Þjóðviljinn - 02.06.1979, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. júnl 1979
3%-in
Framhald af bls. 4
örorkubótum. Ég næ ekki þeim
sósíalisma sem segir aö vfsitölu-,
þak á hátekjur sé ósósfalisk að-
gerð. Sá sósialismi sem ,ég hef i
huga er að tryggja þetta almenna
fólk á þessum lágu launum meö
algjöran forgang. Ef menn ætla
að stuðla að launajöfnuöi eða
launajafnrétti þá sér hver maöur
aö þetta er höfuðverkefni. Þetta
er skýr og ákveðin stefna.”
Aukin fri til
farmanna
Þjóöviljinn: En hvaða afstöðu
hefur þú til deiiu yfirmanna á
Bókaútgáfan Rökkur
Orðsending
til viðskiptavina úti á landi
Sögurnar sigildu: Alpaskyttan, Saga frá
sandhólabyggðinni og úndina eru allar i
ársritinu Rökkri, en af þvi eru komin 2
bindi, 128 og 112 bls. Fjölbreytt efni, vand-
aður frágangur, mikið lesmál fyrir litinn
pening. Verð kr. 2000,- bæði bindin. Send
burðargjaldsfritt.
Sagan Greifinn af Monte Cristo er aftur á
markaðnum. Endurnýjuð útgáfa i 2 hand-
hægum bindum. Þetta er 5. útgáfa þessar-
ar sigildu sögu. Þýðing Axel Thorsteins-
son.
Allmargar fjölbreyttar sögur á gömlu
verði, Bókaafgreiðsla Flókagötu 15, simi
18768 kl. 4—7 alla daga nema laugardaga.
Bókaútgáfan Rökkur
Flókagötu 15. Simi 18768.Pósthólf 956.
Frá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur
Innritun i framhaldsskóla i Reykjavik.
Tekið verður á móti umsóknum um náms-
vist i framhaldsskóla i Reykjavik dagana
5. og 6. júni næstkomandi i Miðbæjarskól-
anum i Reykjavik kl. 9.00—18.00 hvorn
dag.
Umsókn skal fylgja ljósrit eða staðfest
afrit af prófskirteini úr grunnskóla.
1 Miðbæjarskólanum verða jafnframt
veittar upplýsingar um þá framhalds-
skóla, sem sækja á um þar, en þeir eru:
Armúlaskóli, (viðskiptasvið, heilbrigðis-
og uppeldissvið, fornám),
Fjölbrautaskólinn i Breiðholti,
Hagaskóli (sjóvinnunám,)
Iðnskólinn i Reykjavik,
Kvennaskólinn (uppeldissvið),
Menntaskólinn við Hamrahlíð,
Menntaskólinn í Reykjavik,
Menntaskólinn við Sund,
Vélskóli íslands i Reykjavik.
Verslunarskóli í slands
Umsóknarfrestur rennur út 8. júni og
verður ekki tekið á móti umsóknum eftir
þann tima.
Þeir sem ætla að sækja um námsvist i
ofangreinda framhaldsskóla eru þvi
hvattir til að leggja inn umsókn sina i
Miðbæjarskólann 5. og 6. júni.
Fræðslustjóri.
Hjártkær litli sonur okkar og bróðir,
Einar Angantýsson
Kleppsvegi 14,
lést á Landsspitalanum þriðjudaginn 29. mai sl. Jarðar-
förin hefur farið fram.
Hugheilar þakkir öllum sem hafa auðsýnt okkur hlýhug,
sent okkur kveöjur og verið okkur hjálpleg.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki á
Barnaspitala Hringsins.
Megi gæfan fylgja ykkur öllum.
Auður Asgrimsdóttir
Angantýr Einarsson
Halla Angantýsdóttir
Hlynur Angantýsson
Asgrimur Angantýsson
................ ■
kaupskipunum við útgerðarað-
ila?
Guömundur J: „Launa- og
kjaramál farmanna hafa alltaf
verið vandasöm og samningar
flóknir. Verkfallsboðun bar brátt
að og atvinnurekendur áttu sinn
þátt I þvi með þvi að neita þeim
um eðlilegar viðræður. Ég hef
ákveöinn skilning á málefnum
farmanna. Þeir eiga heimtingu á
auknum frijum i heimahöfn
vegna iangrar útivistar. Mér
finnst aö rlkisvaldiö ætti að hlut-
ast til um aö tekiö yrði tillit til
slikra réttlætiskrafna farmanna.
