Þjóðviljinn - 14.07.1979, Page 9

Þjóðviljinn - 14.07.1979, Page 9
Laugardagur 14. júli 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Hvernig má sporna við EINKA- BÍLISMANUM? Fimmtungur þess dýr- mæta gjaldeyris sem landsmenn láta renna í olfuhítina á þessu ári er goldinn fyrir bensín. Rúm- lega þrettán miljarðar króna. Fyrir það er áætlað að landinn fái 102 þús. tonn af bensíni. Bróðurpartur- inn af þvi er gleyptur af blikkbeljunni, einkabíln- um. Á þessu ári eru 77 þús. fólksbílar í landinu. Næsta ár verða þeir yfir 81 þús. talsins. Árið 1985 verða þeir um 100 þús. Óðfluga nálgumst við það mark að eiga eina fólksbifreið fyrir hverja tvo íbúa. Einkabílisminn vex Þaö er margt i nútimanum sem stuölar að fjölgun bila, og sifellt vex fjöldi hinna svokölluðu „tveggja bila fjiflskyldna”. þessa liggja ýmsar örsakir. Til Aukin velmegun a stóran patt í vaxandi bilaeign. Dreifing byggð- ar og auknar fjarlægðir milli heimilis og vinnustaða kalla á fleiribila. Siðast en ekki sist eiga lélegar almenningssamgöngur stóra sök á vexti einkabilismans. Fleiri minni háttar ástæður má tina til. Vegakerfið er betra en áður, fjöldi þeirra sem taka bil- próf vex jafnt og þétt og allt hvet- ur þetta til aukinnar bilanotkun- ar. Þá má nefna að viðleitni kon- unnar til að brjóta af sér ok karla- samfélagsins hefur leitt til auk- innar þátttöku þeirra i atvinnulif- inu, en það hefur svo skapað fleiri „tveggja bila fjölskyldur” og stuðlaö á annan hátt að þvi að ýta bilaeigninni upp á við. Blaöauki um orku- sparnað Manngjöld — fjárútlát Hugsar nokkur um það, hversu mikill gjaldeyrir er goldinn fyrir alla þessa bila? Eða hve stór hluti af útflutningstekjum Islendinga fer i kaup á eldsneyti sem einka- billinn svelgir? Lætur nokkur hugann reika til þeirra sem árlega verða fyrir timabundnum áföllum, örkuml- ast eða deyja fyrir aldur fram vegna slysa sem einkabillinn veldur? Nei, sennilega láta fáir sig varða hugsanir af þvi tæi, þegar þeir þjóta milli staða I flosmjúku sæti undir stýri einkabilsins. Úrræði Hinn svokallaöi einkabilismi á stóran þátt i þeirri sjálfheldu sem oliuverðshækkanirnar eru að koma Islendingum i. Við getum þó notað ýmis ráð til að sporna við óheillaþróuninni, losa okkur sem mest viö einkabilinn og spara um leið dýrmætt eldsneyti sem senn gengur til þurröar. 1. Við getum reynt að ganga sem mest milli vinnu og heimilis. Þaö er heilsusamlegt auk þess sem það sparar okkur fé og landsmönnum gjaldeyri. 2. Viö getum hjólað. 3. Viö getum reynt aö samnýta betur einkabilana. A hverjum degi streyma þús- undir manna úr úthverfunum inn I bæinn til vinnu. Nokkrum timum seinna fer þetta sama fólk heim aftur. Þetta endur- tekur sig á hverjum degi, árið um kring. Flestir aka einir i bil sinum, og að meðaltali mun um 1,35 einstaklingur vera i bil Hversvegna ekki að slá sér saman við nágrannana og skiptast á aö fara á bilnum til og frá vinnu? Eða vinnufélag ana ef þeir búa ekki langt frá? Fyrir utan hinn geysilega orkusparnað sem af sllku hlyt- ist yrði þetta fyrirkomulag lika miklu skemmtilegra. 4. Við getum lika reynt að hafa bilinn alltaf i þannig ástandi að eldsneytiseyðsla sé i lágmarki Agætar ráðleggingar um það er að finna hér i blaðinu. 5. Við getum reynt aö nýta al menningsvagnana miklu beturi en við gerum i dag. I þvi felst langmesti orkusparnaöurinn Þetta er það atriði sem allir verða að reyna að bæta I fram tiðinni, og knýja á um bætur á strætisvagnakerfinu og teng ingu þess við nágrannabyggð arlögin. — ÖS Blaðaukar Þjóðviljans um orkusparnað Á tímum olíuskorts og sívaxandi oliu- verðs ríður á miklu, að menn fari sparlega með þennan dýrmæta orkugjafa. Takist landsmönnum ekki að minnka notkunina verulega, er hætt við að alþýða manna sæti verulegum búsif jum, þegar skortsins verð- ur vart fyrir alvöru. En hvernig má spara orku og olíu? Til þess eru ýmsar leiðir, sem hver og einn getur viðhaft. Til að benda mönnum á handhægar sparnaðaraðferðir hefur Þjóð- viljinn ákveðið að gefa út nokkra blaðauka um orkusparnað. Þessi blaðauki er hinn fyrsti. Sviðsljós- inu er beint að bílanotkuninni, og hvernig hægt er að spara í rekstri bíla. Jaf nf ramt er getið ýmissa nýjunga sem munu í framtíð- inni draga verulega úr bensinnotkun bíla hér og annars staðar í heiminum. Á næstunni mun Þjóðviljinn svo gefa út fleiri blaðauka, sem munu f jalla um orku- og olíusparnað í híbýlum manna og at- vinnuvegum landsmanna. —öS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.