Þjóðviljinn - 14.07.1979, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. júll 1979.
Götín í kerfínu
Níu mánaða ráðning hjá ríki og bæ
Þegar samið er um kaup og
kjör við atvinnurekendur eða riki
og sveitafélög gerist það oft að
ýmsir smáhópar yerða út undan
og gleymast vegna þess að þeir
eiga enga fulltrúa i samninga-
nefndum, eða þá að smá göt
myndast í kerfinu semerfitter aö
sjá við.Þannig erutil hópar innan
stórra stéttarfélaga sem ekki
njóta félagslegra réttinda og eru
settir út á guð og gaddinn ef eitt-
hvað bjátar á.
Hjá riki og bæjarfélögum er til
fyrirbæri sem nefaist 9 mánaða
ráðning. HUn felur i' sér að fólk er
ráðið til vinnu á haustin, en siðan
sagt upp á vorin. Þetta viðgengst
i skólum landsins og bitnar á
ræstingakonum, riturum,
gangavörðum, kaffikonum og
baðvörðum.
Þessir hópar tilheyra mismun-
andi stéttafélögum, starfsmanna-
félögum rikis og bæja og verka-
lýðsfélögum eins og Framsókn i
Reykjavik ogEininguá Akureyri.
Njóta ekki félags-
legra réttinda
Afleiðing þessarar ráðningar er
sú að þetta fólk nýtur ekki ýmissa
félagslegra réttinda eins og veik-
indafris yfir sumarið, fæðingar-
orlofs eða atvinnuleysisbóta. Það
sem er þó hróplegast er að það
vinnur við hlið kennara og annars
starfsfólks i skólum sem er fast-
ráðið og fær laun allt árið.
Þessi réttindaskerðing gildir
ekki um alla, þvi nokkur stéttafé-
lög hafa reynt að fylla upp i göt-
in. Starfsmannafélag rikisstofn-
ana hefur tryggt hag sinna fé-
lagsmanna, eftir að ung konakom
að máli við félagið fyrir tveimur
árum og sagði sinar farir ekki
sléttar. Hún hafði unnið sem
starfsmaður i Hliðaskóla við að
leiðbeina fötluðum börnum og var
sagt upp um vorið samkvæmt 9
mánaða ráðningunni. Þá átti hún
von á barni og stóö uppi án fæð-
ingarorlofs og launa yfir sumar-
ið, enda þótt hún heföi unnið hjá
rikinu árum saman. Eftir að
þetta dæmi kom upp var samið
um að tryggja hag starfsmanna
rikisins, en ekki hafa náðst sömu
réttarbætur fyrir bæjarstarfs-
menn og ræstingakonur i skólun-
Þrír mánuðir
án launa
Þjóðviljinn haföi samband við
skrifstofu Framsóknar-i Reykja-
vik og spurðist fyrir um stöðu
kvenna sem vinna við ræstingar
og kaffið.
Þar var staðfest að konurnar
eru ráðnar til 9 mánaða og munu
vera 400-500 konur sem i hlut eiga.
Þær þurfa þó ekki að sækja um
vinnu á hverju ári eins og áður
tfðkaðist, heldur eru þær ráðnar
sjálfkrafa. Einnig er þeim boðið
upp á að vinna viö hreingerningar
i einn mánuð, þannig að það eru
tveir til þrir mánuðir sem þær eru
án launa. En — i flestum tilfellum
vinna þær ekki nógu mikið til aö
njóta atvinnuleysisbóta og þær fá
ekki fæðingarorlof.
Þetta er ekki
jafnrétti
Þá ræddi blaðamaður við ræst-
ingakonu i' Vogaskóla og spuröi
hana hvort þær væru ánægðar
með þessi kjör.
— Auðvitað erum við ekki alls
kostar ánægðar- sérstaklega get-
ur orðið bagalegt að njóta ekki
fæðingarorlofs, sem allar konur
eiga skilyrðislaust rétt á. í okkar
hópieru flestarorönar fullorönar,
og o kkur veitirekki affriii' tvo til
þrjá mánuði. Auk þess eiga flest-
ar maka sem vinna lika fyrir
heimilinu og þvi verður ekki
bjargarþurrð þó aö við fáum ekki
laun um tlma, hins vegar er það
ekki jafnrétti að aðrar stettir
skuli fá laun allt árið, en við ekki.
Þaöerunokkrar konursem vinna
viðræstingar sem sjá einar fyrir
heimili og börnum, en þær hafa
aðra vinnu meðfram, þvi það lifir
enginn á ræstingum einum saman
þó að þær séu tiltölulega vel borg-
aðar.
— Hafið þið ekki barist fyrir
fastráðningu?
— Ekki get ég sagt það. Það
hefur verið rætt um það, en kon-
urnar voru flestar á móti þvi. Þær
vilja vera lausar og hafa fri og
voru hræddar um aö þess yrði
krafist að þær ynnu allt árið. Svo
hefur Reykjavikurborg verið liö-
leg við þær konur sem mega ekki
viðtekjutapi; þærhafa fengist við
gæslu á leikvöllujuim á sumrin og
fleira sem til fellur.
