Þjóðviljinn - 13.01.1979, Qupperneq 7
Laugardagur 13. janúar 1979. — ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
En hafa ber í huga að byltingar krefjast fórna
og sá kraftur sem braust út í menningarbylt-
ingunni hefur eflaust sópað burt einhverjum
fyrir litlar eða jafnvel engar sakir
Asta Kristjánsdóttir
og Tryggvi Harðarson
Réttarfar í Kína
Þaö sem ýtti viö okkur aö
skrifa Þjóöviljanum „málgagni
sósialisma, verkalýöshreyf-
ingar og þjóöfrelsis” var
„klippt og skoriö” miöv.d. 29.
nóv. 1978. Þaö er litillega fjallaö
um mannréttindi og réttarfar i
Kina, klippt og skoriö af áb.
Tvöfeldni allsstaðar
Vitnar áb. þar m.a. í skýrslu
Amnesty International um Kina
og birtir aftökutilkynningu frá
Hæstarétti alþýöunnar i Guang-
dongsýslu. Er ekkert nema gott
um þaö aö segja og vissulega
fréttnæmt. Hitt er verra aö áb.
blandar saman upplýsingum
Amnesty og vægast sagt afar
óáreiöanlegum heimildum frá
APN i grein sinni. Vart veröur
þaö Amnesty til framdráttar.
Eigi svo aö skilja aö viö teljum
ekki sjálfsagt aö vitna i hvaöa
heimildir sem vera ber, en viö
héldum þó aö Þjóöviljinn væri
ekki eitt af svokölluöum
„frjálsu, óháöu dagblööum” og
bæri þvi aö stunda gagnrýna
blaöamennsku i þágu þeirra er
hann kennir sig viö. Ekki er
langt siöan Þjóöviljinn fetti
fingur út i óábyrga frétta-
mennsku DB, þar sem DB birtir
gagnrýnislaust frétt frá vesæl-
um landa, hvar hann hælir sér
af því aö senda byssukúlur I bak
bræöra vorra i S-Afriku.
Rannsóknarblaða-
mennska
Ab. vitnar i APN þar sem
fram kemur hörö gagnrýni á
fréttamenn Vesturlanda I Kina.
Þeir eru sagöir loka augunum
fyrir þvi sem er aö gerast 1
Kina. Ab. tekur undir þaö.
Nokkuö hörö gagnrýni á starfs-
félaga hans sem áb. hefur þó
byggt á i mörgum greina sinna.
Þó höldum viö aö blöö eins og
t.d. Le Monde geri meiri kröfur
um ábyggilega fréttamennsku
en annars ágætur Þjóöviljinn.
Nú á dögum rannsóknarblaöa-
mennsku eru fréttamenn á
Vesturlöndum fljótir aö fjúka,
ef þeir standa sig ekki i sam-
keppninni. Enda er þaö svo aö
vestrænir fjölmiölar hafa nær
undantekningalaust veriö á
undan starfsbræörum sinum I
Sovétrikjunum meö fréttir frá
Kina. Nóg um þaö.
Dauðarefsing í Kína
Dauöarefsing er enn viö lýöi I
Kina. Henni fylgir sú skilyrðis-
lausa krafa um aö hún sé opin-
beruö fyrir almenningi. Þaö er
gertmeöþviaö upp eru fest „bú
gá” (þ.e. veggspjöld sem til-
kynna dauöadóm) og er þar til-
kynntur glæpur (glæpir) og
fyrirhuguö refsing hins dæmda.
