Þjóðviljinn - 06.03.1979, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 06.03.1979, Qupperneq 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 6. mars 1979. VQf fi i r Umsjón: Magnús H. Gíslason Stofnlánadeild landbúnaðarins: Geigvænleg gengistöp Búnaöarþing hefur nú afgreitt erindi Búnaðarsamb. Austur-Húnavatnssýslu um nýja iánaflokka Stofnlánadeildar land- búnaðarins o.fl. Alyktun Búnaöarþings er svohljóðandi: 1. Búnaðarþing telur, að málefnum Stofnlánadeildar land- búnaöarins sé nú svo komið, aö enga bið þoli, að gert verði stór. átak til þess að rétta við fjárhag deildarinnar og koma henni á rekstrarhæfan grundvöll. Þvi beinir þingið þeirri eindregnu áskorun til landbúnaðarráðherra, aö hlutast til um, að málefni Stofnlánadeildarinnar verði tekin til rækilegrar athugunar með þaö að markmiði, að binda endi á þau geigvænlegu gengistöp, sem d nldih verður árlega fyrir. Fellt verði niður vöru- gjald af jurtalyfjum o.fl. Þeir Axel V. Magnússon, Óli Valur Hansson, óttar Geirsson og Sigfús ólafsson hafa flutt á Bún- aðarþingi erindi um niöurfellingu vörugjalds af jurtalyfjum og ör- gresisefnum svohljóðandi: Við undirritaðir förum þess á leit við Búnaðarþing, að það skori á stjórnvöld að aflétt veröi 30% vörugjaldi, sem lagt var á jurta- lyf og örgresisefni til garöyrkju og landbúnaðar á s.l. ári. Jurtalyf og örgresisefni eru i 15% tollflokki. Þegar ofan á þá upphæö kemur 30% vörugjald og 20% söluskattur auk farmgjalda, bankakostnaðar o.fl. er hið er- lenda verð viðkomandi vöru ætiö um það bil tvó'faldað. Þetta eru I ýmsum tUvikum mjög tilfinnan- legir kostnaöariiðir, svo sem í öll- um greinum garðyrkju, þar sem þörf fyrir þessi efni er óhjá- kvæmilega mikil. Þetta gUdir einnig um útrým- ingu illgresis úr grænfóðurökrum og nýræktum þar sem verulegt efnismagn þarf ætið tU aö ná árangri. ÞaðgUdir um öll þessi efni, að þau eru mjög dýr i innkaupi. Hinsvegar má ætla, að þaö skipti rikissjóð ekki sköpum, þótt vöru- gjald þetta sé aflagt. -mhg sjonvarpið biteð?* Skjárinn Sjónvarpsvert? stcaði BegsíaðasWi 38 simi 2-1940 1 þvi sambandi leggur þingið áherslu á eftirfarandi: 1. Að rikikissjóður eða gengis- munasjóður leggi fram fé tU þess aö greiða gengistöp deUdarinnar vegna erlendra lána. 2. Að fengið verði innlent lánsfé til þess aö greiöa upp óhag- stæðustu, erlendu lán deUdarinn- ar, fyrr en samningar þar aö lút- andi gera ráð fyrir. 3. Að auka þær tekjur deildar- innar, sem varið er til niður- greiöslu verðtrygginga og vaxta af fjárfestingarlánum, a.m.k. til þeirra búgreina, sem liklegastar þykja til þess að viðhalda byggð- inniogskapaný atvinnutækifæri I sveitum. II. Búnaðarþing beinir þvi til StofnlánadeUdar landbúnaðarins að taka upp lánveitingar til kaupa á tækjum tU súgþurrkunar (mót- or og blásara) og kostnaði viö raf- lögn hennar vegna. I greinargerð segir: Siðustu breytingar á lögum um Stofnlánadeildina gengu skemmra i f járöflun til hennar en gert var ráð fyrir i áliti nefndar þeirrar, er vannað siðustu endur- skoðun laganna. Sifelld gengistöp, halli á verð- tryggðu lánsfé og vöxtum hafa nú leitt til þess, aö höfuðstóll deildarinnar er orðinn öfugur um 876 mUj. kr. 1 árslok 1978 námu gengis- tryggðar lántökur deildarinnar 4.66.517.572 kr. Af þessari upphæð hefur deUdin lánaðmeð gengisáhættu sem hér segir: A-lán kr. 1.096.889.596.