Þjóðviljinn - 18.05.1979, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. mal 1979.
Sportmarkaðurinn
AUGLÝSIR
Niðsterkir æfingaskór nr. 36—45
Reiðhjólamarkaðurinn
AUGLÝSIR
Ný og notuð hjól
i úrvali
Ath. tökum
hjól i
umboðssöl
Sportmarkaðurinn
\ 400 við skólauppsögn
Fyrir skömmu var Orgelskóla Yamaha I Reykjavlk slitiö. Þetta er sjötta starfsár skólans og voru um
400 manns vib skólaslitin. Skólastjóri er Guömundur Haukur Jónsson og kennari meö honum Sigurberg-
ur Baldursson. — Kennt er á fjórum stigum og viö skólauppsögnina Iéku nemendur fyrir gesti. Fjórir
luku burtfararprófi i orgelleik eftir1 fjóröa stig. Myndin er af einum þeirra viö skólaslitin.
Kvædi Þórarins Eldjárns
eru komin í nýrri útgáfu
Grensásvegi 50
Lausar stöður
við Sjúkrahús Skagfirðinga,
Sauðárkróki
1 staða ljósmóður er laus frá 1. október.
2 stöður hjúkrunarfræðinga lausar.
1 sumarafleysingar vantar hjúkrunar-
fræðinga og meinatækni.
Upplýsingar gefa yfirlæknir og hjúkr-
unarforstjóri í sima 95-5270.
Bókaútgáfan Iöunn hefur sent
frá sér nýja útgáfu af Kvæðum
Þórarins Eldjárns nieð nýjum
teikningum eftir Sigrúnu Eldjárn
Kvæöabók Þórarins komfyrst út i
ágúst 1974 og áöur en áriö var á
enda höföu birst þrjár prentanir
af bókinni sem allar seldust upp á
skömmum tíma. Þessar viötökur
lesenda munu eiga sér fáar hliö-
stæður þegar um er aö ræða
fyrstu Ijóöabók ungs skálds.
Gagnrýnendur tóku bókinni
einnig mjög tofsamlega. Bar
þeim saman um aö ljóð Þórarins
væru skemmtileg og einnig aö
þau væru „ný, gagngert öðruvisi
en allir aðrir yrkja”, eins og einn
ritdómari komst að orði. Annar
tók svo djúpt i árinni að hann teldi
bókina helstu nýjung i islenskri
ljóðagerð siðustu tuttugu árin eða
svo.
Snið útgáfunnar er með sama
hætti og á Disneyrimum Þórar-
Þórarinn og Sigrún Eldjárn
ins sem út komu i fyrra og mikla hefur teiknað bókarkápu. Bókin
eftirtekt vöktu. Sigrún Eldjárn er 56 bls.
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smið-
um eldhúsinnréttingar; einnig viðgerðir á
eldri innréttingum. Gerum við leka vegna
steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila.
TRÉSMIÐ AVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33, símar 41070 og 24613.
svaoilför Tll
SVEPPABORGAR
VIDUTAN
Hrakfarir og
heímskupör
Ævlnlýri kalifens Harúns hinsml
Blikkiðjan
Asgarði 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Nýjar teiknimyndasögur
Bókaútgáfan IÐUNN hefur gef-
iö út fjórar nýjar teiknimynda-
sögur:
Fláráöur stórveslr heitir fyrsta
bókin i nýjum flokki um ævintýri
kalifans Harúns hins milda.
Textahöfundur er Goscinny sem
einnig geröi textann I sögunum
um Astrik sem víökunnar eru, en
teikningar gerði Tabary. — t
þessari sögu segir frá kalffanum I
Bagdad og stórveslr hans sem er
ekki allur þar sem hann er séöur
og metorðagjarn I meira lagi.
Maöur aö nafni Mac Coy heitir
önnur bókin um þessa söguhetju
og tilheyrir hún Vestrasafninu
svokallaða. Hér segir af Alexis
Mac Coy sem var liðsforingi I her
Suðurríkjanna i' borgarastyrjöld-
inni i Bandarikjunum og mann-
raunum hans. Handrit samdi J.P.
(Jourmelen en teikningar eru eftir
A.H. Palacios. Bókin er prentuð i
Finnlandi.
Þá eru tvær bækur eftir hinn
fræga teiknara Franquin i sagna-
flokkum sem þegar hafa unnið
sér vinsældir:
Hrakfarirogheimskupör heitir
önnur bókin um Viggó viðutan. Á
frummálinu heitir sú persóna
Gaston og segir hér af mörgum
hugvitssamlegum en mismun-
andi gagnlegum uppfinningum
hans.
Fimmta bókin i flokknum um
Sval ogfélaga nefnist Svaöilför til
Sveppaborgar. Segir þarfrá Sval
og Val og förunautum þeirra,
undradýrinu Gormi og ikornan-
um Pésa, sem nú hvila sig frá
annriki blaöamennskunnar og
aka upp I sveit.
Tvær siðasttöldu bækurnar eru
gefnar út i samvinnu við A/S
Interpresse. Jón Gunnarsson
þýddi þær allar.