Þjóðviljinn - 13.01.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.01.1979, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. janúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Eggert G. Þorsteinsson tbrstjóri Trygginga- stofnunar ríkisins Tryggingaráð kom saman til fundar kl. 111 gærmorgun og voru þar greidd leynilega atkvæfti um umsækjendur til embættis for- IRAN: Fólk hverfur tíl vinnu á ný TEHERAN, 12/1 (Reuter) — Trúarleiötogar i borginni Shiraz hvöttu fólk tii aö taka daginn ró- lega en I gær uröu blóðugir bar- dagar. Þrir menn úr leyniþjón- ustunni SAVAK iétu lifiö og jafn- margir mótmælendur. Aö sögn útvarpsins tóku þús- undir mann þátt i mótmælunum. Kveikt voru bál og styttum af keisararnum velt. Aöalstöðvar Savak I Shiraz voru brenndar til kaldra kola, en stuttu áöur haföi Baktia forsætisráöherra sagt viö neöri deild þingsins aö hann myndi leggja niöur leynilög- regluna niöur. Starfsmenn sjúkrahúsa sögöu fréttamönnum aö átta mann- eskjur heföu látiö lífiö og þrjátlu særst I mótmælunum I Shiraz. Sjónarvottar sögöu fáa her- menn hafa verið á ferli i Shiraz I gær, en hún er eina borgin sem nú hefur losnaö undan herlögum. 0 A morgun mun Baktiar ávarpa efri deild þingsins en i næstu viku kemur I ljós hvort þingið styöur hann I forsætisráöherrastólnum. Ef svo veröur er liklegt aö keisar- inn fari til útlanda til hvildar, ab sögn hans sjálfs. Útgöngubann I borginni Qom var stytt i gær um tvær klukku- stundir. I dag voru kennarar og annað yfirvald háskóla hvatt til aö mæta I vinnu og taka upp eðli- leg störf. Háskólarnir hafa veriö lokaðir siðan I nóvember, þegar herforingjar tóku viö völdum. Bankastafsmenn sögöu i dag aö þeir myndu hefja þriggja daga vinnuviku á morgun, en hins vegar myndu þeir ekki afgreiöa gjaldeyrisviöskipti til Suður- Afriku og Israels. Verkfall bankastarfsmanna hefur staöiö I tvo mánuöi til stuönings oliu- verkamönnum Dönsk stjórnarvöld skýröu frá þvi I dag aö þau myndu hætta vopnasölu til Irans. Hinsvegar yrðu þau vopn afgreidd sem þegar hefur veriö samiö um. Vopnasala Dana til Irana nam 2.1 miljaröi islenskra króna i ellefu mánuöum siöasta árs. Volvo Amason ’65 til sölu . Upplýsingar i sima 74307 laugar- dag og sunnudag. Tilboð óskast. stjóra Tryggingastofnunar rikis- ins. Tveir greiddu atkvæöi meö Davið Gunnarssyni aöstoðarfor- stjóra rikisspitalanna, tveir meö Eggert G. Þorsteinssyni fyrrum ráöherra og einn meö Magnúsi Kjartanssyni fyrrv. ráöherra. Aö auki mæltu tveir meö Daviö Gunnarssynitilvaraogeinn með Pétri H. Blöndal tryggingastærö- fræöingi. Siðdegis i gær skipaði svo Magnús H. Magnússontrygg- ingaráöherra Eggert G. Þor- steinsson i embættið oghélt þann- Eggert G. Þorsteinsson ig þeirri hefö að skipa gamla toppkrata i þessa stööu. I Trygg- ingaráði sitja Bragi Sigurjónssor (A), Stefán Jónsson (G), Þóra Þorleifsdóttir (B), Gunnar Möller (D) og Guömundur H. Garöars- son (D). — GFi Verkföll / n / • a Spani Starfsmenn spænsku járnbraut- anna sneru til vinnu sinnar á ný i dag, en þeir felldu niöur vinnu i, einn sólarhring tii aö leggja áherslu á kaupkröfur sinar. Hins vegar hafa starfsmenn ell- efu bifreiöaverksmiöja ákveöiö aö fara i þriggja daga verkfall sem hefst á þriðjudag i næstu viku. Starfsmenn Ford-verksmiöj- unnar i Almusafes nálægt Val- encia fara I verkfall á morgun. Ætla þeir aö halda þvi áfram á laugardögum þar til yfirmenn verksmiðjunnar samþykkja kröfu þeirra um styttingu vinnu- vikunnar. Stjórnvöld i landinu hafa sett launahækkunarmörk sem miöast viö þrettán af hundraöi á þessu ári, en verkalýðsfélög krefjast aö mörkin veröi hækkuö upp i 16%, Rafiðnaðarsamband Islands: Leysið fjárhags vanda RARIK 50-60 starfsmenn misstu atvinnuna um áramótin llla horf ir nú um atvinnu raf iðnaðarmanna, en 40-50 línumenn og 9 rafvirkjar misstu atvinnu sína hjá Raf magnsveitum Ríkisins um áramótin. Fæstir þeirra hafa enn fengið nokkuð að gera og eru nokkrir komnir á atvinnu- leysisskrá. Uppsagnir hjá RARIK munu stafa af fjárskorti fyrirtækisins ogifréttfrá Rafiðnaðarsambandi íslands segir ma. að þær muni valda stórtjóni þegar frá liöi. Þaö hafi best sýnt sig I áhlaupunum nú undanfarið að nauðsynlegt sé aö dreifilinum RARIK sé vel við- haldiö. 