Þjóðviljinn - 20.05.1979, Page 3

Þjóðviljinn - 20.05.1979, Page 3
Sunnudagur 20. mal 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Nokkrir neyzlu- punktar í vertíðarlok um popp, fjölmiðla og lifandi músík Með þeirri áfergju sem smá- fuglarnir hafa hamazt við að marka sér lofthelgi undanfarið meö tisti sinu mætti ætla, að sum- ar kunni að verða i ár. Allt um það eru músikkennslu- stofnanir lýðveldisins þessar vik- urnarað klykkja út með þvilikum sæg nemendatúnleika, að alla vega á höfuöborgarsvæðinu er ó- gerningur fyrir nokkurn einstak- ling, þótt allur væri af vilja gerður, að ná að fylgjast með öll- um þeim smiðshöggum vetrar- starfsins, er þar eru rekin. Að sjálfsögöu hlýtur að vera skoðun getur litblindur maöur haft á þvi, hvort litsjónvarp sé betra en svarthvítt? Fásinna væri aö halda þvi fram, að bretar og bandarikjamenn séu einu þjóðir i heimi, sem búa til eftirtektar- verða dans- eöa afþreyingarmú- sik. En viö hegðum okkur eins og þetta væri heilagur sannleikur. Vegna þess að þeir sem ákveða „hvaðfólkið vill”, smekkmótarar (fad pushers á vesturheimsku) og skrum-mangarar — ráðast ævin- lega, eins og kaupmönnum er titt, á garöinn þar sem hann er lægst- ur. Það væri einfaldlega meiri vinna, meira umstang, að útvega og kynna tónlist frá öðrum menningarsvæðum. Þess vegna leiða þeir slfka tónlist hjá sér — og þjóöinni. Ef hinir heiftar ströngu herrari biói allra landsmanna hugsuöu máliþ til lykta, mundu þeir taka gjald af ofangreindu fjórgengis- hjakki á sama hátt og af öörum fagnaðaróð um tilbúnar þarfir, sem glennir sig i sjónvarpsaug- lýsingum. Agóöinn gæti siðan mjög passlega runnið til dag- skrárgerðar með islenzkri frum- samdri tónlist af rytmiskum toga. Eða til útvegunar á framandi og exótisku tónlistarefni eins og t.d. frá meginlandi Evrópu... Lifandi músik Svo að maður haldi sig við ryt- misku tónlistina út þetta spjall, mismunandi burðugt, hvað á slik- um hljómleikum er að finna, séu tekin mið af sigildum þörfum tónlistarunnenda. En eins og margir aðstandendur nemenda i þessum skólum vita af eigin reynslu er innan um margt dag- skráratriöið, sem ánægju veitir og jafnvel getur komið manni á ó- vart. Þeim, sem aldrei hafa farið á vortónleika tónlistarskólanna, . er vert aö benda á, að auk á- nægjunnar af þeirri raunverulegu spilagleði, sem ungt og upprenn- andi tónlistarfólk þjóðarinnar sýnir viö slik tækifæri (sé það þá ekki að drepast á taugum), hlýtur venjulegur sinfóniutónleikagest- ur af þá viömiöun, sem eykur skilning hans á frammistöðu at- vinnuhljóðfæraleikara og setur meiriháttar tónlistarviðburði i landinu i þrividd. Það er ástæöa til að hvetja þá, sem annars mundu láta framhjá sér fara, til aö fylgjast með tilkynningum út- varps og blaöa og notfæra sér þessi ókeypis tækifæri til að upp- lifa tónlistarflutning og tónlistar- nám sem þroskafyrirbæri meðal erfingja landsins. Ef hlýtt er með opnum huga, er afar sjaldgæft að upplifa nemendatónleika, þar sem ekki a.m.k. eitt eða fleiri at- riði reynast gjöful mið. Vogarskálar aögengileikans Sumrinu, sem eftir almanakinu á að hafa farið I hönd fyrir löngu, fylgir opnara viöhorf og léttara hjal, eftir þvi sem meir birtir I lofti. Meira að segja rikisútvarpið okkar tekur upp úr pússi sinu sér- staka sumardagskráá árihverju. Meiningin er væntanlega að flytja okkur meir af „léttri” tónlist á kostnað „þungrar”. Annars er mér ekki alveg ljóst, hvar mörkin kunna að vera þar á milli, frekar en núgildandi landslög fá tekið af allan vafa um hvaö t.d. sé klám og hvað ekki. Oftast nær er þó lýðum ljóst hvað viö er átt á klassiska sviöinu, þó að ekki sé alltaf hægt að fara eftir tónverka- heitum. Til dæmis gæti ég imynd- að mér aö „Danse Macabre” og „Orfevs I Undirheimum” væri frekar talið sumarefni en Vorblót Stravinskis og Fiðlukonsert Brahms, án tillits til þess að seinni verkin eru fullt eins fjörug músik. Hvað poppiö áhrærir má gera ráð fyrir að hlutur þess á sumardagskrá sé aukinn gagn- vart klassik i heild og mesta framúrstefnan pökkuð niður til næsta hausts. Eða eitthvað i þá veruna. Citvarpið hefur verið gagnrýnt fyrir það hve illa það vinni sina tónlistarþætti. Þó að ljóst sé, að aðstaöa þess og fjárhagur er fyrir neðan allt velsæmi svokallaðrar sjálfstæðrar þjóðar, fyndist manni engu að siður, að starfs- og forráöamenn þess hefðu mátt koma meir til móts við