Þjóðviljinn - 23.01.1979, Blaðsíða 1
djodviuinn
Þriðjudagur 23. janúar — 18. tbi. — 44. árg.
Skólatannlæknar á vegum
Reyk j avíkurborgar:
1,2 milj. kr.
í mánaðarlaun
Fá þó aðeins helming af lágmarks
taxta Tannlæknafélagsins
337 miljón
kr. kröfur i
Breiðholt hf.
Kröfur þær sem nú hafa
borist I þrotabú Breiftholts
hf. nema nú samtals tæpum
257 miljúnum. Fjölmargar
kröfur munu úkomnar enn,
þar á meöal krafa frá Sem-
entsverksmiöju rikisins aö
upphæö um 80 miljúnir krúna
ef vextir, dráttarvextir og
kostnaöur eru reiknaöir
meö.
Stærsta krafan er frá
Gjaldheimtunni i Reykjavik
vegna vangoldinna skatta,
samtals um 170 miljónir auk
vaxta, dráttarvaxta og
kostnaöar. >ar af skuldar
Breiöholt hf. 155 miljónir i
skatta og á ógreiddar um 15
miijónir vegna skatta starfs-
manna fyrirtækisins. Toll-
stjórinn i Reykjavik gerir
kröfu til 42 miljóna vegna
vangoldins söluskatts og
Póstgiróstofan krefst rúmra
20 miljóna vegna vangoldins
orlofsfjár.
Innköllunarfrestur er 4
mánuöir frá þriöju og siöustu
birtingu auglýsingar um
gjaldþrotaskipti I Lögbirt-
ingablaöinu. Auglýsingin
hefur nú birst einu sinni og
reikna má meö siöustu birt-
íngu eftir u.þ.b. hálfan mán-
uö. Að sögn Unnsteins Beck
borgarfógeta eru þær eignir,
sem Breiðholt hf. hefur gefiö
upp, flestar i útistandandi
kröfum og reynslan sýndi, aö
yfirleitt tæki langan tima að
ná inn skuldum. Allar likur
eru þvi á aö þaö geti dregist
alllengi aö ganga frá gjald-
þrotaskiptum Breiöholts hf.
Skiptafundur i þrotabúinu
verður 19. febrúar. _ eös
I f járhagsáætlun
Reykjavíkur fyrir árið 1979
eru áætiaðar 742 milj.
króna til ókeypis tann-
lækninga. Hluti af þessari
upphæð rennur i laun til 18
skólatannlækna sem vinna
fyrir borgina.
Borgin leggur til alla aöstööu
þeim aö kostnaöarlausu en þeir fá
borgaö 50% af lágmarkstaxta
Tannlæknafélagsins. Meö þessu
móti hafa þeir rúmlega 1,2 milj.
króna i laun á mánuöi og ætti
mörgum verkamanninum þaö
dágóö laun og jafnvel sumum
þeim h&menntuöu lika.
Meö sömu vinnu og þessir 18
skólatannlæknar leggja fram
hafa þvi tannlæknar 2,4 milj.
króna fyrir sinn snúö á mánuöi
meö þvi aö fara eftir lágmarks-
taxta Tannlæknafélagsins en þaö
munu þeir flestir gera þó aö þeir
séu ekki bundnir af honum. Af
þeirri upphæö veröa þeir aö
borga reksturskostnað tann-
læknastofa sinna. Þess skal getiö
aö 77 miljónir króna eru áætlaðar
af fé borgarinnar til aö borga
aöstoöarmönnum fyrrnefndra
skólatannlækna. —GFr
Meðan maður er ekki alltof æfður i iþróttinni
er gott að njóta stuðnings vinkonunnar. Þær
Hrafnhildur og Margrét voru niðir á Tjörn i
gær i góða veðrinu, en þar er nú prýðis skauta-
svell. Ljósmynd: Leifur.
Um of einblínt á vísi-
töluhækkun 1. mars
sögðu þeir Ragnar Arnalds og
Olafur Ragnar Grímsson er þeir
kynntu efnahagstillögur Alþýðu-
bandalagsins á blaðamannafundi
Hvers vegna
hækkar fast-
eignamatið?
Sjá síðu 9
og baksíðu
Þeir Ragnar Arnalds og Ólafur Kagnar Urimsson kynna efna-
hagstillögur Alþýöubandalagsins fyrir blaöamönnum i Þúrshamri i
gær (Ljósm.: Leifur)
Viö viljum snúa okkur aö orsök-
um sjúkdúmsins og erum nú aö
reyna aö snúa athygli samstarfs-
flokka okkar aö þeim grundvall-
arbreytingum sem veröur aö
gera á framleiöslukerfinu til aö
viö getum haldiö áfram aö bæta
llfskjör I landinu, sögöu þeir
Ragnar Arnalds og ólafur Ragn-
ar Grimsson á blaöamannafundi i
gær er þeir kynntu ftarlegar efna-
hagstdiögur Alþýöubandalagsins
ásamt meöfylgjandi greinargerö-
Magnús L. Sveinsson hjá V.R.:
Vara við algjöru frelsi
um opnunartíma sölubúða
t júli sl. skipaöi borgarstjúrn
Reykjavikur nefnd til þess aö
athuga reglur um opnunartlma
verslana og vöruval i „söluturn-
um”. Nefnd þessi er skipuö
þremur borgarfulitrúum og
fulltrúum Verslunarmannafé-
lags Reykjavikur, Kaupmanna-
samtakanna og Neytendasam-
takanna. Á fyrsta fundi nefnd-
arinnar nú I janúar lagöi
Markús örn Antonsson til aö
þessi reglugerö yröi alfariö
numin úr gildi og opnunartimi
gefinn algjörlega frjáls. Björg-
vin Guömundsson mun hafa
stutt þetta en fulltrúi V.R. var
þvi andvigur þar sem þetta
snertir viökvæman þátt I kjara-
samningum félagsins.
