Þjóðviljinn - 14.07.1979, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. júli 1979.
MÖÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
CJtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir
úmsjónarmaður Sunnudagsblaös: Ingólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: Úlfar Þorrtióösson
Augiýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón
Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór
Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson. Iþróttafréttamaöur:
Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Ólafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Kristín Pétursdóttir.
Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Slöumúla 6, Reykjavlk, sfmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Hvers konar
niðurskurður?
• Morgunblaðið skrifar á dögunum leiðara um þá
skerðingu kjara sem af olíukreppu og hækkun olíuverðs
leiðir. Nú hef ur blaðiðgef ist upp á því að pata í óðagoti í
ýmsar áttir og þykjast hafa fundið þef af ódýrri olíu —
svo rækilega hefur það hjal verið rekið ofan i leiðara-
höfunda blaðsins. Nú er komið annað hljóð í strokkinn:
Niðurskurður er eina leiðin, segir strax í fyrirsögn leið-
arans.
Sú stefna sem blaðið kýs nú að halda fram er orðuð
með svofelldum hætti: „Olíuhækkunin veldur svo mikilli
útgjaldaaukningu hjá hverri fjölskyldu í landinu að
nauðsynlegt er að draga úr öðrum útgjöldum f jölskyld-
unnar til að hún geti staðið undir þessum nýju útgjöld-
um. Þau útgjöld sem við viljum nú draga úr eru hin sam-
eiginlegu útgjöld". Með öðrum orðum — það á að draga
saman seglin i ríkisbúskapnum eins og það heitir, draga
úr þjónustu við almenning.
• Nú er það svo, að allir geta sameinast í því að vilja
leita uppi eyðslu sem kalla má óþarfa eða hæpna, bruðl
með f jármuni og þar f ram eftir götum, reyna að spara,
hagræða rekstri hjá opinberum stofnunum og fyrirtækj-
um — og þar fram eftir götum. (Morgunblaðið setur
reyndar upp víðsýnisbros í leiðinni og notar tækif ærið til
að hrósa menntamálaráðherra fyrir hans sparnaðarráð-
stafanir.)
• Engu að síður er málf lutningur blaðsins mestan part
afskaplega ódýrt lýðsskrum — sem í leiðinni tengist við
þann háska sem menn gjarna kenna við Glistrup hinn
danska.
• Morgunblaðið veit það ekki síður en aðrir að olíuvand-
inn er miklu stærri en svo, að hægt sé að ráða við hann
með niðurskurðaraðferðum. Blaðið veit ofurvel að gíf-
urlega stór hluti opinbers kostnaðar og útgjalda er fyrir-
fram bundinn — í launum, í lögbundnum framlögum —
og aðóhugsandi er aðskapa pólitískan meirihlutavilja til
að gjörbreyta því kerf i öllu. Blaðið veit ofurvel að ekki
einu sinni þingmenn Sjálfstæðisf lokksins væru til viðtals
um stórfelldan niðurskurð sem skerti verulega framlög
til heilbrigðismála eða skóla eða samgangna eða til elli-
lífeyrisþega. Réttara sagt: Þeir væru kannski hlynntir
slíkum niðurskurði persónulega, en þeir myndu ekki
þora að kannast við það, því að fáir eru þeir sem vilja
fremja pólitíska kviðristu fyrir opnum tjöldum.
• Það er því mjög ábyrgðarlaust hjal hjá Morgunblað-
inu að láta sem að hægt sé að tryggja Jóni og Siggu ó-
breytta einkaneyslu með því að skera niður samneysl-
una, en það er kjarni þess boðskapar sem fólst í fyrr-
greindum orðum blaðsins. Það sem er háskalegt í mál-
f lutningnum er svo það, að blaðið reynir að beita áhrif-
um sínum til að leiða athygli fólks frá jafn raunveruleg-
um vanda og olíukreppan er og telja því trú um að það
verði eingöngu þjónustu ríkisins við þegnana að kenna
ef að menn verða að breyta einkaneyslu sinni vegna
þessarar kreppu.
• Þetta er um leið liður í þeirri herferð sem ungtyrkir
Sjálfstæðisf lokksins hafa að undanförnu farið gegn vel-
ferðarríkinu og því félagslega öryggi sem hefur verið
höf uðkostur þess fyrirbæris. óvart hef ur blaðið leitt at-
hyglina mjög greinilega að pólitísku, stéttarlegu inntaki
kreppuráðstafana. Það verður að sjálfsögðu seint til
vinsælda að standa að kreppuráðstöfunum, og verða
ýmsirti! aðgagnrýna verkalýðsf lokka fyrir það á þeirri
forsendu að það sé ekki í þeirra verkahring að bjarga
auðvaldinu. En stef na þeirra Morgunblaðsmanna hlýtur
að beina til sömu gagnrýnenda þeirri spurningu, hvort
það sé ekki skylda slikra f lokka að gera allt sem unnt er
og neyta þá stjórnaraðstöðu til að hrinda þeim árásum á
samneyslu og félagslegt öryggi alþýðu, sem hægrisinnar
vilja nota kreppuna til.