Akureyri: Þar fá
þær bœtur
Til að kanna ástandiö i öörum
bæjarfélögum hringdi blaðamað-
ur til Akureyrarog ræddi við Karl
Jörundsson launa- og skólamála-
fulltrúa bæjarins.
Hann sagöi að sama gilti hjá
þeim nyrðra og annars staðar,
nemahvað þar hafa konurnar það
stór verk, að þau nægja til að þær
öðlist rétt til atvinnuleysisbóta
þann tima sem þær vinna ekki við
ræstingar. Karl sagði að i samn-
ingum Einingar væri ákvæði sem
tryggði þeim veikindafri fram-
yfir þann tima sem þær vinna i
skólunum. A Akureyrieruum þaö
bil 50 ræstingakonur i skólunum,
og sagði Karlað þau vottorðsem
hanngæfi útá hverjuárisýndu að
konurnar nytu bóta og að þær
notfærðu sér þær ef þær fengju
ekki aðra vinnu.
Ár eftir ár
sami leikurinn
Þá eru það karlmennirnir og
þeirra kjör. 1 öllum skólum borg-
arinnar eru dyra-, ganga- og bað-
veröir sem heyra til þessum hóp
sem er sagt upp á hverju vori.
Þjóðviljinn rasddi viö Halldór
Guðnason dyravörð i Árbæjar-
skóla um aðstöðu þeirra.
— Hvað hefurðu unnið lengi
sem dyravörður?
— Ég er búinn að vinna sam-
tals 12 ár i Arbæjarskóla, og ár
eftir ár endurtekur sig sami leik-
urinn, manni er kastaö út eftir 9
mánuði. Það þýðir að ég fæ engin
laun i þrjá mánuði.
— Hvernig hafið þið brugðist
við þessu hingað til?
— Við höfum yfirleitt fengið
ikkur vinnu þennan tima, en nú i
ír bregður svo viö að ég hef enga
vinnu fengið. Það kemur sér afar
illa, þvi' ég er að greiða af ibúð og
poli alls ekki að vera tekjulaus
>vona lengi.
— Fáið þið ekki neina aðstoð,
:.d. atvinnuleysisbætur?
Nei hreint ekkineitt. Það er nú
;vona, það er mikið af fullorönu
'ólki i þessum störfum og það
þorir ekki að mótmæla eða berj-
ist af ótta við að vera sagt upp.
Ákveðin tregða
hjá fólkinu
Hjá Starfsmannafélagi Reykja-
vikurborgar fengust þær upplýs-
ingar að verið væri að vinna að
málum þessa hópssem er um 200
manns og vonandi tækist að
tryggja réttindi þeirra á næst-
unni. Það væri stefna félagsina að
allt fólk yrði fastráðið og fengi
laun allt árið. Það gætti ákveö-
innar tregðu hjá starfsfólkinu
sjálfu, þvi margir vildu halda fri-
inu.
Enn var könnun blaðsins haldið
áfram, og hjá fræösluskrifstofu
Reykjavikur svaraöi Hafdís
Gisladóttír þvi til, að reynt væri
að aðstoða alla þá starfsmenn
borgarinnar sem vildu fá vinnu
yfirsumarið, þeir fengju starf við
afleysingar i sundlaugunum og á
leikvöllunum, en i sumar hefði
gengið heldur erfiðlega aö útvega
vinnu m.a. vegna lokunar Sund-
hallarinnar og sparnaðar hjá
borginni.
Það er þvi ljost eftir viðræður
við fjölmarga aðila, aö ákveðinn
hópur fólkssem vinnur hjá borg-
inni nýtur takmarkaðra réttinda,
en svo virðist sem bæjarfélögin
úti á landi hafi séð við þessum
leka. Þegar kreppir að eins og nú,
koma götin i kerfinu i ljós. Enda
þótt margir taki þvi fegins hendi
að eiga fri' yfir sumarið, þá ættu
allir launþegar að njóta fullra
réttinda og fá laun allt árið. Það
er réttlætiskrafa.
— ká
um.
t skólum borgarinnar vinna milli 400 og 500 konur við að þrifa ganga og
stiga sem þennan. Myndin er úr Austurbæjarskólanum.
1 öllum skólum borgarinnar vinna gangaverðir, bað- og dyraverðir
ásamt ræstingakonum niu mánuði á ári — og er sagt upp á hverju vori.
Myndin er tekin utan við Austurbæjarskólann.
abriel
Höggdeyfar
eru gæöavörur
G .S • varahlutir
Armúla 24 Sími 3-65-10 \ — Reykjavík tí J
Hrafnlsta Revkjavík
Hjúkrunardeildarstjóri óskast frá 1. októ-
ber, einnig vantar hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða á ýmsar vaktir.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i
sima 38440 og 35262.
Blaðberabíó
Hafnarbió, laugardaginn 14. júli kl. 13.00
DRAUGASAGA
Spennandi mynd um ævintýri á gömlum búgarði
Aðalhlutverk: Harry Andrews
íslenskur texti.
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI53468