- með 100% gengi = 1.096.889.596. B- lán, kr. 3.854.117. með 100% gengi = 3.854. 117. F- lán kr. 526.938.285 með 40% gengi = 210.775.314. Samtals kr. 1.311.519.027 Mismunur er kr. 3.354.998.546, — sem deUdin ber aUa gengis- áhættu af. A árinu 1978 námu gengistöp tekinna lána kr. 1.798.975.117.- Innb. gengi af veittum lánum kr. 381.686.103. Gengistap deildarinnar kr. 1.417.289.014.- Lán með innlendri verötryggingu námu i árslok 1978 kr. 3.289.636.365.-. Af þeirri upp- hæð hefur verið endurlánaö, meö sem svarar fullri verötryggingu kr. 1.970.853.130.-. Mismunur er kr. 1.318.783.235.- sem deidlin ber alla verðtryggingu af. A árinu 1978 nam tap deUdar- innar vegna verðtryggingar á inn- lendu lánsfé kr. 347.504.426,- Vaxtatap nam kr. 208.613.648. Samtals nema töp deUdarinnar þvi kr. 1.973.407.088, á árinu 1978. TU að mæta þessum haUa og standa undir rekstri deUdarinnar voru eftirgreindir tekjustofnar: Fr a m leiö en da g ja ld kr. 193.224.407,-. Neytendagjald, kr. 257.327.050,-. Mótframlag rikissj.kr. 450.551.457,-. Fast rikisframlag kr.25.000.000,-. Sam- tals kr. 926.102.914,-. A árinu 1978 eyddist þvi vara- sjóður deildarinnar að upphæð kr. 419.975.161,- og myndaöist öfugur höfuöstóll að upphæð kr. 875.957.449. Gengistöpin valda hér mestu um. Þvi ber brýna nauðsyn til að greiða gengistryggðu lánin upp hiö allra fyrsta. Hólar I Hjaltadal H.E.Þ. skrifar um í annað tbl. Freys þ.á. ritar H.E.Þ. forystugrein um búnaðar- fræðsluna. Oröfært hefur verið við Landpóst að birta þessa grein og vist er hún þess viröi, aö koma fyrir augu sem flestra. Fer grein- in hér á eftir meö góðfúsiegu leyfi höfundarins: Mikil er hún oröin að vöxtum umræðan, sem undanfarið hefur farið fram um landbúnað á íslandi. Þykk væri sú bók, sem innihéldi allt það, sem ritaö hefur verið I blöð og timarit um þetta efhi, þótt ekki værinema svo sem þrjú siöustu árin. En svo er nú fyrir aö þakka, að sú bók kemur aldrei út, þvi þar mundi vera margan leiðinlegan pistil að finna, en alltof lítið af góðum og gáfulegum þáttum. Akaflega er það misjafnt hvað hinar ýmsu hliðar landbúnaðar- ins hafa fengið mikið rúm hjá höf- undum i þessari umræðu. Yfir- gnæfandi mesta og fjölbreytileg- asta meðferð fá jafnan efnahags- málin i viðustu merkingu, þ.e. verðlags-, markaðs- og af- urðasölumál. Aðrar hliöar eru vart nefndar á nafn, jafnvel undirstöðuatriði. Hér skal eitt augnablik rofin þögnin um einn slikan vanræktan þátt, þ.e. fræðslumál landbúnaðar á Islandi. 