Þjóðviljinn - 13.01.1979, Qupperneq 13
Laugardagur 13. janúar 1979. ÞJOÐVILJINN — SIÐA 13
Verður ísland með?
Kvennalandslið?
1 ár veröur haldiö Evrópumót
landsliöa. Keppt veröur i Sviss,
einhvern ti'mann meö sumri.
Þvi miöur er þátturinn búinn aö
gleyma flestu i sambandi viö
mót þetta, enda litiö um sam-
starf viö æöstu máttarvöld
(æösta).
Ekki liggur ljóst fyrir er þetta
er skrifaö, hvort Island veröur
meö i keppni þessarri i opna
flokknum. Enda viröist væn-
legra til árangurs aö senda liö I
kvennaflokki til móts þessa,
miöaö viö frammistööu liöanna
i Norðurlandamótinu i sumar
hér heima.
Ekki veit þátturinn annaö en
hugur sé I kvenfólkinu, og lftiö
standi i veginum fyrir þátttöku
okkar i kvennaflokki i Evrópu-
mótinu i Sviss i ár. Til fjár-
mögnunar fararinnar ætti
Bridgefélag kvenna aö vera til-
búiö til aö hlaupa undir bagga
og rétta hjálparhönd. Margt
smátt gerir eitt stórt.
Frá Reykjavíkur-
sambandinu
Undanrás fyrir íslandsmót i
sveitakeppri, og jafnframt
Reykjavikurmót I Bridge 1979,
hefst 27. janúar nk. Spilaö verö-
ur i' Hreyfils-húsinu viö
Grensásveg. Skráning er þegar
hafin i félögunum,eneftirtaldir
erufulltrúar i stj deildarinnar:
Ólafur Lárusson BR, Guörún
Bergsdóttir BK, Þorsteinn
Kristjánsson TBK, Guölaugur
Karlsson BDB og Sigurjón
Tryggvason BB.
Þátttaka er öllum frjáls.
Keppnisstjórn er i höndum
Guömundar Kr. Sigurössonar.
Liklegir spiladagar I undan-
rás eru: 27. jan. (laugardagur)
28. janúar (sunnudagur) 3.
febrúar (laugardagur) 4.
febrúar (sunnudagur) og siðan
24. febr. (laugardagur) og 25.
febr. (sunnudagur)
Fyrirkomulag keppninnar
ræöst nokkuö af þátttöku, en
ljóst er, aö geröar veröa nokkr-
ar breytingar á fyrirkomulagi,
þar sem endurvakning „rama”
eða sýningartöflu veröur reynd.
Stefnt er þá aö uppgjöri fárra
sveita (likl. 4 sveita) er keppa
um titilinn.
Reykjavik á rétt á 11 — 12
sveitum til Islandsmóts, sem er
svipað og undanfarin ár.
Ástæöa er til aö hvetja
keppendur til aö vera meö i móti
þessu, þvi væntanlega býöur
fyrirkomulag upp á aukna
spennu fyrir alla þá sem hafa
slðustu ár vermt „næsta” sætiö
fyrir neöan...
Keppt er um silfurstig, I
undanrás og úrslitum.
Nánar siðar.
Tvímenningurinn
í Borgarnesi
Ákveöiö hefur veriö aö halda
stórt tvimenningsmót I Borgar-
nesi laugardaginn 20. janúar
nk.
Keppni hefst eftir hádegi,
keppt verður eftir
Mitchell-fyrirkomulagi. Glæsi-
leg verölaun eru i boöi, eöa
hlaöborö af vinningum, sem er
nýjung hér á landi, en tiökast
mikiö i nágrannalöndum okkar.
Þaö eru þvi siöustu forvöö
fyrir væntanlega þátttakendur
aö láta skrá sig i keppni þessa.
A móti skráningu taka ólafur
Lárusson I sima 4 1507 og for-
maöur B.B., Eyjólfur Magnús-
son.
011 besta hugsanleg aöstaða
er fy rir hendi i Borgarnesi fyrir
væntanlega þátttakendur.
Hvernig væri að skella sér?
