Þjóðviljinn - 17.08.1979, Síða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. ágúst 1979
Minningarsjóður Victors Urbancic
T ölvusneiðmy ndatækí
keypt til landsins
Fjársöínun stendur yfir
Minningarsjóður dr. Victors
Urbancic hefur ákveðið aðkaupa
hingað til lands rannsóknartæki
sem nefnist tölvusneiðmynda-
tæki, en slik tæki hafa vaidið bylt-
ingu I rannsóknum á heila og
raunar öðrum liffærum. Tæki
þessi eru mjög afkastamikil, en
hins vegar afar dýr. t fyrra setti
sjóðurinn sér það mark að hefja
herferð með fjársöfnun iþessu
skyni, og hafa þegar safnast
360.000 krónur. Skorar sjóðs-
stjórnin á menn að ieggja
eitthvað af mörkum i þessu skyni
og er framiögum veitt mótttaka i
Bókaversiun isafoldar og Bóka-
verslun Snæbjarnar.
í frétt frá Minningarsjóðnum
segir að honum hafi ætið verið
ætlað það hlutverk aö stuðla að
bættri þjónustu við sjúklinga á
sviði tauga- og heilaskurðlækn-
inga. Hefur sjóðurinn á umliðnum
árum m.a. styrkt lækna og
hjúkrunarfólk til sérnáms á þessu
sviði, veitt fé til kaupa á sérfræði-
ritum o.fl. en i fyrra ákvað stjórn-
in að veita fjárhæð sem fyrsta
stofnframlag til kaupa á rann-
sóknartæki, sem á islensku hefur
verið nefnt tölvusneiðmyndtæki.
Var gerð grein fyrir þessu tæki i
fréttaauka útvarps nú fyrir
nokkrum dögum með viðtali við
Auglýsinga-
síminn er
81333
sérmenntaðan lækni, örn Smára
Arnaldsson.
Eins og þar kom fram, hafa
tæki þessi valdið byltingu I rann-
sóknum á heila og raunar fleiri
llffærum ogruttsér mjögtil rúms
erlendis, t.d. i nágrannalöndum
okkar. Tæki þessi eru mjög
afkastamikil, en hins vegar afar
dýr og hefur af þessum sökum
ekki verið keypt slikt tæki hingað
til lands enn sem komið er, en
sjúklingar, sem rannsaka hefur
þurft, orðið að sæta ófullkomnari
rannsóknum hér heima eða fara
til útlanda til rannsókna, sem er
bæði kostnaðarsamt og mikið álaf
á sjúklinginn, sem kunnugt er.
Sjóðurinn setti sér það mark i
fyrra að hefja herferð með
fjársöfnun til að flýta fyrir því, að
þetta þjóðþrifamál komist svo
fljótt i höfn sem kostur er. 1 þvi
skyni veitti stjórn sjóðsins fyrsta
framlag I fyrra, svo sem áður er
rakið, kr. 160.000. en auk þess
söfnuðust kr. 100.000 til viðbótar
þegar i stað meðal velunnara
sjóðsins og almennings. Eru
framlög enn að berast, og má þar
fyrst og fremst nefna myndarlegt
framlag Þjóðleikhúskórsins, sem
dr. Urbanic stjórnaði áður fyrr,
enda er kórinn stofnaðili stofn-
aðili að sjóðnum. Nú i ár hefur
enn verið veitt framlag af fé
sjóðsins til þessa máls kr. 100.000.
En betur má ef duga skal. Hug-
myndin méð þessu framlagi er
fyrst og fremst sú að ýta við bæði
stjórnvöldum og almenningi i
þessu þarfa máli, eins og fram
kom i áðurnefndu fréttaviðtali.
Menn skyldu minnast þess, að
það, sem þeir leggja af mörkum
fyrir aðra i þessu skyni nú, getur
komið þeim sjálfum til góða
siðar.
— Framlögum er veitt móttaka
I Bókaverslun ísafoldar Austur-
stræti 10, og Bókaverslun
Snæbjarnar, Hafnarstræti 4. Geta
má þess, að framlög til sjóðsins
eru nú frádráttarbær til skatts,
enda sé framvisað kvittun fyrir
framlaginu.
Carneio sýnir i
gallerý
Suðurgötu 7
t dag klukkan 20.00 opnar i
Galleri Suðurgötu 7 sýning á
verkum portúgalans Alberto
Carneiro. Hann er fæddur 1937 og
hefur unnið mikið af verkum
sinum úr náttúrunni. Þar styðst
hann við minningar frá æskuár-
um sinum en hann bjó lengi vel i
nánum tengslum við náttúruna
þvi faðir hans er vinyrkjubóndi
þar i landi. Á sýningunni i Galleri
Suðurgötu 7 eru nokkur verk úr
stórri seriu sem Carneiro nefnir
Body,Art/Art Body. Carneiro
hefur haldið fjölda einkasýninga
viðs vegar um jorðina og hann
var m.a. fulltrúi Portúgals á
Feneyjar Biennale 1976. Sýningin
er opin daglega frá kl. 16 til 22 og
lýkur 27. ágúst.
