Þjóðviljinn - 16.11.1978, Side 11

Þjóðviljinn - 16.11.1978, Side 11
Fimmtudagur 16. nóvember 1978 ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 11 Hlj ódabunga komin út Vestfirskt tímarít tJt er komib 3. hefti timaritsins Hljóbabungu sem gefib er út á Isafirði. Þaö er 75 blaðsiöur, prentað á góðan pappir og vel myndskreytt. 1 ritnefnd eru Hall- ur Páll Jónsson (ábm), Ásdis G. Ragnarsdóttir, Einar Eyþórsson, Finnur Gunnlaugsson, Guðjón Friðriksson og Jónas Guðmunds- son. Prentstofan Isrún á tsafirði prentar biaðib. Meðalefnis i blaðinu er þetta: Jón Jónsson skraddari segir frá,3. og siðasti hluti. Fært hefur i letur Guðjón Friöriksson. Hér segir frá pólitiskum átökum á Isafirði á árunum um 1930. Þegar frelsið veröur ánauð, um innflutningsfrelsi og áhrif þess á verðbólgu, skuldasöfnun og fleira. Greinina skrifar Einar Eyþórsson sem stundar nám I Tromsö i Noregi. Gestur V e s t f i r ð i n g u r 1847—1855, fyrsta tímarit á Vest- fjörðum. Samantekt eftir Hall Pál Jónsson. Menntun eða itroðsla, grein um skólamál eftir Hall Pál Jónsson kennara og félagsfræðing. Hallvarður skáld frá Horni 1723—1799. Birtar eru I heilu lagi Strandleiðarrima (i fyrsta sinn á prenti) og Ljóðabréf eftir þessa þjóðsagnapersónu frá Horn- ströndum. Saman tóku Hallgrim- HLJÓÐABUNGA TÍMARÍT 3 Forsiðumyndina af Hijóðabungu gerði Svala Sigurleifsdóttir. Hún nefnist Fararskjóti tröilanna og er frá Skutulsfirði ur Guðfinnsson frá Reykjafirði nyrðra og Hallur Páll. Þróun menningar — hvert stefnir?, grein eftir Jónas Guðmundsson sem stundar háskólanám I Bandarikjunum. Þegar Atlantis hvarf i þangið. Hljóðabunga kannar þangvinnslu I Noröur-Noregi. Eftir Einar Eyþórsson. Gústi Jónu Jónseða vandinn að vera sjálfum sér samkvæmur. Grátt gaman I einum þætti eftir Véstein Lúövfksson rithöfund. Leikþátt þennan sem hér birtist á prenti samdi Vésteinn sérstak- lega fyrir kvöldvöku herstööva- andstæöinga á Isafiröi 1. des. 1976, og leikstýröi sjálfur. Þá eru i ritinu ljóö eftir Ragn- heiði Þóru Grimsdóttur kennara á Isafiröi, Gisla Kristjánsson frá Breiöalæk á Baröaströnd, sr. Gunnar Björnssonf Bolungarvik, Anton Helga Jónsson og Pier Pa- olo Pasolini (I þýöingu Halls Páls). Ennfremur er birt lag Jakobs Hallgrimssonar tónlistarkennara á lsafiröi viö ljóö Halldórs Lax- ness, Um hina heittelskuðu. Forsiöumynd geröi Svala Sigurleifsdóttir frá Isafiröi. I ávarpi til lesenda frá ritstjórn segirm.a.: ,,Þaö er von okkar, aö um Hljóðabungu verði hægt að segja, að þar heyrist hljóö úr horni, aö hún upplýsi og gefi út- sýn, likt og sá staöur á hæstum Drangajökli sem ritiö er kennt viö”. Afgreiöslu blaösins annast Asdis G. Ragnarsdóttir, Neösta- kaupstaö, simi 94-3278 Isafiröi. Þaö fæst I helstu bókabúöum i Reykjavik t.a.m. