Þjóðviljinn - 15.08.1979, Blaðsíða 5
MiOvikudagur 15. ágúst 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Dagskrá Reykja-
víkurvikunnar
Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir
I dag, miðvikudag 15.
ágúst kl. 17-19
er kynnisferð frá Kjarvalsstöðum
til Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Farið verður i strætisvögnum
með leiðsögumanni og m.a. sýnd-
ar nýjar og gamlar aðveitu- og
dreifistöðvar Rafmagnsveitunn-
ar. Ekið verður inn að gömlu Raf-
stöðinni við Elliðaár og gestum
gefið tækifæri til að skoða hana,
en I Félagsheimili Rafveitu-
starfsmanna er sýning á ýmsu
þvi er Rafveitunni viðkemur. Þar
er boðið upp á kaffisopa og félag-
ar i Stangveiðiféiagi Reykjavikur
sýna fluguköst og ýmsan veiðiút-
búnað. Aðgangur er öllum heimill
og ókeypis.
Fimmtudagur ló.ágúst/ kl.
Kjarvalsstöðum, sbr. dagskrána I
dag.
Laugardaginn 18. ágúst
á afmælisdegi Reykjavikur hefst
dagskrá kl. 14 með tslands-
meistaramóti I siglingum i Naut-
hólsvik. Gefst fólki kostur á að
fgra i bátsferð um Skerjafjörð að
Alftanesi.
kl. 15 verða afhent viðurkenn-
ingarskjöl Umhverfismálaráðs
borgarinnar á Kjarvalsstööum.
Veittar verða viðurkenningar
fyrir
1. Fegurstu götu Reykjavíkur
1979,
2. Best umhverfi á vinnustaðog
3. Bestan aðbúnað barna á
ibúðarhúsalóð.
Framhald á 14. siðu
Meistari Kjarval
og músíkin
Sl. mánudagskvöld voru haldn-
ir útitónleikar á Miklatúni i
tengslum við Reykjavikurvikuna
sem þar stendur nú yfir. Lék
hljómsveitin Brunaliðið fyrir á-
heyrendur sem flestir voru á
táningaaldri og kunna vel að
meta þessa tilbreytingu.
Mættu áheyrendur timanlega,
en hljómsveitin hóf hins vegar
ekki tónleikana fyrr en um hálfri
stundu eftir auglýstan tima.
Það er venjulega ekkert vinsælt
þegar slikt kemur fyrir, en að
þessu sinni kom það ekki að sök
þvi unglingarnir eyddu timanum 1
sölum og á göngum Kjarvals-
staða og var augljóst að margir
þeirra höfðu ekki áður barið aug-
um listaverk Kjarvals né önnur
þau verk sem þarna eru nú til
sýnis. A göngum hússins eru verk
félaga úr Galleri Langbrók og
Myndhöggvarafélaginu en i
vestursal sýnir Septem hópurinn.
Mátti merkja af viðbrögðum
krakkanna að þarna höfðu þau
uppgötvað nýjan stað þar sem vel
mætti eyða einni kvöldstund eða
svo. _þ(S.
Nýr fréttaþulur
hjá sjónvarpinu
17-19.30
heldur Þróunarstofnun kynning-
arfund að Kjarvalsstöðum um
vinnu og framkvæmd deiliskipu-
lags tilraunareita I Seljahverfi.
Hér er um að ræða nystárlega
skipulagsvinnu, þar sem væntan-
legir ibúar hverfisins tóku þátt i
að móta umhverfið i heild.
A eftir fyrirlestrum verður far-
ið i skoðunarferð i Seljahverfi.
Föstudaginn 17. ágúst kl.
17-19
verður farið i kynnisferð á vegum
Rafmagnsveitu Reykjavikur frá
Guðmundur Ingi Kristjánsson
hefur verið ráðinn fréttaþulur hjá
Sjónvarpinu frá og með 1. sept-
ember. Tekur hann við starfinu af
Sigurjóni Fjeldsted sem lét af
störfum sl. vor. Hefur siðan ekki
verið karimaður við fréttalestur-
inn.
89 sóttu um stöðuna og var
Guðmundur valinn úr þeim hópi.
Hann er kennari að starfi og mun
halda þvi starfi áfram samhliða
sjónvarpsstörfunum. Hann er
sonur séra Kristjáns Róberts-
sonar sem starfar sem fréttaþul-
ur nja útvarpinu I sumar.
Alþjóðlegur fundur
um endurhæfíngu
haldinn í Heidelherg í haust
Dagana 29. okt. til 2. nóv. 1979
verður haldinn fundur i Alþjóða-
nefndinni um upplýsingaþjónustu
varðandi endurhæfingu. Fundur-
inn verður haldinn I endur-
hæfingarmiðstöðinni fyrir börn
og fullorðna i Neckargemfind
Heidelberg, og verður efni
fundarins þetta: „Upplýsinga-
þjónusta varðandi endurhæfingu'
fyrir þá, sem hafa skerta getu.”
