Þjóðviljinn - 02.06.1979, Blaðsíða 19
íþróttír 0 íþróttir
\T J | unsjón: INGÓLFUR HANNESSON
Þessi mynd er frá leik Schalke og Duisburg 11. deildinni vestur-þýsku, sem kallast Bundesliga.
Er þýska knatt-
spyman sú besta?
Alltaf eru nokkrar
umræöur meðal knatt-
spyrnuáhugamanna um
það í hvaða landi besta
knattspyrnan sé leikin og
eru skoðanir ætið nokkuð
skiptar. Þó að Argentínu-
menn séu núverandi
heimsmeistarar segir það
ekki alla söguna, því
félagslið þeirra eru ekkert
Iþróttir
um
helgina
Knattspyrna
Um Hvitasunnuna hefst keppni
i 3. deildinni og þar meö er hægt
aö segja aö knattspyrnuvertiöin
sé byrjuö fyrir alvöru. 28 leikir
eru á dagskrá i dag og 4 á mánu-
daginn, en viö tlundum aöeins
leiki 1. og 2. deildar.
Laugardagur:
Valur — Haukar, 1. d., Laugar-
dalsvöllur kl. 14.00.
KA — IBV, 1. d., Akureyri kl.
16.00
FH — Magni, 2. d., Hafnarf. kl.
15.00
Selfoss — IBI, 2. d., Selfoss kl.
14.00
Austri — Fylkir, 2. d., Eskif. kl.
16.00
UBK — Þróttur, 2. d., Kópavogi
kl. 14.00
Reynir — >ór, 2. d., Sandgeröi kl.
16.00
Mánudagur:
IBK — Vikingur, 1. d., Keflavik
kl. 16.00
Þriöjudagur:
KR — ÍA, 1. d., Laugardalsvöllur
,kl. 20.00
Frjálsar íþróttir
Um helgina veröur Reykja-*
vikurmeistaramót þeirra yngstu
(stúlkur/drengir/telpur/piltar)
og fer keppnin fram á Laugar-
dalsvellinum.
Iþróttir í sjónvarpi
1 þættinum I dag veröur golf
meginuppistaöan. Fyrst ber aö
nefna FIAT-keppnina, sem fram
fer á ttaliu ár hvert. Einnig
veröur stutt mynd frá meistara-
keppni áhugamanna I golfi á
Italiu og þar var sveit frá Islandi
meöal keppenda. Okkar menn
höfnuöu i 16. sæti. Loks eru
myndir frá EM I fimleikum
kvenna og veröa allar aöalstjörn-
urnar á skjánum I dag.
I ensku knattspyrnunni var j
ætlunin aö sýna leik úr bresku |
meistarakeppninni, en þess I staö j
veröur leikur á milli WBA og i
Wolves.
sérstök að getu og fáir
halda því fram að þar sé
leikin sú knattspyrna, sem
só'st er eftir.
A öllum timum hafa komiö upp
mjög góö landsliö eöa félagsliö,
sem hafa náö frábærum árangri I
skamman tima og nægir þar aö
nefna ungverska landsliöiö upp úr
1950, sem vann marga frækilega
sigra. Hér á landi hefur oftast
veriö litiö á England, sem mestu
og bestu knattspyrnuþjóö heims-
ins. Vist er þaö satt, aö þar er
áhuginn mestur, en I alþjóölegri
keppni hafa Englendingar ekki
skaraö framúr aö ráöi. Reyndar
uröu þeir heimsmeistarar 1966,
en siöan kom mikil lægö og er þaö
ekki fyrren á siöutu árum aö rofa
fór til. Undantekningin á framan-
sögöu er aö sjálfsögöu hiö frá-
bæra liö Liverpool, sem stóö sig
hvaö best þegar landsliöinu gekk
hvaö verst.
1 Vestur-Þýskalandi álita
margir aö sé aö finna bestu knatt-
spyrnuna og rennir margt stoöum
undir þá skoöun. Vestur-Þjóö-
verjar uröu heimsmeistarar 1974
og siöan hefur gengi landsliös
þeirra og félagsliöa veriö meö
ólikindum gott. Llklega hefur
ekkert landsliö unniö eins marga
sigra i keppni hinna bestu og þaö
þýska. Eins og allir vita gekk
þeim ekkert sérlega vel á HM i
Argentinu, en þar lágu ýmsar
orsakir aö baki t.d. aö allar stóru
stjörnurnar s.s. Beckenbauer,
Miiller, Overath o.fl. voru hættir
aö leika m eö landsliöinu og þeirra
skörö tókst ekki aö fylla.
Gengi félagsliöanna þýsku
hefur einnig veriö mjög gott i
Evrópukeppnum undanfarinna
ára, en árangur þeirra hefur aldei
veriö eins góöur og nú I ár. I
undanúrslitum hinna þriggja
Evrópukeppna voru 5 v-þýsk liö
af 8 og eitt þeirra sigraöi
(Borussia Mönchengladbach i
UEFA-keppninni). Fyrir utan
þessi 5 liö eru mörg, sem ekki eru
slöri aö getu, t.d. Hamburger og
Stuttgart, en um þaö liö hefur
Hennes Weisweiler, þjálfari i
Köln, sagt: „Eftir fáein ár mun
Stuttgárt veröa besta liö
Evrópu,” Þetta getur þó breytst
þar sem þjálfari Stuttgart, Jurg-
en Sundemann, hefur ákveöiö aö
hætta hjá liöinu. Liö eins og 1 FC
Keisersluten, Köln, Eintracht
Frankfurt og Bayern Munchen
munu ekki láta sitt eftir liggja á
næstu árum og hyggja á stóra
hluti. Þannig er ekki annaö fyrir-
sjáanlegt en aö vestur-þýsku liöin
bæti enn viö góöan árangur i
Evrópukeppnum á næstu árum.