Þá er og ekið meö dæmda um
götur viökomandi borgar. Fer
þaö yfirleitt rólega fram. Oft
gengur þó fólk á eftir þeim
dauöadæmdu þar sem ekiö er
með þá um strætin og sýnir meö
þvi þögult samþykki sitt á fyrir-
hugaöri refsingu. Eru þaö yfir-
leitt aöstandendur og vinir
fórnarlambs viðkomandi
glæpamanns. Dauöadómur
þýöir þó ekki alltaf dauöarefs-
ingu
A „bú gáum” er strikað yfir
nafn dæmda meö rauöum krossi
þar sem fyrirhugað er aö fylgja
dauöadómi. Sé þaö ekki breytist
dauöadómur i ævilanga
fangelsisvist. Dauöarefsing er
talin ill nauðsyn i Kina og reynt
að forðast hana. Dauðarefsingu
er yfirleitt ekki beitt nema um
morðingja eöa fööurlands-
svikara sé aö ræöa. Dauöa-
dæmdum er oft gefinn kostur á
að betrumbæta sig og staöa
þeirra endurskoöuð með tilliti
til þess. Þaö gefur auga leiö að i
900 miljón manna samfélagi
finnast óforbetranlegir glæpa-
menn þó deila megi um rétt-
mæti dauðarefsingar.
„Mádún"
Kinverska oröiö „má” þýðir
spjót en „dún” skjöldur. Standi
þau saman þýöa þau mótsetn-
ing. Gömul kinversk saga segir
frá þvf hvar vopnabraskari
nokkur stendur á götuhorni og
hrópar ýmist: „Spjót til sölu
sem enginn skjöldur fær staö-
ist” eöa „Skildir til sölu sem
ekkert spjót fær klofiö”. Eitt-
hvaö þótti vegfarendum at-
hugavert við hróp vopnasalans
og upp frá þvi þýddi „spjót-
skjöldur” mótsetning.
Eftirfarandi klausa út tilvitn-
um áb. I fréttabréf APN minnir
óneitanlega á söguna um vopna-
braskarann. „Skrár meö nöfn-
um hundraöa manna, er teknir
hafa veriö af lifi, birtast enn i
kinverskum borgum. Og likt og
áöur er ekiö meö þá, sem
dæmdir hafa veriö til dauöa,
um göturnar almenningi til
sýnis. Eaunverulegri tölu
fórnarlamba þessa fjöldaof-
beldis er leynt fyrir almenn-
ingi”. Hálf kjánalegt að halda
þvi fram i sömu andrá aö allar
aftökur séu tilkynntar opinber-
lega og samt sé verið aö fela
tölu dauðadæmdra.
Geðbilun
Sovéska ráöamenn viröist
skorta nokkuö dómgreind til aö
dæma um hverjum beri vist á
geðveikrahælum. Ab. lætur sig
þó ekki muna um aö vitna at-
hugasemdarlaust i geöveikis-
legar lygar APN um þjóöernis-
minnihluta Kina. Dæmi: „Heilu
þorpin standa mannauö eftir i
kjölfar reglulegra „hreinsunar-
aögeröa” sérstakra dauöa-
sveita”. Og áb. lætur sér nægja
aö segja Sovétmenn ekki barn-
anna besta sjálfa. Þetta eru ein-
hverjar hinar makalausustu
lygar um Kina hin slöari ár.
Ekki furöa þótt APN harmi ab
vestrænir f jölmiðlar hafi látib af
mesta lygaáróörinum um Kina.
Enn segir i fréttabréfi APN:
„Menning þeirra er upprætt og
þeim sjálfum útrýmt”. Er þaö
ekki I fyrsta skipti sem sú lyga-
þvæla heyrist. En það vill svo nú
til aö við höfum kynnst hér i
Peking-háskóla nokkrum Tibet-
búum og annað okkar á
. bekkjarfélaga frá Sin Kiang.
Attu þeir þaö allir sameiginlegt
aö þegar þeir komu hér til
háskólanáms, aö þá kunnu þeir
litt eöa ekkert i kinversku. A
sama tima er þvi haldið fram af
sumum, aö verið sé aö útrýma
móöurmáli þeirra. A hvaöa
máli skyldu þeir hafa lært til
háskólanáms?