Einmenningsmeistari
Ásanna 1979
Sl. mánudag var keppt i ein-
menning hjá Ásunum. úrslit
uröu þau, aö Einar Guöjohnsen,
sem er viö nám I USA, sigraöi
nokkuö örugglega. Einar dvelst
nú heima. Ekki slæm byrjun á
nýárinu. Annars varö röö efetu
manna þessi:
1. Einar Guöjohnsen 111 st.
2. Jón Baldursson 104 st.
3. Jóhann Stefánss. 104 st.
4. Steingriínur Jónass. 104 st.
5. SigurðurSigurjónss. 104 st.
6. Sverrir Armannsson 103 st.
7. Ragnar Björnsson 102 st.
8. Sigmundur Stefánss. 101 st.
A mánudaginn kemur hefst
svo aöalsveitakeppni Asanna
1979. Skráning er þegar hafin.
Minnt er á, aö spilamennska
hefst kl. 19.30. Spilaö I Félags-
heimilinu.
Félagiö veitir aðstoö viö
myndun para og sveita.
Frá BR
Sl. miövikudag hófst ,,Mon-
rad”-sveitakeppni hjá BR. Eftir
2 umferðir er sveit Hjalta
Eliassonar meö 40 stig.i eöa
,,fullt”hús. Röö sveita er þessi:
1. HjaltiElfasson 40 st..
2. Þórarinn Sigþórsson 31 st.
3. Skafti Jónsson 25 st.
4. Vigfús Pálsson 25 st.
5. SteinbergRikharöss. 24 st.
6. Sveit óöals 23 st.
A miövikudaginn kemur,
spila saman m.a. sveitir Hjalta
og Þórarins.
Um þessa helgi eru 2 sveitir
frá BR i keppnisferð i Borgar-
nesi (ef veöur leyfir). Þaö eru
einmitt sveitir Hjalta og Þórar-
ins. Er þaö vel, aö slik sam-
skipti séu enn I heiöri höfö og
mætti vera meira af sliku.
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar
Næst-siðasta umferö i sveita-
keppni BH var spiluð mánu-
daginn 8. jan., og voru úrslit
sum hver óvænt. Keppnin nú
hefur aldrei verið jafnari og tvi-
sýnni en á þessu keppnistima-
bili. Úrslitin á mánudaginn:
sv. Alberts vann sv. Aöalsteins:
11-9 sv. Kristófers vann sv.
Sævars Jóns G.
sv. Kristófers vann sv. Sævars
16- 4
sv. Björns vann sv. Jóns G. 11-9
sv. Halldórs vann sv. Þórarins
17- 3
Staða efstu sveita fyrir siö-
ustu umferö er þessi:
sv. Alberts Þorsteinssonar 84 st.
Sv. Sævars Magnússonar 74 st.
sv. Kristófers Magnússonar 73
st.
sv. Björns Eysteinssonar 67 st.
sv. Þórarins Sófussonar 55 st.
Einsog sjá má, geta 4 efetu
sveitirnar unniö keppnina, þó
sveit Alberts sé sigurstrangleg-
ust. Má telja fullvi'st, að glimt
veröi af hörku i siðustu umferö-
inni. Ihenni etja saman hestum
sinum (spilurum sinum) sveitir
Björns og Halldórs, Sævars og
Þórarins, sveitir Alberts og
Jóns G., og sveitir Kristófers og
Aöalsteins.
Næsta keppni félagsins er
Butler-tvlmenningur og hefst
hann 22. janúar. Spilafólk er
hvatt til þess aö skrá sig til
keppni hiö fyrsta. Keppni mun
taka yfir 3 kvöld.
Frá Barðstrendinga-
félaginu i Reykjavík
Nú stendur yfir sveitakeppni
hjá félaginu. Úrslit I 3. umferö:
Sv. Ragnars —sv.Krist-
jáns: 19-1
sv. Gunnlaugs -Sigurjóns: 17-3
sv. Viöars-Siguröar 1: 16-4
sv. Siguröar K -Bergþóru: 8-12
sv. Baldurs - Helga: 15-5
sv.Kristins-Vikars: 17-3
Staöa efstu sveita er þá þessi:
1. sv.RagnarsÞorsteinss. 53 st.
2. sv. Baldurs Guömundss. 40 st.
3. sv.GunnlaugsÞorsteinss. 39
st.
4. sv. Siguröar Kristjánss. 37 st.
5. Sv. sv. Helga Einarssonar 30
st.
6. sv.KristinsÓskarss. 29 st.
Bridgedeyfð?
Þaö er dcki að ástæöulausu,
sem þessarri spurningu er
varpaö fram hér og nú. Staö-
reyndin er sú, aö Bridge hefur
átt viö mikinn vanda að striöa
nú undanfariö.
