Þjóðviljinn - 02.06.1979, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 02.06.1979, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓDVILJINN ■ Laugardagur 2. júní 1979 LIJÐVÍK JÓSEPSSON: LÆKKARKAUP BÆNDA UM 30%? Sjálfstæðisflokkurinn gerir bandalag við krata um árás á bændur Sá atburður, sem skeði á Alþingi á síðustu dögum þingsins að þessu sinni, þegar til afgreiðslu var til- laga um heimild til ríkis- ábyrgðar á 3ja milljarða króna láni til Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins, hefir að vonum vakið mikla at- hygli. Þá gerðist sá ein- stæði atburður, að nær allir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðu- flokksins i neðri deild Alþingis, gengu af þing- fundi til þess að koma í veg fyrir að meirihluti þing- deildarmanna, sem við- staddir voru, gætu komið f ram endanlegri samþykkt á þeirri lánsábyrgð, sem um var að ræða. Þetta gátu þingmenn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks gert vegna þess, að f jórir þingdeildarmenn voru fjarstaddir, en til þess að gera iöglega samþykkt þurf a að vera viðstaddir 21 þingmaður af 40 í deild- inni. Atkvæöagreiöslan um hina um- deildu tillögu fór þannig, aö 18 voru samþykkir, 17 á móti, 1 greiddi ekki atkvæöi og 4 voru fjarstaddir. Nú er vitaö, aö 3 af þeim 4 þing- deildarmönnum, sem fjarstaddir voru, voru tillögunni samþykkir, en einn liklega á móti. Þannig vissu allir, aö meirihluti deildar- innar var samþykkur tillögunni. Þeir þingmenn, sem fjarstaddir voru, og heföu samþykkt tillög- una, eftir þvi sem fram haföi komiö áöur, voru Pálmi Jónsson á Akri, Einar Agústsson og Páll Pétursson. Þeir þingmenn Sjálfstæöis- flokksins og Alþýöuflokksins, sem gengu af þingfundi, voru þvi meö einstæöu ofriki aö koma I veg fyrir rétta og iýöræöisiega af- greiöslu á nauösynjam áli á Alþingi. Vandamál bænda Tillagan um þriggja milljaröa lánsheimild handa Framleiöslu- ráöi landbúnaöarins var sannar- lega ekki flutt aö ástæöulausu, né heldur aö lftt athuguöu máli. Sá vandi, sem leysa átti meö láns- heimildinni, haföi legiö fyrir til umfjöllunar I marga mánuöi og ýtarlegar skýrslur höföu veriö lagöar fram um vandamáliö sem heild og aflejöingar þess, ef ekk- ert yröi gert til aö leysa þaö. Þaö sem fyrir lá voru þessar staöreyndir: Birgöir af kindakjöti og mjólkurafuröum, sem flytja þarf útá þessu ári, kalla á viöbótar út- flutningsuppbætur, umfram þaö sem ákveðiö er í lögum, sem nema rúmlega 5.0 miljöröum króna. Fáist þessi viðbótarfjár- hæö ekki jafngildir þaö þvi, aö tekjutap bænda verði 1.2 miljónir króna á hvert bú I landinu.Tekju- tap þetta myndi samsvara um 30% tekjuskerðingu hvers bónda, miöaö viö áætlaöar meöaltekjur, sem reiknaö er meö samkvæmt lögum. Þaö er meö öllu þýöingarlaust fyrir formann Sjálfstæöis- flokksins og þá aöra þingmenn flokksins, sem honum fylgdu aö gera sig svo heimska, aö þeir hafi ekki vitaö um þessar staöreyndir. Auövitaö vissu þeir hvaö þeir voru aö gera, enda voru þær birgöir af landbúnaöarvörum, sem hér var um að ræöa, allar orönar til i stjórnartiö