Þjóðviljinn - 22.07.1979, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. júli 1979.
Myndartexta
vantar
Nú vantar okkur myndar-
texta enn einn daginn og viö
biöjum menn endilega aö
senda hann strax, þvi viö
fáum alltaf eitthvaö af góö-
um textum, eftir aö þessi
siöa okkar er farin i setn-
ingu. Utanáskriftin er:
„Myndartexti óskast,
Sunnudagsblað Þjóöviljans
Slðumúla 6
105 Reykjavik
Besti textinn viö þessa mynd
hljóöar svo: „Maöurinn lifir
ekki á brauöi einu saman.
Sóknarprestarnir.”
Annar frá Möggu: „Marg-
vislegar eru gjafir þinar
drottinn.” Og loks frá gss:
„Það er annaö hvort skita
eöa harölifi f jarölifi.”
Afkrötum
Ungu mennirnir i Alþýðu-
flokknum eru mjög óánægðir
meö frammistööu Benedikts
Gröndals i embætti utanrikis-
ráðherra og formanns Alþýöu-
flokksins. Telja þeir litinn skör-
ungsskap i gerðum hans auk
þess sem hann sé gamall kerf-
iskall sem passi ekki inn i þá
mynd sem þeir vilja skapa af
nýjum Alþýðuflokk. Er nú haf-
inn töluveröur undirróður i
flokknum til aö koma Benedikt i
embætti sendiherra i Kaup-
mannahöfn til aö losna viö hann
úr fslenskri pólitfk en það er
laust nú I sumar er Agnar Kl.
Jónsson lætur af störfum vegna
aldurs. Fylgir sögunni aö Sig-
hvati Björgvinssyni, formanni
þingflokks Alþýðuflokksins, sé
þá ætlað aö taka viö embætti ut-
anrikisráðherra.
Enn af krötum
Kratar eru allra manna iön-
astir viö aö bera öörum spill-
ingu á brýn. Þeir eru þó ekki
| Að sýna sig og sjá aðra
Um daginn var ég aö ræöa viö
þann fræga mann Sæmund
Pálsson lögregluþjón eöa ööru
nafni Sæma rokk. Viö vorum aö
spjalla um dansferil hans, en
hann hefur nú æft og sýnt dans i
meira en aldarfjórðung en er þó
stöðugt eins og unglamb. Hann
var um tvitugt þegar rokkiö
hreif heimsbyggöina alla við
mikla hneykslun viröulegra
borgara. Þaö var taumlaust út-
brot æskunnar og svar viö
stokkfreðnu kalda striðinu sem
þá var i algleymingi.
Meðal þess sem bar á góma i
samtali okkar voru skemmti-
staöirnir og breytingar á
Reykjavik siðan um 1950. Sæmi
var á þvi aö gagnrýni unglinga
nú til dags á aöstööuleysi til
skemmtanahalds væri á rökum
reist. Nú er tæplegaeinn einasti
skemmtistaöur i Reykjavik ut-
an vinveitingahúsanna og þess
vegna litið tækifæri fyrir ung-
linga milli tektar og tvitugs að
komast á almenna dansstaöi. Á
árunum miili 1950 og 1960 mátti
velja um 8-10 slika staði i
Reykjavik einni og á mörgum
þeirra var mikil skemmtun en
litiö vin.
Ungt fólk sem komiö er á kyn-
þroskaaldur hefur mikla þörf
fyrir að safnast saman til aö
sýna sig og sjá aöra. Mér datt
samtal okkar Sæma i hug þegar
ég fór i kvikmyndahús á mið-
vikudagskvöld. Húsið var troö-
fullt af ungu fólki og liklega var
það flest innan við tvitugt. Sjálf-
sagt hefur myndin sem sýnd var
verið hálfgert aukaatriði hjá
flestum þessara unglinga. Aö
safnast saman meö ööru ungu
fólki var aðalatriöið.
Þarna voru mannalegir og
reistir strákar sem gutu horn-
auga á stelpurnar og borubratt-
ar og hnellnar stelpur flissuöu
og vissu af sér. Skemmtilegast
var i hléinu. Unglingafjöldinn
vingsaði fram og til baka meö
kók og poppkorn og gaf öllu
nánar gætur. Þetta var viröuleg
og eldfim samkunda meö sum-
arilm og stælta kroppa.
Kvikmyndahúsin eru nánast
einu almennu samkomustaöirn-
ir fyrir táninga þar til þeir geta
fyrir aldurs sakir hellst inn i gin
vinveitingahúsanna og drukkið
sig fulla. Flestir hafa þó gert æf-
ingar áður i Þórsmörk, húsa-
sundum um helgar eða niöur i
bæ á 17. júni.
Maðurinn sjálfur er skapari
aöstæöna sinna og þess vegna er
út I bláinn að segja að þetta sé
bara svona. Að visu geta kap-
italistar sagt aö það sé ekki arö-
bært aö reka skemmtistaö fyrir
ungt fólk. Ég held þvi gagn-
stæða fram.
Sæmi rokk var hneykslunar-
hella fullorðna fólksins þegar
hann vaggaöi og valt I æöis-
gengnu rokki fyrir aldarfjórö-
ungi.en hann sagöi mér i sam-
talinu að hann hefði aldrei haft
vin um hönd.
Guöjón
Ég verð
alveg óð...
ef vorið fer ekki að
koma
Konungsveislan 1907 meö tilheyrandi tjaldborg sett á sviö á Þingvöllum.
barnanna bestir einsog nýleg
smásaga sýnir vel. Fyrir dyrum
stendur að skipa fulltrúa Is-
lands i Evrópusjóö Æskunnar,
sem veitir fé til ýmissar æsku-
lýðsstarfsemi i Evrópu. Þessu
starfi fylgja mörg feröalög til
útlanda. Æskulýðsráö rikisins á
aö tilnefna i stööuna.en mennta-
málaráöuneytiöað skipa ihana.
Þegar Æskulýðsráö fjallaöi um
máliö bárust þau boö frá Nielsi
P. Sigurðssyni sendiherra og
núverandi starfsmanni utanrik-
isþjónustunnar, að „Benedikt
Gröndal væri ekki á móti skapi
aö ungkratinn Guðmundur
Bjarnason væri tilnefndur”. En
Guömundur er ásamt fóstbróö-
ur sinum Gunnláugi þingmanni
frægur fyrir bitlingaferöir sinar
til útlanda, og sýnist þarna ætla
að krækja i feitan bita.
Hvort ætli Vilmundargengið
kalli nú Bensa greyið möppu-
dýr, kerfiskúk eða apakött þeg-
ar þaö fréttir þessa misnotkun
hans á stöbu sinni?
Dönsk konwgs-
veisla á
Þingvöllum
Og svo er þaö sagan af túrist-
unum sem fóru á Þingvöll á
dögunum. Þegar leiðsögumaö-
urinn var rétt búinn aö skýra frá
sambandsslitunum við Dani og
sjálfstæðisbaráttu islendinga,
komu feröalangar auga á mikla
danska fánaborg meö tilheyr-
andi tjöldum og viðbúnaði á
völlunum neðan við Almanna-
gjá. Töldu þeir sýnt að nú væri
leiösögumaðurinn farinn að vill-
ast i sögunni, þvi hér var aug-
ljóst verið aö hylla danska kon-
ungsveldið.Það var ekkifyrren
dóttir Laxness, Guöný.birtist og
rak alla túristana i burtu aö þeir
trúöu aö hér væri verið aö kvik-
mynda konungsveisluna i Par-
adisarheimt, en ekki að hylla
núverandi stjórnvöld á Islandi.