1 viötali viö eitt dagblaöanna
á laugardag segir Björgvin
Guðmundsson aö hann telji aö
tillaga Markúsar njóti stuönings
meirihluta borgarstjórnar, þe.
meö atkvæöum fulltrúa Alþýöu-
og Sjáifstæöisflokks og gefur i
skyn aö hann muni flytja hana
þar.
Viö höföum af þessu tilefni
samband viö Magnús L. Sveins-
son borgarfulltrúa en hann er
skrifstofustjóri Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur.
Magnús sagði aö ekki heföi
enn verið gerö sérstök ályktun
um þetta mál I stjórn félagsins,
þar sem þaö heföi ekki veriö
neitt til umræöu opinberlega
fram til þessa. „Okkur var
kunnugt um þessa nefnd sem
skipuö var til þess aö endur-
skoöa gildandi reglur um opn-
unartima sölubúöa. Okkar full-
trúi I henni er Böövar Pétursson
en hann er i stjórn V.R.
Fram til þessa hefur ekki ver-
iö tilefni til ályktana um þetta
ma. vegna þess aö þótt nefndin
væri skipuö I júlí hélt hún sinn
fyrsta fund nú i janúar. Nú er
þetta hinsvegar komiö upp á
yfirboröiö. Ég tel ekkert óeöli-
legt aö þessi reglugerö sé end-
urskoöuð. Hún hefur nú gilt I
nokkur ár og gefist vel i stórum
dráttum. Þaö hefur veriö nokk-
ur óánægja meö vöruval I sölu-
turnum og þaö mætti auövitaö
taka til endurskoöunar. Ég
neita þvi heldur ekki aö æskilegt
er aö hægt sé aö veita fólki sem
mesta þjónustu, en ég vil benda
á aö samkvæmt gildandi reglum
er kaupmönnum heimilt aö hafa
opiðtilkl. 10 á föstudögum og til
hádegis á laugardögum nema
yfir sumarmánuöina. Mér er
kunnugt um aö fjöidi verslana
notar sér þetta ekki vegna þess
aö neytendur versla litiö þennan
tima.”
Að endingu spuröum viö
Magnús hvort hann vildi segja
eitthvað sérstaklega um þá full-
yröingu Björgvins Guömunds-
sonar aö meirihlutinn væri
tryggur fyrir frjálsum opnunar-
tima i borgarstjórn. Magnús
svaraöi „Ég vil vara mjög al-
varlega viö þvi aö afnema
reglugerö um opnunartima
sölubúöa. Þaö gæti leitt til þess
aö allar verslanir færu aö hafa
opiö á hvaöa tíma sólarhrings-
ins sem er.” sgt
Þeir Ragnar og Ólafur sögöu aö
um of væri einblint á vfsitölu-
hækkun 1. mars n.k. en I raun og
veru skipti sáralitlu máli fyrir
heildarveröbólguvandann hvort
kaup hækkaöi um 5 eöa 8%. Þaö
sem skipti máli núna væri aö
veröbólgan væri á niðurleið og
nota þyrfti timann til aö gera
ýmsar grundvallarbreytingar á
efnahagskerfinu.
Meginþættir efnahagsaögeröa
þeirra sem Alþýöubandalagiö
leggur til er fjárfestingarstjórn,
hagræðing i atvinnurekstri og
endurskgjulagning atvinnuveg-
anna og sparnaöur i hagkerfinu.
Markmiðin meö þessum aögerö-
um erufyrstogfremstaö tryggja
fulla atvinnu, draga úr veröbólgu '
og vernda þann kaupmátt launa
sem samiö var um I hinum al-
tjarasamningum áriö
T977 og bæta kjör launafóiks eftir
þvi sem efnahagsaðstæöur frek-
ast leyfa.
Þeir Ragnar Arnalds og Ólafur
Ragnar Grimsson lögöu á þaö
megináherslu aöekki mætti fórna
neinu af þessum markmiöum fyr-
ir annað. — GFr
A morgun veröa efnahagstil-
lögur Aiþýöubandalagsins kynnt-
ar i smáatriöum i sérstökum
blaðauka._______________
Verkföllum
frestað
Flugmenn Flugfélags Islands
hafa nú frestað um viku áöur boö-
uöum verkföllum meöan rikis-
skipuösáttanefnd reynir aö miöla
málum i deilunni. Nefndin var
skipuö um helgina. Verður þvi
flug meö eölilegu móti samkvæmt
áætlun þessa vikuna. — vh