Fyrir þá, sem ekki vita skal
það tekiö fram, aö stærstu
þjóðernisminnihlutahóparnir
innan kinverska Alþýöulýð-
veldisins hafa sjálfstjórnar-
svæöi. T.d. Tibetar, Innri-
Mongólar, Sin Kiangbúar og
Ning Sja múslimir. Njóta þessi
sjálfstjórnarsvæöi ýmissa sér-
réttinda varöandi trúarbrögö
efnahagsmál og þjóðlegar
venjur. Einnig kemur fram i
stjórnarskrá Kina aö minni-
hlutahópar hafi fullan rétt til aö
þróa sina eigin tungu, jafnt rit-
mál sem talmál.
Kremlherrar skyldu lita sér
nær. Okkur skilst, aö þeir hafi
þurrkaö út úr stjórnarskrá sinni
aö innan Sovétrikjanna fyrir-
finnist þjóöernisminnihluta-
hópar.
Skýrsla Amnesty
Litum nú aöeins á upplýs-
ingar Amnesty, sem eiga ekkert
skylt viö rögburö APN. Þar er
sagt aö „löggjöf sú sem geri ráö
fyrir fangelsum manna af póli-
tiskum orsökum sé mjög óskýr
og gefi möguleika á vlðtækum
geöþóttahandtökum”. Utan
Kina er lltið vitaö um klnverskt
réttarfar þvi miöur og þvi
margt óskýrt og gefur mögu-
leika til misskilnings. Þá er og
gagnrýnt aö i kinversku
stjórnarskránni er gert ráð fyrir
„aö menn séu sviptir þegn-
legum rétti á grundvelli
„stéttarlegs uppruna” einum
saman”.
„Alræöi öreiganna” er
kannski ekki i tlsku á siöum
Þjóöviljans lengur, en ööru máli
gegnir hér i Kina. Jarðeigna-
aöall og stórkapltalistar sem
boriö höfðu ábyrgð á kúgun
miljóna manna og dauöa þeirra
I mörgum tilfellum, fengu ekki
aö setjast viö sama borö og al-
menningur aö byltingu lokinni.
Það er alveg á hreinu. Og
margir þeirra voru sendir I
sveitina til aö yrkja jöröina og
aðrir I verksmiöjur. Þaö þykir
ef til vill ómannúölegt út frá lýö-.
ræðissiðgæðisvitund Vestur-
landabúa, en annaö gildir þar
sem almenningur hefur veriö
barinn og sveltur um aldaraöir.
Og fram á miöja þessa öld var
almúginn réttdræpur af þeim
sem meira máttu sin. Þetta lifir
enn I hugum fólks og þaö er þvi
ekki tilbúið ennþá aö afnema
dauðarefsingu. En breyttar aö-
stæöur breyta manninum og
stéttir liöa undir lok.
Vel má og vera, aö fangar
sumstaöar i Kina liöi einhvern
skort. En þess ber aö gæta aö
sum héruö Kina eru æöi fátæk
ennþá og hafa þar margir litlu
aö brenna og blta þó ekki svelti.
Mistök geta alltaf oröiö I hvaöa
réttarkerfi sem er. Svo sannar-
lega hafa Kinverjar gert sin
mistök og þau sum slæm. En
hafa ber i huga aö byltingar
krefjast fórna og sá kraftur sem
braust út i menningarbylt-
ingunni hefur eflaust sópaö burt
einhverjum fyrir litlar eöa jafn-
vel engar sakir. Þaö er aö sjálf-
sögöu slæmt, en svo vill oft fara
þegar tvær sterkar stefnur
eigast viö og taka þá bara af-
stööu hvor hafi réttinn sin meg-
in. Annars eru Klnverjar til-
búnir aö viðurkenna aö margt
hafi farið úrskeiöis i sinu réttar-
kerfi. Þaö skilur meö feigum og
ófeigum.
Þaö sem mestur skiptir
Og svo viö vitnum nú i áb.
sjálfan og persónulegan: „En
þegar allt kemur til alls er þaö
einn sannieiki sem mestu
skiptir: og þaö er sannleikurinn
um sjálfa hina pólitisku fanga
eða samviskufanga og hlut-
skipti þeirra”. Tökum viö heils-
hugar undir þau orö áb. En það
verður ekki gert meö þvi aö
blanda saman nokkuö staö-
góöum upplýsingum Amnesty
og lygaáróöri APN
Asta Kristjánsdóttir
Tryggvi Haröarson.
