Þjóðviljinn - 03.03.1979, Síða 20
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfs-
menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
L 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans I sima-
skrá.
Matvörukaupmenn höta:
Álagning mun
hækka 20. mars
Félag matvörukaup-
manna hefur ákveðið að
hækka álagningu þann 20.
mars n.k. Þessi ákvörðun
var tekin á aðalfundi
félagsins, serh haldinn var
21. febrúar s.l. og byggist á
þeirri skoðun félags-
manna, að áfrýjun tii
Hæstaréttar fresti ekki
gildistöku dóms undirrétt-
er í máli Kaupmannasam-
takanna gegn Verðlags-
nef nd, en dómsniðurstaðan
var Kaupmannasamtökun-
um í hag.
leiða til „glundroða og óreglu á
afgreiðslutima, til skaða og
óþæginda fyrir neytendur, þar
sem verðlag sé ekki frjálst I land-
inu”. Telja kaupmenn sýnilegt aö
vegna aukins tilkostnaðar
verslunarinnar yrði stórfelld
hækkun álagningar aðkoma til og
þar með verðhækkun til neyt-
enda.
A aðalfundinum voru einnig
samþykkt tilmæli til viðskipta-
ráðherra um að Kaupmanna-
samtökin fái aðild að verðlags-
nefnd með fullum réttindum.
Formaöur Félags matvörukaup-
manna var endurkjörinn Jónas
Gunnarsson. —AI
Frá bændafundinum i Arnesi
Mynd: Leifur
Þá mótmæla matvörukaup-
menn harðlega framkomnum
hugmyndum um frjálsan
opnunartima verslana i Reykja-
vik og telja að það muni einungis
Rektorskjörið
3. aprii
Guðmundur
Kog
Sigurjón
í kjöri
Sigmundur gefur
ekki kost á sér
Þeir Guömundur K.
Magnússon prófessor i
Viðskiptadeild og Sigurjón
Björnsson forseti Félags-
visindadeildar sem efstir
voru i prófkjörinu munu báð-
ir gefa kost á sér tíi rektors-
kjörs sem fram fer 3. april
n.k. Sigmundur Guðbjarnar-
son, forseti Verkfræði- og
raunvfsindadeildar.sem varð
þriðji, hefur lýst því yfir að
hann muni ekki gefa kost á
sér, en margir munu þó
binda vonir við að hann
breyti þeirri ákvörðun sinni
enda ekki sýnt að hann geti
skorast undan kjöri skv.
embættisskyldum sfnum.
Yfirburðir Guömundar
sem hlaut 70 atkvæöi komu á
óvart, en hann mun einkum
hafa notið stuðnings Laga-
deildarinnar og stjórnsýsl-
unnar, auk sinnar eigin
deildar, Viðskipadeildar.
Erfitt er aö spá um
hvernig atkvæöin sem Sig-
mundur og aðrir, svo sem
Vikingur Arnórsson sem
naut stuðnings Lækna-
deildarinnar, munu skiptast
milli Guðmundar og Sigur -
jóns, og er þess einnig að
gæta að margir greiddu ekki
atkvæði I prófkjörinu.
Togstreita um hvcrnig verja
skuli byggingarfé skólans
mun áreiðanlega skipta þar
miklu, þvi ekki er hægt aö
byggja yfir Læknadeild,
Hugvisinda- og Verkfræði-
og raunvisindadeild i sama
áfanga þó þörfin sé fyrir
hendi.
Þá er ekki útséð um hvort
stúdentar sem njóta þriðj-
ungsaðildar aö kjörinu munu
sameinast um stuðning viö
annan hvorn kandidatanna,
en samkvæmt þeim heimild-
um sem Þjóðviljinn hefur
aflað sér mun þaö heist
ráðast af afstöðu þeirra til
numerus clausus annars
vegar og miöstýringar
embættismannakerfisins
hins vegar. —AI.'