Hvað gerir
það til?
Fróöleg saga sem lýtur aö
fjölmiölun, upplýsingastriöi og
fleiri hlutum merkilegum, var
okkur sögö og heimildarmaöur
krossaöi sig I bak og fyrir og sór
aö hún væri sönn.
Sagan segir, aö nokkrir Heim-
dellingar hafi veriö á fundi
saman og rætt meöal annars
skrif Morgunblaösins um olíu-
málin. Þeir voru ekki vel hress-
ir yfir þeim skrifum. Þeir töldu
að alltof margar staöhæfingar
heföu veriö reknar ofan i blaö
sitt elskulegt um þetta mál, og
höföu af þvi áhyggjur að þetta
mundi leiöa til álitshnekkis.
A fundinum var staddur einn
Morgunblaðsmaöur og var
hvergi banginn.
Hann sagði að þetta geröi ekki
mikiö til. Aðalatriðiö er, sagöi
hann, aö lesendur blaösins fá
hvort eö er ekki önnur viöhorf
en þessi til aö melta.
Frekari athugasemdir eru
óþarfar.
Afstœðiskenning
~ Það er lika fróölegt og upplýs-
andi aö fylgjast meö þvi, hvern-
ig Morgunblaðið skrifar um ein-
staka ráðherra Alþýöubanda-
lagsins.
Einn daginn rýkur blaðiö til
dæmis upp meö óhljóðum og er
Ragnar Arnalds oröinn verstur
manna vegna þess að hann hafi
látiö fram fara nokkurn sparnaö
i skólakerfinu. Blaöinu fannst
að þarna væri vegið að blessuö-
um börnunum, sem eiga allt hiö
besta skiliö.
Fáum dögum sföar hefur
blaöiö fundið þaö út af hyggju-
viti sinu, að niöurskuröur hjá
þvi opinbera sé lausn alls vanda
(sjá leiðarann hér viö hliöina).
Og þar meö er sá sami bersynd-
ugi menntamálaráöherra orö-
inn jákvæö persóna, munar
minnstu aö hann fái rós i
hnappagatið.
Nokkuð gott
Ýmisleg hliöstæö dæmi mætti
rekja af skrifum blaösins um
Svavar Gestsson. Nema hvaö
Svavar veröur fantur, fúlmenni
og handbendi Rússa hvaö sem
hann segir eöa gerir: hvort
hann talar viö Rússa um olíu-
mál eöa ekki, hvort þeir eru
samningafúsir eöa setja upp
þverúöa rkryppuna.
Enginn gerir svo Mogga llki. Sem betur fer.
Enginn gerir svo öllum lfki
segir aöalpersónan i austur-
lenskri sögu. Hann haföi á vixl
veriö kallaöur niskur, makráö-
ur, dýraplagari eöa sonarnið-
ingur allt eftir þvi hvort hann
gekk á undan asna sinum, tvi-
mennti á honum meö syni sin-
um, sat asnann einn sjálfur eöa
lét son sinn bera asnann með sér
á leið til markaðar.
Viö getum hinsvegar komist
að þeirri niöurstööu aö enginn
ráöherra Alþýðubandalagsins
geti gert svo Morgunblaðinu
liki. Þaö er út af fyrir sig nokkuö
gott.
Sœly ó hve sœl...
Manni finnst á islenskum
fjölmiölum um þessar mundir,
aö þeim finnist fátt um fina
drætti i þjóölifinu. Tónninn i
umræöunni mætti draga saman
með þeim fleygu oröum: illt er
þaö allt og bölvaö, skitt veri
með þaö og svei þvi. Og svo er
þessi andskotans kuldi. Og
þessi djöfuls rigning.
Tilbreyting má þaö heita, aö
heyra lof og pris um tilveruna,
en til að svo megi verða, neyö-
umst við til aö fara yfir pollinn.
Viö flettum upp í ársfjóröungs-
ritinu Islenski Kanadamaöur-
inn, sem kemur út á ensku þar
vestra og finnum aö vestur-
heimsk sjálfumgleði getur veriö
söm viö sig, þótt öld sé liöin frá
þvi að Amerikuagentar hvöttu
menn til landflótta sem mest
þeir máttu. Greinarkorn það
sem viö höfum i huga heitir
„Lof um veturinn i Manitoba.”:
„Veturinn i Manitoba leiöir
engar skelfingar yfir ibúa fylk-
isins. Þeir búa i hlýjum húsum
og labba sig inn i hlýja bila. Yfir
hverju eru menn að kvarta?