Sjálf- stæöisflokksins, eöa voru bein af- leiöing af þeirri stefnu I land- búnaöarmáium, sem þá rikti. Þau 5500 tonn af dilkakjöti, sem nú þarf aö flytja út á einu ári, eru vegna birgöa, sem safnast höföu I tiö rikisstjórnar Geirs Hallgrims- sonar og vegna þeirrar slátrunar, sem fram fór á s.l. hausti. Þaö birgöa-vandamál veröur ekki leyst meö fóöurbætisskatti né kvótakerfi, né neinni breytingu á stefnu i landbúnaöarmálum. Þaö er hins vegar annaö mál, aö stefnunni þarf aö breyta vegna komandi ára. Birgðirnar af mjólkurvörum eru tilkomnar á sama hátt. Smjörfjalliö myndaöist i stjórnartiö Geirs Hallgrims- sonar, þegar innaniandssalan á smjöri dóst jafnt og þétt saman. Þaö er aö neita staöreyndum og þora ekki aö horfast i augu viö veruleikann, aö neita aö fást viö birgöa-vandamáliö. Þvi vanda- máli má ekki blanda saman viö nýja stefnumörkun i framleiðslu- málum landbúnaöarins, sem vissuiega er nauösynlegt aö taka upp. Ný framleiðslu- stefna Þvi miöur hefir þaö mikla vandamál landbúnaöarins, sem hér hefir verið rætt um, þ.e.a.s. umframbirgöir landbúnaöar- vara, sem nú veröur aö flytja út og sem fara langt fram úr lög- bundnum útflutningsbótum, veriö blandaö saman á óheppilegan hátt viö tillögur um nýja fram- leiöslustefnu 1 landbúnaöi. Tillögur, sem fram hafa komiö um fóöurbætisskatt og um kvóta- kerfi, geta átt rétt á sér. Um þær eru þó mjög skiptar skoöanir, bæöi hvaö varöar réttlætti og ekki siöur hvaö varöar væntanleg, eöa likleg áhrif. Augljóst er þó, hvaö sem þeim ágreiningi llöur, aö taka veröur upp aukiö skipulag i land- búnaöarframleiöslu. Sauöfjár- rækt á ekki alls staöar jafnmikinn rétt á sér. Hún er nú stunduö um- fram þaö sem eölilegt má telja á sumum stööum á landinu og þurfi aö draga úr þeirri framleiöslu i heild, þá á aö draga úr henni i kaupstööum og kauptúnum, m.a. meö þvi aö undanskilja þá fram- leiöslu frá útflutningsbótum og niöurgreiöslum. Mjólkurfram- leiösluna veröur lika aö skipu- leggja. Til eru svæöi á landinu, þar sem hana þarf aö auka, en jafnljóst er aö einnig eru til svæöi, þar sem um offramleiöslu er aö ræöa, miöaö viö markaösaöstæö- ur nú. Vegna þess, aö landbúnaöar- framleiösluna þarf aö skipu- leggja, höfum við Alþýðubanda- lagsmenn lagt þaö til i mörg ár, aö horfiö yröi frá núverandi 6- manna-nefndar fyrirkomulagi, þar sem um er aö ræöa þurra og einskoröaöa veröákvöröun, og þess i stað teknir upp beinir ... óverjandi var meö öliu, aö bændur yröu látnir taka á sig 30% tekjutap, vegna umfram- birgöanna, og þeirrar stefnu I landbúnaöarmáium og efnahags- málum, sem hér hefur rikt.” samningará milli bænda og rikis- valdsins um verölagningu búvara og um hagsmunamál bænda- stéttarinnar og um leið um stefn- una I landbúnaöarmálum. ,,Sá sem ber höfuöábyrgöina á einstæöri framkomu Sjálfstæöis- flokksins i þessu máli, er for- maöurinn, Geir Haligrimsson.” / Abyrgðarleysi Sjálfstæðis- flokksins Ég hygg aö þeir séu fáir, sem undrast andstööu Alþýöuflokks- ins, sem fram kom viö afgreiöslu tillögunnar um þriggja milljaröa lánsheimildina. Sá flokkur hefir æst sig upp