Að ööru leyti held ég að far-
mannadeilan verði torleyst vegna
þess að hún er mjög flókin.”
Ógæfiilegur
| hrakningur
Þjóðviljinn: Nú hefur verka-
lýðshreyfingin gagnrýnt þaö
mjög að launamismunur hefur
farið vaxandi siðustu vikurnar.
Hvaö viltu segja um þessa þróun
og afskiptaleysi ríkisstjórnarinn-
ar af henni?
Guðmundur J.: „Það er svo
| ógæfulegt að rikisstjórnin skuli
! láta sér detta i hug aö synja al-
I mennu launafóiki um 3% grunn-
kaupshækkun við núverandi að-
stæður að von manns um að hún
sjái að sér er harla veik. Nánast
skilst manni á Alþýöuflokknum,
sem ég trúi þó varla að sé endan-
leg afstaða, að verkalýðsfélögin
eigi að heyja hatramma baráttu
fyrir jafn sjálfsögðum hlut og að
verkafólk fái nú 3% með lögum.
Þetta er svo ógæfulegur hrakn-
ingur frá upphaflegum stefnu-
miðum stjórnarinnar að maður á
ekki orð yfir það. Að ætla sér að
sniðganga láglaunafólk með að
neita 3% kauphækkun til allra, að
sýna það ekki i verki meö visi-
töluþaki aö þeir launahæstu verði
aö biöa meðan verið er að tryggja
þá neðstu, og að setja ekki þak á
verðhækkanir, það er fyrir neðan
allar hellur. Meö þvi að aöhafast
ekkert er beinlinis verið aðstefna
að vaxandi launamismun. Auö-
vitað hefði átt að fara að jafnrétt-
is- og kjarajöfnunarkröfum Al-
þýöubandalagsins I rlkisstjórn og
setja bráðabirgöalög til þess að
verja upphaflega launajöfnunar-
stefnu stjórnarinnar nú þegar”.
Peningavaldið
bíður fœris
Þjóðviljinn: Hvert er mat þitt á
framhaldinu?
Guðmundur J.: „Það er ef til
vill von til þess að rikisstjórnin
sjái að sér. En ef hún ætlar að
tefla málum ýt i harövitugar
vinnuddeilurþá munenginn grát-
ur verða I herbúðum atvinnurek-
enda eöa svartasta peningavalds-
ins á Islandi. Þeir sjá frgmundan
rikisvald i sinum höndum: Þessu
Islenska peningavaldi gengur
ákaflega illa að sætta sig við að
hafa ekki rikisvaldið uppá vas-
ann. Það fólk sem kaus þessa rik-
isstjórn ætlaðist alls ekki til þess
að hdn stefndi beint í það aö af-
henda svartasta afturhaldinu I
landinu rikisvaldið.
Og ef menn halda að með nýrri
rikisstjórn komi dýrðardagar þá
er þaö misskilningur. Þegar pen-
ingavaldið verður búið að ná
stjórnartaumunum i sinar hendur
þá verður ailri visitölu af launum
samstundis svipt af ogfylgt fram
einni stórfelldustu réttindaskerö-
ingu sem yfir hefur duniö. Þaö
ástand sem nú er að myndast
skapar grundvöll fyrir þvi. Og
það mun peningavaldið siöur en
svo gráta.”
— e.k.h.
Vilhjálmur
Framhald af bls. 1
ESSO gæti hlaupið þarna I skarð-
ið, en það reyndist ekki unnt.
„Ég held aö það sé þvi útilokað
fyrir okkur að ætla að fara að
hlaupa eitthvað á milli, eins og
ástandið er I heiminum,” sagði
Vilhjálmur. „Ég held aö við þurf-
um einmitt aö leggja áherslu á að
hald'a öllum þeim viðskiptasam-
böndum sem viö höfum. Margir,
Sem mest þurfa á að halda, fá
ekki oliu nú.”
Um ástæður hinnar miklu verö-
hækkana áoliusagði hann, aö þar
munaði mest um skort á hráoliu.
tran hefði dregið úr framleiösl-
unni sem næmi 10% og iðnrikin
ifs'ÞJÓSLEIKHÚSIfl
STUNDARFRIÐUR
Annan i hvitasunnu kl. 20,
föstudag kl. 20
A SAMA TIMA AÐ ARI
fimmtudag kl. 20
Fáar sýningar eftir.
Miðasala lokuð i dag og hvita-
sunnudag.
Veröur opnuö kl. 13.15 2. hvita-
sunnudag.