Ekkert getur veriö meira
hressandi eöa kætandi en að
moka snjó á köldum og björtum
sólskinsdegi, eöa viö fullt tungl
aö kvöldi. Loftiö er sem finasta
fransmannavin sem rennur svo
ánægjulega um þig allan. Þaö er
sem hvislaö sé lágum rómi: En
sá unaöur aö vera til. „O aö
vera i Manitoba á vetrartiö”...
A slikum timum finnst okkur aö
viö ökum um á Cadillacskýi.
Mikiö kennir okkur I brjósti um
ykkur, aumingjarnir, sem búiö
annarsstaöar. Þið vitiö ekki af
hverju þið missið-”.
Þaö skal tekiö fram, að þetta
er bersýnilega skrifað i fullri
alvöru. The Icelandic Canadian
er ekkert gamanblað. Við
mælum sérstaklega meö Kádil-
jákskýinu — það er alveg
óborganlegt á þessum merku
orkumálatimum. -áb
THE ICELANDIC CANADIAN
A quartcrly publishcd by The Icclandlc Canadian, WinnipcK, Manitoha
MAGAZINE BOARD:—--------------
EDITORS: Wilhclm
Winnipcg R3G IG9;/I
(775-6123); Anlius ls|
Maraldur Bessason, 31
R3M 3P2; NelsonGerr]
8 - 796 Wolseley Ave!
R3T 3NI; Anna Martei
Joan Parr, 102 Qucenstol
2M4; Gissur Eliasson, 8r
SECRETARY OFTHE
BUSINESS AND ADVEl
R3G 2Y7.
Editorial and ncws corrc!
concemed. Subscríptions
REPRESENTATIVE IN l<
Subscríption rate, $8.(X) _
Gift Subscríptions. Thrce or
.,CS OV V7 Wolscky Avc..
,N VRS'®1' „ INT' R ,„rots fot Vinnipcg R3G 2J7
OO ltlT. ;n VG IJ5; Profcssor
• 'TVieY - Vn St.. Winnipeg
TV-p íAan'l° r .Wp OtOV'nCe‘ VJV\at's ImcGunnarsson.
‘n . „nc ot ** „,Anú cats- wg \Fort Richmond
the dett'xen p \nV> ^^-.vúng, can Vpeg R3C 3H3;
lhe Ligo«ling . coW, c'c". en *e 1
\ W“’n'PC8,
the Úncs * ••Whal úxkurcyn
saYvn6'
a\tvS
ViV-e
p\easat
SV\U
ecsias%
*er'neto»t'i
ntly iW0U6h ^ere s
srw" vo,c';...,
) "e
•OígJÍ
be «>
I
Ógn er gott aö vera til.
Dagvistarstofnanir
fyrir 85-90 börn
Borgarráö samþykkti nýlega nægja þörfinni. Hann sagöi aö vegna sumarleyfa en ljóst væri aö
aö taka tveimur tilboðum i erfitt væri aö segja til um hversu þörf fyrir dagheimilispláss væri
byggingar leikskóla og dagheim- mörg börn væru á biölistum núna nú einna mest I gamla bænum.
ilis viö Fálkabakka og Iðufell I þar sem mikil hreyfing væri .ká
Breiöholti.
Lægstu tilboðin komu frá óöni
M. Jónssyni i dagheimiliö við
Fálkabakka 148,8 miljónir kr. og
frá Byggingafélaginu Einingu
143,6 miljónir i leikskólann við
Iöufell.
Framkvæmdir munu hefjast
fijótlega, en á þessum dagvistar-
stofnunum veröur pláss fyrir 85-
90 börn.
Aö sögn Bergs Felixsonar hjá
dagvistunardeild borgarinnar eru
nú 526 leikskólapláss og 169 dag-
heimilispláss i Breiðholtinu, en
það dugar hvergi nærri til ab full-
íslenskir tónleikar í Tívolí
Siöast liðið fimmtudagskvöld
voru islenskir tónleikar i
Tónleikahöllinni i TIvoli i Kaup-
mannahöfn. Þar léku þau Guðný
Guðmundsdóttir konsertmeistari
og Halldór Haraldsson pianó-
leikari islensk og erlend verk. A
dagskránni voru nýtt verk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson tileinkaö
Guðnýju, konserteftir Jón Nordal
tónverk eftir danska tónskáldiö
Carl Nielsen, Kreutzersónatan
eftir Beethoven og Tzigane eftir
Ravel.
Margir Islendingar lögðu leið
sina í Tónleikahöllina þetta kvöld,
þar var margt um manninn og
tónlistinni vel tekið.
Ferðalangur sem staddur var
þarna þetta kvöld sagði, að það
hefði glatt sitt hjarta að hlusta á
þau Guðnýju og Halldór og
kvöldiöheföi verið þeim tilsóma.
—ká