Þjóðviljinn - 02.09.1979, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 02.09.1979, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. september 1979. Sœtkenndar óravíddir háloftanna Ég skundaði hröðum skrefum i gegnum sýningarsvæði alþjóð- legu vörusýningarinnar i Laugar- dalshöll. A báða vegu blöstu við yndisfögur auglýsingabros sem komu köldu vatni milli skinns og hörunds. Úti var ævintýralega milt laugardagskvöld og ég var að koma af Esjubergi ásamt minni heittelskuðu eftir að hafa torgað mjúkum kjúklingi með góðri sósu út á og fersku grænmeti og rennt þessu öllu niður með volgu rauð- víni. Skapiö var þvi i besta lagi og ég flýtti mér eins og ég gat i gegn- um sýningarhöllina til að spilla nú engu. Erindið var að taka sér far til Nýju Jórvíkur um borð i nýjasta islenska flugfarkostinum, stóru kúlulaga tjaldi fyrir utan höllina. í hálfrökkvuðu siðsumarhúm- inu biðu væntanlegir farþegar þess að vera hleypt um borð og þarna rikti létt stemning og gamansamur hálfkæringur eins og oft vill verða þegar kveldúlfur er á næstu grösum. Einhver var með flösku á sér og lét hana ganga. Fréttastríð viröist hafa brotist út milli Vis- is og Þjóðviljans. Sá meinlegi dálkahöfundur öngull benti um daginn á tvær fréttir sem Visir heföi beinlinis stoliö úr blaði hans Þjóðviljanum: t fyrsta lagi frétt- in um 57 miljón króna áhafnar- laun sem rikissjóöur greiddi skipsverjum Hafnþórs og i öðru Það gleður mig... ... að ríkisstjórnin skuli alla vega vera orðin eins árs. Svo kom Tóta Sig flugfreyja i skörina á fjólubláum nærklæðum einum fata og bauð farþegum að ganga inn. Lét enginn segja sér það tvisvar og þarna geystust „týpiskir” islenskir flugfarþegar inn með sköllum og rassaköstum. Hófst nú hin herlegasta flugferð. Þotan var sett i gang, gestir boðnir velkomnir með málm- kenndum drafanda og flugstjór- inn mælti nokkur róandi orð til farþeganna. íturvaxnar flug- freyjurnar hlupu meðfram sætun- um og köstuðu glösum og teppum framan i farþega með söng og glens og gamni. Alls konar kynja- hljóð heyrðust. Þetta var ógurlega gaman og spennandi og smám saman leið maður inn i sætkenndar óraviddir háloftanna. Mig dauðlangaði til að klípa i rassinn á einhverri flug- freyjunni en stillti mig af þvi að konan min sat við hliðina á mér. Fremst i vélinni sátu þrir góð- glaðir: leikstjóri,blaðamaður og leikritaskáld. I næstu röð kom ég og galgopalegt skáld fyrir aftan og á skakk þar aftan við sat gagn- rýnandi nokkur sem hvorki datt né draup af. Nú fóru flugfreyjurnar að tala lagi frétt um sama skip, sem ekk- ert væri unnið við, meöan beðiö væri eftir tillögum verkfræði- og raunvísindadeildar Háskólans. Sæmundur Guðvinsson Sand- kornsritstjóri i Visi brást illur við og tók upphanskann fyrir blaö sitt og benti á aö Þjóðviljinn hafi stoliB frétt úr Visium Fiskiðjuna i Njarövik sem ekki fengi fram- lengtstarfsleyfi. En að sjálfsögðu varaði Sæmundur sig ekki á þvi að á baksiðu Visis þennan dag var frétt um að framkvæmdir væru hafnar við húsgrunn Fram- kvæmdastofnunarinnar. Þessi frétt birtist daginn áður i Þjóð- viljanum... Skráargatið stingur upp á þvi, að þar sem verkföll og samdrátt- ur I dagblaðaheiminum virðist yfirvofandi væri sennilega mest hagræði I þvi, að fækka á ritstjórn Vísis og Þjóðviljans til helminga og slðan gætu þeir sem eftir sætu skipst á fréttum.... r Omar Ragnarsson kom brunandi upp á blað 1 vikunni á nýja Renault 5 Alpine-bilnum slnum og fleygöi eftirfarandi yfirlýsingu á borð ritstjóra Skráargatsins, en I síð- asta blaði var þvi haldið fram, að Renault-umboöið hefði gefið Ómari nýja rallýbilinn: „Leyfist mér að upplýsa eftir- farandi, oggeta blaðamenn Þjóö- viljans kynnt sér gögn málsins nánar hjá aðilum þess, ef þeir óska: I vor seldi ég tveggja ára gaml- an fjölskyldubil af gerðinni Simca 1508 S og keypti i staðinn bil af gerðinni Renault 5 Alpine. Bróðir minn keypti á hliðstæð- an hátt sams konar bH, sem