Þjóðviljinn - 20.05.1979, Side 17

Þjóðviljinn - 20.05.1979, Side 17
Sunnudagur 20. mal 1979. ÞJöÐVILJINN - SIDA 17 Nú þegar ég munda mig I tii að skrifa þennan pistil j sem á að vera tileinkaður síðbúnu sumri, svífa dúnléttar snjóflygsur utan við gluggann og tæla athyglina. Augun fylgja eftir léttu flögrinu uns þau kyrrast við giampana frá gluggum hálfbyggðra húsa granna minna. I þessu nýja hverfi á ystu mörkum byggðar i borginni þar sem áður kurruðu rjúpur rembist nú sístritandi lýður dag og nótt og hefur reist sér hurðarás um öxl í von um að verðbólgan, þjóðarmeinið, magnist og létti skuldabyrðarnar á heimsmetshraða. * Ég veit aö i sementsþurrum augum speglast dauf vonin um aö komast til Mallorku til aö mýkja hvarmana i sangria. Eg er víst ekki aö skrifa fyrir þetta fólk. * Stór hópur fólks þráir fegurö og hefur á tilfinningunni aö hana sé aö finna einhversstaöar utan- bæjar. Þegar vorar og hlýnar i veöri sest þaö upp i bilinn sinn á sunnudögum og ekur með mikl- um framúrtökum og skrensi i malarköntum austur fyrir fjall og á Þingvöllog lengra, eitthvaö, og kilómetramælirinn snýst I hring eftir hring eftir hring og hiö dýra bensln brennur og leggst blátt yfir dasaöa vegina. Fljótlega er stansaö viö sjoppu og allir fá pylsu meö öllu og kók og serviettu til aö þurrka sér um munninn og svo er haldiö áfram aö aka þang- aö til einhver þarf aö pissa, aö stoppaö er enn undir einhverju fjalli um leið og mjólkurbíllinn brennir framhjá fyllist drossian af ryki. Pabbi veröur ergilegur og mamma vill snúa viö. enda allir orönir fullsaddir á náttúrunni. H* En þaö er hægt að breyta þessu hefðbundna mynstri sunnu- daganna. Þaö er hægt aö ferðast og sjá og skoöa allt ööruvisi og það geta allir. Til þess aö gefa einhverja vis- bendingu get ég I fyrsta lagi meö góöri samvisku vakiö athygli á fjölbreyttum feröum Ferðafélags Islands og fleiri aðila. Fí hefur kjöriö Esju fjall ársins og ætti hver fullfriskur Reykvíkingur aö hafa þann metnaö að ganga á bæjarfjalliö sitt. 1 þessu tilefni vil ég benda Fl-mönnum á þaö aö þessar feröir yröu ennþá skemmtilegri ef gengiö yröi yfir fjalliö, enda ótrúlega margir borgarbúar sem aldrei hafa kom- iö I Kjósina. Þaö er reynsla margra sem reynt hafa, aö skemmtilegast er aö skilja einkabilinn viö sig og ganga. Hér i grennd eru mörg 'fjöll sem er á hvers manns færi aö klifa. Af Heiömerkurvegi er örskotsspölur aö Búrfelli og af Kaldárselsvegi á Helgafell. Bæöi þessi fjöll eru djásn og dýrmæti. Til lengri gönguferða er Hengilssvæöiö tilvalið. I þessum fjöllum er margtaö sjá sem of langt mál væri aö telja, gil stór- skorin og hamraflug, vatnshverir og ölkeldur og heilar fjallshliöar sem eru eins og marglitur ostur útbijaöar i gufuopum og hvera- augum. Undir svipmesta tindin- um Skeggja kúrir Marardálur luktur f jöllum á alla vegu. I Engi- dal eru efstu drög Elliðaánna eöa Hólmsár sem reyndar skiptir oft um nafn á sinni leiö. Frá Innsta- dal rennur Hengladalsá um þrengsli og dali uns hún hverfur autur af fjallinu. Margar leiöir er aö velja og er t.d. tilvaliö fyrir kunningjahópa eöa vinnufélaga aö „splæsa” i leigubil austur I Grafning og A háfjalli Hengils. Skemmtilegar gönguleiðir | ganga þaöan annaðhvort yfir I Hengil, vestan hans, Dyraveg eöa austur meö fjallinu um Svinahllö, Fremstadal, milli Orrustuhóls- hrauns og hliöa Skarösmýrar- fjalls, hjá hellukofanum sem ! aöeins á einn sinh lika á landinu ! og i Skiöaskálann i Hveradölum, j þar sem hægt er aö taka Selfoss- ! rútuna i bæinn. | Af ótal mörgu er aö taka á j þessu svæöi, en mér finnst full ástæöa til aö mæla einnig meö dölunum upp af Hverageröi og ekki er ýkjalangt þaöan á Hrómundartind. Ferðafélagsmaöurinn Guömundur Pétursson leiöbeinir ungri stúlku, Sigurbjörgu Þorsteinsdóttur, sem hefur reynst haröduglegur feröamaöur og ötull náttúruskoöari. Ef einhverjir lesendur Þjóöviljans geta hugsaö sér aö nota áætlunarbíl má benda á skemmtilegan og ódýran mögu- leika. Viö tökum þá áætlunarbil- inn upp á miöja heiöi,förum úr t.d. viö Smiöjulaut nokkurn spöl austan Hveradala og göngum greiöfært hrauniö aö Hverahliö. Þarna er myndrænt hverasvæöi sem ljósmyndarar gætu haft gaman af. Skálafell sem er all- tignarlegt til að sjá minnkar er nær dregur, en býöur samt uppá ágætt útsýni. Viö skulum ganga á fjalliö austanvert og fá okkur kaffi i dalnum eöa gignum og viröa fyrir okkur Kristnitöku- hrauniö fyrrverandi sem viröist mun tilkomuminna eftir aö Jón Jónsson jaröfræöingurinn tók af þvi heföarstandiö og yfirfærir á eitthvert smáhraun vestar I heiöinni. Svo skulum viö fara yfir fjalliö um Trölladal og stefna á þann Lakahnúka sem syöstur er. Hér er notalegt og svipfritt land með fagurlega fléttaðar hraun- traðir og Hellur sem er sérkenni- legt fyrirbæri. Þetta hefur verið létt ganga og viðbúiö aö einhverjir vilji ganga á Stóra-Meitil, en hinir geta rölt i rólegheitum Lákaskarösveg aö Skiöaskálanum og tekið rútuna i bæinn. * Ég vil svo aö endingu fullyröa og styö þaö eigin reynslu, aö einkabillinn er ágætt tæki til þess að flytja fjölskylduna milli staöa, en aö ööru leyti ónothæfur til náttúruskobunar. Leggib bílnum þvi á öruggum staö og farið i könnunarleiöangur. Þvi aö þótt ekki hlotnist ykkur frægö land- könnuöanna, þá bibur ykkar ánægja þeirra. Smálegustu hlutir og lifverur eins og köngurló meö haglega geröan vef, pokamaurinn á fartinni, eöa svartur snigill i ró, stórvaxinn burkni i hraungjótu eöa kræklingur I fjöru geta breytt sælgætisgrettum barnaandlitum I sólskinsbros. Feröahópur viö hveralækinn I Innstadal, þar sem einhverjir hafa klambraö upp baöhúsi. —je

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.