Þjóðviljinn - 02.12.1978, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 02.12.1978, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 2. desember 1978 AF KRANA KONUNNAR MINNAR Ég hef vístaldrei sagtfrá því þegar kraninn fór aðieka i kjallaranum heima og konan mín sagði að hún færi að heiman ef ég næði ekki í pípulagningamann eins og skot það væri í minum verkahring af því að ég þekkti a|la. Og þar sem það er eiíthvert mesta skítverk sem hægt er að hugsa sér að haf a uppi á iðnað- armönnum — og ég kalla það auðvitað skít- verk af því að það er mesta púlvinna sem hugsastgetur — þá sagði ég konunni minni, að það væri miklu f remur í hennar verkahring að ná ? iðnaðarmann til að laga krana , sem bilað hefði i einu af hennar einkatækjum, þvotta- vélinni. Þá æpti hún á mig og sagði-að þvottavélin væri ekkertsitteinkatæki, hún væri sérhönnuð til að þvo af mér skítagallana, og ég sagði henni, eins og satt er, að ég hefði gef ið henni þvottavélina í jólagjöf til að losa hana við að sinna skyldustörfum sínum á þvottabretti. Svona magnaðist þetta orð frá orði þar til konan mín, sem er af góðu fólki, missti stjórn á sér og fór í fýlu. Ég er afskaplega þægilegur á heimili og sleppfi mér ekki úr hóf i f ram þrátt f yrir þessa hegðun, þóað mér þætti vissulega. Mér finnst mér ekki nærri nógu oft f ullþakkað allt sem ég geri fyrir konuna mína hérna á heimilinu og mér f innst hún vera orðin f ull hortug uppá síð- kastið, eða síðan hún fór að vinna úti allan daginn, en það hefur hún gert eiginiega síðan við giftum okkur fyrir tuttugu árum, eða rúm- lega það. Ég fer oft útí búð f yrir hana, ég moka snjó- inn af tröppunum eiginlega alltaf fyrir hana (þ.e.a.s. þegar það er gert). Ég hef meira að segja sett upp kartöf lur fyrir hana — ekki oft, en samt— og ég held hún ætti að reyna að muna hvaðöft ég hef togað í lökin og sængur- verin á móti henniv fyrir hana — án þess að hafa hugmynd um til hvers andskotans alltaf er verið að toga í sparlökin úr hjónarúminu okkar, sem ég raunar lét sérsmíða f yrir hana. Já, meira að segja tveggja metra breitt og tveggja metra langt bara til að það gæti farið sæmilega um hana á nóttinni. Maður varð auðvitað að punga út með morð fjár fyrir aukatimbri til að ná breiddinni. Og samt gat hún verið í f ýlu þótt ég teldi þá ósvinnu að ná í pípulagningamann handa þvottavélinni henn- ar ekki í mínum verkahring. En sá vægir sem vitið hefur meira svo ég hringdi í strák úr Hreppunum, sem hef ur ver- ið bátsmaður á togara undanfarið og er bróðir konu sem vinnur í MjólkursamsÖlunni. Áf vissum ástæðumvilég ekki nafngreina þessa konu, en hún hef ur lengi átt vingott við mjólk- urfræðinginn sem sér um ostana, en hann á hálfbróður sem kennir dönsku í Iðnskól- anum. Frænka bátsmannsins kom í sfmann og sagði að frændinn væri útá sjó svo ég var að því kominn að að gefast upp við að ná ? pípu- lagningamann, en hugkvæmdist þó að spyrja frænkuna, hvort hún vissi hvernig ég gæti náð í framangreindar persónur, vegna þess að mig vantaði pipulagningamann til að gera við krana fyrir konuna mína. Frænkan sagði mér þá að hjá sér væri staddur unnusti sinn, sem einmitt væri pípulagningamaður og væri að koma af spítala þar sem hann hefði gengið undir uppskurð vegna bólgu i blöðruhálskirtli. og þvaggöngum og væri sennilega búinn að ná sér að því marki að hann gæti tekið að sér að gera við umræddan krana f yrir konuna mína. Nú kom unnustinn í símann, sagðist heita Bótólfur, vera af Bergsætt og fór með vísu f yrir mig sem hann haf ði orkt einu sinni þegar hrann var að koma-uppúr Sundhöllinni. Svo spurði hann mig hvort ég ætti nokkuð, og ég jánkaði því, af því ég vissi að hann átti við brennivín. Hann var kominn hingað heim til mín áður en ég var búinn að leggja á. Ég fékk hann svo loksins til að líta á kran- ann fyrir konuna mína þegar hann var búinn úr axlaf ullri brennivínsf lösku, sem hörpuleik- ari úr Sinfóniuhljómsveitinni hafði gleymt hér deginum áður. Hann horfði lengi á kranann og sagði svo: „Það verður að ná í fittings. Við skulum nú sjá, já. Hér þarf tvö treikvarttommu nippil- hné^túrloka og stútþynnustuðventil og ég held að það sé betra að hafa hér júníón heldur en rejúnión og nippil, nippil verðum við að hafa, já