viö kepptum á I ralli á dögunum. Astæða: senn er liöin tlð, að hægt sé að vænta topp-árangurs i ralli á bilum, án aukabúnaðar, sem verksmiöjurnar tramleiða til að auka kraft og styrkja bila til rall-keppni. Slíkur búnaður er ekki framleiddur fyrir Simca 1100 en hins vegar fyrir Renault 5. Með framtiðina I huga var Simcan þvi kvödd með söknuöi og Renaultinum fagnað.” Ómar Ragnarsson Þá vitum við það. við farþegana og við reyndum náttúrlega að halda uppi samræð- um. Ég bað um koniak af þvi að ég sagðist vera flugveikur en þá svaraði hún i kross og spurði hvort ég væri skyldur einhverj- um. Ég sagðist vera þremenning- ur við hann og þá sló hún I aðra sálma og fór að tala um eitthvað allt annað. Eins fór fyrir hinum sem reyndu að ræða við þessar þröngklæddu geimskvisur. Út yfir tók þó þegar ein þeirra ásakaði gagnrýnandann — gjör- samlega án tilefnis — fyrir að hafa klipið sig i lærið og marg- endurtók það að öllum áheyrandi og hótaði m.a.s. að sækja kaftein- inn. Tveimur dögum slðar las ég hroðalegan leikdóm eftir þennan gagnrýnanda i einhverju blaðinu. Þannig voru samskipti áhafnar og farþega vægast sagt út i hött og ekki eins og búast hefði mátt við undir venjulegum kringum- stæðum. Leikstjórinn á fremsta bekk varð t.d. skyndilega ofurölvi og lak niður á gólf og i stað þess að hjálpa honum upp var hann að gjöra svo vel — eftir langa mæðu — aö drösla sér upp sjálfur. Þó að flugfreyjurnar sæju þetta vel létu þær sem ekkert væri og hefði hann þess vegna getað dáið úr kulda á gólfinu. Út yfir tók þó þegar raddir tóku að heyrast aö utan. T.d.: „Hvaöa helvltis hávaði er þetta úr tjald- inu?” og fleira i þeim dúr. Hvort átti maður þá heldur að halda að þar væru sovéskir geimfarar ellegar vængjaðir englar? En þrátt fyrir þessa vankanta voru flugfreyjurnar ósköp sætar og sexý og flugstjórinn fjall- myndarlegur og við fórum öll með þakklæti út úr vélinni þegar hreyflarnir þögnuðu og þökkuð- um guði eins og venjulega fyrir að hafa ekki farist á leiðinni. Svo hlupum við fram hjá diskó diskó 1 Höllinni og gáfum okkur ágústnóttinni heilshugar á hönd. Guðjón Benedikt Ómar ásamt bfl og þremur börnum af sjö. Gröndal hélt fund með erlend- um blaðamönnum fyrr I vikunni. Aö sjálfsögöu var islensku press- unniekki boðið ogvar þaðeflaust til þess að Benedikt talaöi frjáls- legar en ella. Eftirfarandi klausa birtist i norska Dagbladet og segir ef til vill sina sögu „Það er alkunna að ólafur Ragnar Grimsson hefur verið skorinorður i tali og staðhæft að Island krefj- ist grásvæðis og réttar til helmingaskipta fiskstofna og haf- grunns við Jan Mayen, ef Noreg- ur fái rétt á hinum helmingnum. Grímsson er álitinnganga langt og Gröndal neitaöi þessum staö- hæfingum með þessum orðum: „Grimsson segir svo mikið. Og hann og ég erum aldrei sammála um neitt.” Ónefndur þingmaður var nýlega á ferð um kjördæmi sitt fyrir norðan. Kom hann viða á bæi og tók bændur tali um allt milli himins og jarðar. Þegar yfirreiðinni lauk þótti hon- um tvennt athyglisvert. I fyrsta lagi kalla bændur hið nyrðra harðindavorið mikla I ár, sem nær hefur gengið af landbúnaðin- um dauðum Steingrlmsvor. 1 ööru lagi voru honum minnisstæð orð bónda er varð á leið hans vestar i kjördæminu, en talið hafði borist að reynslunni af fyrsta ári Steingrims sem land- búnaðarráðherra. Þau voru á þessa leiö: „Ég heföi nú aldrei trúað þvi aö ég óskaði mér Gylfa sem landbúnaöarráðherra.” Benedikt: mikið. Grimsson segir svo Steingrímur. Reynslan af land- búnaðarráöherra aö koma I ljds fyrir norðan. Nýjustu fréttir úr leikhúsheiminum herma, að Vigdis Finnbogadóttir sé ákveðin að hætta næsta vor. Að sjálfsögöu velta menn nú mikið fyrir sér hver hljóti leikhússtjóra- starfið I Iðnó. Margir hafa verið nefndir, bæði innan leikhússins og utan. Ein skærasta stjarnan i starfið þessa stundina er Maria Kristjánsdóttir leikstjóri...

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.