Gleðilega hátlð.
heföu samþykkt að draga úr oliu-
notkun, Bandaríkin t.d. um 5%,
en ekki væri staðið við það.
Bandarlkin nota þriðja hluta allr-
ar þeirrar oliu, sem dælt er uppúr
jörðinni og I könnun sem nýlega
var gerö þar meöal almennings
kom fram, að 69% aðspurðra
sögðuað nógolia væri til, enstóru
oliufélögin væru að búa til skort
til þess að græða sem mest.
„Meðan fólkið trúir þessu, held ég
að ekkert verði gert,” sagði Vil-
hjáimur.
„Þaðliggur alvegljóst fyrir, að
flutningsgjöldin i samningunum
við Rússa eru mjög hagkvæm.
Við fluttum helmingi minna
magn til landsins frá
Vestur-Evrópu sl. ár og leigðum
til þess skip á frjálsum markaöi.
Fyrir þetta borguöum við álika
mikið og fyrir það sem flutt var
frá Sovétríkjunum, sem var
helmingi meira,” sagði Vilhjálm-
ur.
Sovétmenn veita 105 daga
greiðslufrest á oliunni, sem flutt
er til tslands, og vextir eru lágir,
eða 2,5%. Vilhjálmur sagði þetta
hagkvæm kjör. Vlðast annars
staöar væri veittur mánaðar
greiðslufrestur vaxtalaust.
Algengast er að birgðir séu hér
á landi til tveggja eða þriggja
mánaða.
Vilh jálmur sagði aö nú væri svo
komiö, að gsolía til flutningsskipa
væri dýrari á Noröurlöndum og i
Vestur-Evrópu en hér á tslandi.
Verðið hér er nú 103 kr. kótrinn,
en i fyrradag kom tilkynning um
aðveröiði nálægum löndum væri
allt aö 110 kr. litrinn.
-eös
Pipulagnir
Nylagnir, breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin)
l.EIKFF.lAC<^a^
.RFYKlAVlKlÍR^ "F
ER ÞETTA EKKI MITT LÍF
7. sýn. þriöjudag uppseit
Hvit kort gilda
8. sýn. miðvikudag uppselt
Gyllt kort gilda
9. sýn. fimmtudag kl. 20.30
Brún kort gilda
10. sýn. iaugardag 9/6kl. 20.30
STELDU BARA MILLJARÐI
föstudag kl. 20.30
Allra siðasta sinn
Miðasala I Iðnó lokuð
laugardag, sunnudag og
mánudag; opið þriðjudag kl.
14-20,30 simi 16620.
Viðskiptavinir
athugið:
SÍMANÚMER
okkar eru:
á
aðalskrifstofunni
Suðurlandsbraut 4
38100
í
olíustöðinni
Skerjafirði
11425
í
smávörudeildinni
Laugavegi 180
81722
Olíufélagið
Skcljungur h.f.
Aðalfundur útgáfu-
félags Þjóðviljans
Aðalfundur Útgáfufélags Þjóð-
viljans hefur verið boðaður og
verðurhann haldinn þriöjudaginn
12. júni 1979.
Aðalfundurinn veröur haldinn
að Grettisgötu 3 og hefet kl. 17.
Fundarboð verður sent félags-
mönnum meö bréfi ásamt úr-
dráttum úr reikningum blaðsins.
Minnum á mið-
st j órnarf undmn
Miöstjórn Alþýðubandalagsins
hefur verið kölluö saman föstu-
daginn 8. júnl að Grettisgötu 3.
Fundurinn hefst kl. 17 á fóstudag
og verður fram haldið á laugar-
dag.
A dagskrá miðstjórnarfundar-
ins eru fjórir liðir. Svavar Gests-
son heldur framsöguræöu sem
hann nefnir „Vegamót I stjórnar-
samstarfinu”. Hjörleifur
Guttormsson hefur framsögu um
iðnaðar- og orkumál. Þá verður
rætt um flokksstarfið og loks er
liðurinn önnur mál.
alþýöubandalagið
Tilkynning til styrktarmanna Alþýðubandalagsins.
Styrktarmenn ABL eru vinsamlega minntir á að greiöa giróseðlana
fyrir mánaðamótin. — Alþýðubandalagið.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
FLOKKSFÉLAGAR
Nú liður að aðalfundi og enn eru nokkrir, sem ekki hafa greitt félags-
gjöld fyrir árið 1978. Hafið samband við skrifstofuna Grettisgötu 3 hið
fyrsta. Opið milli kl. 9—17 simi 17500. — Gjaldkeri og starfsmaður.