Þjóðviljinn - 13.01.1979, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. janiiar 1979.
ÉUmsJón:
Guðrún Ögmundsdóttir
I Hallgerður Gísladóttir
I Kristín Ásgeirsdóttir
I Kristín Jónsdóttir
É Sólrún Gísladóttir
Hvad kosta getnaðarvamir?
Hvernig er hœgt að nálgast þœr?
Á síðastliðnu ári urðu nokkrar umræður um f ækkun að kanna hvað allar þessar varnir kosta og hvað hér er á
fæðinga hérlendis. Orsökin er aukning fóstureyðinga og boðstólum.
notkun getnaðarvarna. Jafnréttissíðan fór á stúfana til
Make Love — notBabies (Elskisten getiö ekki börn)
Plöntur og
sítrónur
Fátt hefur haft eins afgerandi
áhrif á lif kvenna á þessari öld
og aukin þekking á starfsemi
llkamans og tilkoma öruggra
getnaðarvarna sem gera konum
kleift aö ráöa sjálfar hvort þær
ala börn eöur ei. Aöur fyrr voru
konur dæmdar til aö ganga meö
hvert barnið á fætur ööru og ólu
margar 18—20 börn. Sjaldnast
var þess aö vænta aö þau kæm-
ust öll til manns, hungur og
sjúkdómar herjuöu, enda
barnadauöinn mikill. Ekki er
okkur kunnugt um aö neinar
getnaöarvarnir hafi þekkst hér
á landi fyrr á öldum, en heim-
ildir höfum viöfrá Noregi um aö
þar hafi fólk notað plöntuhluta
og hálfar sitrónur sem hettur,
en aö öllum likindum var örygg-
iö ekki mikiö. Eins voru búnir til
smokkar úr görnum dýra llkt og
viö bjúgnagerö.
Gömul kona sagöi okkur aö
þegar hún var aö alast upp um
aldamótin hafi ungar stúlkur
vitaö þaö eitt um kynferöismál-
in aö færu þær á eintal viö karl-
mann, fylgdi barn i kjölfariö.
Þvi varö aö foröast allt slikt,
þar til komiö var i hjónasæng-
ina.
Nú er öldin önnur, viö státum
af lægsta barnadauöa i heimi og
fæöingum fer fækkandi, en enn-
þá er barnadauði mikill I heim-
inum og mannfjölgunin meiri en
nokkru sinni.
Hitt er verra aö kynllfsfræðsl-
an er öll I molum hér á landi,
jafnt I skólunum sem á heimil-
unum. Okkur er tjáö aö flestir
kennarar hlaupi á hundavaöi
yfir kaflann um kynllfiö I heilsu-
fræöinni, þó aö hann segi reynd-
ar harla fátt og enn hefur ekki
veriö gefiö út handhægt efni fyr-
ir kennara, þrátt fyrir ný grunn-
skólalög og lög um kynlifs-
fræðslu.
Hvert getur fólk þá leitaö tii
aö fá fræöslu? Hvaöa getnaðar-
varnir eru á markaönum? Hvað
kosta þær og hvernig er hægt aö
nálgast þær? Okkur lék forvitni
á aö fá svör viö þessum spurn-
ingum svo og ýmsu ööru sem
drepið veröur á hér á eftir.
Kynfræðsludeild
Að sjálfsögöu getur hver og
einn ieitaö til sins heimilislækn-
is um fræöslu og ráöleggingar
og sjálfsagt notfæra margir sér
þaö. Þar fyrir utan er aöeins um
aö ræöa kynfræösludeildina á
Heilsu verndarstööinni i
Reykjavík. Þar er hægt
aö fá bæklinga um getnaöar-
varnir og viötal viö hjúkrunar-
fræöinga og lækna eftir þvi
hvers eðlis vandamálin eru. Þar
er einnig hægt aö fá getnaðar-
varnir og þungunarpróf. öll
fræösla er ókeypis fyrir Reyk-
vikinga en utanbæjarmenn
veröa aö greiöa gjald. Hins veg-
ar kostar þungunarpróf 2500 kr.
eöa sama og á spltölunum.
