Þjóðviljinn - 14.07.1979, Side 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. júll 1979.
I DAG M.A.
„Konunni er kennt
ad hún sé betur komin
i forsjá annarra”
— segir Svava Jakobsdóttir, alþingisma&ur og rithöfundur I
Heigarblaösviötalinu. Svava segir meöal annars: „Þaö var
„Blýhólkurinn” sem geröi mig aö Alþýöubandalagskonu”.
^Það halda allir
að maður
sé kúlturkommi’
— ef fulloröinn maöur sést á reiöhjóli”, segir Helgi Skúli
Kjartansson, stjórnarmaöur i Félagi áhugamanna um hjól-
reiöar, i vi&tali viö Helgarblaöiö.
Kvikmyndagerð
i Borgarfirði
Helgarblaösmenn brug&u sér i Borgarfjöröinn i vikunni til
aö fylgjast meö kvikmyndatökum, en þar er nú veriö a& kvik-
mynda Óöal feðranna.
,,Eg er meiri
Islendingur en Skoti”
— segir Mik Magnússon, blaöafulltrúi, m.a. Iléttu spjalli viö
Helgarblaöiö.
Er Wings
hljómsveit áratugarins?
Kristján Róbert Kristjánsson fjallar um hijómsveit bitils-
ins sifrjóa, Paul McCartneys.
p»t komin l
Ræktaðu garðinn þinn
Handbók um trjárækt eftir Hákon Bjarnason
bækur
Hákon Bjarnason hefur um
áratugaskeið staöið i fylkingar-
brjósti íslenskra skógræktar-
manna. t fyrstu var sú fylking fá-
liðuð en hún hefur stöðugt fariö
stækkandi og vaxið ásmegin með
ári hverju. Hefur þar mestu um
valdið óþrjótandi elja og dugnaö-
ur Hákonar við að boða þjóðinni, i
orði og verki, trú á möguleika
skógræktar á tslandi.
Þvi er ekki að neita að sumum
hefur stundum fundist trúboð Há-
konar meir mótast af vinnu-
brögðum sr. Þangbrands en Þor-
valdar frá Giljá. Það hygg eg þó,
að hann hafi reynst skemmtileg
og heillavænleg blanda af þessum
mönnum báðum. Og þegar Hákon
litur yfir farinn veg má hann vera
ánægður með lifsstarfið. Sjálf-
sagt hefur hann ekki séð alla sina
drauma rætast fremur en aðrir
menn. En hann hefur mun oftar
unnið sigur en beðið ósigur. Hann
hefúr sýnt og sannað trú sina i
verki. Og þegar saga islenskrar
skógræktar verður rituð, viðskul-
um segja eftir svona 100 ár, mun
nafn hans skipa þar mikið rúm og
verðugt.
Þótt Hákon Bjarnason hafi nú
látið af störfum sem skógræktar-
stjóri fer þvi fjarri að hann sitji
auðum höndum. Nýlega er t.d.
komin út eftir hann bók, sem
nefhist „Ræktaðu garðinn þinn”,
leiðbeiningar um trjárækt. Ann-
ast Iðunn útgáfuna. Höfundur
tekur það fram i formála fyrir
bókinni, að henni sé ætlað að
fjalla um trjárækt en ekki skóg-
rækt. Er þar einhver munur á?
kann einhver að spyrja. Hakon
svarar þvi sjálfur þannig að trjá-
rækt ,,er stunduð til skrauts og
skjóls á takmörkuðu landsvæði.
Henni er ætlað að vera hýbýla-
prýði og til hvildar og afþreying-
ar þeim, sem hana stunda”. Með
skógrækt aftur á móti er „stefnt
að framleiðslu viðar, vatnsmiðl-
un, gróður- og jarðvegsvernd, svo
að nokkuð sé nefnt”.
