Þjóðviljinn - 02.09.1979, Page 6

Þjóðviljinn - 02.09.1979, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. september 1979. Guðmundur Olafsson menntaskólakennari Fordómafullt bréf frá menntamanni til Guðmundar J. Kæri félagi. Mikið hafði ég gaman af til- skrifi þinu um brennivin og nafla- skoðun á dögunum og þá ekki síð- ur eftirköstunum. Best þótti mér, að það skyldu vera til ekki ó- merkari menn en þú, sem væru jafn hryllilega fordómafullir og ég sjálfur. Mér datt þvi i hug, að e.t.v. væri fyllsta þörf á þvi að auka viö safn „fágætra sýnis- horna um borgaralega fordóma”. Um þessa sameiginlegu fordóma okkar langar mig til að fjalla litil- lega, en þeir eru: notkun orðanna kynlifssiða, kynvilla, vinnudýrk- un, menntamannafæð og skortur á félagslegum skilningi á áfengis- böiinu. Um orðið kynlífssíða Lengi hefur mér fundist jafnréttissiöa Þjóðviljans hræra saman líffræðilegum staðreynd- um og félagslegum vandamálum i einn óskiljanlegan hrærigraut. Oft er illimögulegt að sjá, hvort verið er að ræða þá þætti I sambúð kynjanna, sem eru lif- fræðilega skilyrtir og erfitt er að breyta, eða þá sem eru háðir fé- lagslegu ástandi og ætti að vera mun auðveldara að eiga við. Þaö er eins og jafnréttisslöan hafi jafnvel engan áhuga á þvi að gera þarna nokkurn mun. Sömuleiðis tel ég, aö Soffia Guðmundsdóttir hafi mikið til sins máls, þegar hún skrifar i Þjóðviljann 16. júnl s.l.: „Þess I stað er klifað á þvi, að ekki sé til neins og engu breyti það, þótt ein og ein kona slæðist inn á sviö áhrifa og valds t.d. i stjórnmálum. Það þurfi að breyta þjóðfélaginu, sem vissu- lega er satt og rétt, en helst á einu bretti. Kynferðismálunum er skipað I fyrirrúm, og kvennakórinn rauður syngur um sexið. A meðan ráða karl- mennirnir þjóðfélaginu.” Hér má þvi við bæta, sem ein- um vina minna varð að orði, þegar þessi mál bar á góma: „Það er engu likara en þær haldi að afbrýðisemin hverfi um leiö og einkaeignarréttur á fram- leiðslutækjum er afnuminn.” Þó tekur nú steininn úr, þegar maður fær þær fréttir I málgagn- inu, að liklega hafi maður stund- að kynlif sitt á rangan hátt frá upphafi vegna þess að maður „skilur ekki muninn á sáðláti og fullnægingu” og aö ekki dugi minna en að taka góða rispu i kynlifsumræðuhópi áöur en mað- ur krýpur að sinni heittelskuðu. Já, það er vandlifað, lagsmaður. Gott ef kynlifið er ekki orðið svo löðrandi Ikapitaliskri spillingu og kratisma, að maður sé nauð- beygöur til þess að hætta þvi lika — eins og vinnunni. Mér þykir þvi vel til fundið hjá þér að tala um kynlifssiðu. Fyrir þá oröanotkun ert þú sakaöur um að vilja viðhalda þögn um kynllfið og þvi dróttað að þér, að þú viljir „eftirláta Samúel og fræðslu- starfsemi bak við öskutunnur um að upplýsa unglinga og aöra um kynlif”. Mér er til efs, að nokkur hafi hugmyndaflug I slikar rang- færslur nema sá, sem hefur höf- uöið einlægt niöri I brókunum. Um orðið kynvilla Þá ert þú bendlaður við ótrú- legasta mannhatur vegna þess eins að nota Islensku. Orðið kyn- villa er aö sönnu villandi, en engu að slður eina islenska oröið sem skilst. Varla er hægt að ætlast til þess, að fólk sem ekki er lang- skólagengið noti orðið „sprog- skadet” vegna þess að orðið „hljóðvilltur” sé niðrandi. Já, félagi, menntamannahrokinn getur stundum oröið fáránlegur. Þegar þeir gefast upp við að smiða heppilegt islenskt orö og nota útlenskuna hráa, þá er nú lágmark, að við sem kunnum lltið annað en þetta gegnborgaralega og kynlifsbælda mál — islenskuna — fáum að vera i friöi, þótt við snúum ekki fordómum okkar á önnur mál. Um vinnudýrkun Ég er margfaldlega sammála þér, þegar þú álítur að félagi Olfar