Þjóðviljinn - 11.03.1979, Qupperneq 5
Sunnudagur 11. mars 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Skákþáttur
fellur niður
Vegna óviftráöanlegra orsaka
fellur skákþáttur Helga ólafsson-
ar niður að þessu sinni. I næsta
sunnudagsblaði mun Helgi hins
vegar fjalla um Max Euwe —
hinn fráfarandi forseta FIDE
Diskódans-
keppni í
Klúbbnum
í dag
Veitingahúsiö Klúbburinn og
ferðaskrifstofan Ctsýn gangast
fyrir keppni i diskódansi i dag
sunnudag fyrir unglinga 12-15
ára.
Keppnin hefst kl. 14 og er áætl-
aö að hún standi yfir til kl. 18. 1
einstaklingskeppninni eru skráðir
um 15 keppendur, i parakeppni 4
pör og i hópkeppni um 25 hópar.
Sigurvegarar i hverjum flokki
verðá krýndir sem tslandsmeist-
arar unglinga i diskódansi 1979.
Einnig fer fram á vegum sömu
aðila forkeppni i diskódansi og
keppir c riðill n.k. sunnudags-
kvöld. Keppa 6 pör og 3 hópar i
hvert skipti, en forkeppni I a og b
riöli er þegar lokið.
Crslitakeppnin fer siðan fram
sunnudagskvöldið 25. þessa mán-
aöar og krýnir núverandi Islands-
meistari i diskódansi sigurvegara
i hóp- og parakeppni.
leið til orkusparnaðar
Nákvæm hitastilling Nobíj ofnanna,
tryggir að jafn hiti fæst í öllum her-
bergjum. Nobo ofnarnir eru sérstaklega
útbúnir fyrir nákvæma hitalækkunarstýr-
ingu (Sonekontrole) sem sparar allt að
15% í rafmagnskostnað og meira á vinnu-
stað.
Nákvæm hitastýring eykur þægindi.
Nóbo ofnarnir, norsk gæðavara á hag-
stæðu verði.
Leitið upplýsinga hjá fagmönnum.
Snúið ykkur til rafverktakans á staðnum.
Söluumboð
Tveggja ára uppskera
1 Norræna húsinu
stendur nú yfir fyrsta
grafiksýning Baltasars
og sýnir hann um 60
myndir sem allar eru
unnar á sföústu tveim
árum en áður hefur
hann haldið f jölda mál-
verkasýninga og er
kunnur fyrir mynd-
skreytingar i bækur og
blöð.
Það sem fyrst vekur eftirtekt
þegar komið er inn i kjallara Nor-
ræna hússins er að verkum sýn-
ingarinnar má skipta i fjóra
meginflokka þeas. sjálfsmyndir,
blómamyndir, hestamyndir og
nektarmyndir.
Sjálfsmyndirnar eru fingraæf-
ingar að sögn Baltasar og geröar
með það fyrir augum að ná valdi
á tækninni sem hann hefur ekki
getað beitt vegna aðstööuleysis
siðan hann var i skóla. Þó eru hér
sumar bestu myndir á sýn-
ingunni, t.d. nr. 10.
A eftir sjálfsmyndunum vendir
hann sinukvæðii krossog fer yfir
i blómamyndir, en fyrirmyndirn-
ar sækir hann i flóru íslands og
fantaserar útfrá myndum sem
fengnar eru uppúr bókum. Hér
fer að gæta ameriskra áhrifa sem
einkennir nokkuð sýninguna i
heild en Baltasar dvaldist þar
vestra um tima á siðasta ári,
kemur þetta einnasterkast fram i
notkun texta og litar. Myndir
þessar eru með léttu yfirbragði
og liprar.
Þá er komið að hestamyndun-
um en þær skera sig nokkuð úr
vegna þess að hér brýtur hann oft
upp bakgrunn myndann i
abstrakt form sem ekki verður
vart á öðrum stað á sýningunni og
sver ja þær sig mjög i ætt viðmál-
verkhans af hestum frá fyrri tið.
Að siðustu koma svo nektar-
myndirnar: hér er allt yfirbragð
orðið djarfara og formatið
stærra, notkun litar hressileg
td. i myndum nr 28,32.Rétt er að
taka fram að notkun litar hjá hon-
um er þannig að ekki er litað i
motivin heldur teiknar hann inn
ný motiv með lit.
Maðurtekur eftir þvi að sumar
plöturnar hafa ekki veriö slipað-
Baltasar ásamt einni mynda sinna
ar ikantinn svo sem oftast er gert
til að forðast „óhreina” umgerð.
Er greinilegt að þetta er með
ráðnum hug gert og á vissan hátt
gefur hispurslausara yfirbragð.
Með sýningunni er sýningar-
skrá með stuttum texta sem Balt-
asar hefur skrifað sjálfur og
skýrir þar nokkuð tilurð og að-
draganda sýningarinnar og gerir
með þvi verkin aögengilegri fyrir
áhorfendur.
öll er sýningin létt i sér og lipur
án þess að vera losaraleg en ekki
er ég frá þvi að rétt hefði verið að
hengja hvern myndaflokk útaf
fyrir sig en það er minniháttar
atriði þegar á allt er litiö.
Kópavogskaupstaður ra
Lóð í Kópavogi
Kauptilboð óskast i lóðina nr. 45 við Holta-
gerði i Kópavogi. Tilboð miðist við að fjar-
lægja skuli mannvirki á lóðinni fyrir 1. júli
nk. og að viðkomandi öðlist byggingarrétt
á lóðinni samkvæmt venjulegum úthlut-
unarskilmálum Kópavogskaupstaðar.
Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir ein-
býlishúsi á lóðinni. Athygli er vakin á
ákvæðum 3.gr. reglugerðar um gatna-
gerðargjöld i Kópavogi nr. 130 1976.
Skriflegum tilboðum sé skilað á Bæjar-
skrifstofur Kópavogs fyrir 23. mars nk. en
tilboð verða opnuð á skrifstofu minni þann
dag kl. 11.
F.h. Kópavogskaupstaðar,
bæjarlögmaður.
Stúdentar
Munið Almenna stúdentafundinn i Stúd-
entaheimilinu við Hringbraut mánudags-
kvöldið 12. mars 1979 kl. 20.15.
Umræðuefni: Málefni Félagsstofnunar
stúdenta.
Stjórn Stúdentaráðs Háskóla tslands.