Bókin fjallar, i stuttu en ljósu
máli, um öll þau meginatriði sem
þeim, er stunda trjárækt, er
nauðsynlegt að kunna skil á. Upp-
hafskaflinn greinir frá sögu trjá-
ræktar á íslandi. Siðan er lýst 28
tegundum lauftrjáa, 17 tegundum
barrviðar og 24 runnategundum,
sem unnt er að rækta i islenskum
görðum. Skýrt er frá þeirri
reynslu, sem fengin er af inn-
flutningi ýmissa erlendra trjáa-
og runnategunda og bent á nauð-
syn þess að velja þær tegundir til
ræktunar i görðum, sem best
hæfa islenskum aðstæðum. Leið-
beint er um gróðursetningu trjá-
plantna, grisjun, hirðingu og upp-
eldi, næringarþörf, gerð þeirra og
lifi. I lokin koma svo skýringar á
nöfnum trjáa og bókaskrá.
Hér er ekki rúm til að rekja efni
bókarinnar svo, sem þó væri vert
en fullyrða má, að á betri hand-
bókeiga þeirekki völ, sem stunda
trjárækt á Islandi.
Nokkrar teikningar prýða bók-
ina, gerðar af Atla Má. Oddi h.f.
sá um prentun.
— mhg
Island er um miðbik
Evrópumótið
Frá þvi að við skildum við
landsliðið okkar i siðasta þætti,
hefur þetta gengið svona upp og
ofan hjá liðinu. Við skulum lita á
úrslit leikja:
tsland-Sviþjóð: 10-10
Island-Austurriki: 1-19
Island-Tyrkland: 20-0
Ísland-Frakkland: 16-4
Island-Spánn: 18-2
Island-Danmörk: 2-18
yfirseta: 12 stig
ísland-ttalia: 6-14
tsland Irland 3-20
ísland-Bretland: 8-12
Og eftir 18 umferðir hefur lið-
ið 178 1/2 stig og er i 13. sæti
(föstudag).
Heldur missa okkar menn
flugið undir lokin, en við sterka
er að eiga. Tap á móti Dönum
er nokkur nýlunda á Evrópu-
mótum, þvi yfirleitt höfum við
borið sigur úr býtum. Sex stigin
á móti Italiu er ágætur árangur,
þvi þeir eru með mjög gott lið.
En stórtapið á móti Irlandi er
slæmt, þó þeir hafi oftast unnið
okkur. Irar virðast hafa á að
skipa mjög góðu liði á mótinu,
enda komið langmest á óvart.
Naumt tap á móti Bretum er á-
gætis árangur, og ætti að ylja
Dönum og Norðmönnum, sem
keppa hatrammri baráttu við
þá um 2. — 3. sætið i mótinu.
Frakkar og ítalir virðast ein-
göngu ætla sér 1. —■ 2. ætið, en
Pólverjar virðast heillum
horfnir, t.d. töpuðu þeir 0-20
fyrir Finnum i 18. umferð og
hafa 213 stig eftir 18 umferðir. 1
efstu sætum eru:
1. Frakkland 253 stig
2. ítalia 241 stig
3. Danmörk 237 stig
4. Noregur 235stig
5. Bretland 231 stig
6. Irland 230 stig.
Aðrar þjóðir blanda sér ekki i
baráttuna um verðlaunasæti, og
kemur það mikið á óvart, hve
slaklega Sviar, Svisslendingar
og Pólverjar, auk Israela,
standa sig. Allt eru þetta þjóðir
sem hafa verið að gista þetta 1,-
6. sæti undanfarin ár.
1 heild sinni er árangur
islenska liösins sá, sem við var
búist, er það fór héðan. Þáttur-
inn spáði þeim 12.-14. sæti, áður
en keppni hófst, og þeir eru ein-
mitt i 13. sæti nú, er 3 umferöir
eru eftir á mótinu. 1 gær kepptu
Islendingar við Finna og Júgó-
slava, en i dag ljúka þeir
keppni, við sjálfa gestgjafána,
Svisslendinga. Ekki amalegur
endir það.
Liðið er væntanlegt heim á
morgun eða mánudag.
Bikarkeppni Bridgesam-
bandsins
Þættinum er kunnugt um úr-
slit I tveimur leikjum sem spil-
aðir voru fyrir skemmstu:
Sveit Sævars Þorbjörnssonar
Rvk.,sigraði sveit Jóhanns
Kiesels Akranesi nokkið örugg-
lega.
