Þjóðviljinn - 13.01.1979, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 13.01.1979, Blaðsíða 11
Laugardagur 13. janúar 1979 —ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Kátir krakkar I nýja diskótekinu I Neskaupstaö .. og Travoltadans var troöinn þar... Þá gerdum viö það bara sjálf Rætt viö nokkra unglinga í Neskaup- stad, sem innréttuðu sér sjálf diskótek Rétt hjá féiagsheimilinu Egils- búö i Neskaupstaö stendur litiö timburhús meö skilti sem á stendur Sjómannastofa. A laugardagskvöldiö var barst þaö- an út ómur af diskólögum og viö nánari athugun kom i ljós aö þarna var nýbúiö aö opna diskó- tek fyrir unglinga 12 ára og eldri. Þegar okkur bar aö baröi var alb stór hópur unglinga aö skemmta sér i hálfrökkrinu og miklum hávaöa frá diskótekinu og „Travoita’-dansar voru troönir. Nokkrir unglingar voru teknir tali um staöinn og fleira og kom þá i ljós aö þetta var i annaö sinn sem þarna var opiö hús.en unga fólkiö Óiöf Gisiadóttir, Kristján Högnason, Niels Einarsson og Margrét Högnadóttir, foringjar viö diskóteksbygginguna haföi tekiö sig til I haust og innréttaö sjálft þetta hús til diskótekshalds. Og hvernig stóö á þessu framtaki þeirra? — Jú, sjáöu til viö vorum sam- mála um þaö krakkarnir i skólan- um aö þaö væri ófært aö hafa ekkert danshús og þegar okkur var boöiö aö innrétta Sjómanna- stofuna, sem haföi veriö notuö sem æskulýöshúsá staönum, eftir aö hætt var aö nota hana sem sjómannastofu... Fyrir svörum votu þau Margrét Högnadóttir, Ólöf Gisla- dóttir, Kristján Högnason og Niels Einarsson. Framhald á ,bls. 18 U nglinga vandamál þekkjum viö ekki Þegar viö heimsóttum krakk- ana i diskótekiö i Neskaupstaö var þar meö þeim einn fullorö- inn maöur, Valur Þórarinsson, æskuiýösfuiltrúi i Neskaupstaö, en hann vann meö krökkunum aö því aö innrétta diskótekiö i Sjó- mannastofunni. — Þaö þótti upplagt aö nota húsiö undir þetta, enda haföi æskulýösráöhaftafnot af þvi frá i fyrraaöhætt var aö nota þaö sem skólahús, en þar áöur var þaö s jó- mannastofa, sagöi Valur þegar viö spuröum um þetta framtak krakkanna. — Þaö er fyrirhugaö aö reyna aö fá einhver leiktæki i húsiö og aö reka hér klúbba fyrir krakka Rœtt við Val Þórarinsson œskulýösfulltrúa í Neskaupsstað yngri en 12 ára. Meö tilkomu þessa diskótekser all-velséö fyrir þörfum þeirra eldri, en miöur fyrir þeim yngri, en þaö stendur til bóta. Er þaö mikiö starf aö vera æskulýösfulltrúi i svona bæ? —Þaöerallavegaekki erfitt aö vera æskulýösfulltrúi hér i Nes- kaupstaö. I svona litlum bæ er maöur i svo nánum tengslum viö alla og tengslin milli krakkanna veröa meiri en i stórum bæjum. Þá tel ég aö þau nánu tengsli sem krakkar hér I Neskaupstaö kom- ast i viö atvinnuvegina, og aö unglingar hafa hér næga atvinnu yfir sumariö.hafióskaplega mikiö aö segja, sé raunar ómetanlegt. Vegna þessa þroskast böbn og unglingar betur og skilja hlutina fyrr en ella. Þau eldri fá atvinnu yfir sumariö i fiskvinnslunni og þau yngri I svo neftidri unglinga- vinnu, þannig aö enginn þarf aö ganga iöjulaus. Unglingavandamál i Neskaup- staö? — Annaö hvort veröur maöur Valur Þórarinsson æskulýösfuil- trúi ekki var viö þau eöa þá aö ung- lingavandamál eöa kynslóöabiliö svo nefnda er ekki fyrir hendi hér. Þarna kemur einnig til þetta sem ég var aö segja áöan aö unglingar hér eru i nánum tengsl- um viöatvinnuvegina, vinna meö þeim eldri yfir sumariö, og þá hygg ég aö ýmis misskilningur semsumsstaöarviröist vera milli unglinga og fulloröinna, eyöist. Vissulega kemur ákveöin greining fram hér sem annars- staöar á milli unglinga og full- oiöinna, annaö væri ekki eölilegt. Mest kemur þessi greining fram i skemmtanalifinu. iþróttalif hér, er þaö f jölbreytt? — Hér er mikið Iþróttalif og starf, en kannski má segja aö þaö mætti vera fjölbreyttara. Segja má að þaö sé knattspyrna og aftur knattspyrna sem ræöur rikjum í iþróttalifinu. Aöeins er