Fjölsóttur bændafundur
/
Að Amesi í fyrrakvöld
t fyrra kvöld var haldinn
almennur bændafundur i félags-
heimilinu Arnesi, að tilhlutan
„umræðuhóps ” Sunnlenskra
bænda. Fundurinn hófst kl. 9 og
stóð framundir kl. 3 um nóttina.
Sátu hann á þriðja hundrað
manns.
Rædd voru framleiðslu- og
markaðsmál landbúnaðarins á
vlð og dreif, þær leiðir sem rætt
hefur verið um að fara i þeim
málum ogþauúrræði, sem á orði
er haft að beita I þvi skyni að lina
þann vanda, sem við er að etja i
þessum efnum. Kynntar voru sér-
staklega þær tillögur, sem nokkr-
ir bændur viðsvegar að af landinu
komu sér saman um á fundi á
Hótel Sögu fyrir nokkru
Ýmis sjónarmið komu fram á
fundinum, sem vænta mátti, og
ekki öll á eina lund en þó skar I
gegn sú skoðun, aðbændur yrðu
að standa sem fastast saman um
ótviræðan rétt sinn og þær að-
gerðir, sem ofan á kynnu að
verða.
Magnús Finnbogason, bóndi á
Lágafelli, setti fundinn en fram-
sögumenn voru:Sveinn Jónssom
bóndi á Kálfsskinni I Eyjafirði,
Haukur Halldórsson, bóndi I
Sveinbjarnargeröi á Svalbaiðs-
slrönd, Páll Lýðsson, bóndi I
Litlu-Sandvík i Flóa, Arni Jónas-
son, erindreki Stéttarsambands
bænda og Hákon Sigurgrimsson,
aðstoöarmaður landbúnaðarráð-
herra.
Að loknum framsöguræðum
gefið vel þegið kaffihlé en siðan
hófust umræður, sem bæði voru
langar og liflegar.
Nánar verður sagt frá fundin-
um hér I blaðinu eftir helgi.
—mhg
Tilboð opnuð í Hrauneyjarfossvirkjun:
Lægstu tilbod miljarö yfir
áætlun Landsvirkjunar
Gífurlegur munur á tilboðum þeirra 6 fyrirtækja sem buðu í verkið
t gær voru opnuð tilboð i
Hrauneyjarfossvirkjun en bygg-
ing hennar var boðin út i fjórum
hlutum. Kostnaðaráætiun Lands-
virkjunar, sem bandarlskt ráö-
gjafarfyrirtæki og Verkfræði-
skrifstofa Sigurðar Thoroddsen
gerðu, er upp á 8,3 miljarða króna
en lægstu tilboö eru samanlagt
upp á 9,3 miijaröa króna. Það
vakti athygli hversu gifurlega
mikill munur var á einstökum til-
boðum.
1 stiflur og aðrennslisskurði
voru þrjú tilboð, það lægsta frá
Ellert Skúlasyni h.f., Svavari
Skúlasyni ogÝtutækni og var það
upp á tæpa 2,8 miljarða íslenskra
króna. Hæsta tilboð var hins veg-
ar frá Fossvirki en það er sam-
vinnufyrirtæki Istaks, Loftorku,
Miðfells, Phil & Sön I Danmörku
og Skánska Sements Guteriet.
Það voru tæpir 6,7 miljarðar
króna. Þriðja tilboöið kom frá
Strabag Bau I V-Þýskalandi og
var það upp á rúma 6,2 miljarða.
Aætlun Landsvirkjunar var hins
vegar upp á rúma 4,1 miljaröa.
Hér var svo mikill mismunur á
Werner Herzog á íslandi
Kom í fyrradag
—fer í dag
Þýski kvikmyndastjórinn
Werner Herzog kom hingað til
lands f stutta heimsókn siðdegis
á fimmtudag. Þá um kvöldiö
ræddi hann við islenska kvik-
myndagerðarmcnn og aðra
áhugamenn um kvikmyndir á
fundi i Þýska bókasafninu við
Mávahlið, og verður sagt frá
þeim fundi á kvikmy ndasiðu
Þjóðviijans á morgun.