Hvaö gerir gæöi knatt-
spyrnunnar i Vestur-Þýskalandi
svo mikil? Hér væri hægt aö
tiunda margt, en aöeins minnst á
þaö atriöi sem hvaö þyngst vegur.
Hér er um aö ræöa uppbyggingu
þjálfaramálanna, sem er i mjög
föstum skoröum. Til aö fá 1 stigs
réttindi þurfa þjálfarar aö dvelj-
ast á skólabekk i 14 daga og aö
baki æöstu gráöunni liggur 6
mánaöa samfleytt nám. Þarna er
allt samkvæmt hinni marg-
rómuöu þýsku nákvæmni.
Munurinn á vestur-þýskri
knattspyrnu og t.a.m. Islenskri og
enskri felst einkum I taktiskara
og hraöara spili. Þá leika öll
þeirra liö meö svokallaöan
„sweeper” eöa sópara, nokkuö
sem fótboltaáhugamenn einir
skilja. Einnig er nokkuð mikiö
lagt upp úr dekkun maöur-á-
mann. I allri starfsemi yngri
flokkanna ku meira vera lagt
uppúr kennslu en keppni, nokkuö
sem er þveröfugt fariö hér á
landi.
Spurningunni i fyrirsögninni
hefur enn ekki veriö svaraö, en
margt bendir til þess aö þaö svar
veröi aöeins á einn veg. —IngH
m mammmmmmm m mmm—mmmmmam m mmmmmmmmmm m mmmmmmmmmm m mmmmmmmmmmmm ■ tm^mmamm ■ mmm
\ Hvalreki
Sá knattspyrnumaöur, sem
hvaö mest hefur veriö fjallaö
um á Iþróttasiöum dagblaöanna
undanfariö er án efa Pétur
Pétursson, sem nú leikur meö
hollenska liöinu Feyenoord. Nú
geta menn ekki einungis lesiö
um kappann þvi Sjónvarpinu
hefur borist leikjasyrpa úr hol-
lensku knattspyrnunni og þar
leikur Pétur aöalhlutverkiö.
Aö sögn Bjarna Felixsonar
mun vera um aö ræöa 5-6 min.
bút og eru á honum 3 leikir meö
Feyenoord, gegn Go Ahead,
Ajax og Roda. Pétur kemur
mjög viö sögu I þessum leikjum
og aö sögn Bjarna vildi hann
kalla þetta Péturs þátt Péturs-
sonar.
Ætlunin er aö sýna þessar
svipmyndir i Iþróttaþættinum á
þriðjudagskvöldiö og aftur á
laugardaginn 9. júni vegna þess
aö margir Skagamenn munu
fylgjast meö 1A leika gegn KR á
þriöjudagskvöldiö.
Þetta eru gleöitiöindi fyrir
iþróttaáhugamenn þvi sjaldan
gefst tækifæri til þess aö full-
vissa sig um aö orðstir strák-
anna, sem erlendis leika, á viö
rök aö styöjast.
IngH
Laugardagur 2. júnl 1979 iÞJÓÐCILJINN' — StÐA 19
e^,Vager
Tjöld — Tjaldhimnar
5 manna tjöld á kr. 52.250
3 manna tjöld á kr. 37.700
Hústjöld frá kr. 51.900
2ja manna tjöld með himni á kr. 30.400
Sóltjöld frá kr. 6.800
Tjaldhimnar á flestar gerðir tjalda.
Tjalddýnur, bakpokar og allt annað í útileguna.
AAikið úrval af sólbekkjum og sólstólum.
Póstsendum
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Eyjagötu 7, Örfirisey
Reykjavík - Símar: 14093 og 13320
mí
Kópavogskaupstailur Itl
Starfsmaður óskast
Kópavogskaupstaður óskar eftir
starfsmanni til þess að stjórna malbik-
unarvél og útlögn malbiks og oliumalar
i Kópavogi.
Reynsla við slik störf æskileg.
Umsóknir sendist til Bæjarverkfræðings
Kópavogs fyrir 15. júni n.k.
Bæjarverkfræðingur.
Æskulýðsbúðir í Þýska
alþýðulýðveldinu
Eins og undanfarin sumur bjóðum við i ár
unglingum á aldrinum 12-14 ára til dvalar
i æskulýðsbúðum i DDR.
Dvalartimi er 10. júli til 4. ágúst 1979,
dvalarstaður Bad Saarow.
Þátttakendur greiða ferðakostnað en
dvalarkostnaður er ókeypis. íslenskur
fararstjóri. Börn félagsmanna ganga
fyrir.
Upplýsingar gefur: Monika Ágústsson,
simi 74374.
Félagið ísland-DDR
UTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i lagningu dreifikerfis i Keflavik 6.
áfanga. útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu Hitaveitu Suðurnesja, Vesturbraut
10 A, Keflavik,og á Verkfræðiskrifstofunni
Fjarhitunh.f. Álftamýri 9 Reykjavik gegn
kr. 20.0000 skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja,
fimmtudaginn 7. júni kl. 14.