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar og Máls og menningar. Saga 1978 komin út Flestar ritgerðirnar um íslandssöguna 1890-1920 (Jt er komið XVI, bindi af Sögu, timariti Sögufélags. Þetta timarit hóf göngu sina fyrir tæplega 30 árumog hefur nú um skeið komið út regiulega einu sinni á ári. Flestar ritgeröirnar I hefti árs- ins 1978 tengjast meö einhverjum hætti Islandssögu timabilsins 1899—1920. Fyrst er þar aö finna ritgerö eftir Jón Guönason um stjórnarkreppuna 1911, þegar Kristján Jónsson varö ráöherra, en þar styöst Jón viö og birtir m.a. áöur ókönnuö simskeyti og skjöl úr Rikisskjalasafni Dan- merkur. — Ólafur R. Einarsson á hér ritgerö um sendiför Ólafs Friörikssonar til Kaupmanna- hafnar voriö 1918 og áhrif danskra og islenzkra jafnaðar- manna á fullveldisviöræöurnar sama ár, þar sem F.J. Borgbjerg lék stórt hlutverk. Einnig hér er mjög stuözt viö danskar heimild- ir. Gisli Ag. Gunnlaugsson á hér itarlega samantekt um störf milliþinganefndar i fátækra- málum 1902—1905. Gisli færir sér mjög i nyt þau miklu gögn, sem nefnd þessi safnaði, og gerir á grundvelli þeirra rækilega grein fyrir fátækraframfærslunni eins og hún var i reynd hérlendis 1870—1907. Helgi Skúli Kjartansson ritar um vöxt og myndun þéttbýlis á Islandi 1890—1915 og ræöir m.a. um áhrif vaxandi útgeröar á þétt- býliö. — Sólrún Jensdóttir á hér ritgerð um áformin um lýöveldis- stofnun 1941 og 1942 með sérstöku tilliti til afskipta Breta og Banda- rikjamanna af þeim. — Loftur^ Guttormsson fjallar um sagn- fræöi og félagsfræöi meö sam- búöarvandamál þessara greina i huga. Aftarlega i heftinu er aö finna grein eftir dr. Björn Sigfússon, og er þar aö stofni til um aö ræöa kafla úr andmælaræðu hans á doktorsvörn Gunnars Karlssonar I marz s.l., er Gunnar varöi rit sitt, Frelsisbarátta Suöur—Þing- eyinga og Jón á Gautlöndum. Margt ritdóma er i þessu hefti Sögu, m.a. fjallar Lúðvik Kristjánsson þar itarlega um Skútuöldina eftir Gils Guömurds- son. Aftast er svo ritaukas u-á um sagnfræöi og ævisögur 1977. Höfundar efnis I Sögu aö þessu sinni eru 14 talsins á aldrinum 25—73 ára. Ritstjórar eru Björn Teitsson og Einar Laxness, og er hinn slðarnefndi jafnframt forseti Sögufélags. Framkvæmdasyóri félagsins er Ragnheiöur Þorláks- dóttir. Félagar I Sögufélagi geta fram til 25. nóv. vitjaö Sögu 1978 i af- greiöslu félagsins aö Garöastræti I3b (gengiöinnúrFischersundi), Reykjavík. Aö öörum kosti veröur heftiö semt út i pósti. Eindregin stuðningur Stjórn Rithöfundasambands ts- lands hefur sent frá sér fréttatil- kynningu þar sem lýst er yfir ein- dregnum stuðningi við iistbann Félags tslenskra myndlistar- manna vegna ágreinings um stjórn listrænnar starfsemi á Kjarvalsstöðum. Jafnframt skorar stjórnin á borgarfulltrúa Reykjavikurborg- ar aö gera nú þegar gangskör aö þvi aö leysa ágreining hússtjórn- ar Kjarvalsstaða og samtaka listamanna svo aö Kjarvalsstaöir geti sem fyrst oröiö sá vettvangur lista I Reykjavik sem aö er stefnt. SOVETRIKIN: Ópera á jiddisku MOSKVA, (Reuter) — Frétta- stofan Tass skýrði frá þvi I dag að nýtt óperuhús Gyðinga hefði veriö opnað i borginni Birobidjan. Viö opnunina var frumsýnd fyrsta ópera heims á jiddisku, eftir leikhússtjórann Yuri Scherling. Nefnist hún „Svart beisli fyrir hvfta meri”. Var þar einnig skýrt frá aö hiö nýja óperuhús