1 gær skoðaði Herzog handrit i
Arnasafni og hélt blaðamanna-
fund, en i gærkvöldi var hann
viðstaddur sýningu á myndinni
Aguirre — reiði Guðs sem hann
gerði I Perú árið 1972, í dag
flýgur hann svo áleiöis til
Þýskalands.
Herzog kom hingað frá'
Noregi, þar sem hann geröi lika
stuttan stans, en þar áður var
hann i Perú, þar sem hann vinn-
ur að undirbúningi nýrrar kvik-
myndar. Aöra mynd er hann að
undirbúa i Astraliu.
Nokkrar mynda Herzogs hafa
verið sýndar hér á landi og m.a.
hefur sjónvarpið sýnt mynd
hans um Kaspar Hauser, sem
einnig var sýnd i Háskólabiói.
Werner Herzog sló fyrst veru-
lega I gegn sem kvikmynda-
stjóriá heimsmælikvaröa þegar
mynd hans Stroszek var verð-
launuð á kvikmyndahátiðinni I
Cannes fyrir 2 árum, en sú
mynd var sýnd hér á kvik-
myndahátið Listahátlðar i
fyrra.
Slðan hefur hann gert tvær
myndir: Nosferatu, sem var
frumsýnd s.l. haust, og
Woyzeck, sem veröur væntan-
lega sýnd á Cannes-hátlöinni
næsta vor.
Herzog hefur einnig fengist
við bókmenntir, og hafa ljóð
eftir hann birst á prenti, svo og m
kvikmyndahandrit, en þau sem- I
ur hann fyrst og fremst sem !
bókmenntir og hefur |
Hanser-Verlag I Þýskalandi ■
gefiö þau út.
Werner Herzog er, ásamt _
þeim Fassbinder, Wim |
Wenders, Schlöndorff ofl, I hópi J
þeirra kvikmyndastjóra sem ■
standa fýrir endurreisn þýskrar I
kvikmyndalistar og gjarnan eru ?
kallaöir nýbylgjumenn. jj,. |
tölum að menn voru sammála um
það að einhver reikningsskekkja
hlyti að vera með I dæminu.
t gröft fyrir inntak og vatns-
virki bárust 5 tilboð og var það
lægsta frá Ellert Skúlasyni o.fl.
það var upp á rúmar 117 miljónir
kr. Næst kom Suðurverk með 163
milj., Vörðufell 169 milj., Foss-
virki 275 milj. og Stabag Bau 651
milj. kr. Aætlun Landsvirkjunar
var upp á 221 milj. kr.
1 steypuvinnu bárust tilboð frá
þremur aðilum. Lægst bauð Foss-
virki tæpa 2,7 miljarða króna, þá
Energoprojekt frá Júgóslaviu
tæpa 3,3 miljarða og til vara 2,9
miljaðra en hæst bauð Strabag
Bau tæpa 3,4 miljarða. Aætlun
Landsvirkjunar var upp á tæpa
2 miljarða.
1 stöðvarhús buðu 3 aðilar.
Lægst bauð Energoprojekt tæpa
3,8 miljarða króna, þá Fossvirki
rúma 4,2 miljarða en hæst Stra-
bag Bau rúma S.miljarða króna.
Áætlun Landsvirkjunar var upp á
tæpa 2 miljarða króna.
Þess skal getið að áætlun
Landsvirkjunar mun veraorðin 6
ára gömul og hefur hún verið
framreiknuð til verðlags eins og
það er nú. En á þessum tima geta
ýmsar forsendur hafa raskast
verulega t.d. oliuverð.
1 fylgibréfi frá Strabag Bau er
tekiö fram að fyrirtækið taki að-
eins að sér verkiö, fái þaö alla
verkþættina, og Fossvirki býður
fram lækkun á verkinu um nokkr-
ar prósentur fái það fleiri en einn
verkþátt.
Framkvæmdir hefjast I vor að
undanskilinni vinnu við jarðstífl-
ur og aðveituskurð sem ekki
verður byrjað á fyrr en á næsta
ári.
—GFr