i fjandskap viö bænd- ur. Þar er ekki einvöröungu um aö ræöa áhrif frá kenningum Gylfa Þ. Gislasonar. Ræöur Sig- hvats Björgvinssohar, formanns þingflokks Alþýöuflokksins um landbúnaöarmál á Alþingi, bera þess vitni, aö hann er ekki aðeins illviljaöur bændum, heldur meö fádæmum fáfróöur um allt, sem aö landbúnaði lýtur. Frá Alþýöu- flokknum var þvi einskis góös aö vænta, þegar um vandamál land- búnaöarins var aö ræöa. En afstaöa Sjálfstæöisflokksins heföi átt aö vera önnur. Sá flokk- ur telur sig oft málsvara bænda og i þeim flokki eru ýmsir bænd- ur, og m.a. á Alþingi. Ég vil lika taka þaö skýrt fram, aö þegar ég deili hér á framkomu Sjálfstæðisflokksins, þá eiga þær ádeilur ekki viö Pálma Jónsson á Akri, Eggert Haukdal og Friöjón Þóröarson. Þessir þingmenn sýndu meö afstööu sinni aö þeir vildu ekki fylgja ábyrgöarlausri afstööu flokksins. Pálmi gat þvi miður ekki veriö viö endanlega afgreiöslu ábyrgöartillög- unnar.en afstaöa hans haföi kom- iö fram i landbúnaðarnefnd og i umræðum um máliö á þingi. Sá sem ber höfuöábyrgöina á einstæöri framkomu flokksins i þessu máli, er formaðurinn, Geir Hallgrimsson. Hann virtist hafa forystu fyrir flokksmönnum sinum og lét kalla einstaka þingmenn út úr salnum, þegar þeir geröur sig liklega til að sitja áfram og gegna þingskyld- um slnum. Afsakanir Geirs Hall- grimssonar og flokksmanna hans fyrir þessu tiltæki, eru litils viröi og aumkunarlegar. Hann hefir reynt aö halda þvi fram, aö það hafi verið ábyrgöarleysi aö sam- þykkja rikisábyrgö fyrir þessu láni án þess aö fyrir lægi hvernig ætti að endurgreiöa lániö, eöa að fyrir lægi, hvernig ætti aö afla tekna til aö greiöa lániö, ef ábyrgðin félli á rikiö. Hér er um auman fyrirslátt aö ræöa, sem bezt sést á þvi, aö sjálfur haföi hann fyrr á þinginu greitt atkvæöi, eins og margir aörir Sjálfstæöismenn, meö til- lögu frá Pálma Jónssyni og Eggert Haukdal um þetta sama efni. Sú tillaga var þannig: ,,A árinu 1979 er heimilt aö leggja fram nauðsynlegt fé úr rikissjóöi til þess aö greiöa fyrir sölu á óverötryggðri framleiöslu búvara á þessu verölagsári og birgöum búsafurða sem til eru i landinu, þegar lög þessi öðlast gildi.” 1 þessari tillögu Pálma og Eggerts var i rauninni gengiö lengra en í hinni umdeildu ábyrgöarheimild, þvi beinlinis átti að greiöa úr rikissjóði það sem til þurfti. Þegar þessi tillaga lá fyrir þurfti Geir Hallgrimsson ekki að spyrja um hvernig ætti að afla tekna vegna útgjaldanna og þá þurfti ekki aö spyrja um, hvort bændur gætu borgaö. Tillaga þeirra Pálma og Eggerts var felld vegna þess, aö hún var fléttuö saman viö aörar tillögur varöandi landbúnaö og vegna þess aö vitaö var aö rikis- sjóður gat ekki tekið á sig allar þessar greiöslur, nema meö nýjum tekjustofni. Tillagan um lántöku á vegum Framleiösluráös var þvi eölilegri eins og á stóö. Afsakanir Geirs Hallgrims- sonar falla allar um sjálfa sig og þar meö einnig sú, aö vafi gæti leikið á hvort greiðslan ætti að fara til bænda eða milliliöa. Tillaga þeirra Pálma og Eggerts geröi ráö fyrir greiöslu til bænda eins og