Hjúkrunarfræöingur sem viö
hittum þar á deildinni sagöi
okkur aö mikiö væri leitaö til
þeirra þann tima sem opiö er á
mánudögum milli 5 og 6.30. Þaö
eru einkum konur sem leita
ráöa, karlmenn eru heldur fá-
séöir, kom t.d. aöeins einn s.l.
mánudag, en 27 konur. Hún
sagöi aö sifellt væri meira um
aö fólk kæmi til aö ræöa sin kyn-
llfsvandamál frekar en aö fá
fræöslu.
Sagöi hún það reynslu þeirra
aö vanþekking kvenna á starf-
semi llkamans væri mikil,
margar þekktu ekki tiöahring-
inn, eöa hvernig legiö, eggja-
stokkarnir og eggjaleiöararnir
vinna og eru staðsett I líkaman-
um. Þetta á sér auðvitaö þær or-
sakir aö lengi vel hafa allar um-
ræöur um þetta veriö nánast
tabú og sáralitið er til á islensku
sem veitir haldgóöar upplýsing-
ar. Þó má til dæmis benda á
kennslubók I liffræöi sem kennd
er I menntaskólum eftir P.B.
Wiesz (II hefti, Iöunn) þar sem
nokkuö góöir kaflar eru um kyn-
færi karla og kvenna. Einnig
getum viö glatt lesendur meö
þeim fréttum aö nú er unniö
kappsamlegaaöþýöinguog staö-
færslu dönsku bókarinnar
„Kvinde kend din krop” og er
ekki aö efa aö mikill fengur
veröur aö henni.
Hvað er á
boðstólum?
Viö brugöum okkur I apótek
til aö kynna okkur hvaö væri þar
á boöstólum. I öllum lyfjaversl-
unum bæjarins er nú mikiö úr-
val af smokkum I öllum regn-
bogans litum. Þeim er komiö
fyrir á áberandi stööum, I statlf-
um eöa I afgreiðsluboröinu,
þannig aö ef einhver er feiminn
og þorir ekki aö nefna hlutinn
slnu rétta nafni, er bara hægt aö
benda. Til gamans má geta þess
aö smokkarnir bera fögur og
virðuleg heiti eins og „Black
Knight” (svarti riddarinn),
„Black Shadow” (svarti skugg-
inn, „Black Cat” (svarti köttur-
inn) og „Fiesta” (hátiöin).
Enn sem komiö er fást ekki
aörar getnaöarvarnir fyrir
karlmenn, en nýlega bárust
fréttir frá Kina um aö þar væri
komin á markaö pilla fyrir
karla sem ekki heföi neinar
aukaverkanir. Nú eru Banda-
rlkjamenn aö kanna máliö, en
þaö fylgdi fréttinni aö karlarnir
væru heldur tregir til ab reyna
pilluna.
Verö á smokkum er þetta frá
205 kr. (3 stk.) upp I 280 kr. (3
stk.). Einnig fást pakkar með 10
stk. á 2795 kr. Smokkar eru tald-
ir vera um 92%—94% öruggir.
Ef viö hugsum okkur karlmann
sem aö staöaldri notar smokka
og hefur samfarir þrisvar I
viku, kostar þaö hann pakka á
viku eöa rúmlega 14000 krónur á
ári á núverandi verölagi. Þaö er
nokkuð vel sloppiö eða hvaö?
Konan sér
um varnimar
Venjulegast kemur þaö I hlut
konunnar að sjá um varnirnar.
Fjölbreytnin er mun meiri á
getnaðarvörnum fyrir konur.
Fyrst nefnum viö P—pilluna.
Hún fæst gegn resepti. 1 bæk-
lingi landlæknisembættisins er
taliö aö nálægt 10.000 konur
neyti pillunnar(1978)hér á landi.