Sveit Páls Askelssonar Isa-
firði, sigraði sveit Georgs
Sverrissonar Kópavogi einnig
nokkuð örugglega.
1 gær fór fram leikur milli
sveita Ingólfs Böðvarssonar
Rvk. og Ingimundar Árnasonar
Akureyri.
A mánudaginn fer fram leikur
milli sveita Sigfúsar Árnasonar
og Vigfúsar Palssonar, beggja
úr Reykjavik. Um aðra leiki er
ekki vitað, en fyrirliðar eru
beðnir um að hafa samband við
þáttinn, er leikjum er lokið, svo
hægt sé að birta úrslit.
Gey siskemmti lega r
keppnir hjá Ásunum...
Mitchell-fyrirkomulagið hjá
Ásunum nýtur mikilla vinsælda,
enda ákaflega hagkvæmt i
eins kvölds keppnum. Keppend-
um hefur likað mjög vel, enda
mikið til sami hópurinn sem
sækir keppnir, þetta 24-30 pör.
Sl. mánudag mættu 25 pör til
leiks, og voru þessi efst:
N-S:
stig
1. Guðmundur Páll Arnarson -
Þorgeir Eyjólfss. 325
2. Guðm. Pétursson —
Sævar Þorbjörnss. 319
3. Guðbrandur Sigurbergs. —
Oddur Hjaltason 310
4. Kristján Blöndal —
Vaigarð Blöndal 285
5. Sigurður Sverrisson —
Steinberg Rikharðss. 272
A-V:
1-2. Jón Þorvarðarson —
Ómar Jónsson 292
3. Stefán Palsson —
Ægir Magnússon 291
4. Jón Þ. Björnsson —
Guðjón Ingi Stefánss. 285
5. Halla Bergþórsd. —
Esther Jakobsd. 282
Keppnisstjóri er Jón Baldurs-
son. Spilað er næsta mánudag.
Væntanlegir keppendur eru
minntir á, að keppni hefst reglu-
lega kl. 19.30. Spilað er i Félags-
heimili Kópavogs, efri sal. Allir
velkomnir.
Góð þátttaka í Hreyfils
húsinu
Að venju er góð þátttaka i
Hreyfils-húsinu, I sumarkeppni
bridgefélaganna i Reykjavik.
Að þessu sinni mættu „aðeins”
32 pör til leiks, en þar á undan
mættu 48 pör til leiks. Dulítið
sveiflukennt, að visu. Orslit sl
fimmtudag urðu þessi:
A-riðill: stig
1. Ragnar Björnsson —
Þórarinn Árnason 274
2. Ingibjörg Haildórsd. —
Sigvaldi Þorsteinss. 265
3. Brandur Brynjólfsson —
Þórarinn Alexanderss. 240
4. Guðjón Kristjánss. —
Magnús Halldórss. 228
5. Anton Gunnarsson —
SvavarBjörnss. 220
6. Sigriður Pálsd. —
Sigrún ólafsd. 218
B-riðill:
1. Magnús Oddsson —
Þorsteinn Laufdal 262
2. Haukur Ingason —
Runólfur Pálsson 245
3. Cýrus Hjartarson —
Hjörtur Cýrusson 236
4 Hannes Jónsson —
Steingrimur Jónass. 233
5. Hrólfur Hjaltason —
Oddur Hjaltason 231
6. Jón Stefánsson —
Ólafur Gislason 223
Keppnisstjóri er hinn siungi
Guðmundur Kr. Sigurðsson.
Keppni hefst reglulega kl. 19.30.
Spilaðer i Hreyfilshúsinu við
Grensásveg. Allir velkomnir.
Sendið inn efni
Þátturinn skorar á bridgeá-
hugafólk að senda inn allskyns
efni, er snertir bridge, til þátt-
arins eða til birtingar i: Spil
dagsins.
Ég trúi ekki öðru en að
skemmtileg spil komi fyrir,
svona annað slagið. Eða smá-
frettirum eitthvað tengt bridge.
Allt þegið.
1-2. Lárus Hermannss.
Sigurður Karlsson
bridge
Umsjón: Ólafur Lárusson
292