ábyrgöar- tillagan, nema aö þvi leyti sem fram var tekiö 1 ábyrgöartil- lögunni ,,að ráðstöfun lánsins gangi fyrst og fremst til aö tryggja hag efnaminni bænda og þeirra sem hafa meöalbú eða minna.” Astæðan fyrir þessari ábyrgöarlausu framkomu Geirs Hallgrimssonar og flestra þing- manna Sjálfstæöisflokksins var eingöngu sú að fella allt fyrir rikisstjórninni og reyna að æsa enn meir upp I villtasta liði Alþýðuflokksins. Abyrgöarleysiö sem þarna kom fram var af sama toga og þegar Geir Hallgrimsson gerist „tals- maöur láglaunafólks” og ásakar rikisstjórnina fyrir aö „lækka” kaupiö meö niöurgreiöslum og afnámi söluskatts á matvörum. í sambandi viö afgreiöslu þessa máls hefur hart veriö deilt á Steingrim Hermannsson land- búnaöarráöherra og Fram- sóknarflokkinn fyrir málatil- búnaö i landbúnaöarmálum á Alþingi I vetur. Adeilur þessar koma frá Sjálfstæöismönnum og krötum. Um stefnuna i land- búnaöarmálum nú og um langt árabil, gæti ég margt sagt og ekki allt til að hrósa Framsóknar- flokknum, en varöandi afgreiöslu þess máls, sem hér hefir verið rætt, deili ég ekki viö Fram- sóknamenn. Hitt þykir mér I meira lagi ómaklegt og litilmann- legt, þegar einstakir Framsóknarmenn eru aö láta aö þvi liggja, aö tveir Alþýöubanda- lagsmenn hafi meö hjásetu sinni viö fyrri atkvæðagreiösluna um tillögu Stefáns Valgeirssonar og mina o.fl. valdiö þvi, aö máliö náöi ekki fram aö ganga. Hér er ranglega skýrt frá og mjög hlut- drægt. Þaö er rétt, aö tveir þingmenn Alþýöubandalagsins i neöri deild, sátu hjá viö fyrri atkvæöa- greiösluna, vegna þess, aö þeir vildu fá þaö skýrt tekiö fram, aö viöbótarfjármagni yröi ekki skipti beint eftir framleiöslu- magni til bænda, heldur yröi tekiö tillit til þarfa bænda, þannig að þeirbændur yröu mest aðstoöaöir sem mesta hafa þörfina. Þetta sjónarmiö er i fullu sam- ræmi viö megintillögur þess frumvarps, sem um var aö ræöa og flutt var af landbúnaöarráö- herra. Viö siöari atkvæöagreiðsluna greiddu allir þingmenn Alþýöu- bandalagsins ábyrgðartillögunni atkvæði.enda var þá skýrt tekið fram um ráöstöfun fjárins. En þvi miöur vantaöi þá 2 þingmenn Framsóknarflokksins viö þá at- kvæöagreiöslu, þá Pál Péturs- son, sem fór noröur i land f miöri afgreiöslu málsins, og Einar Agústsson, sem mætti ekki. Ekki dettur mér i hug að dylgja um afstööu Framsóknarmanna til málsins af þeim ástæöum. Hiö rétta er, aö I þessu tilfelli stóöu þingmenn Alþýöubandalags og Framsóknar saman, þrátt fyrir ágreining um mörg önnur mál og þrátt fyrir, I ýmsum greinum, ólikar skoöanir um stefnuna I landbúnaöarmálum. Það sem hér skipti máli, frá sjónarmiði okkar Alþýðubanda- lagsmanna, var að óverjandi var með öllu, að bændur yrðu látnir taka á sig 30% tekjutap, vegna umframbirgðanna og þeirrar stefnu I landbúnaðarmálum og efnahagsmálum, sem hér hefir rikt. Enn rikir óvissa um hvernig fer með þessi vandamál bænda. Vonandi finnast ráö til aö koma i veg fyrir þaö, aö bændur beri þennan skell — þrátt fyrir ábyrgöarlausa framkomu ihalds og krata. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.