þessa gagnrýni en gert hefur verið. Enn þann dag I dag er miklum meiri- hluta listræns tónlistarefnis rutt út I ljósvakann án viðhlitandi vinnslu né kynningar. Þetta er öllum núverandi tónlistarunnend- um til stór-amaog verðandi tíl lit- ils forvitnisauka — og að sjálf- sögðu vatn á myllu fordóms- og ofstækisfyllstu formælenda léleg- asta poppsins ellegar algerra músikandstæöinga, hverju nafni sem þeir nefnast. Málsvarar alþýöusmekks Undirritaður vill ekki með þessum orðum láta flokka sig sem svarinn hatursmann allrar popptónlistar. Það er skoðun hans, að styðja beri við bakið á innlendri tónsmiði, af hvaöa tagi sem hún er, meö þvi að hleypa þeim, sem eitthvað hafa á hjarta, inn I útvarp og sjónvarp með beztu framleiðslu sína. Þó ekki væri nema til að sporna við kverkataki múgmarkaðslögmála á Islenzku poppi. Gefa þyrfti þeim poppurum, er eitthvað vilja á sig leggja, tækifæri til að koma frá sér betri músik en þeirri, sem háðust er daglegu brauðstriti og gróöafikn örfárra dreifingar- aðilja, sem með þvi aö pranga ensk-ameriskum tizkubrellum af lágkúrulegustu sort inn á þjóðina geta ákveðið „hvað fólkiö vill Þessi smekk(-leysis)- innræting fer svo fram með vel- viljaðri aðstoð poppskribenta dagblaðanna, sem — það virðist gilda um hvern einasta þeirra — ekkert þekkja annað en fláustu tegund af færibandsvarningi frá bretlandi eða bandarikjunum. Tilvist lifandi innlendrar al- þýðutónlistar er menningarlegt sjálfstæöismál. Þaö er ekki bara mörgæsamúsik tónleikasalarins og hinna útvöldu sem skiptir máli, enda þótt innlent og norrænt styrkveitingakerfi virðist ekki koma auga á annað. Við erum aö ræða um hlustunarefni þeirrar kynslóðar sem á að erfa landið. Tónlistarstefna sjónvarpsins t viðleitninni við að veita ensk - ameriskri múgmarkaðsmúsik mótvægi verður hlutverk Islenzka sjónvarpsins ekki talið ris- mikið. Þvert á móti heggur þar sá, er hllfa skyldi. A meðan þætt- irnir um „alþýðutónlistina”, sem maöur batt nokkrar vonir viö I upphafi, að vísu hafa veitt innsýn I vissar sögulegar forsendur — þótt slitrótt sé — er ekki um það að villast,að þeir fjalla næt ein- göngu um músik enskumælandi landa, en sú múslk hefur eins og við vitum nærri einokað neyzlu Is- lenzkrar æsku I uppundir þrjátlu ár, helmingi lengur en Hörmang- arafélagið einokaöi verzlunina hér á 18. öld. Til að kóróna framlag sjón- varpsins sýnir svonefnt „Skon- rok(k)” illa dulbúnar auglýsinga- filmur reglulega um varning frá risavöxnum plötudreifingarfyrir- tækjum I áöurnefndum tveim löndum, sem sömu fyrirtæki framleiða sjálf og fá umboðs- mönnum þeirra hér á landi sem gratls túðu til að stinga upp I dag- skrárgeröarmenn hins fjárhung- urmoröa ríkisfjölmiðils. Um leið er efnið markaðsfært, svo aö ekki verður betur á kosið. Það er segin saga, að þegar nýtt lag glymur á skjánum stutt af öllu þvl söluherðandi glitri sem hægt er að troða I kring um það, hrátt frá kauphöllum erlendis, þá eru óöara komnar biðraöir ung- linga I hljómplötuverzlunum næsta dag til að ná að höndla sæl- una. Sjónvarpið þykist vist hafa himin höndum tekið að fá aö senda út graðhestaræmur þessar án endurgjalds, enda er þetta ekki llka „það sem unga fólkið vill” — ? En hvað fær það að heyra, sem er ööruvisi? Mér er spurn: hvaða þá hefur borið mikið á þvi undan- fariö, hve lifandi múslk fer hall- oka á höfuðborgarsvæðinu fyrir glymskröttunum I gervi stemmn- ingu diskóteka. Sú þróun er e.t.v. óbein afleiðing af vitahring , er veröur, þegar hljómsveitirnar — I þvl skyni aö keppa við yfir- hlaðann — fjölga liðsmönnum fram yfir rekstrargetu annarra danshúsa. Þó það sé eöli dans- tónlistar að höföa til stundlegustu hvatanna, þá viröist sorglega mikið af mörlenzku poppi slöustu ára snúast um áferö frekar en innihald. „Effekta” frekar en form. Staðir, þar sem hljómsveitir geta sýnt á sér frumlegri hliöina handan við brennivins- og frygð- aröskur lýðréttanna eru svo aö segja ekki til. Það er þvi vissu- lega ánægjulegt, þegar maður verður var við framtak eins og undirritaður var vitni að nýlega á matstofunni „A næstu grösum” við Laugaveginn, en þar hefur þriggja manna jass-combó Guð- mundar Ingólfssonar raf-plan- ista, Pálma Gunnarssonar bassa- leikara og Guðmundar Stein- grímssonar trommuleikara leikiö fyrir fullu húsi — að vlsu er að- Framhald á bls. 22

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.