Tegundin Microgyn sem er
einna algengust kostar 1120 kr.
hver mánaðarskammtur.
Þriggja mánaöa skammtur
kostar þá 3360 kr. + 250 kr. til
læknis + 100 kr. til apóteksins.
A einu ári verður þaö 14.480 kr.
Miklar umræöur hafa fariö
fram um aukaverkanir sem
pillunni fylgja og eru menn ekki
á eitt sáttir.enda fátt veriö sann-
aö ennþá svo óyggjandi sé; þó
er taliö aö nokkur dæmi séu þess
aö konur hafi fengið blóötappa
eftir notkun pillunnar. Konur I
Danmörku hafa staöiö I mála-
ferlum við framleiöendur pill-
unnar vegna þessa, en hefur
gengiö illa aö þoka málinu
áfram. Hins vegar er pillan
langsamlega öruggust allra
getnaöarvarna, um 99%.
Þá er næst aö nefna lykkjuna.
Hún er talin vera 97%— 98%
örugg. Læknir veröur aö koma
henni fyrir og kostar sú aögerö
9000 kr. hjá sérfræðingi en 5000
kr. á kynfræösludeildinni. Meö-
al kvenna fer ýmsum sögum af
lykkjunni og lykkjubörnum;
sumar fá miklar blæöingar og
slæma verki, en aö sögn lækna
stafar þaö oftast vegna þess að
lykkjan passar ekki eöa þá aö
legið er of þröngt eöa skakkt.
Hettan fæst I apótekum og
kostar 2165 kr., með henni er
notaö sæðisdrepandi krem á
814—1480 kr. Læknir verður aö
mæla með hettunni og finna rétt
númer. Hettan hefur þann ókost
(finnst sumum) aö henni veröur
aö koma fyrir á undan hverjum
samförum. Hún er talin vera
um 90% örugg. Þetta férnt sem
nú hefur verið nefnt er þaö al-
gengasta sem er á markaðnum,
en þar fyrir utan fást stautar,
froöa og spray sem eru sæðis-
drepandi og eru talin um 80%
örugg.
Iðnaðurinn
blómstrar
En þaö er önnur hliö á þessu
máli sem snýr aö konum. Þaö
erublæðingarnarsemá hverjum
mánuöi kosta sitt. Viö könnuö-
um verð á dömubindum og
töppum I þessu sama apóteki.
Tappar kosta frá 225—255 kr. (10
stk.) og dömubindi 260—490 kr.
(10 stk.). Viö reiknuöum út aö
þaö kostar konu sem notar
u.þ.b. pakka á mánuöi
3120—5880 kr. aö hafa blæðingar
á ári. Og ef viö áætlum aö um
þaö bil 50.000 konur hafi blæö-
ingar á tslandi þá gerir þaö
156—294 miljónir á ári. Þarna er
um stóran og öruggan markaö
ræða, enda hafa auglýsendur
notfært sér þaö svo sem sjá má
á auglýsingaskruminu I dönsk-
um kvennablööum. Þar er lögö
áhersla á aö gæði vörunnar séu
helst þau að þaö sjáist ekki aö
konan sé á túr. Þú getur farið 1
sund og hlaupiö um segir I aug-
lýsingunum. Konur eiga alltaf
aö fela þennan þátt llkamsstarf-
seminnar, enda búum viö enn aö
þeirri fornu hugmyndafræði
Gyöinga aö konan sé óhrein
meöan á blæðingum stendur.
Þess er hins vegar aldrei getiö
aö þessir lausnarar kon-
unnar, tapparnir, þurrka
upp slimhúðina, blóöiö er lengur
innan likamans og þar getur
myndast gróörastia fyrir bakte-
riur. En hver er ekki máttur
auglýsinganna þegar gróöinn
er annars vegar?
Blaðberabíó
Varist vætuna,
Aðalhlutverk Jackie Gleason.
Sýnd kl. 1. eh. i Hafnarbiói, laugardaginn
13. jan.
Þjóðviljinn, Siðumúla 6. simi 81333.