Þormóðsson sé ekki nafla- skoðari og þess vegna svaraverð- ur. Það starf, sem hann hefur á sig lagt fyrir sameiginlegan mál- ' stað okkar, er ómetanlegt. Það er einnig andstæða þess að leggjast með ræfildóm upp á danskan og/eða islenskan verkalýð, haf- andi fengið uppáskrift hjá dálka- fyllum Þjóðviljans um að slikt megi sósialistar ekki fordæma. Ég trúi þvi varla eigin augum, þegar þetta tilefni er notaö til þess að ljúga þvi upp, að þú sért heillaður af vinnudýrkun. Ég gef mér ekki tima til þess núna að raða upp tilvitnunum i Karl gamla Marx um vinnuna, þann fordómafulla „orðarúnkara”, en minni einfaldlega á þá skoðun hans og fleiri, að öll verðmæti skapist með tilkomu vinnunnar og að sitt hvað er vinnan sjálf og herfjötur kapitalismans um vinn- una. í þessu máli er ég svo fordóma- fullur, aö ég fyrirlit þann lýð sem flykkist til Danmerkur gagngert til þess að misnota þar fátækra- styrk og atvinnuleysisbætur, glamrandi með einhvern sósialisma sem hann hefur aldrei nennt að kynna sér. t þessu sambandi veröur mér hugsaö til þeirra fjölmörgu, sem hrakist hafa af landinu I atvinnu- leysi eða af öörum ástæðum og eiga e.t.v. ekki allt of gott með að fá vinnu erlendis nú. Fólkinu er tæplega þökk i þvl aö vandamál þess, sem kapitalisminn skapar, séu höfð að spotti af þvi dóti, sem er atvinnulaust af hugsjón — hin- um vinnufælnu. Um fæð á menntamönnum Ég sé aö þú ert um þessar mundir sakaöur um fæð á róttæk- um menntamönnum, og hún jafn- vel talin alkunn. Þar skaust þú mér ref fyrir rass, þvl þessu hef ég ekki tekið eftir hjá þér. En ef þarna er átt við „stofu- kommúnista með einkarétt á rótttækni” þá er ég þér enn hjartanlega sammáia. Þetta fólk er tæplega svaravert og aldrei er hægt að reiða sig á það, síst af öllu á kjördag, þótt það hafi geð i sér til að birta ritsmiðar sinar I blaöi sem við og félagar okkar gefum út og kostum.Þessir menn hafa það fyrir plagsið og venju að senda frá sér einskonar verkefna- skrár handa okkur um það hvaö við ættum að gera og hvað ekki — fyrir nú utan allt þaö sem við átt- um ekki að gera —, en koma hins vegar aldrei nálægt neinu starfi að öðru leyti, þvi við og okkar flokkur er of kratlskur og spilltur af borgaralegum fordómum, hentistefnu og stéttasamvinnu fyrir þeirra tandurhreinu róttæku sál. Sumir segja, að skrif þeirra þjóni þeim eina tilgangi að rétt- læta fyrir sjálfum sér og öðrum, að þeir geri aldrei neitt. Nýjasta lykilorð þeirra er „forræðis- hyggja”, sem við erum einhverra híuta vegna sakaðir um. Þeir vilja hins vegar samtimis, að Alþýðubandalagið og verkalýðs- hreyfingin sýni annars konar for- ræði — „róttækt” forræði. Ot- koman er að sjálfsögðu endileysa, sem ég nenni ekki að taka mark á. Þó er nú broslegast, þegar þetta fólk fer að hæla sér af her- stöðvabaráttunni, umbótum i skólamálum og fleiru, sem annað hvort hefur verið borið uppi af okkar félögum eða er prump. Sömuleiðis langar mig til að votta það, félagi Guðmundur, að félagslif i verkalýðshreyfingunni er að minu mati mun lýðræðis- legra og öflugra viðast hvar æn félagslif róttækrar námsmanna- hreyfingar. Um skort á félagslegum skilningi á áfengisbölinu Ein af algengari tilraunum drykkjusjúklinga til þess að rétt- læta sjúklega drykkju sina er að halda þvi fram, að þeir drekki vegna þess hve þjóðfélagsástand- ið sé vont. Kapitalisminn sé svo djöfullegur, að útilokað sé að af- bera hann ófullur og eina „lausn” málsins sé að biða eftir breyttum framleiösluháttum — þ.e. bylt- ingunni. Augljóst er, aö drykkju- sjúklingur,sem fær að vera i friði með slika firru, hættir ekki. Það er einmitt helsti styrkur SAA aö lita á áfengið sjálft