1 flestum og liklega öllum atvinnustéttum er lögð mikii og vaxandi áhersla á faglega mennt- un.Gildir þetta aðsjálfsögðuekki sistum þá, sem stjórna fyrirtækj- um, en einnig um hina, sem að- eins fást viö sin afmörkuöu verkefni á vinnustaönum. Nægir i þessu sambandi að nefna sivax- andi skólun fólks i fiskveiðum og fiskverkun á öllum stigum. Sé hinsvegar litið til landbún- aðar þá er þar ekki um neina framför aðræða, að þviervarðar fagmenntun, nema siður væri. Þar er ástandið næsta bágborið og mun varla miklu logið, þótt fullyrt sé, að bændur séu minnst fagmenntaða stétt landsins. Það er staðreynd, að allt að þvi 85% islenskra bænda hafa aldrei fengið neina skólafræðslu i sínu fagi. Þó eru þeir atvinnurekendur og þurf a að stjórna talsvert flókn- um rekstri, tæknilega og viðskiptalega, þar sem búskapur er. Arlega koma inn I stéttina svo sem 200 nýliðar, mjög lauslega áætlað. Af þeim hópi gætu um það bil 30 verið búfræöimenntaöir. I hópi hinna 170 eru menn meö ýmiss konar aðra sérmenntun, en mjög margir með algera lág- marksmenntun, þ.e. grunnskól- ann og enga sérmenntun þar á ofan af einu né neinu tagi. Þarna er veriðað tala um karlmennina, en svo eru ungu bændakonurnar, sem til skamms tima hafa litt komið við sögu búnaðarskólanna. Ætla má, að meiri hluti nýlið- anna i bændastétt komi úr sveit- um landsins enn I dag, óg hafa .þeir þá a.m.k. hina praktisku reynslu þess manns, sem elst upp viö störfin. En hinir eru samt ótrúlega margir, sem koma úr þéttlýlinu inn i bændastétt, marg- ir algerlega menntunar- og reynslulausir, framandi menn gagnvart veruleika búskapar og sveitalifs almennt og skilnings- litlir á þær félagslegu skyldur, sem svo nauðsynlegt er, aö sem allra flestir bændur viðurkenni og gangist undir. Ný lög um búnaðarfræðslu litu dagsins ljós á Alþingi I fy rra. Þar er ýmsar nýjungar að finna t.d. lenging búnaðarnáms og aukin áhersla á verklegt nám, bæði i skólanum og á bændabýlum með sérstökum samningum milli skól- ans og bænda. Af öðrum nýjung- um má nefna skipun skólanefnda við búnaðarskólana og búfræöslu- ráðs, sem hafi með aö gera skipulagningualls búnaðarnáms i landinu. Þessi lög eru ekki komin til framkvæmda ennþá, en þaö ger- ist væntanlega smátt og smátt næstu árin. Með tilliti til þess, hvað land- búnaður er fjölmennur atvinnu- vegur, og með tilliti til þess, hve þungt hann og mál honum tengd vega i fjármálum ríkisins, má það aldeilis furðulegt heita, hve tómlátt rikisvaldið er og hefur veriö um fræöslumál þessa at- vinnuvegar, svo ekki sé meira sagt. A tímum þegar alls konar skólastofnanir hafa verið byggð- ar frá grunni i öllum héruðum landsins I bæ og byggð, stofnan- ir, sem hver kostar hundruö miljóna króna, þá hefur landbún- aðarráöherrum vorum með herkjum tekist að toga út fjár- framlög til að byggja eina góða heimavist við einn bændaskóla, þ.e. á Hvanneyri. Á hinn bóginn er siður en svo að búið sé að byggja svo upp á þeim ágæta stað, sem brýna nauðsyn ber til. A hinum bændaskólanum, Hól- um f Hjaltadal, hefur litið gerst i átt til uppbyggingar langa lengi og alls ekkert allra siðustu árin. Þar er þannig ástatt, að engin þeirra bygginga, sem skólanum tílheyra, nema starfsmanna- húsnæði, er sæmandi skólastofn- un á ofanverðri 20. öld. Þriðji lögbundni búnaðarskól- inn, sá sem vera skal á Suöurlandi, er varla til i huga guðs, eins og sagt er um ófæddu börnin, hvað þá annars staöar. Nýju lögin gera lika ákveöiö ráð fyrir búnaðarfræðslu i fjöl- brautaskólum, en því miður er einnig það aðeins framtíöar- músik. Umræðan um skipulagsmál land- búnaöarins er þegar orðin allt of löng. Á þvi nýbyrjaða herrans ári er þess aö vænta, aö það mikilvæga mál þokist af stigi orðaflóðs og deildra meininga yfir á stig ákvarðana og snar- legra framkvæmda. Þá er ekki seinna vænna aö fara i alvöru aö huga aö öðrum undirstöðuþáttum atvinnuvegarins, þ.