1 stuttu viötali viö Magnús Geirsson formann Rafiönaðar- sambands tslands i gær sagöi hann m.a. aö rafiðnaðarmenn heföu kynnt sér þessi mál gaum- gæfilega undanfariö, og þaö væri ljóst aö nóg efni til viðhalds lfna væri til I landinu. Það sem ylli þessum vandræöum væri fjár- skortur Rafmagnsveitnanna, sem gætu ekki greitt vinnulaun. „Viö höfum rætt viö forsvarsmenn raf- veitnanna og iðnaöarráðherra og sett okkur inn I þau vandamál sem viö er aö glima. Þess vegna skorum viö á fjárveitingavaldiö aö leysa fjárhagsvandræöi RARIK” sagöi Magnús Geirsson að lokum. sgt Sjór komst í vélarrými Elínar Þorbjarnardóttur Ekki er Ijóst hvaða af- leiðingar það kemur til að hafa að sjór komst á f immtudagsmorgun inná vélarrými skuttogarans Elinar Þorbjarnardóttur á Suðureyri við Súganda- f jörð, en vonast var til að skipið kæmist aftur á sjó í kvöld, að því er skipstjór- inn Pétur Sigurðsson sagði Þjóðviljanum í gærkvöld. Skipið lá viö bryggju i heima- höfn er óhappiö varö og virðist loki viö sjódælur hafa gefiö sig. Var verið að gera viö dælurnar kvöldið áöur og er óhappiö talið standa i sambandi viö þaö, en viö- gerö var ekki fulllokið. Siöan hef- ur veriö unniö viö aö taka upp raf- mótora og þurrka þá og var þvi verki vel á veg komið i gærkvöld. Elin lagöist aö á miövikudag og landaði 85 tonnum af þorski, — stórþorski — tók Pétur skipstjóri fram, fiskifræðingum tii huggun- ar. - vh Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Sjálfsævisaga öreigaskáldsins Sænski rithöfundurinn Ivar Lo- Johansson hlaut bókmenntaverö- laun Noröurlandsráös sem út- hlutaö varigær I Helsinki. Hann hlaut veröiaunin fyrir fyrsta bindi sjálfsævisögu sinnar sem nefnist „Gelgjuskeiö”. Segir i greinar- gerö dómnefndarinnar aö þar lýsi hann „æsku sinni og félagslegu umhverfi af hreinskilni, nærfærni og næmri skynjun.” íslensk sjálfsævisaga Baráttan um brauöiö eflir Tryggva Emils- son var önnur þeirra bóka sem lögö var fram af Islands hálfu, og haföi ýmsum sýnst að hún ætti verulega möguleika ef dæma má af viðtökum sem verk Tryggva hefur hlotiö. Hin Islenska bókin var Fiöur úr sæng daladrottning- ar, ljóöabók eftir Þorstein frá Hamri. Ivar Lo-Johansson er fæddur áriö 1901. Hann var i hópi at- kvæðamikilla sænskra höfunda sem fram komu á fjóröa áratug aldarinnar og voru kallaöir ör- eigaskáldin — aörir i þeim hópi voru t.d. Wilhelm Moberg, Harry Martinson og Jan Fridegaard. Oreigaskáld er réttnefni um Ivar: hann var kominn af fátækum leiguliöum, svonefndum „statare” sem hann lýsti i raun- sæislegum skáldsögum um lif og kjör þeirra (Góöa nótt, jörö, 1932) og einnig hvernig þeir farast i nöprum veruleika stórborgarinn- ar (Kungsgatan, 1942). Sjálfur var Ivar Lo landbúnaöarverka- maður, skógarhöggsmaður og byggingaverkamaöur áöur en hann hóf aö skrifa,fyrst sem blaðamabur við blöö sósialdemó- krata. Hann hefur skrifaö um fimmtiu bækur. Eftir striö vakti hann upp miklar deilur með skáldsögunni Snillingurinn (1947) sem deildi hart á tepruskap I kynferöismálum. Um 1951 tók hann að skrifa skáldsagnaflokk Ivar Lo-Johansson sem tók mjög svip af hans eigin æviferli. Ein bók hefur komiö út á Is- lensku eftir Ivar Lo-Johansson, Gatan (Kungsgatan).hún kom út árið 19441 þýöingu Gunnars Bene- diktssonar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.