Vandinn er ekki fólgin i 1 tækni-
atriöum néskortiá hug.myndum
eða mannskap. Þveri; á móti,
vandinn er félagslegur. Sem
félagsleg heild er Bridge nán-
ast ekkert i dag. Litið er um
samgang milli félaga, lit.ö um
félagslega þjónustu af hálfu
Bridgesambandsins, og eflaust
margt fleira, sem þátturinn
nennirekkiaö tiundahér, enda
allt verið sagt fyrr.
Þó er ljós punktur I þessu öllu
saman, sem vekur veröskuld-
aöa athygli. Þar á ég viö sveit
óöals, alias Jón Hjaltason stór-
bónda. Virðist þættinum sem
visir aö nýrri þróun I islenskum
Bridge sé orðinn meira en smá-
gróður i trjáviönum; þetta er
oröiö aö heilum skóg.
Nú siöast mætti sveitin i
keppnihjá BR, einkennisklædd i
samkvæmisföt, merkt Óðali.
Ekkert minna, takk fyrir.
Skiljanlega vakti þetta mikla
athygli, enda ekki á hverjum
degi sem fjórir eöa sex sam-
kvæmisklæddir menn setja sig
niöur og hefja spilaleik. Von-
andiveröur áframhaldandi þró-
un hjá óðalsbóndanum i þessa
átt. Meö timanum ætti aö vera
mögulegt aö mynda útibú I hin-
um ýmsu félögum á höfuö-
borgarsvæöinu, nú eöa fyrir
noröan, þar sem óðalsbændur
geta att keppni viö þá noröan-
bændur.
Þátturinn óskar Jóni Hjalta-
syni til hamingju meö þetta
framtak sitt. Vonandi fylgir
hann þessu eftir meö einhverj-
um þeim rábum sem stórbænd
ur einir hafaefniá (fyrirutaná-
huga, getu og tima).
Hvernig værinú að ná i Shar-
iff ogeinhverja af fylginautum
hans?
Þaö þarf ekki aö segja mér,
að slikt hafi ekki hvarflaö aö
þeim óöalsbændum.
bridge
Umsjón:
Ólafur Lárusson
Nýtt timbur til sölu
og járn. Hagstæð kjör ef samið er strax.
Upplýsingar i sima 17825 eftir kl. 21.
Auglýsinga
síminn er
81333
DJÚOVIUINN
Tilboð óskast i innanhússfrágang
á starfsmannahúsi Bændaskólans á
Hvanneyri. Verklok 15. desember 1979.
tJtboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Rvk. gegn 15.000.- kr.
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á
sama stað þriðjudaginn 13. febr. 1979, kl.
11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
TILKYNNING
til þeirra sem hafa barnaskóla- eða
fullnaðarpróf og vilja bæta við sig i
almennu námi.
1 ráði er að stofna deild þar sem kennd
verða islenska, danska, reikningur og
enska.
Námið mun hefjast þann 22. janúar og
ljúka i lok april. Kennslukostnaður alls:
39.000,- krónur, eða 13.000.- krónur á mán-
uði.
Þeir sem hafa áhuga á sliku námi eru
beðnir að hafa samband við skólastjóra i
sima 14862 eða koma til viðtals i Miðbæj-
arskóla, Frikirkjuvegi 1, kl. 16 til 19 næstu
daga.
NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR.
Auglýsing um
fasteignagjöld
Lokið er álagningu fasteignagjalda i
Reykjavik 1979 og hafa gjaldseðlar verið
sendir út.
Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janú-
ar, 15. marz og 15. april.
Gjöldin eru innheimt i Gjaldheimtunni i
Reykjavik, en fasteignagjaldadeild
Reykjavikur, Skúlatúni 2, II. hæð, veitir
upplýsingar um álagningu gjaldanna.
Athygli er vakin á þvi, að Framtalsnefnd
Reykjavikur mun tilkynna elli- og örorku-
lifeyrisþegum, sem fá lækkun eða niður-
fellingu fasteignaskatta skv. heimild i 3.
mgr. 5. gr. laga nr. 8/1972 um tekjustofna
sveitarfélaga, en jafnframt geta lifeyris-
þegar sent umsóknir til borgarráðs.
Borgarstjórinn i Reykjavik,
12. janúar 1979
SPRUNGU
VIÐGERÐIR
með álkvoðu. 10 ára ábyrgð á efni og
vinnu. Einnig pússning, flisalagning, við-
gerðir. Upplýsingar i sima 24954.