Þjóðviljinn - 02.12.1978, Qupperneq 1
Launahækk-
unin er 6,12%
Laugardagur 2. desember 1978. —267. tbl. 43. árg.
Mikilvœgt öryggismál í
framkvœmd um áramótin
3 til 4 þúsund fá
ókeypis símaafnot
Ragnar: „Þetta er mikið rétt-
lætismál''.
Ákveðiö hefur verið að
aidraðir og öryrkjar sem
búa einir í íbúð og njóta
fullrar tekjutryggingar fái
ókeypis afnot af síma að
því marki sem fastagjald
gerir ráð fyrir. Þessi
hlunnindi ná að vísu ekki til
aldraðra og öryrkja al-
mennt/ heldur einungis til
þeirra sem búa einir í ibúð
og eru verst settir fjár-
hagslega, það er lifa á
fullri tek jutryggingu.
Samt munu þrjú til fjögur
þúsund manns i landinu
eiga kost á þessari þjón-
ustu.
„Þetta er mikið öryggis- og
réttlætismál”, sagði Ragnar Arn-
alds, samgönguráöherra i sam-
tali við Þjóöviljann i gær. „Laga-
heimild sem á rætur sinar að
rekja til tillögu er Magnús Kjart-
ansson flutti á sinum tima á þingi
er fyrir hendi og þessi réttindabót
verður ákveöin með reglugerð nú
á næstunni. Frá og með næstu.
áramótum mun þessi hópur fólks
eiga kost á ókeypis sirna sam
kvæmt reglugeröinni,” sagöi ráð-
herrann ennfremur.
Þessi ráðstöfun er i tengslum
við efnahagsráöstafanir rikis-
stjórnarinnar og geta má þess
einnig að tekjutrygging aldraðra
og öryrkja veröur nú hækkuð
meira en nemur almennri launa-
hækkun eða um 9%. —ekh.
STJÓRNARSKRÁRNEFND hóf störf i morgun
50 til 60 manns án
atvinnu í þrjár vikur
Komist hjá kauptryggingu með tilfærslu á hráefni
I
■
I
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
Nýskipuö stjórnarskrárnefnd
kom saman til fyrsta fundar i
gær. Aldursforseti nefndarinnar
Gunnar Thoroddsen stýröi
fundi, en á honum var útbýtt
skjölum frá fyrri stjórnarskrár-
nefnd og gögnum sem hún haföi
safnaö saman. Nefndin kýs sér
sjálf formann og veröur þaö
gert á næsta fundi hennar næst-
komandi fimmtudag. Nefndinni
er ætlaö aö skila niöurstööum
innan tveggjaára isamræmi viö
samkomulag stjórnarflokkanna
á siöasta þöngi.
A myndinni eru frá vinstri
nefndarmennirnir Sigurður
Gizurarson (F), Þórarinn
Þórarinsson (F), Ragnar
Arnalds (Alþbl), Olafur Ragnar
Grimsson (Alþbl), Gunnar
Skipulagsleysi á veiðum og vinnslu á Akranesi
Thoroddsen (S), Ólafur Gylfi Þ. Gislason (A), Jón Bald-
Jóhannesson, forsætisráðherra vin Hannibalsson (A), Matthias
Bjarnason (S), og Eirikur Alex-
andersson (S).
Bjarnfrlöur Leósdóttir: Þetta
bitnar fyrst og fremst á giftum
konum.
,/Nú hafa fimmtíutil sex-
tíu manns gengið atvinnu-
lausir hér á Akranesi á
þriðju viku", sagði Bjarn-
friður Leósdóttir, varafor-
maður Verkalýðsfélags
Akraness í samtali við
blaðið í gær.
„Héðan eru geröir út f jórir tog-
arar, þrir skuttogarar og tog-
arinn Vikingur sem er á loðnu-
veiðum. Auk þess eru gerðir út
fimm bátar á linu, og fjórir til
fimm á Ioönu og sild. Skuttogur-
unum hefur gengið vel við veiðar-
nar og línubátunum sæmilega.
Þrátt fyrir þetta hefur skipulag
veiöanna verið á þá lund aö 50 til
60 manns verða að þola atvinnu-
leysi.” sagði Bjarnfríöur.
Samtímis því að skuttogarinn
Óskar Magnússon þurfti aö fara I
eftirlit til Akureyrar þar sem
hann var smlöaður þá sigldi skut-
togarinn Krossvlk með aflann til
Englands og mun síðan fara I viö-
gerð” og þar við bætist aö nú er
búið að segja upp 30 manns i
frystihúsinu Heimaskaga vegna
lagfæringa á frystihúsinu og mun
sú uppsögn standa til áramóta.