Endurhæfingarráð Sambandslýð-
veldisins Þýskalands og endur-
hæfingarstofnunin i Heidelberg
sjá um undirbúning og fram-
kvæmd fundarins.
A fundinum verður skipst á
skoðunum og reynslu, á alþjóð-
legum grundvelli, og leitað verð-
ur nýrra leiða til að aðstoða þá,
sem hafa skerta getu, til handa
eða hugar, eða eiga við félagsleg
vandamál að strlða. Einkum
verður treyst á aðstoð blaða, út-
varps og sjónvarps.
Auk aðalefnis fundarins, sem
þegar hefur verið sagt frá, veröur
einnig rætt um þessi sérmál:
Framhald á 14. siöu
r,------
I stuttu
máli
V
Þróunarlöndin:
Þrefalt meira til vopna-
kaupa en þróunaraðstoðar
Frá þvi 1955 hefur hlutur
landa þriðja heimsins I vig-
búnaðareyðslu heimsins vaxið
úr 3% I 14%, en svo hátt kom-
ust þau á siðasta ári. Þetta
kemur m.a. fram i árbók
sænsku friðarrannsóknar-
stofnunarinnar SIPRI.
Um það bil 70% af vopnaút-
flutningi I heiminum fer til
rikja þriðja heimsins, sem
eyða þrisvar sinnum meira fé
til vopnakaupa en þau fá f þró-
unaraðstoð.
Þrjú helstu vopnainnflutn-
ingssvæðin voru á sl. ári:
Mið-austurlönd með 47%
vopnakaupanna, Austur-Asia
með 17% og Afrika sunnan
Sahara með 12% af vopnainn-
flutningi.
Aðal vopnasölurikin voru
Bandarikin með 47%, Sovét-
rikin með 27%, Frakkland
með 11%, Italia og Bretland
með 4%.
Olía hækkar enn
í Svíþjóö
Innflutningur Svia á oliu og
oliuvörum verður á þessu ári
um 20 miljarðar sænskra
króna (eða nær 1800 miljaröa
isl. króna).
Þetta er 7 miljörðum eða
rúmlega 50% meira en i fyrra.
Að mati ráðamanna er reikn-
að með enn hærri olíureikningi
árið 1980.
Nýlega hefur olia til húsa-
hitunar verið hækkuð um
meira en 20%. Diesel-olia
hækkaði að sama skapi. Þess-
ar hækkanir fylgdu i kjölfar
annarra fyrr á sumrinu. Auk
þess hafa verið gerðar ýmsar
ráðstafanir til orkusparnaðar,
svo sem 90 km. hámarkshraði
á hraðbrautum, til þess að
auka eldsneytisforða Svia og
draga úr þörfinni fyrir
skömmtun á næsta vetri.
Gengur olíuverð
af Concorde dauðri?
Eldsneytiskostnaður, en
ekki hávaði og hljóðmúrbrot
getur orðið sá þáttur sem
endanlega gengur af hinu lán-
lausa Concorde ævintýri
dauðu. Sá aðili sem annaðist
markaðsmálin varðandi hina
hljóðfráu farþegaþotu, Gor-
don Davidson hjá British Air-
ways sagði fyrir skömmu að
Concorde „yrði liklega tekin
úr notkun innan fárra ára ef
eldsneytiskostnaður heldur á-
fram að hækka”. Ummæli
hans koma i kjölfar frétta um
alvarlegar áhyggjur Frakka
út af gifurlegu tapi Air France
á hljóðfráu flugi.
British Airways spáir hins-
vegar „verulega betri út-
komu” heldur en i fyrra er
tapið á Concorde var 2 miljón-
irpunda, sem er hátt I tvo mil-
jarða. En ef oliuverð heldur á-
fram að hækka mun það koma
mun þyngra niður á Concorde
en öðrum sökum hinnar gifur-
legu eldsneytiseyðslu vélar-
innar.
Gulrótarmenni
framtíðarinnar?
Visindamönnum i Lundi-
hefur tekist að fá fram sam-
runa fruma úr mönnum og
plötnum. Tókst þeim að fá
frumu úr manni til að renna
saman við frumu úr gulrót.
Frá þessu er sagt i timaritinu
Flora och Fauna.
Talið er að þetta varpi ljósi
á eðli krabbameins, eða til
þess munu viðkomandi
visindamenn vonast. Visinda-
mönnunum mun einnig hafa
tekist að fá fram samruna
mannsfruma og fjólufruma.
Samkoma helguð Pétri Pálssyni
í Féiagsstofnun stúdenta v Hringbraut fimmtudaginn 16. ágúst kl. 21
Flutt verða áður óbirt kvæði og sönglög eftir Pétur, m.a. við ljóð eftir Jónas Svafár,
kaflar úr Sköpunarsögu og kafli úr revíu (flutt nú 1 fyrsta sinn)
Sungið verður úr Herfjötri og Sóleyjarkvæði
Ávarp frá miðnefnd SHA
Nokkrir herstöðvaandstæðingar