KR
Framhald af 11 siðu
leika af skynsemi á hverju sem
gekk. Kýlingar út i loftið eru
horfnar úr þeim herbúðum sem
betur fer.
Eins og áður sagði skópu
hraðaupphlaupin bæði mörk KR.
Þeir eru snöggir þegar i sóknina
er komið og nokkrum sinnum brá'
fyrir skemmtilegum sóknarrisp-
um. Það eru mörkin sem gilda og
KR-ingarnir léku stift til sigurs og
þeim tókst ætlunarverk sitt.
IngH
Shagari
Framhald af bls. 2
Hinir þrir frambjóðendurnir
hluta talsvert minna fylgi.
Shagari var náinn samstarfs-
maður siðasta kjörna þjóðarleið-
toga landsins, Abubakars, sem lét
lifið við valdatöku herforingja
1966. Hann dró sig i hlé um tim
þar til Gowon herforingi gerði
hann að fjármálaráðherra i
stjórn sinni 1972-75.
Fréttaritari Dagens Nyheter I
Lagos segirað Shagari sé fremur
litlaus stjórnmálamaður en hæfur
skipuleggjandi og búi að öflugri
flokksvél. Umfram aðra fram-
bjóðendur kvaðst hann mundu
beita sér fyrir frjálsum markaðs-
öflum og innflutningi erlends
fjármagns. í utanrikismálum er
hann hins vegar mjög harðorður i
afstöðunni til stjórna
Suður—Afriku og Zim-
babwe/Ródesiu.
Aflabrögð Framhald af 12 siðu
Þingeyri .... 650 485
Flateyri .... 575 530
Suðureyri .... 810 614
Bolungarvik .... 1082 846
ísafjörður .... 1870 2163
Súðavik .... 392 403
Hólmavik .... 107 250
Alls 6666 6356
Frá 12. mai .... 2512 3028
Skelfisks- Dg rækjuveiöar Alls 9178 9384
Þröstur frá Bildudal aflaði 57,8 lesta af hörpudiski I 15 róðrum,
sem fór til vinnslu á Bildudal.
Fjórir bátar stunduðu veiðar á úthafsrækju og öfluðu 76,5 lesta í Súðavik lönduðu Sigrún 30,3 lestum og Valur 20,4 lestum en á Isa-
firði Guðný 19,0 lestum og Hamraborg 6,8 lestum
-mhg
Fóstrur
Fóstru vantar að leikskólanum i Hvera-
gerði frá 1. september. Einnig vantar að-
stoðarfólk. Upplýsingar i sima 99-4139.
Leikskólinn
Síðtún
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 10-
3. Hljómsveitin Pónik leikur.
Diskótek.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
10-03. Hljómsveitin Pónik
leikur. Diskótek.
Grilibarinn opinn.
Bingó laugardag kl. 15 og
þriðjudag kl. 20.30.
Hótel
Simi 11440 Borg
FÖSTUDAGUR: Dansaö til
kl. 03. Diskótekið Disa.
Partýstem mning siðasta
hálftimann.
LAUG ARDAGUR: Dansað
til ki. 03. Diskótekið Disa.
Partýstemmning siðasta
hálftimann.
SUNNUDAGUR: Dansað til
kl. 01. Gömludansáhljóm-
sveit Jóns Sigurðssonar og
söngkonan Mattý blása lifi i
mannskapinn.
Matur framreiddur öll kvöld
vikunnar frá kl. 18.
FIMMTUDAGUR: Rokkó-
: tek til kl. 01.
Simi 86220
FÖSTUDAGUR: Opiö kl. 19-
03. Hljómsveitin Glæsir og i
Diskótekið Disa.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
19-03. Hljómsveitin Glæsir og |
Diskótekið Disa.
SUNNUDAGUR: Opið kl. 19- ]
01. Hljómsveitin Glæsir.
| iÁjúbburinn
Borgartúni 32
Simi 35355.
FÖSTUÐAGUR: Opið kl.
j 9-03. Hljómsveitirnar Hafrót ■
og Góögá leika. Diskótek.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
9-03. Hljómsveitirnar Hafrót |
og Góðgá ieika. Diskótek.
SUNNUDAGUR: Lokað.
HÓTEL
LQFTLEIÐIR
Simi 22322
BLÓMASALUR: Opið alla
daga vikunnar kl. 12-14.30 og
19-22.30.