Allt þetta fólk hefur aðeins fengið
viku uppsagnarfrest og enga
kauptryggingu I mánuö, þá þurfa
atvinnurekendur ekki að beygja
sig undir uppsagnarfrest ef þeir
geta borið viö hráefnaskorti. Og
hann virðist bærilega skipulagður
Happdrætti Þjóðviljans:
NÍU DAGAR EFTIR
Drætti hefur verið frestað í Happdrætti Þjóðviljans til 10. desember. Herðum
lokaróðurinn og gerum skil sem fyrst. I
hjá þeim svo þeir sleppi við kaup-
trygginguna. Fólkiö fer þvl á at-
vinnuleysibætur, þaö er aö segja
það sem hefur rétt á þvl, en hinir
verða kauplausir allan
desembermánuö. Þetta bitnar
fyrst og fremst á giftum konum
þvi hafi maki þeirra yfir 3 milj-
ónir króna i árslaun,fá þær ekkert
úr atvinnuleysistryggingasjóði
samkvæmt reglum hans.” sagði
Bjarnfrlöur að lokum.
Trúnaöarráö Verkalýösfélags
Akraness hefur nótmælt þvl
skipulagsleysi sem rlkir i veiðum
og vinnslu hjá forráðamönnum
frystihúsa bæjarins. Þar segir að
uppsögnum hafi veriö hagað
þannig með tilfærslu á hráefni aö
enginn hefur fengið kauptrygg-
ingu. Trúnaöarráöið beindi þvi
alvarlega til þeirra manna sem
ráða yfir atvinnutækjum bæjar-
búa aö þeir standi ekki að þvl að
hópar fólks verði fyrir atvinnu-
leysi á þennan hátt. —ekh
Þakið við
262-264
þús. kr.
Samkvæmt tilkynningu frá
Hagstofunni svarar almenn
hækkun launa I samræmi við
lög stjórnarinnar til hækk-
unar verðbótavisitölu úr
142.29 stigum (1. sept.) I 151.
stig, en það er 6,12% hækkun
sem greiðist á timabilinu 1.
desember til 28. febrúar n.k.
I samræmi við ákvæði lag-
anna fá mánaöarlaun I
nóvember sem er 262.605
kr. eða lægri hjá ASÍ-
félögum og 264.788 kr eða
lægri hjá BSRB- og
BHM félögum fullar verö-
bætúr, eða 6,12%. A hærri
mánaðarlaun i nóvember er
launahækkunin 1. desember
föstkrónutala, 16.075hjá ASl
félögum og 16.205 hjá BSRB
og BHM félögum.
Friðrik Ólafsson
svarar stjórn SI
Fjármun-
um þeim
gat ekki
verið bet-
ur varið
Þjóðviljanum barst í
gær svarbréf frá Frið-
riki Ólafssyni, forseta
FIDE til stjórnar
Skáksambands (slands
og er það birt i heild á
3ju síðu blaðsins í dag.
1 svari sínu segir Frið-
rik.
Eftir að hafa gert slnar at-
hugasemdir við styrkveit-
ingu vegna farar Guðmund-
ar G. Þórarinssonar skýra
greinarhöf. frá þvl, að stjórn
St hafi unnið sleitulaust I
meira en hálft annað ár að
framboði mlnu og sérstak-
léga hafi forsetar S.i. unnið
þar mikið og óeigingjarnt
starf.
Ekki skal ég verða til þess
að vanmeta það, sem stjórn
S.t. og forsetar hafa lagt af
mörkum I þágu framboðsins,
en ekki finnst mér greinar-
höfundum farast stórmann-
lega, þegar þeir I næstu and-
rá fara að gera litið úr fram-
lagi annarra, sem lagt hafa
lið I kosningarbaráttunni, og
láta sig hafa það að segja, að
þar hefði fjármununum
getað veriö betur variö. Hér
þykir mér reitt til höggs af
vanefnum. Það er út af fyrir
sig ágœtt að kunna skil á þri-
liðureikningi, en sú
reikningsaöferð á bara ekki
við, þegar metnir eru verð-
leikar mannanna 1 þessu lifi.
Einn maður getur fengiö
meiru áorkað á einum tima
en margir menn á mörgum
vikum. Ræði ég það svo ekki
frekar að sinni, en það get ég
fullvissaö greinarhöfunda
um, sem raunar hefur ekki
getað fariö framhjá þeim, að
fjármunum þeim, sem veitt
var til farar tveggja tslend-
inga til Buenos Aires hefði
ekki getað veriö vetur variö.