á m. og ekki sist menntunarþættinum. Nú blasir það við, að dregið verður úr almennri fjárfestingu i landbúnaði um sinn. Við þvi er litiðað segja, það veröur að telj- ast eðlilegt eins og ástatt er um markaðsmálin. Bændurmega vel sættasigviðslikti bili oglfta ekki á það sem böl eða bakslag, þótt hjól nýræktunar og nýbygginga á jörðunum snúist framvegis með minni hraða en verið hefur Þar á móti ber að krefjast þess, og samtök bænda verða að opna augu fyrir nauðsyn þess, að nú verði gert stórátak I þá veru að koma fræðslumálum stéttarinnar i betra horf en þau eru i. Verði al- menn fjárfesting I landbúnaöi dregin saman um einhverja miljaröa króna næstu árin, þá er engin goðagá að biðja rikisvaldið um nokkur hundruð miljónir til að búa fræðslumálum landbún- aðarins sæmileg skilyröi meö uppbyggingu skólastobiana hans. Það þarf að halda áfram að ljúka nauðsynlegum verkum á Hvanneyri. Það þarf að endur- reisa Hólaskóla til vegs og virð- ingar. Hann er nú olnbogabarn islensksskólakerfis, hálfsetinn og varla það, skortandi flest það, sem til þarf að gæða slika stofnun frjóum lifskrafti. Til er svokölluð Hólanefnd, skipuö af ráðherra til að gera tillögur um uppbyggingaráætlun fyrir skólann og búiö með tilliti til komandi 100 ára afmælisins 1982. Nefndin var svo seinheppin aö gera uppástungur, sem sam- stundis urðu bitbein i innanstofn- unartogstreitu þar á staðnum. Réttast mundi nú vera, að ráð- herra gæfi þeirrinefndlausn i náð og gerði jafnframt nauðsynlegar breytingar á starfsliði skólans. Þá mundi nú timabært, aö ráð- herra hlutaðist til um, aö skipuö verði skólanefnd hið fyrsta sam- kvæmt nýju lögunum, m.a. til að gera tillögur og eiga siðan hluta aö framkvæmdum i uppbyggingu bændaskólans. Mennt er máttur, segir gamalt spakmæli. Það er I fullu gildi enn i dag og liklega aldrei fremur en einmitt nú. Bændastéttin er ekki máttug stétt á tslandi nútimans. Þaö stafar meðal annars af þvi, að hún er litt menntuðstétt og hún er ekki á framfarabraut að þessu leyti nú sem stendur. Núverandi landbúnaöarráð- herra hefur sagt, að hann liti á það sem sitt meginverkefni aö koma viðunandi skipulagi á framleiðslumálin og skapa frið um landbúnaðinn með þjóðinni. Ekki veitir af þvi eftir þær stormasömu umræöur, sem gengið hafa um þennan atvinnu- veg undanfarin ár. Vér stingum upp á þvi, að næst þar á eftir færi hann inn á skrána það verkefni að hrinda af stað endurbótum I skólamálum land- búnaðarins, svo að þessir einu skólar i landinu, sem ekki falla undir menntamálaráðuneyti, Verði ekki framvegis vanræktast- ir allra skóla. H.E.Þ.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.