VÍNLANDSBAR: Opið alla
daga vikunnar, 19-23.30,
nema um heigar, en þá er
opið til kl. 01. Opiö i hádeginu ;
kl. 12-14.30 á laugardögum og
sunnudögum.
VEITINGABUÐIN: Opið
alla daga vikunnar kl. 05.00-
20.00.
Ingóliscafé
Alþýðuhúsinu —
simi 12826.
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 21-
01. Gömlu dansarnir.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
9-2. Gömlu dansarnir.
MUNIÐ....
að áfengi og
akstur eiga ekki
saman
Skálafell sími 82200)
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 19-
01. Organleikur.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
12-14.30 og 19-02. Organleik-
ur.
SUNNUDAGUR: Opið kl. 12-
14.30.
og kl. 19-01. Organleikur.
Tiskusýning alla fimmtu-;
daga.
List
Framhald af bls. 5.
vindkrafti sem sagður er standa á
bak við þessa listsköpun er hitt þó
vist, að möguleikar brauðdeigs-
ins eru talsverðir, og margar
myndanna stórskemmtilegar.
Þessi sýning verður liklega sú
siðasta sem haldin verður á A
næstu grösum. Það er ergilegt en
satt, að staðurinn er kominn á
hausinn. Reksturinn gekk bæri-
lega i vetur, en i sumar hefur allt
gengið á afturfótunum, og út-
skýra eigendurnir það með þvi að
Reykvikingar nenni ekki að labba
upp á þriðju hæð til að fá sér i
svanginn, jafnvel þótt þar séu á
boðstólum góðar og ódýrar veit-
ingar. _ ih
Nota
Framhald af bls. 16
ur oliu, þareð steinsteypan
kann að skaðast við síendur-
tekna ofhitun við æfingarnar.
Þá má geta þess, að Suður-
nesjatiðindi greindu frá þvi
fyrir skömmu, að þau hefðu
fengið nafnlausa upphring-
ingu af Vellinum, þarsem
staðhæftvar að talsvert magn
af olíu hafi farið niðuri jörð við
æfingar slökkviliðsins.
Um það bil kilómetra frá
oliuþrónni eru vatnsból fyrir
svo kallaða Eyjabyggð, sem
var reist fyrir Vestmannaey-
inga sem fluttu til Keflavikur i
gosinu. Um tvo kildmetra frá
æfingasvæðinu eru svo aðal-
vatnsból Keflvikinga. Svæðið
sem slökkvilið Keflavikur-
flugvallar notar fyrir oliu-
sprautun sina virðist þvi áð
öllu leyti mjög óheppilega val-
ið, ef litið er til möguleikanna
á mengun grunnvatnsins.
-ÖS
Kúrdar
Framhald af bls. 2
þvi að Kúrdar hefðu tekið borgina
Paveh I vesturhluta landsins
skammt frá landamærunum við
Irak. 2000 liðsmenn Kúrda munu
hafa tekið borgina eftir skotbar-
daga, sem stóð i einn og hálfan
sólarhring.
Stjórnarher Iran lagði til atlögu
við Kúrda um miðjan júli en hefur
litið sem ekkert orðið ágengt.
Kúrdar i Iran eru 3,6 miljónir og
ráða þeir sinum héruðum að
mestu sjálfir. Bardagar brutust
út viðborgina Paveh þegar írans-
stjórn sendi þangað byltingar-
varðmenn i þyrlum, en Kúrdar
munu ráða öllum vegum að borg-
inni. Gerðu Kúrdar þá árás á
borgina og létu fjórir lifið að sögn
þeirra áður en tókst að afvopna
byltingarvarðmennina.
1 stjórnlagaþingskosningunum
á dögunum voru kærleikar með
vinstrimönnum og Kúrdum, enda
styðja vinstriöflin sjálfstjórnar-
kröfu Kúrda.
_ _ &
SKIPAUTGtRÐ RIKISINS
M.S. ESIA
fer frá Reykjavik miðviku-
daginn 22. p.m. til tsafjarðar
°g tekur vörur á eftirtaldar
hafnir: tsafjörð, Bolungarvik
(Súgandafjörð og Flateyri um
tsafjörð), Þingeyri, Patreks-
fjörð (Biidudal og Tálknafjörð
um Patreksfjörö).
Vörumóttaka alla virka daga
til 21. þ.m.
SKIPAUTGtRÐ RIKISINS
M.S. Coster
Emmy
fer frá Reykjavik föstudaginn
24. þ.m. austur um land til
Vopnafjarðar og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: Vest-
mannaeyjar, Hornafjörð,
Djúpavog, Breiðdalsvik,
Stöðvarfjörð, Fáskrúðsfjörð,
Reyðarfjörð, Eskifjörð, Nes-
kaupstað, Seyðisfjörð
(Borgarfjörð) og Vopnafjörö.
Vörumóttaka alla virka daga
til 23. þ.m.