Athugasemd um Kína
Þar sem nokkuð er liöiö slðan
Klipp þaö birtist sem íslenskir
námsmenn i Kina vitna til er
rétt aö minna á eftirfarandi.
Ivitnanir i grein frá APN voru
til færöar ekki vegna þess aö sú
fréttastofa þyki sérlega
áreiðanleg, heldur til aö minna
á ákveönar þversagnir i sovésk-
um málflutningi. Hann er al-
gjörlega bundinn þvl hvernig
vindur blæs I utanrikismálum:
þegar sambúðin viö Klna er
stirö þá eru mannréttindi þar
fótum troöin, þegar sambúöin
er góö þá er ekki á slik mál
minnst. Þetta átti öllum aö vera
ljóst.
Þaö er mikill misskilningur
að IKlippihafi veriö gagnrýndir
hart vestrænir fréttamenn i
Kina. Um þaö mál segir aöeins
þetta:
„Þaö er nokkuö til í þvl aö
vestræn blöö haga seglum eftir
pólitiskum vindum 1 mannrétt-
indamálum I rikari mæli en
menn gera sér almennt grein
fyrir. Þaö er rétt aö meöan Kln-
verjar voru taldir fjandmenn
Bandarikjanna og vinir Rússa
þá var þeim allt fundiö til for-
áttu, en eftir aö veður breyttust
hefur Klna haft mjög góöan byr
i borgaralegum fjölmiðlum”.
AB
Kampútsea:
Loftárásir á flugvelli
BANGKOK, 12/1 ( Reuter ) —
Enn er barist i Kampútseu og
munu bardagar ihilli hermanna
Pol Pots annars vcgar og Eining-
arfylkingar og Vietnama hins
vegar vera aöallega I tveimur
borgum.
Loftárásir voru geröar á flug-
völlinn viö Siem Reap en hann er
aðeins þremur km sunnan viö hiö
heilaga Angkor Wat-hof. Flug-
völlurinn I Battambang varö
einnig fyrir loftárásum, en Batt-
ambang var önnur stærsta borg
landsins fram aö 1975.
Aö sögn hermanna Pol Pots
réöust Einingarfylkingarmenn á
Battanbang frá noröri. Einnig
hafa hermenn hinna nýju vald-
hafa farið fram hjá Siem Reap i
áttina aö Sisophon sem liggur i 50
km fjarlægö frá landamærum
Tælands.
Ieng Sary varaforsætisráö-
herra úr stjórn Pol Pots er nú
kominn til Klna ásamt Yun Yat
fyrrum upplýsingaráöherra en
hún er gift Son Sen fyrrum varn-
armálaráöherra. Þau fóru frá
borginni Poipet I þyrlu til Bang-
kok, en þaöan meö áætlanaflugi
til Hong Kong þar sem þau gistu I
nótt. Feröinni var haldiö áfram I
dag og var þá ekiö I bil til Klna.
Fimm utanrlkisráöherrar Suö-
austur-Asiurlkja þinga nú I Tæ-
landi vegna ástandsins i Kam-
bodlu. Tælendingar búast nú viö
nýjum straumi flóttamanna og er
byrjaö aö undirbúa flóttamanna-
búðir. Nú þegar eru 180 Kampút-
Framhaldá bls. 18
VEISTU...
. . . .að árgjald flestra liknar- og styrktar-
félaga er sama og verð eins til þriggja.
sigarettupakka? Ævifélagsgjald er al-
mennt tifalt ársgjald.
Ekki hafa allir tima eða sérþekkingu til að
aðstoða og likna. Við höfum hins vegar
flest andvirði nokkurra vindlingapakka til
að létta störf þess fólks sem helgað hefur
sig liknarmálum.
AUGLÝ SINGASÍMI
ÞJÓÐVILJANS ER
V.
81333