Þjóðviljinn - 14.07.1979, Síða 13
Laugardagur 14. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Þegar leitað er leiða til
að stemma stigu við óhóf-
legri bensíneyðslu má
ekki horfa fram hjá þeim
möguieika, að með vali á
sparneytnum bílategund-
um er hægt að minnka
eyðsluna mjög. Tökum til
dæmis tvo bila, Blaser og
Fíat, til samanburðar.
í.
Átta strokka, nýr, sjálfskipt-
ur Blaser eyöir aO jafnaOi ekki
undir 22 litrum á hundraöiö.
Miöaö viö aö meöalakstur Is-
lenskra bifreiöa er talinn vera i
kringum þrettán þúsund km. á
ári, þá eyöir þessi Blaser um
2S60 litrum á ári.
2.
Fiatlús, sem eyöir ekki nema
um 7,5 litrum á hundraöiö og ek-
ur þrettán þúsund km einsog
Blaserinn, eyöir þá einungis 975
litrum af bensini.
Maöur sem selur Blaserinn
sinn og kaupir sér Fiat sparar
um 1885 litra af bensini. Ef þús-
und manns sem eiga Blaser eöa
bila sem eyða jafn miklu skipta
yfir i Fiat, sparast hvorki meira
né minna en tæpar tvær miljón-
ir bensinlitra. Ef tiu þúsund
manns skiptu yfir, sparaði þaö
tæpar tuttugu miljónir litra af
bensini á ári. Þaö myndi þýöa
um tveggja miljaröa sparnaö i
gjaldeyri, sem ella væri kastaö i
benslnhitina.
— ÖS
Eigandi bíls, sem eyðir 22 I
á hundraðið þarf árlega að
greiða um 900 þús.krónur
að meðaltali fyrir bensín
Eigandi bíls, sem eyðir 7,5 I
á hundraðið þarf árlega að
greiða um 300 þús. krónur
að meðaltali fyrir bensín
pnmi pnni
| IoínI mWww \/iKt£niæ/a SIUU tamtammm
Hjólið
er gott
og
fljótt
farar-
tceki
Ég hjóla ekki af neinni hugsjdn
og ekki I heilsubótarskyni,heldur
einungis vegna þess aö ég tel hjól-
iö gott og fljótt farartæki innan-
bæjar, sagöi Steingrimur Pálsson
fulltrúi i fjármálaráöuneytinu I
samtali viö ÞjóövUjann, en hann
hefur undanfarin dr hjólaö dag-
lega I vinnuna og segist vera orö-
inn svo háöur þessu farartæki aö
hann fari ekki milii húsa, nema á
hjóli.
Steingrimur á heima á Asvalla-
götu og vinnur viö Sölvhólsgötu.
Steingrfmur Pálsson: Ég hjóla hvorki af hugsjón né I heilsubótarskyni. Hjóliö er einfaldlega ,,prakt-
Iskt” og „effektift” farartæki (Ljósm.: eik).
Steingrím
f úlltrúa í f
Ég á nú ekki bil, segir hann, en
begar ég hjóla fram hjá bllum I
Iangri lest I miöbænum og smýg
alls staðar á milli sé ég aö ég er
miklu fljótari aö hjóla i vinnuna
heldur en ef ég væri á bíl.
Ég tel aö hjólreiðamaður eigi
oröiösama rétt og gangandi maö-
ur, þvi aö á gangstéttunum er
mjög litil umferö og oliu- og ben-
sinæturnar eru þvi fegnastar að
hjólreiöamenn haldi sig á gang-
stéttunum. Þær eru miklu hrædd-
ari viö okkur en viö viö þær. Ég
hjóla lika einstefnuakstursgötur I
báðar áttir eins og ég væri gang-
andi maöur, segir Steingrlmur.
Þegar ég fer Ur vinnunni hjóla
ég Ingólfsstræti og niöur gang-
stéttina viö Hverfisgötu, fer yfir
Kalkofnsveg og Hafnarstræti á
gangbraut, siðan beint yfir Lækj-
artorg, eftir Austurstræti og
Austurvelli, Kirkjustræti, Suður-
götu og oftast upp Kirkjugarðs-
stlg. Ef mikil umferö gangandi
fólks er á Lækjartorgi og göngu-
götunni i Austurstræti leiöi ég
hjóliö þar. Helstu hömlurnar fyr-
ir hjólreiðamenn eru gangstéttar-
kantarnir og mætti vlöa afrúnna
þá.
Steingrimur segir aö bllstjórar
séu yfirleitt tillitssamir viö sig I
umferðinni og hjóli hann t.d. oft
Hafnarstrætiö og niöur allan
Laugaveg og fari þá oftast fram
úr flestum bilum.
Um þaö hvort ekki sé erfitt aö
hjóla I Islenskri veöráttu segir
Steingrimur aö þaö hafi komiö
fyrir sig i fyrsta skipti i vetur, aö
hann hafi orðið aö leggja hjólinu I
nær þrjá mánuöi vegna snjóa, en,
þaö hafi ekki gerst áöur.
— Fara fleiri ráðuneytisstarfs-
menn á hjólum i vinnuna?
— Þorsteinn Geirsson skrif-
stofustjóri fjármálaráöuneytisins
fer oft á hjóli I vinnuna og hann á
heima úti á Seltjarnarnesi, og
eins veit ég að Magnús Pétursson
I Hagsýslustofnuninni er oft á
hjóli, segir Steingrlmur aö lokum.
— GFr