sem sjúk- dómsvald og með útilokun þess næst sá góði árangur, sem stofn- anir á vegum rikisins og SÁA eru farnar að ná. Hitt er svo annað mál hvers vegna og hvernig þessi sjúkdómsvaldur nær þvilikum heljartökum á mörgum sam- félögum. Fræðsla og upplýsingar um þessi mál eru enn á mjög lágu stigi og þess vegna er ekki hægt að ætlast til þess að fólk hafi al- mennt haft tök á aö kynnast þess- um málum af skynsamlegu viti. Þvl vil ég biðja þig þess lengstra orða aö halda I þann fordóm, aö áfengið sjálft sé forsenda drykkjusýki. Þeir sem ekki gera þaö hafa lent út I að telja kók borgaralegt en heimabrugg „heilbrigða lífsnautn”, eða áfengi forsendu frelsunar konunnar, svo nýleg dæmi séu tekin hér úr blaö- inu. Um alllangt skeið hef ég átt þess kost aö fylgjast með þvi hvernig hin ýmsu verkalýðsfélög bregðast við þegar óskaö er eftir sjúkradagpeningum vegna félaga þeirra, sem hafa leitað sér lækn- inga vegna drykkjusýki. 1 þessum efnum ber Verkamannafélagið Dagsbfún af öðrum. Þvi er og viö brugðið, að ef vafi leikur á bóta- rétti leysir varaformaöur félags- ins jafnan úr þeim vanda sjúk- lingnum i hag ef kostur er. Þá er ekki spurt um flokkssklrteini eða kynhegöan, þótt mannvitsbrekk- urnar kalli það „mæröarleg um- hyggja Guðmundar fyrir manns- lifum og mannlegri hamingju”, „yfirdrepskap og óheilindi”. Sllk- ir menn eru vissulega ekki svara- verðir. Að slðustu vildi ég óska, að þú hefðir jafnmikla fordóma gagn- vart bönkum og sparisjóðum og við úlfar. Það mætti kannski spyrja hvort I ráöi sé að SAA setji á stofn feröaskrifstofu og út- gerðarfyrirtæki, eða hvar eru takmörkin? Þinn félagi, Guötnundur ólafsson, róttækur menntamaður. ^SSSSHSSS* IE™ helgina “r„"> I veikindu Mér finnst út i hött að gera flokksforystuna eða hluta hennar ábyrga fyrir þessu ObjOrgulega ástand. Flokkurinn sem heild hefur nú hvork. hugmyndaflug né skólun til þess aö starfa ööruvisi en ""r,r raOum iij ö,,um »0 bSrSAom* EVS.?"™. MiÆ- Pressan eftirsrnrfikheíur blaöa- 1 Nore*, varðanrf Jrr.a ,slands IÓDVILJINN — StPA 7 Alþýðubandalagið og þingræðið é dagskré Og þá erum vift aftur komin að spurningunni: hvernig stendur á þvl að söslalisUr eru aftur o9 aftur að gera sér vonir um *■' Hresslleg dagskrárgreiD Oskars Gu6mutiJ»‘"-'_ bi6 tortáU * -^lkllp- Óáncegja web flokkinn ur og rakti þa& ejtir borg ' “*?., ssssS&ssvasff.l Ljósið sem hvarf eflaUSt ótal margra, íkki ' afsakar Þaft ekki geröir hans aÁ notá rifBvald S1„ tll aft hamra á borgaralegum fordómum I málgagni verhalýftshreyfingar og sóslalisma. °o«u™Vé»k' Fordómar Guðmundar J. Ggtawto J Guðmundsson ingjusama fólki. sem þarf afi ,ran>l*rslu af borgar- yfirvöldum. segir h.nn melin- orsokina vera dfengisneyslu og hreinan a kóhólisma Hann leiL 2f?nVÆ engr- •^ákyfingum á en 1 hrenniviniö er v*8ast saK* yfir- Skyrin« Sérhver sóslalisti veit að menn eru ekki si,mfJig*ÍU,Sm'ft'r 1 auövalds- samfélaei. Þ » r Þú veröur aö Ifta vföara á þessa hluti/ úlfar. Þú veröur aö vera heill i þvi aö bjarga mannslifum og mannlegri hamingju, en ekki kanna fyrst i hvaöa flokki eöa stétt maöurinn er I sem hjálpar þarfnast. Slikt hugarfar er yfirdrepsskapur og óheilindi. Brennivín og naflaskoðun •BllllCidVI. p, m .... 4,., .. Flmmtudagar U. ágóst It7t >JÓPVILJINN — 8IDA dagskré Keri tllfar Þormóftsson! . StúU„rn„r vnru Eg hef afteins sagt hér laus- lega af starfl samtakanna, en verkefnín eru fjallhá og pen- ingar litllr. Að nlu þúsund manna samtttk stofni sparisjóft virftist nú ekki vera stór hlutur Sparisjófturinn kemur vissu- lega til meft aft reka almennan pcningamarkaft og ég hef trú á

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.