Þjóðviljinn - 22.07.1979, Síða 13
12 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN' Sunnudagur 22. júll 1979.
Sunnudagur 22. jiUI 1979. ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 13
Þessar stúlkur sátu úti yfir kaffibolla.
Eiöur Valgarbsson tyllti sér út i sólina.
Sigrún, Orri og Þorri við verk Jóhanns
Eyfells á Miklatúni.
"Á sumrin hef ur listalíf ið í borginni ver-
ið fremur fábreytilegt, en með haustinu
lifnar yfir öllum menningarsetrum og þá
oft á tfðum svo um munar. Þessi sýning er
tilraun til þess að jafna þessi met að ein-
hverju leyti, gefa borgarbúum og ferða-
mönnum, innlendum sem erlendum, tæki-
færi til þess að njóta íslenskrar listar, ein-
mitt á þeim tíma, semKjarvalsstaðir eru í
sumarskrúða."
Svo segir í sýningaskrá Kjarvalsstaða
um „Sumar á Kjarvalsstöðum", en nú
stendur yfir sýning þriggja hópa í húsinu
og við húsið. Við litum við á Kjarvalsstöð-
um og spjölluðum við gesti og heimafóik.
Úti á túni sátu þau
Sigrún Guðmundsdóttir og
Orri og Þorri Jónssynir.
Sigrún er ein „Lang-
bróka", sem sýna inni á
göngum hússins, en hún
hef ur áður sýnt í Stúdenta-
kjallaranum.
„Ahugi á textil er mjög aö auk-
ast og viö sem rekum Galleri
Langbrók finnum greinilega mik-
inn áhuga hjá þeim sem koma inn
i verslunina.” sagöi Sigrún. Hún
nam teikningu og textil i Noregi
eftir aö hafa veriö i handavinnu-
deildinni i Kennaraháskólanum.
„Ég er mjög ánægð meö þá ný-
breytni sem fram hefur komiö i
rekstri hússins i sumar og ég
vona aö þaö veröi áframhald á
henni.” sagöi Sigrún ennfremur.
Vantar borð i garðinn
„Mér list vel á þessa nýbreytni
og ég er spennt aö skoöa sýning-
una hjá Gallerl Langbrók hérna
frammi” sagöi Björg Jónsdóttir
þar sem hún skoöaöi málverkin i
vestursal ásamt Hörpu Kristinu
og Oddgeiri.
„Þaö er gaman aö koma á
svona samsýningar og margt aö
skoöa. Ég bý hérna nálægt og þaö
er tilvaliö aö fá sér gönguferö
hingaö meö börnin. Viö komum
hingaö á Listahátiö barnanna i
vor og mér fyndist aö þaö mætti
vera meira hér af sliku.” sagöi
Björg.
„Fariö þiö oft I garðinn?”
„Já, viö gerum þaö oft og höf-
um þá með okkur nesti. Mér
finnst bara vanta miklu fleiri
bekki. Þaö ætti lika aö koma upp
boröum og bekkjum viöar um
túniö, svo aö fólk geti komiö meö
nesti og boröaö úti viö borö,”
sagöi Björg ennfremur.
Kaffið vinsælast
Eiöur Valgarösson rekur kaffi-
stofuna ásamt Huld Goethe og
við spjölluöum viö hann þar sem
hann sat úti og sleikti sólina.
„Ég set borðin og stólana út um
leið og sést sólarglæta, en þaö
hefur þvi miður ekki veriö oft i
sumar. Þaö er miklu meira lif I
húsinu núna en var, einkum finn-
ur maður mun um helgar. Þaö.
hefur oft verið mjög margt hérna
i vor, en mest var þó aðsóknin á
Listahátíö barnanna. Veðriö
hefur haft sin áhrif á aðrar
samkomur.”
Hvað kaupir fólk helst I kaffi-
stofunni?”
„Kaffið er auövitaö vinsælast.
Annars erum viö aö hugsa um aö
reyna aö hafa opiö I hádeginu og
vera þá meö létta smárétti. Sem
stendur er opiö frá 2 —10 og kaffi-
stofan rekin meö einskonar
sjálfsafgreiöslu”, sagöi Eiöur.
Reyni alltaf að komast á
málverkasýningu
„Ég reyni alltaf aö komast á
málverkasýningar þegar ég kem
i bæinn, en þvi miður stoppa ég
oft svo stutt.” sagöi Þorsteinn
Sigurðsson læknir á Egilsstööum
þar sem hann var aö skoöa mál-
verkin sem „Septem ’79” sýna I
vestursal Kjarvalsstaöa.
„Þaö er gaman aö þessari sýn-
ir.gu. Mér finnst skemmtilegt aö
blanda svona saman málverkum
og skúlptúr. Ég hef alltaf gaman
aö skoöa verkin hans Sigurjóns,
þau eru sifellt aö breytast.”
„Er mikiö um myndlistar-
sýningar hjá ykkur fyrir
austan?”
„Þaö kemur fyrir. Viö höfum
málara i plassinu sem sýnir oft,
hann Steinþór Eiriksson. En
maöur sér meira hér I Reykjavlk,
þótt ég vilji frekar búa fyrir
austan.” sagöi Þorsteinn enn-
fremur.
„Höfum áhuga á framhaldi á
Listahátiö barnanna” — segir
Þóra Kristjánsdóttir
„Yænti samstarfs
við fleiri
listamannahópa”
TEXTI ÞS-MYNDIR EIK OG LEIFUR
„Kjarvalsstaðir eru að
ýmsu leyti mjög skemmti-
legt hús og til margs nýt-
anlegt, ekki síst á sumrin,
þar sem það stendur í þess-
um stóra garði. Mér fannst
því strax þegar ég byrjaði
að það væri tilvalið að fá
hópa til að sýna í sumar og
i samvinnu við stjórn húss-
ins þróaðisthugmyndin um
„Sumar á Kjarvalsstöð-
um" sagði Þóra Kristjáns-
dóttir, listráðunautur
Kjarvalsstaða þegar við
spjölluðum við hana.
og ég á von á aö þaö veröi gert.
Aðalatriöiö meö þetta hús er að
nýta þaö stööugt. Þess vegna höf-
um viö breytt fyrirkomulagi
kaffistofunnar og viö ætlum lika
aö fá fleiri listamannahópa til
samstarfs, bæði leikhúsfólk og
tónlistarfólk og vænti ég mikiis af
þeirri samvinnu.” sagöi Þóra
ennfremur.
— þs
Sem kunnugt er sýna „Septem”-
hópurinn og Galleri Langbrók
nú verk sin i húsinu og nú um
helgina opnar sýning Mynd-
höggvarafélagsins og veröa þá
einnig tónleikar Hamrahliöakórs-
ins og gjörningur framinn. „Verk
myndhöggvaranna veröa bæöi
inni og úti og má segja aö þannig
tengist húsiö viö umhverfi sitt.
Gert er ráö fyrir aö hérna veröi
fleiri gjörningar slðar i sumar.”
„Nú hafa uppákomur eins og
Brúöuleikhúsvika og Listahátlð
barnanna veriö mjög vinsæl.
Ætliö þiö aö halda áfram meö
slikt?”
„Já, viö höfupi mikinn áhuga á
þvi. Hér var brúðuleikhús um siö-
ustu helgi og þaö hafa kviknaö
ýmsar hugmyndir um framhald á
Listahátið barnanna. Þetta þarf
aö vinna i samvinnu viö skólana,
Björg, Harpa Kristln og Oddgeir
skoöa málverkin.
*