kauptu tvo nippla, annan til vara." Svo varð hann eins og annars hugar og sagði: „Ertu ekki með flókontról í húsinu?" Ég sagðist ekki vita það, en hann sagði að allir ættu að hafa f lókontról, með því væri hægt að hita húsið án þess að ofnarnir hitnuðu. Og á baðinu væri sjálfsagt að hafa skolvask, gal- vask og bídett. Ég sagði honum að ég ætlaði að láta þær framkvæmdir bíða betri tíma, við skyldum halda okkur við kranann fyrir kon- una mína. „Já kranann já", sagði píparinn, „farðu þá og keyptu hjá Fossberg jaað sem ég talaði um áðan og ég fer á meðan niðureftir og næ í þrífót og snittklúbb." Og með það skildum við. Ég tók sendiferðabíl og verslaði hjá Foss- berg, en pípulagningamanninn hef ég aldrei síðan séð. Ég f rétti það raunar ekki fyrr en um daginn hvað væri snittklúbbur. Það er félagsheimili pípulagningamanna í Reykjavík. Jæja hvað um það, góð fannst mér vísan hans þegar hann kom uppúr í Sundhöllinni: Mikið ógurlega fer mikið vatn í gegnum mjó rör jess sör og án þessað íslenska þjóðin verði þess vör skrúbb skör. Flosi. Tímarit frá Sovétríkjunum Þar sem „Erlend timarit” hafa hætt starfsemi sinni, hefur orðið að samkomu- lagi að bókabúð Máls og menningar taki að sér umboð fyrir blöð og timarit frá Sovétrikjunum. Þeir sem verið hafa áskrifendur eru þvi beðnir að láta vita ef þeir óska að halda áskrift sinni áfram. Bókabúð Máls og menningar. Blaðberar óskast Seltjamames: Lindarbraut — Skólabraut Vesturborg: Melar Skjól Bólstaðarhlið Hringið í síma 81333 Auglýsingasíminn er 81333 DJOÐVIUINN Minnispeningur um Jón Sigurðsson t tilefni af hundruðustu ártfö Jóns Sigurössonar, sem er i des- ember 1979, hefur Hrafnseyrar- nefnd iátiö slá minnispening, sem nú er boöinn til sölu. Minnispen- ingurinn verður seldur I öilum rikisbönkunum, sparisjóöum á Vestfjöröum og myntsölumi Reykjavik. Agóöi af sölu penings- hlutanum er kapella, sem jafn- framt er þó miöuö viö almenn fundahöld. En jafnframt þessu er stefnt aö þvi aö koma upp á Hrafnseyri minjasafni um Jón Sigurösson og lffsstarf hans. Er ætlast'til aö þessum framkvæmd- um veröi lokiö 17. júni 1980. BHM skrifar rikisstjórninni og mótmælir Ekkert samráð við BHM Nýkjörnir formenn stjórnar og launamálaráös BHM þeir Valdi- mar Kr. Jónsson og Jón Hannes- son gengu á fund forsætisráö- herra s.l. mánudag og mótmæltu þvi aö ekkert samráö hefur veriö haft viö BHM viö undirbúning frumvarpsins um timabundnar ráöstaf anir tii viönáms gegn veröbólgu. 1 bréfi sem forsætisráöherra var afhent segir aö BHM vænti þess aö hér eftir veröi haft nánara damráö viö bandalagiö og þá ekki aöeins.á siöustu stigum. Sé slikt samráö raunar forsenda þess aö vinnufriöur haldist. I bréfinu er ennfremur bent á aö 80% BHM manna búi viö skertar veröbætur vegna vfsitölu- þaksins og aö lækkun skatta og félagslegar umbætur komi félagsmönnum BHM sennilega aö litlu gagni enda hafi ekkert samráö veriö haft viö BHM um þessar aögeröir. Geti Bandalagiö j)vi ekki sætt sig viö aö þessar aö- geröir skeröi veröbætur félaes- manna sinna. —AI ins á aö renna til framkvæmda á fæöingarstað forsetans, en um þær er einkum þetta aö segja: A sinum tima var ráögert aö byggja á Hrafnseyri hús, sem átti aö vera prestsetur og barnaskóli meö heimavist fyrir börn úr sveitum beggja megin Arnar- fjaröar. Meiri hluti þessa húss var byggöur. Sföan hafa mál skipast svo, aö prestakalliö er sameinaö ööru og skólamál leyst á annan veg en þá var hugsaö. Hrafnseyrarnefnd er nú aö láTa ljúka byggingu hússins og er viö- bótin' komin undir þak. í nýja Atvinnurekendur bera sig illa I fréttatilkynningu frá Vinnu- veitendasambandi Islands er þvi mótmælt, aö rikisstjórnin hafi unniö aö stjómarfrumvarpi um timabundnar ráöstafanir til viö- náms gegn veröbólgu I samráöi viö aöila vinnumarkaöarins. Ekkert samráö hafi veriö haft viö vinnuveitendur. VSI telur frumvarpiö ekki til þess falliö aö draga úr veröbólgu- vandanum. Fráleitt sé aö ætla at- vinnuvegunum aö taka á sig rúm- lega 6% launahækkun 1. desem- ber nk, þeir geti engar launa- hækkanir tekiö á sig „ef ekki á aö koma til rekstrarstöövunar og at- vinnuleysis eöa stórfelldrar geng- isfellingar” eins og segir i frétta- tilkynningunni. — eös

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.