNI = ÖRUGG UMFERÐ og veröur þeim dreift til almenn- ings nú á næstunni. Þeir félagar Reykjavikur- deildar, sem ekki hafa fengiö is- sköfu, geta snúiö sér til skrifstofu BFÖ aö Skúlagötu 63 og fengiö þar sköfu, til og meö 30. þ.m. en þar er opiö milli kl. 17 og 18 virka daga. Deildin hefur notiö stuönings og góörar fyrirgreiöslu Abyrgöar hf. Dvergurinn með rauðu húfuna ævintýri fyrir yngstu börnin Bókaútgáfan Fróöi hefur gefiö út barnabókina „Dvergurinn meö rauöu húf- una” eftir Ingólf Jónsson frá Prestbakka. Eins og nafniö bendir til er þetta ævintýrasaga fyrir ungstu börnin. Þórir Sigurösson myndskreytti söguna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.