þetta þó aö breytast. Til aö mynda er vaxandi áhugi fyrir skiöaiþróttinni og ýmsar inni- iþróttir eiga vaxandi vinsældum aö fagna yfir veturinn. En þaö vantar ekki aö iþróttastarfiö er liflegt og gott hér I Neskaupstaö. EINS OG DAGUR OG NÓTT Lilja Viglundsdóttir Rætt við Lilju V íglundsdóttur sem búið hefur í Neskaupstað í 50 ár Mikiö fjölmenni kom og þáöi kaffiveitingar bæjarstjórnar Nes- kaupstaöar á 50 ára afmæii kaup- staöarins þann 8. janúar si. Meöal gesta var fulloröin kona, Lilja Vfglundsdóttir, sem búiö hefur i Neskaupstaö i 51 ár, fluttist þangaö áriö áöur en bærinn fékk kaupstaöarréttindi. Hún man þvi timana tvenna og viö báöum hana aö segja okkur svolitiö frá þessu timabili eins og þaö snýr gagn- vart henni. — Ef viö gerum samanburö á hlutunum i dag og á þeim tima er ég flutti hingaö, þá er munurinn eins og dagur og nótt. A fyrstu árum minum hér I Neskaupstaö var óskapleg fátækt hér, atvinna stopul og sannkallaðir erfiöleika- timar fyrir almenning. Hægt og rólega hefur þetta breyst, en mest hefur þó breytingin oröiö nú allra slöustu ár, næg atvinna handa öll- um, gott Ibúöarhúsnæöi og vel- megun á flestum sviöum hér I Neskaupstaö. Hvaöan komst þú til Neskaup- staöar? — Ég kom úr Mjóafiröi, er fædd þar og uppalin. Þar kynntist ég manninum mlnum Halldóri Jó- hannssyni, sem nú er látinn og viö bjuggum þar okkar fyrstu bú- skaparár, bjuggum á Krossi i Mjóafiröi I 6 ár. Bærinn stendur afskekkt og viö hættum búskap 1928 og fluttumst þá til Noröfjarö- ar. Maöurinn minn var dverghag- ur I höndunum og tók sér húsa- smiðar fyrir hendur þegar til Neskaupstaöar kom og vann viö þaö eins og heilsan leyföi upp frá þvi. Auövitaö var þaö svo á fyrstu árunum okkar hér aö hann vann viö hvaö sem til féll; þannig var þaö meö alla. Ég var til aö mynda i fiskvinnu á þeim árum, bæöi i vaski og ööru. Eins vann ég viö aö beita bjóö, stokka upp og beita og fékk 65 aura fyrir bjóðið. Þaö var algengt á þessum árum aö fólk I Neskaupstaö heföi skepnur, kýr og kindur til aö létta undir viö heimiliö, þaö geröum viö lika. Viö vorum átta manns i heimili og þá vann maöur i fiski á daginn, sá um skepnurnar á kvöldin og sinnti heimilinu á nótt- unni. Þetta þætti sjálfsagt strembiö i dag, en svona var þetta þá og þótti sjálfsagt. Auövitaö var þetta þrældómur, ómannúölegur þrældómur, en allir gripu þá vinnu sem var aö fá, enda veitti ekki af og oft komu atvinnuleysis- kaflar hér á þessum árum. Ég man aö þaö voru þónokkuö marg- ir sem uröu aö segja sig á bæinn á þessum árum til aö komast af. Og þaö geröi enginn aö gamni sinu, enda voru þaö áreiöanlega þyngstu spor, sem nokkur maö- ur gekk, þegar hann þurfti aö segja sig til sveitar. Hvenær fór ástandiö fyrst aö breytast til batnaöar? — Astandiö var likt þvl sem ég var aö lýsa öll kreppuárin og þaö var ekki fyrr en á striðsárunum aö breyting varð á og siöan hefur sú þróun oröiö, sem viö þekkjum öll I dag. Ég get nefnt svona sem dæmi hvaö fólk sætti sig viö á árunum áöur, aö viö byggöum okkur hús hér I Neskaupstaö, sem viö nefndum Heiöarbýli. Þetta var 38 fermetra hús og þar bjuggum viö 8 manns. Viö hjónin meö fjögur börn okkar og tvö gamalmenni sem viö sáum fyrir. Sjálfsagt þætti þröngt setinn bekkurinn 1 dag ef byggju 8 manns i 38 fermetra húsnæöi. En sem betur fer hefur þetta allt breyst. Datt ykkur aldrei I hug aö flytja frá Neskaupstaö? — Nei, slikt heföi aldrei hvarfl- aö aö Halldóri, og okkur likaöi alltaf vel hér eftir aö viö losnuö- um úr þeirri miklu einangrun, sem var i Mjóafiröinum. Enda fluttist fólk þaöan unnvörpum. Þegar viö bjuggum þar bjó um 300 manns i Mjóafiröi, en I dag munu búa þar um 30 manns. Nú veit ég ekki hvaö ég geri, kannski flyt ég suöur, ég er orðin ein hér og kannski flyt ég til Reykjavikur eins og svo margir hafa gert á liönum árum, hver veit? Myndir og texti S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.