væri aö undirbú fjögur önnur leikstykki, sei fjalla myndu um alþjóöahyggj og baráttuna fyrir friöi. Leiklist á jiddisku var bönnuö Sovétrikjunum á valdatlm Stalins en var endurvakin byrjun þessa áratugs. Þess má geta aö leiktjöld ger( hinn þekkti listmálari Oly Glazunov. Stórstúka Islands gerist blaðaútgefandi Reginn, blaö templara, hefur nú komiö út á vegum siglfirskra templara I 40 ár. Nú hefur sú breyting orðiö á útgáfu blaösins aö Stórstúka Isiands hefur gerst aöili aö útgáfunni, en þaö veröur þó áfram prentaö á Siglufiröi og ritstjóri þess veröur áfram Jó- hann Þorvaldsson skólastjóri. Akveöiö er aö blaöiö komi út einu sinni I mánuöi I vetur, 8 blöö þar til I mat, og er verö þeirra til áskrifenda 1000 krónur. Bókabúö Æskunnar tekur viö áskriftum I sima 10248. ih Styrkur tll háskólanáms í Svíþjóð Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt aö þau bjóöi fram I löndum sem aöild eiga að Evrópuráðinu tiu styrki til háskólanáms I Sviþjóð háskólaáriö 1979—80. — Ekki er vitaö fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut tslendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætiaöir til fram- haldsnáms við háskóla. Styrkfjárhæðin er 1.950 sænskar krónur á mánuði I niu mánuöi,en til greina kemur I ein- staka tilvikum að styrkur verði veittur til allt að þriggja ára. Umsækjendur skulu hafa lokiö háskólaprófi áður en styrk- timabil hefst. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til Svenska Institutet, P.O. Box 7434 S-103 91 Stockholm, Sverige, fyrir 28. febrúar 1979. Menntamálaráðuneytið 7. nóvember 1978. Auglýsing um lögtök Samkvæmt beiðni Rikisútvarpsins dag- settri 14. nóv. 1978 úrskurðast hér með sbr. 20. grein útvarpslaga nr. 19 frá 1971, að lögtök fyrir ógreiddum afnotagjöldum út- varps- og sjónvarpstækja ásamt vöxtum og kostnaði, skulu fram fara að 8 dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa. Reykjavik 14. nóv. 1978 Borgarfógetinn i Reykjavik Húsavík Yfirmaður verklegra framkvæmda Starf yfirmanns verklegra framkvæmda hjá Húsavikurbæ er hér með laust til um- sóknar. óskað er eftir verkfræðingi eða tæknifræðingi i starfið. Umsóknarfrestur er til 1. des. n.k. Nánari uppl. um starfið veitir undirritaður. Bæjarstjóri Laus staða Staða deildarstjóra innan jarðhitadeildar orkustofnunar er laus til umsóknar. Nauð- synlegt er að deildarstjórinn hafi sérþekk- ingu á efnafræði jarðhitavatns og er hon- um ætlað að hafa umsjón með rann- sóknarstörfum á þvi sviði. Laun sam- kvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir er greini menntun og starfs- reynslu sendist til Orkustofnunar fyrir 20. desember 1978. Orkustofnun Laust starf Starf á skattstofu Vestfjarðaumdæmis, ísafirði, er laust til umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu i skrif stof ustörf um. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist skattstjóra Vest- fjarðaumdæmis fyrir 15. desember n.k. Fjármálaráðuneytið, 10. nóvember 1978. Auglýsingasíminn er 81333 J

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.